Morgunblaðið - 21.08.1993, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 21.08.1993, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 C 3 Daniel Magnússon sýnir I austursal Kjarvalsstada HUGSANAVEÐRUN og vinurinn gleymska Morgunblaðið/Kristinn VEÐRAÐAR hugsanir Daníels Magnússonar myndlistarmanns hanga nú í austursal Kjarvals- staða. Hann segist vera svo mik- ið fyrir hugsanaveðrun þótt hann sé gleyminn. „Eg man kannski atburð en ekki liti, fólk eða tíma. Hugsun er ekki orð heldur mynd og ég dekra við hana þar til hún verður algild og einvöld. Þá get ég sagt, sjáðu, svona er Angur- værð hversdagsleikans. Ég vil Rolls og ekki neitt næstum því.“ Angurværð Daníels er eins og fleiri myndir á sýningunni sam- sett úr teikningu og hlutum, „þetta eru ensk veggfóðrara- skæri hérna við þessar snúrur og mjög sjaldgæf nálabox sem ég fann í London. Þú skilur að þetta verður að vera einmitt svona.“ Þegar hann sviptir burt skærunum liggur það svosem í augum uppi, kristaltært og án málalenginga. Þannig vill hann hafa það. Myndirnar heita allar eitthvað og það skiptir miklu máli. Daníel segist vera sagnamaður og meina eitthvað með mynd. En hvað gerist eftir nokkur ár, veðrast ekki hugsunin áfram og skilur myndina eftir uppá vegg? „Það getur vel gerst og þetta er einmitt svo flott við myndlistina," svarar Daníel. „Hún hefur enga þýðingu og drepur sig kannski eftir stuttan tíma. Síðan hlaðast upp setlög og nýtt efni verð- ur til, myndir verða miklu fyrr að steingervingum en menn.“ En þær geta samt verið dýrmætar hugsa ég og Daníel segir að það sjáist í augunum á fólki hvort það virkilega vilji mynd. „Sá sem stendur og star- ir inn í hana hefur fyrsta og mesta rétt á að fá. Ég vil frekar að svona lítil bæn, því ég er í bænarelli, hangi hjá fólki sem hún snertir heldur en pabbadrengjum sem halda að gott sé að fjárfesta í mér.“ Daníel virðist fráleitt pirraður svona almennt, en gefur skít í allt tal um heim listamannsins. „Ég lifi bara í nákvæmlega sama heimi og allir hinir. Hversdagsleikinn getur verið svo hversdagslegur að ekkert heldur í mann. Þá þarf maður ekki lengur að vera leikfang hans og ræður algjörlega hvernig manni líð- ur. Ég er alls ekki alltaf að gera myndir og skil ekki kollega sem segja að myndlistin eigi þá alla.“ Hann stendur teprulegur á miðju gólfi og leikur listamann sem hang- ir öllum stundum á vinnustofunni sinni. „List verður ekki til af yfirburð- um heldur skorti. Og til að losna undan fargi. Mér finnst spennandi að búa til myndir og vil sækja mér nýtt vatn í brunn öðru hvoru. En misskildu mig ekki, ég get ekki verið eins og Ameríkanar segja, brand new. Ég er lengi með hverja mynd og miklu frekar sigin skata en glæný ýsa.“ Þó kveðst Daníel vera með fá- dæmum gleyminn. „En gleymskan er vinur minn og ég styðst við hana í myndlistinni. Hún stjórnar mér líka, þú sérð að ég nota fáa liti. Svo er ég algjör dekrari og vinn með spinnegal geómetríu að hætti Viktors B. Stolansk." Sá prússneski aðalsmaður er ættaður úr hugskoti Daníels eins og myndlistarhugtakið hugsanaveðrun. Þar þjappast líka kenndir og hugsanir saman í mynd- ir: „Neurotísk form og hluti sem akkúrat tilheyra þeim. Og fyndnar myndir eins og Landslag eða Sam- tal um skipasmíði. Eða dularfullar eins og Leyndin," segir Daníel og