Morgunblaðið - 18.09.1993, Side 4

Morgunblaðið - 18.09.1993, Side 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1993 Börkur Arnarson og Svonur Kristbergsson. MorK“nblaðið/RAX SIRKÚS BRUNAHVAMMUR HVAR hafa tveir ungir menn sett egg í rimlarúmi, ljósmynd- ir í trefjagleri, ljóð í boxum og gull- fiska í flettiskilti ? Þar sem haustið seytlar úr hátölurum og sumir finna lykt af gróðri: I sýningarsalnum yfir kaffihúsinu Sóloni íslandus við Bankastræti. Þar opna í dag þeir Börkur Arnarson og Svanur Krist- bergsson eins konar hugmyndasafn sem þeir kalla Brunahvamm og hafa til sýnis út mánuðinn. Heitið er sótt á æskuslóðir annars þeirra og afturhvarfíð til hins ein- falda eða upprunalega er raunar -6á rauði þráður sem rekja má um hvamminn allan. Annað er erfitt að alhæfa um það sem nú er á efri hæð Sólons. Enda vildu Svanur og Börk- ur setja saman fjölbreytta sýningu, sefa og freista og höfða til fleiri en þeirra sem sækja myndlistarsýning- ar að staðaldri. Þeim fínnst að upplýsingar og áróður sem flæðir yfír hvaðanæva hafi fengið okkur til að gleyma því einfalda og frábæra. Og með áreita- flóðinu komi aðrar kröfur en áður, kannski meiri. Málverk á vegg séu ekki lengur líkleg til að hafa telj- andi áhrif á þann sem horfir, það þurfi meira tii. Þess vegna fara þeir sinar eigin ótroðnu slóðir og reyna að snerta ýmis skilningarvit, mjúk- lega. „Við erum að gera fleira en það sem eigum að vera að gera,“ segja þeir. „Fólk getur komið og pælt í músík, mynd, texta, lykt. Hugsað um líkama og líf og land og nátt- úru. Hvaðeina sem þessi sýning varpar á tjaldið í huganum. Þarna er heimur sem við höfum haft gam- an af að setja saman og í honum eru líka hlutir sem við deilum á. Flettiskiltin sem íjölga sér eins og arfí komin með annars konar boð- skap; ljóðbrot, fiska og alls ekkert. Bara svarta nótt - nótt í galleríi." Börkur er ljósmyndari í London - NÓTT í GALLERÍI og Svanur er tónlistarmaður og ljóð- skáld í Reykjavík. Hann setti sig í samband við Börk fyrir ári vegna bókarkápu utan um ljóð sem hann hafði samið. „Banatorfur heitir þessi bók, það er líka ömefni að austan," segir Svanur sem er Vopnfirðingur. Hann kveðst sækja mikið á þessar gömlu slóðir og forðast nútímann eins og pestina þegar hann skrifar. En í tónlistinni gegnir ef til vill öðru máli. „Eg hef verið viðloðandi popp- tónlist í tíu ár og síðan spilað í hljóm- sveit í tvö. Lárus og Valgeir Sigurðs- synir leika með mér fjögur verk sem munu hljóma í Brunahvammi." „Þeir em ekki bræður,“ tekur Börkur fram og heldur áfram úr því hann komst að. „Okkur gekk bara vel að búa til þessa bókarkápu og langaði til sjóða saman fleiri hug- myndir í texta, tónlist og myndum. Við hittumst síðan um jólin og í vor en annars hefur samvinnan falist í orðsendingum milli landa. Svo höf- um við Iátið hendur standa fram úr ermum síðustu daga, unnið úr hug- myndum og sett saman alls konar hluti. Þessu hafa líka fylgt heilmikl- ir samningar við hina og þessa, við höfum þurft að útvega ólíklegustu hluti og aukinheldur reynt að fá slökkt á ljósastaur við Bankastræti." Sumt gengur upp og annað ekki, það hafa þeir séð félagarnir í tilraun- um síðustu daga. Litskyggnur utan á Sóloni em meðal dekurbarna hug- myndasmiðjunnar sem orðið hafa útundan - Börkur segir að heilmikið hafi þurft að sía frá. Þegar við töluð- ,um saman í byrjun vikunnar var allsendis óvíst hvemig innviðir Brunahvamms yrðu á endanum. En nú hefur verið slökkt undir tilrauna- glösunum og Qöllistamennirnir fam- ir heim að skipta um föt áður en partíið byijar. Þ.