Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
B 3
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNI U-21S ARS LIÐA
Eykur sjálfstraustid í ís-
lenskum handknattleik
- segir Þorbergur Aðalsteinsson um bronsverðlaun landsliðsins íEgyptalandi
ÍSLENDINGAR fögnuðu fyrstu verðlaununum í liðakeppni á
heimsmeistaramóti s.l. laugardag, þegar handknattleikslandslið
karla skipað mönnum tuttugu og eins árs og yngri, vann Rússa
21:20 íkeppni um bronsiðá HM íEgyptalandi. Heimamenn unnu
Dani 22:19 í úrslitaleik mótsins, en Egyptar töpuðu einum leik
í keppninni, gegn íslendingum f riðlakeppninni.
ÞORBERGUR Aðalsteinsson sagði strákunum að skjóta, þegar þrjár sek-
úndur voru til leiksloka. Það gekk eftir og þriðja sætið var í höfn.
Íslendingar byrjuðu mjög vel gegn
Rússum og voru sex mörkum
yfir í hléi, 15:9. Þeir misstu mann
útaf í tvær mínútur undir lok hálf-
leiksins og tvo í byijun seinni hálf-
leiks, en þremur fleiri tókst Rússum
að minnka muninn í þijú mörk,
15:12. Þegar 40 sekúndur voru til
leiksloka náðu Rússar að jafna,
20:20, og var það í fyrsta og eina
sinn, sem jafnt var frá því flautað
var til leiks. Leikurinn var stöðvað-
ur eftir markið og þá tókst Þor-
bergi Aðalsteinssyni, landsliðsþjálf-
ara, að koma skilaboðum til manna
sinna, að skjóta ekki fyrr en þijár
sekúndur væru til leiksloka. Aron
Kristjánsson átti síðasta orðið á til-
teknum tíma og fögnuður íslend-
inga var mikill.
Takmarkinu náð
„Þetta var með ólíkindum," sagði
Þorbergur við Morgunblaðið.
„Spennan var rosaleg og það var
gaman að sjá á eftir boltanum í
netið. Við lögðum upp með verð-
launasæti sem markmið og það var
meiri háttar að ná því.“
Þorbergur sagði að stemmningin
hefði verið mikil í Kaíró og aldrei
hefðu verið fleiri áhorfendur á stór-
móti í handknattleik. Allir leikir
Egypta hefðu verið sýndir beint í
sjónvarpi og þúsundir hefðu verið
á áhorfendabekkjunum, en hand-
knattleikur væri vinsælasta íþrótta-
greinin í Egyptalandi á eftir knatt-
spyrnunni.
íslendingar töpuðu óvænt fyrir
Rúmenum eftir að hafa sigrað
Egypta í riðlakeppninni. Þorbergur
sagði að eftir gott gengi hefði verið
svekkjandi að tapa, en yfírleitt
skipti eitt tap í svona keppni ekki
miklu máli og benti, á Dani í því
sambandi, en þeir hefðu tapað
tveimur leikjum en samt leikið til
úrslita. Allt hefði verið opið eftir
leikinn gegn Rúmenum, en í kjölfar-
ið hefðu komið leikir gegn erfíðum
mótheijum, Svíum, Portúgölum og
Argentínumönnum. Þessir leikir
hefðu unnist, en staðan hefði þess
vegna getað orðið önnur, ef leikur-
inn gegn Rúmenum hefði farið á
annan og betri veg.
Egyptar og íslendingar bestir
„Þegar á heildina er litið tel ég
að við og Egyptar höfum verið með
bestu liðin,“ sagði Þorbergur. „Við
unnum Egypta og vorum því með
meira en 20.000 áhorfendur á móti
okkur í leiknum við Rússa, en stóð-
umst álagið. Við urðum í 5. sæti í
tveimur síðustu mótum, en tókum
næsta skref áfram að þessu sinni.
Árangurinn styrkir okkur fyrir
komandi verkefni í Evrópukeppni
landsliða, gefur góð fyrirheit fyrir
heimsmeistarakeppnina 1995 og
1997 og eykur sjá'fstraustið í ís-
lenskum handknattleik," sagði Þor-
bergur.
Mörk íslands: Patrekur Jóhannesson 6, Ólaf-
ur Stefánsson 5, Dagur Sigurðsson 4, Róbert
Sighvatsson 2, Páll Þórólfsson 2, Jason Ólafs-
son 1, Aron Kristjánsson 1.
KNATTSPYRNA
Tveir unnu sér inn
Rotterdam-ferð
TVEIR meðlimir Skagamanna,
stuðningsmannaklúbbs Akraness-
liðsins í knattspyrnu, hafa unnið sér
inn ferð með liði ÍA til Rotterdam
í næstu viku á leikinn gegn
Feyenoord í Evrópukeppninni. Fé-
lagið seldi númeruð merki og það
eru eigendur merkja númer 160 og
225, sem dregnir voru út. Þeir eru
beðnir að hafa samband við Helga
Daníelsson, formann klúbbsins.