sýnir mér ljósmyndir sem hann hef- ur tekið á gamla myndavél sem liggur innan um kassa og annað dót á gólfinu. Þær eru af vegg- lampa og undir þeim er teikning en til hvorrar hliðar hillur með lok- uðum glerkrukkum. Lampinn einn veit hvað gerst hefur. Annars eru ljósmyndir víðar á sýningunni. Af flæmskri sykur- vöfflu til dæmis sem Daníel stakk í vasa sinn á lestarferðalagi og uppgötvaði aftur þegar hann var kominn á hótelherbergi. Þær hanga yfir teikningu sem virðist á stöð- ugri hreyfingu og Daníel segir plat- ónska erkitýpu vöfflunnar. Þótt hann segist ofdekra mynd- irnar sínar segir hann slys ef hand- verkið sé slarkfært. „Mínir menn eru snillingar eins og Bólu-Hjálm- ar,“ segir hann svo, „útskurðurinn hans var ekkert slor.“ Renndur fleki Daníels minnir með lagni á skáldið, efniviðurinn er tré og orð, heitið sem fyrr hluti af verkinu: „Munun- um, “ segir Daníel hróðugur, „er lengsta orð í íslensku sem speglast. Mér fannst svo skemmtilegt að uppgötva þetta og sagði ábyggilega tuttugu þúsund sinnum mununum áður en ég útbjó þetta verk. Ann- ars eru flestar myndirnar mínar svona miðlægar, mér finnst það eiga vel við geómetríuna. Sjáðu til dæmis Ópið, þetta er tilvitnun í Munch að honum ólöstuð- um og Norðmönnum, þeim miklu skíðagörpum." Óp Daníels hefur ílanga miðju og litla ramma með hekluðum dúllum til hvorrar hliðar. Er semsagt miðlægt og með hvunn- dagslegum hlutum settum í hátíð- legt samhengi eftir höfði lista- mannsins. Allt kemur þetta heim og saman með dálítilli hugsanaveðr- un, meira að segja lógó eða tákn- mynd af rigningu sem Daníel hefur teiknað í mynd af landslagi. Fyrir utan gluggana á Kjarvals- stöðum er líka landslag, í póstkorta- litum bæði grænum og bláum. Það er hvorki búið að veðrast né komið í lógó. Daníel hefur ekki tekið sér skáldaleyfi um það, ekki enn. Þá myndi líka reyna á, því daginn sem við hittumst var bæði rigning og sól í einu. Dálítið af spennu eins og í myndunum inni í austursal. Þ.Þ. MENNING/ LISTIR í NÆSTU viru MYIMDLIST Kjarvalsstaðir: Norræni textflþríæringurinn til 15. ágúst. Verk Jóhannesar Kjarvals til hausts. Listasafn íslands: Verk úr eigu safnsins og Markúsar H. ívarssonar fram í sept. Norræna húsið: Hönnun Alvars Alto til 31. ágúst. Hafnarborg: Sigurlaugur Elíasson sýnir til 22. ágúst. Nýlistasafnið: Ralf Samens ásamt 10 ísl. myndlistarmönnum til 22. ágúst. Önnur hæð: Ludwig Gosewitz sýnir fram í september. Ásmundarsafn: Náttúran í list Ásgríms Sveinssonar. Safn Ásgríms Jónssonar: Sumarsýning Listsalurinn Portið: Ámi Rúnar Sverrisson sýnir til 15. ágúst. Gallerí Sævars Karls: Gréta ósk sýnir til 1. sept. Listhús Laugardal: Samsýning fram yfir miðjan ágúst. Hulduhóiar: Sumarsýning til 22. ágúst. Sólón ísiandus: Róska sýnir til 15. ágúst. Kringlan: Tolli sýnir til 31. ágúst. Gallerí Borg: Kjarvalssýning Gallerí einn einn: Didda H. Leaman til 19. ágúst. Hótel Örk: Sýning 22 myndhöggvara til 12. september. Slunkaríki/Ísafirði: Guðrún Guðmundsdóttir til 29. ágúst. TONLIST Laugardagur 14. ágúst. Camilla Söderberg á blokkflauta, Catherine Mackintosh á fiðlu, Laurence Dreyfus á víóla de gamba, Jonathan Manson á selló, Helga Ingólfsdóttir á sembal og Guðrún Óskarsdótt- ir á orgel leika í Skálholti kl. 15 og 17. Einn- ig fyrirlestur Laurence Dreyfus um fúgulist á