Alþýðublaðið - 18.11.1920, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Hi dagiim og vegii.
Kveibja baí- á hjólreiða- og
bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl.
33/4 í kvöld.
£íó:n. Gamla bíó sýnir: „Tígul-
ás*. Nýja bíó sýnir: „Fátæka
prinsessan*.
Frentvilla var í blaðinu í fyrra-
dag í greininni „Gyðingahatur*,
neðanmálsgreirsinni; stóð vestur-
hluti Balkanskagai en átti að standa
mestur hluti Balkaaskaga.
Önnur prentvilla, í greininni
„Dagrenning* í Alþýðublaðinu I
gær hefir misprentast í málsgrein-
inni: „Myndi nokkurt svartara
myrkur geta lagst yfir þjóðirnar
en myrkrið frá 1914—1918.* Þar
hefir verið sett þjóðina, en átti
auðvitað að vera þjóðiruar.
Botnvörpungarnir. Austri kom
frá Englandi í morgun, og Jón
Forseti af veiðum.
Kvöldúlfshlað. Mælt er, að hf.
„Kvöidúifur" hafi þegar um nokk-
urt skeið haft í hyggju að gefa
út blað, og kvað hafa átt kost á
að taka við Mgbl. fyrir ekki neitt,
gegn því að kosta útgáfu þess
framvegis. En þeim annað hvort
þótt skömm að Mogga, eða þótt
hann of kostnaðarsamur, og þess
vegna byrjað útgáfu blaðsins
„Ergo*. B.
Jón Árnason, prentari, kom
heim úr ferð sinni til ísafjarðar á
Suðurlandi um helgina. Hann heim-
sótti allar góðtemplarastúkuraar á
staðnum og hélt einn opinn um-
ræðufund um bindindismálið og
bannmálið.
Á leið hingað frá Danmörku
eru: Gullfoss, Lagarfoss og Botnía.
Höfnin vann mál það, fyrir
Hæztarétti, er Trolle & Rothe
höfðuðu gegn Hafnarsjóði, út af
skemdum er urðu á skonnortunni
„Abba" hér á höfninni 1916, Mál-
ið varði Pétur Magnússon — fyrsta
prófmál hans —, en Eggert Clae-
sen sótti.
5. Tt f. I.
Fundur í Sálarrannsóknarfélagi
íslands í Iðnó íimtudaginn 18
nóv. kl. 872 síðdegis.
JSiíitíi’i? M. KvaMn
fiytur erindi um:
Dönsku kipkjuna og
spMtismann.
Félagsmenn sýni ársskírteini.
Stjórnin.
Samkomu
heldur Páll Jonsson trúboði í
Bárusalnum kl. 8^/2 í kvöld.
Efni: Jesús Guð og maður.
Allir velkourair.
tír eigin herbúðum,
Samhandsþinginu
var slitið kl. 12 í fyrralcvöld, og
var ákveðið, að halda aukaþing í
desember n. k.
1 sambandsstjórn um næstu tvö
ár voru kosin:
Jón Baldvinsson, foreeti
Divíð Kristjánsson, varaforseti.
Héðinn Valdimarsson,
Ingimar Jónsson,
Jóaína Jónatansdóttir,
Kjartan Ólafsson,
Ólafur Friðriksson,
Pétur G. Guðmundsson,
Þorlákur Ófeigsson.
Fulltrúaráðstjörnir
verklýðsfélaganna í Reykjavík voru
kosnar á fundi fulitrúaráðsins í
gær. Stjórnirnar skipa nú:
Framkvœmdastjórn:
Ingimar Jónsson, cand. theol.
Sigurjón Ólafsson, afgreiðslum.
Ottó N. Þorláksson.
Fjánnálastjórn:
Héðinn Valdimarsson, cand. polit.
Jónína Jónatansdóttir, bæjarfulltrúi.
Þorlákur Ófeigs., byggingameistari.
Fræðslustjórn:
Hallbjörn Halldórsson, prentari.
Ólafur Friðriksson.
Pétur Lárusson, prentari.
fá 3aðlauði.
Til skamms tíma hefir enginn
flokkur verið í Iudíandi, sem fylgt
hefir socialisma eða komrnumsma.
Fyrsta verkamannaþingið, sem
haldtð hefir verið þar í landi, var
haldsð þetta ár í M idras.
Flokkur verkalýðsins getur að-
eins starfað utanlands og hefir t. d.
útbú í San Francisco, í Evrópu
og í Afghanistan og sömuleiðis i
Taschkent. Kommunistaflokkurinn
indverski, sem til er í trássi við
iögin, hefir mörg hundruð þúsund
félögum á að skipa Utanlands
gefur flokkurinn út geysimikið af
fræðandi ritum og hvetjandi bækl-
ingum og sendir þá til féiaga
sinna innanlands.
Verklýðsfélögin rindversku hall-
ast yfirleitt að kommunisma.
Bæði fjárhagslega og pólitískt
séð hefir Indland, ef ti! vill, verið
aílra landa mest undirokað. Þ tta
ástand skapar góðan jarðveg fyrir
allskonar umbóta- og byltinga-
hreyfingar, sem borgararnir taka
ekki síður þátt í en öreigarnir.
Örvæntingin um hag landsins
rekur þá beinlínis til þess; og
mæla allar líkur með því, að
Indverjar verði ekki seinni á sér
en Evrópuþjóðirnar, að bylta af
sér oki auðsöfnunar og kúgunar.
Hræðsla Breta við það, að missá
Indland, mun mjög hafa flýtt fyrir
því, að þeir vildu gera samninga
við Rússa. s
Alþýðublaðið
er ódýrasta, íjölbreyttasta og
bezta dagblað landsins. Kaup-
ið pað og lesið, þá getið
þið aldrei án þess verið.
Blfi föt, alveg ný, á 14
til 15 ára dreng, eru til sölu á
ÓSinsgötu 24. Fötin eru of líil
eiganda og seljast því fyrir 2/3 verðs.
Á BergstaAastrætl 8 er
gert við olíuofna og Prímusa,
lakkeraðir járnmunir og gert við
allskonar olfulampa og luktir.
Brýnd skæri og fleira.