M BERNARD Langer gæti hugs-
anlega þurft að hætta við að keppa
með Evrópuúrvalinu í hinni miklu
Ryder-keppni í golfí sem hefst í
vikunni, en þar eigast Bandaríkin
og Evrópa við.
■ LANGER hefur ekki enn náð sér
af hálsmeiðslum sem hann fékk fyrir
þremur vikum og hefur Bernard
Gallacher, fyrirliði Evrópuliðsins
beðið Ronan Rafferty um að vera
til taks. Langer fær tækifæri til að
sanna sig í dag og á morgun, áður
en Rafferty verður kallaður til.
■ ROBBIE Earle tryggði Wimble-
don sigur gegn Manchester City í
rkvöldi með marki á 54. mínútu.
MICHAEL Johnson, heims-
meistari í 400 m hlaupi frá Banda-
ríkjunum, endaði keppnistímabilið
með því að sigra heimsmeistarann í
200 metra hlaupi, Frankie Fred-
ericks frá Namibíu, í 200 m hlaupi
á alþjóðlegu fijálsíþróttamóti í Fuku-
oka í Japan á laugardaginn. John-
son kom í mark á 20,19 sek., en
Fredricks á 20,22 sek. Johnson
sagði eftir sigurinn að hann ætlað
að einbeita sér meira að keppni í 100
og 200 metra hlaupi næsta keppnis-
tímabil.
M LINFORD Christie, heims- og
ólympíumeistari í 100 metra hlaupi
frá Bretlandi, sigraði í 100 m hlaupi
á sama móti. Hann kom í mark á
10,06 sek og var 0,08 sek á undan
Andre Cason frá Bandaríkjunum.
■ COLIN Jackson og Sally Gunn-
el frá Bretlandi enduðu bæði tíma-
bilið með sigri í Japan. Jackson
vann Bandaríkjamanninn Jack Pi-
erce í 110 m grindahlaupi og Gunn-
el, heimsmethafí í 400 m hlaupi
kvenna, vann með yfírburðum í sér-
grein sinni. „Það er gott að enda
tímbilið með þessum sigri,“ sagði
Gunnel.
■ SERGEJ Bubka, stangarstökkv-
ari frá Úkraínu, var nálægt því að
bæta heimsmet sitt á mótinu. Hann
fór yfír 6.14 metra með líkama sinn
en feldi með höndunum á niðurleið.
■ STEFKA Kostadinova, heims-
methafi í hástökki frá Búlgaríu, var
einnig nálægt því að bæta heimsmet
sitt, 2.09 metra. Hún fór yfír 2.05
metra en átti tvær mjög góðar til-
raunir við 2.10 metra.
Með rottu í töskunni
Aron Kristjánsspn, sem gerði
sigurmark íslands gegn
Rússum, varð fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu á fyrstu
æfíngunni í Kaíró. Hann lýsir því
þannig: „Á fyrstu æfingunni lagði
ég æfíngatöskuna mína á gólfíð
fyrir framan skáp, læsti skápnum
og henti lyklinum ofan í töskuna.
Eftir æfingu ætlaði ég að ná í
lykilinn í töskunni — fann hann
ekki strax og kafaði því enn betur
ofan í töskuna, en þá kom þessi
iíka væna rotta stökkvandi á
móti mér og ég öskraði í samræmi
við það. Ég var heppinn að hafa
látið lykilinn í töskuna því annars
hefði ég farið með kvikindið upp
á hótelherbergi í töskunni. Bún-
ingsklefarnir í íþróttahöllinni voru
rosalega sóðalegir og við fórum
aldrei í sturtu þar nema eftir síð-
asta ieikinn því þá vorum við bún-
ir að skrá okkur út af hótelinu,"
sagði Aron.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bikarmeistararnir höfðu betur
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknattleik hófst um helgina með keppni í 1. deild
kvenna. Bikarmeistarar Vals tóku á móti íslandsmeisturum Vikings og fögn-
uðu Valsstúlkur tveggja marka sigri, 19:17. Irina Skoroboggatykh var marka-
hæst hjá Val með 10 mörk, en Berglind Ómarsdóttir gerði fjögur og hér er
eitt þeirra í uppsiglingu. Nánar/B6
WASHINGTON GENERALS
LAUGARDALSHÖLLIN
14. OKT. 1993 KL. 20:30
ÍÞRÓTTAHÖLLIN AKUREYRI
13. OKT. 1993 KL. 20:30
ÍÞRÖTTAHÚSIÐ KAPLAKRIKA
12. OKT. 1993 KL. 20:30
T K O
h.f.
V7S4
VISA ÍSLAND
„..jMERÐKRÍMJ-
SÉRT'LBOÐ NÚNk'
pnnMYNGRlENl3Á^^
Sölustaðir:
STEINAR MYNDBANDALEIGA HAFNARFIRÐI
STEINAR AUSTURSTRÆTI
SKÍFAN KRINGLUNNI
SPORTHÚSIÐ AKUREYRI
UPPL. OG SALA MEÐ KREDITKORTUM: í SÍMA 99 66 33