barokktímanum kl. 14 og einsöngvarar. Sunnudagur 15. ágúst. Iain Quinn, organisti, leikur í Hallgrímskirlqu kl. 20.30. Camilla Söderberg á blokkflauta, Catherine Mackintosh á fiðlu, Laurence Dreyf- us á vfóla de gamba, Jonathan Manson á selló, Helga Ingólfsdóttir á sembal og Guðrún ósk- arsdóttir á orgel leika í Skálholti kl. 15 og við messu kl. 17. Þriðjudagur 17. ágúst Sigríður Jónsdóttir, mezzósópran, og Nína Margrét Grímsdóttir á píanó, leika f Lista- safni Siguijóns kl. 20.30. Miðvikudagur 18. ágúst Auður Hafsteinsdóttir, fiðluleikari, í Gerðu- bergi kl. 20.30. Fimmtudagur 19. ágúst Söngvaramir Björk Jónsdóttir, Ingunn Sturlu- dóttir, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Jóhanna Þór- hallsdóttir, Magnús Torfason, Sigríður Grön- dal, ásamt píanóleikurunum Vilhelmínu ólafs- dóttur og Kristni Emi Kristinsyni á tónleikum í sal FÍH, Rauðagerði 27. kl. 20.30. Fös. 20. til sun. 22. ágúst Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri með Ekidu Erlendsdóttur, Auði Hafsteinsdóttur, Berþóri Pálssyni, Bryndfsi Höllu Gylfadóttur, Steinunni Bimu Ragnarsdóttur og Zoltan Toth.; fós. kl. 21, lau. kl. 17 og sun. kl. 15. BOKMENNTIR Miðvikudagur 18. ágúst Sex ljóðskáld lesa upp úr verkum sínum í Hafnarborg, Hafnarfírði kl. 20.30. LEIKLIST Light Nights Sýningar Ferðaleikhússins Light Nights kl. 21. frá fím. til sun. til loka sumars. skipta svo miklu máli? „Listir eru miðdepill sköpunarinn- ar og sköpunin er miðdepill tilveru okkar. Líf án sköpunar er ekkert líf. Það er staðreynd sem erfitt er að koma á framfæri í Bretlandi í dag. Með því styðja vel við listsköp- ún, eins og mér finnst þið gera, er ljóst að þið eruð í góðu sambandi við ykkar raunveruleika. Þeir sem líta framhjá sköpunarhæfileikunum og sköpunarþörfínni sem býr með þjóðinni skortir raunveruleikatengsl. Ég hef fengið ótrúlegan stuðning og hvatningu hér á íslandi. Þeir sem eru í aðstöðu til að greiða götur lista- manna á hátíðir erlendis, eru stoltir af menningu þjóðarinnar. Ég verð þó að segja, að öllum öðrum ólöstuð- um, hefur Jakob Magnússon, menn- ingarfulltrúi ykkar í Lundúnum, ver- ið ómetanlegur. Fyrir honum er ekk- ert ómögulegt. Eg hef heyrt utan af mér að hér sé til fólk sem er gagnrýnið á stöðu hans og vinnu - en ég verð að segja ykkur eins og er, að hann gerir íslandi ekkert nema gott - eða eigið þið ekki orðatiltæki sem segir: „Islandi allt.“ Hann er þannig maður og þið ættuð að vera stolt af honum.“ Joe Allart segir ýmsa einstaklinga og stofnanir hafa lagt hönd á plóg- inn til að gera hlut Islendinga sem mestan á Listahátíðinni í Essex, en einnig munu Skotar taka þátt í há- tíðinni. Frá íslandi fer fjöldinn allur af listamönnum; myndlistarmenn, tónlistarmenn, rithöfundar og skáld og íslenskar kvikmyndir munu eiga sinn samastað á hátíðinni. Á sjálfri opnunarhátíðinni hefst sýning á verkum Jóns Axels og Sigurðar Örl- ygssonar. Tveimur dögum seinna verður Ragnhildur Gísladóttir með „tónleika,“ - það er að segja hún stýrir kvöldi með bumbuslætti og búkhljóðum og þrammi. Þær ís- lensku kvikmyndir sem sýndar verða, eru: Karlakórinn Hekla og stuttmyndir Ævintýri okkar tíma. Ungir rithöfundar koma fram á bók- menntakvöldi, 10. nóvember. Það eru þau Gyrðir Elíasson, Einar Már Guðmundsson, Bragi Ólafsson, Sig- fús Bjartmarsson