Morgunblaðið - 18.09.1993, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.09.1993, Qupperneq 1
JHo rgwnMð&fö MENNING USTIR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS_LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993_______________BLAÐ\_/ SÝNING Á VERKUM GUNNLAUGS BLÖNDAL OPNUD Á KJARVALSSTÖDUM i DAG „HANN var fólátur,- stuttorður og gagnoróur og gat því virkaó hrokafullur, en var allra manna skemmtilegastur — og besti sögumaóur sem ég hef hitt — kannski vegna þess að hann sagði sögur svo umbúðalaust." Þannig lýsir skáldið Kristján Karlsson fornvini sínum, Gunnlaugi Blöndal listmálara,- þessum manni sem vekur undrun okkar sem erum fædd á röngum helmingi aldarinnar. Menn lýsa Gunnlaugi þannig að sá grunur læðist að manni að hann hafi verið æði mótsagnakenndur; hann var einfari en mikill gleðimaður; hann var fámáll en manna skemmtilegastur,- hann var Ijúflingur í nánum samskiptum en óvæginn í umsögnum,- hann var feiminn en ákaflega áberandi. Af myndum má sjá viðkvæmnislega drætti í kringum munninn, augnsvipurinn litríkur,- brún- ir hvassar, augun mild og hörð og svo djúp að hann virtist horfa á alla hluti úr löngum fjarska. Hann var ákaflega vinsæll málari, en átti fastan hóp fjand- manna, tilheyrði engum klíkum — hvorki listrænum né pólitískum — heldur sjálfum sér, köllun sinni og sköpunarþrá. Hann var ekki þjóðlegur, eins og aðrir málarar á hans tíma og þó málar hann íslenskt landslag á stundum og væri firra að telja Gunnlaug óþjóðlegan. Hann kynnti sér stefnur og strauma í listum víða um Evrópu,- lærði í Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi og Ítalíu, en ánetjaðist engu, heldur valdi hugmyndir sem mótuðu mjög per- sónulegan og ákveðinn stíl; hreinan og litríkan, sterkan jafnvel í þeim myndum sem mildi hpns leitar í litróf pasteltónanna. Hann var heimsborgari, án þess að þurfa einhvern félagsskap með því nafni. Hann var fyrst og fremst einstakl- ingur með útsýni yfir stóran heim — og þaðan vann hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.