Þ. ÞRÍR GLERLISTAMENN Spíralskál eftir Lharne. Glerhýsi Svöfu. Gluggamynd Ingu Elínar. Lharne, Svafa og Inga Elín. Morgunblaðið/Kristinn RÍR ungir glerlistamenn opna í dag sýningu í menningarmiðstöðinni Hafnarborg. Inga Elín Kristinsdóttir vinnur á íslandi en Svafa Björg Einars- dóttir og Lhame Tobias Shaw hafa verkstæði í Eng- landi. Öll hamast þau í glerinu myrkranna á milli hvert með sínu sérstaka lagi. Svafa og Lharne lærðu bæði við listaskólann í Stour- bridge, sem þekktur er af glerdeildinni, og fóm að vinna af krafti fyrir ári í verkstæðinu sem þau komu sér upp í Nottingham. Þau ákváðu að taka að sér fram- leiðslu hvers kyns glergripa fýrir fýrirtæki, hönnuði og arkitektalil að hafa efni á að sinna eigin hugðarefn- um sem vitaskuld em einnig úr gleri. Inga Elín lauk hins vegar námi í Danmörku og hefur í ijögur ár rekið verkstæði hérlendis sem farið er að ganga skínandi vel. Hún vinnur bæði verk sem ein- göngu er ætlað að gleðja augað, eins og myndir á veggi eða í glugga, og nytjalist sem henni fmnst ekk- ert síður mikilvægt og spennandi viðfangsefni. Svafa gefur í skyn að glersmíði eftir pöntun sé frek- ar lýjandi en gefandi og segir þau Lhame hafa velt því fyrir sér að flytja til íslands. Áhugi á glerlist virð- ist almennari hér en þar sem þau þekkja til og auðvitað fýsilegt að geta einbeitt sér að eigin listsköp- un. En þau verða þó áfram úti, í bráðina að minnsta kosti, innan seilingar við London með öll sín tækifæri. Eigandi eina stóra gler- gallerísins sem þar starfar hefur áhuga á ákveðnu verki eftir Svöfu, skúlptúr sem minnir dálítið á helgi- mynd og prýðir sýningarskrána frá Hafnarborg. Lharne hefur líka hlot- ið ofurlítinn skerf af athygli, með sérkennilegum spíral sem hann seg- ir að sé eins konar skálarstef. Þessi glerskúlptúr var í ár valinn á virta farandsýningu á vegum „Crafts Couneil" í Bretlandi og fenginn staður í hönnunarritinu Intemational Design Yerbook. Inga Elín áformaði á tímabili að setjast að í Dan- mörku, sem er eins og Finnland mikið hönnunar- og glerveldi. En svo ákvað hún samt af ýmsum ástæðum að koma heim að móta og blása handa löndum sínum. Þeir hafa tekið henni vel, en þó er ekki tiiveran galla- laus hér frekar en annars staðar. Hún segist finna fýrir því hve lítið landið er og langt í burtu frá öðrum; með fá og smá tækifæri og hættuna á því að hugmynd- ir sem vel er tekið fái ekki að Vera í friði, fólk api gjama hvert eftir öðm og í fámenninu verði það áber- andi og einlitt. En samt segist hún nú viss um að hér vilji hún vera og hvergi annars staðar. Af því sem Inga Elín sýnir í Hafnarborg segist hún mest hafa lagt í lampa úr gleri og málmi sem verið var að ljúka vinnslu á þegar við ræddum saman. „í þeim er margra mánaða hönnunarvinna," segir hún, „en reyndar má segja að aðdragandi allra verkanna sé langur. Mér finnst vinnan vera þróun, þar sem ein hugmynd leiðir til annarrar og oft gerist mest í hugan- um þegar álagið er hvað þyngst. Þá glóir ofninn af hita og ég fer að spúa hugmyndum." Inga Elín hefur líka unnið eins og berserkur, haldið tvær einkasýning- ar á árinu og jafn margar samsýningar þegar þessi er talin með. Auk ljósanna sýnir hún nú stóra skúlp- túra og skrautlega diska, glærar skálar sem virðast léttar og svífandi þótt þær séu níðþungar, Iitlar vegg- myndir af andlitum og stærri gluggamyndir eins og þá sem hér er sýnd. Hún segist hafa sérstaklega gam- an af að vinna með ljósið, í gluggamyndum eða lömp- um. Draumurinn sé þó að vinna í tengslum við bygging- arlist, í kirkju til dæmis. Svafa hefur ekki sýnt á íslandi eftir að hún hóf námið í Englandi og tefiir þess vegna fram sýnishom- um vinnu sinnar frá því hún hleypti heimdraganum fyrir næstum tíu árum. Verk hennar hafa tekið miklum breytingum á þessum tíma, en ákveðin einkenni eiga þau þó mörg sameiginleg. Vísanir í þjóðsögur til að mynda, með tröllum og ijöilum í blöndu af steyptu og blásnu gleri. Upp á síðkastið hefur Svafa verið að vinna veggmyndir og gestir í Hafnarborg fá vitanlega að sjá þær líka. Verk eftir Svöfu hafa verið til sýnis á söfnum og galleríum í