og Elísabet Jökuls- dóttir. Hljómsveitin Mezzoforte kemur fram á tónleikum fimmtudag- inn 11. nóvember og hljómsveitin Islandica á laugardeginum 13. nóv- ember. Annar upplestur ungra skálda verður þriðjudaginn 16. nóv- ember og þá koma Sjón og Linda Vilhjálmsdóttir fram, auk þess sem Britten kvartettinn, ásamt Hafliða Hallgrímssyni leik'ur tónlist. Mið- vikudaginn 17. nóvember verður ljóðalestur og tónleikar, þar sem flutt verður tónlist eftir Hafliða Hallgrímsson og með honum verða Kolbeinn Bjarnason og Robert Bell. Ljóðskáld kvöldsins verður Matthías Johannessen. „Ég vil vekja athygli á því að við höfum lagt mikla áherslu á að fá unga listamenn frá íslandi til að taka þátt í hátíðinni,“ segir Joe All- ard. „Það er vegna þess að nú er svo dapurt yfir listalífí í Bretlandi og ungir listamenn eiga virkilega á brattann að sækja. Við viljum að þeir kynnist listsköpun ykkar ungu listamanna og sjái að listin er ekki í einkaeign hverfandi kynslóða. List er ekki eitthvað sem verður fljótlega bara til í sagnfræðiritum." ssv ARIUR OG LJOÐ I SIGURJONSSAFNI HULDA Guðrún Geirsdóttir sópransöngkona kemur fram á næstu þriðjudagstónleikum í Listasafni Sigurjóns. Hólmfríð- ur Sigurðardóttir leikur með henni á píanó. Hulda Guðrún lærði óperusöng og segir hann sitt uppáhald þótt Ijóðasöngur geti verið yndislegur og sé fall- inn til að fínpússa röddina. Á tónleikunum i Sigurjónssafni syngur hún bæði ljóð og aríur. Tónleikarnir þann 24. hefjast klukkan hálf níu um kvöldið með tveim ljóðum Faurés; vöggu- vísu og ástarsöng. Síðan koma tvö ástarljóð sem Richard Strauss samdi aðeins 22 ára gamall og ljóðasöngvar í þjóðlagastíl eftir Rakhmaninov. Síðast í ljóðakafla tónleikanna er söngröðin „I hate Music“ eftir Leonard Bemstein, skemmtilegar sögur tíu ára stelpu. Aríurnar eru úr óperum Puccinis, Leoncavallos, Gounods, Dvoraks og Lehars. Hulda Guðrún segist hafa mið- að efnisvalið við hvað hentaði rödd hennar best, hún er lýrískur sópr- an, og hve freistandi væri að flytja og heyra tónlistina. „Ég valdi lög sem ég held að áheyrendur njóti Hulda GuArún Geirsdúllir Húlmfrióur Sigurúardúllir ef til vill eins og vel og ég,“ seg- ir hún. Næstu tónleikar sem Hulda Guðrún syngur á verða í Múnchen í september, þar hefur hún verið búsett í fjögur ár og er aðeins farin að hugsa sér til hreyfings. „Ég söng fyrir umboðs- menn og fann mér þijá síðasta vetur og í haust fer ég að syngja fyrir stjórnendur í óperuhúsum. Það tekur ábyggilega á að fá fimm mínútur til að sanna árangur margra ára náms, en þetta er líka spennandi. Ég var í óperudeild Strauss-tónlistarskólans í Miinc- hen og nú fer að því sem mig langar að gera.“ Síðasta vetur var hún með sam- ing við óperu Gártnerplatz-leik- hússins í borginni og söng fyrsta sópran í nútímaverki fyrir lítinn kammerkór. Síðan var hún og verður áfram í einkatímum hjá gamla kennaranum úr skólanum, Ursulu Hirschberger, og í radd- þjálfun hjá amerískum manni í leikhúsinu. Eiginmaður Huldu Guðrúnar er líka tónlistarmaður og hún segir heldur gott að hafa hans stuðning á næstunni. Hólmfríður fór einnig til Munchenar í framhaldsnám eftir píanónám á ísafirði hjá Ragnari H. Ragnar. Hún lauk einleikara- og kennaraprófí 1980 og starfar nú í Söngskólanum í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.