Bretlandi, Þýskalandi og Hollandi öðru hvoru á þeim fimm ámm sem liðin eru síðan hún lauk námi. Lhame sýnir meðal annars tilbrigði við form skál- ar, verk sem minna á arkitektúr og era dálítið framtíð- arleg. Hann leggur mikla vinnu í hugmyndir sínar, sem stökkva ekki endilega fullskapaðar af blaðinu í glerið. Spírallinn sem hann sýnir kostaði til dæmis tveggja ára tilraunir áður en rétt jafnvægi náðist. Svafa talar um hve mikil nákvæmnisvinna glerlistin sé og þegar ég hlusta á félaga hennar verð ég enn sannfærðari um að þarna er afrakstur þolinmæði og erfiðis. En markaðurinn fyrir verk af þessu tagi er lítili og helst að söfn á Englandi kaupi þau. Lhame hefur selt gler- verk til nokkurra safna og þykir ekkert annað koma til greina en að beijast áfram. „Maður verður að halda sínu striki og reyna að vekja athygli á réttum stöðum. Með seiglu og trú á það sem maður gerir held ég að manni miði fyrr eða síðar áfram. Til þessa er gott að hugsa og þó ekki væri nema til þeirrar byijunar að eiga verk í bók sem hver einasti mógúll í Hollywood hefur til að fletta á borðinu sínu. Svo sjáum við til.“ Þ.Þ. LANDSLAG BORGARBARNSINS AÐ ÚIR og grúir af húsum; litlum og stórum og veðrið speglast í gluggum þeirra, dagurinn ljós, nóttin upplýst; aldrei myrkur. Iðandi mannhaf; einir koma og aðrir fara, sumir ganga; stefna í ákveðna átt — aðrir njóta stefnuleysis. Bömin val- hoppa og hlaupa og veifa fánum. Það væri synd að segja að sambandsleysi hijái þetta fólk; það talar saman, pískrar og hlær. Og það skiptir engu máli hvort gatan er í Reykjavík eða Roskilde, Kaupinhavn eða Kópaskeri — alls staðar er manneskjan eins; leitar eftir félagsskap, sambandi og samkennd. Maður er manns gaman og mannlífið í myndum Ásgeirs Smára er síð- ur en svo dapurt. Það sagði einu sinni um hann gagnrýn- andi, að hann væri svo léttúðugur — rétt eins og listamenn mættu aðeins miðla þunga sínum. En verk Ásgeirs hafa frá upphafi einkennst af glaðværð hans og bjartsýni, ást hans á landslagi borgarinnar með ajlri sinni steinsteypu og mergð af fólki. Ólíkir persónuleikar sem ganga eft- ir strætunum vekja forvitni hans og hið sérstæða í fari hvers og eins fer ekki fram- hjá honum. Þó eru ekki allir glaðir; mönn- um liggur misjafnlega á hjarta og and- rúmsloft þeirrar myndar sem birtist er niðurstaða af ólíku fólki; litlu, stóru, feitu, mjóu, glöðu, hryggu, talandi, hugsandi — rétt eins og húsin eru hvít og rauð og grá og blá. Sumir eru í svörtum skóm, aðrir grænum, sumir eru í krummafót og aðrir ganga í skóm af sitt hvoru tagi. En allir hafa tilverurétt og mynda heim sem er í Ásgeir Smári Morgunblaðið/Árni Sæberg senn ein heild og fullur af andstæðum. Ásgeir Smári krefur fólk sitt ekki skýr- inga á einu né neinu og spyr ekki hvers vegna húsin era ekki öðravísi; hvers vegna þau standi ekki ijær hvort öðra, nær hvort öðra og gerir engar athugasemdir við borg- arskipulagið á hveijum stað — eða skipu- lagsleysið. Heimur mynda hans ber hvorki í sér meiri né minni kaótískan veraleika en gengur og gerist í borgum — hann bara er, með öllum sínum ljósastaurum, búðargluggum, vatnshönum og stöðumæl- um. Áður fyrr málaði hann fólkið sem dansaði á Borginni og lyfti glösum á ein- hverri góðri krá, en nú er ballið búið — í bili að minnsta kosti — og fólkið hefur tekið aðra stefnu. Undanfarin þijú ár hefur Ásgeir Smári búið í Danmörku, „ude paa landet" eins og þeir segja í því góða landi, miðja vegu milli Kaupmannahafnar og Hróarskeldu, en í hjarta hans slær niður borgarinnar enn; þangað sækir hann enn myndefni sitt, þótt danska litrófið, sem er ólíkt því íslenska, hafi á ýmsan hátt breitt afstöðu hans til þess sem hann helst tekur eftir í mannlíf- inu. Sýning á myndum ’Asgeirs Smára verð- ur opnuð í Gallerí Borg í dag. ssv

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.