Morgunblaðið - 07.10.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ,, V1ÐSB|PTI/JITV1WW11L|F-.FIM.MT,UDAGLH.,7.-OKTÓBER 1993
reikningar eru gerðir eftir hvern af
þáttum C til J hér á eftir.
C. Áhættugreining. Reiknað er út
hvað líftrygging Chris og Joan þarf
að vera há og hvað hún þarf að
kosta. Þá er gerð úttekt á sjúkra-
tryggingu beggja og örorkutrygg-
ingu og einnig á öllum eignatrygg-
ingum. Loks er skoðað hvort þörf
er á frekari áhættutryggingum.
D. Húsnæðismál. Hjónin hafa í
hyggju að stækka við sig húsnæði
með því að kaupa stærra hús eða
byggja við eigið hús. Athugað er
hvaða lán væru hagkvæmust í hvoru
tilviki um sig og síðan metið hvor
kosturinn virðist hagkvæmari.
E. Uppbygging sparifjár. Hve mikið
þarf að leggja fyrir og ávaxta til
að ná markmiði um starfslok og
eftirlaun (markmið 7). Þá er bent á
þann hluta núverandi eigna sem
mætti nota sem stofn við uppbygg-
ingu verðbréfasafns og hvaða flokk-
ar verðbréfa kæmu helst til greina
í slíku safni og hvers vegna.
F. Menntun barna. Reiknað er út
hve mikla fjármuni þarf til að standa
undir menntun barna, þ.e. fjögurra
ára nám hvors barns í háskóla.
G. Starfslok og eftirlaun. Reiknað
er út hver fjárhagsstaða þarf að
vera í starfslok til að markmið um
eftirlaun náist. Bent er á leiðir til
að ávaxta peninga til að ná markm-
iðinu um fjárhag eftir starfslok.
H. Skattagreining. Kannað er hvort
heimildir finnast til að lækka skatt-
greiðslur.
I. Erfðamál.
J. Mat á árangri. Loks er bent á
þann árangur sem væri hægt að ná
eftir leiðbeiningum í fjárhagsáætl-
uninni. Jafnframt er dregið fram
hvaða veikleikar enn eru í fjárhags-
stöðunni og hvaða markmið ekki
virðist vera hægt að ná eða ekki
nema að hluta. Sem dæmi má nefna
að áform Joan um að helja háskóla-
nám eftir tvö ár gengu ekki upp
eftir þeim leiðum sem þau höfðu
hugsað sér.
I fjárhagsáætlunum fjölskyldna
sem eiga meiri eignir er lögð meiri
vinna í að greina eignastöðuna og
meta með hvaða hætti best er að
ávaxta eignir þannig að ekki sé tek-
in ónauðsynleg áhætta. Önnur heim-
ili kunna að hafa aðrar áherslur og
þá er vinnu við fjárhagsáætlun beint
að þeim.
Eins og fyrr segir er ekki vitað
til þess að vinna sé lögð í fjárhagsá-
ætlanir fjölskyldna á Islandi eins og
hér hefur verið lýst. Tilgangurinn
með því að lýsa einni slfkri í nokkr-
um smáatriðum hér að gefa lesand-
anum hugmynd um þau atriði sem
þarf að huga að við slíka áætlun.
Hver og einn getur komið sér upp
slíkri fjárhagsáætlun með tímanum
með því að taka eitt atriði í einu og
skoða það ofan í kjölinn. Enginn
vafi leikur á því að hagurinn af því
að hafa slíka fjárhagsáætlun er ótví-
ræður!
Höfundur er framkvæmdastjóri
VIB - Verðbréfamarkaðs íslands-
banka hf.
FT4418
Ijósritunarvél
- Þessi netta
Áreiöanleg Ijósritunarvél
meö mjög mikla möguleika, svo sem
að Ijósrita beggja vegna á pappírinn.
• Þessi vél er „umhverfisvæn"
sMSS
SKIPHOLTI 17 • 105 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-627333 • FAX: 91-628622 uUU
Fólk
Sveinn til
Samtaka
iðnaðarins
MSVEINN Hannesson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri hinna ný-
stofnuðu Samtaka
iðnaðarins. Hann
tekur strax til
starfa, en mun jafn-
framt sinna fram-
kvæmdastjórastarfi
sínu hjá Félagi ís-
lenskra iðnrek- .........
enda fram að ára- Sweinn
mótum. Þá munu Samtök iðnaðar-
ins taka við af stofnaðilunum sex,
þ.e. Félagi íslenskra iðnrekenda,
Landssambandi iðnaðarmanna, Fé-
lagi íslenska prentiðnaðarins, Verk-
takasambandi íslandi, Sambandi
málm- og skipasmiðja og Meistara-
og verktakasambandi byggingar-
manna. Sveinn er 43 ára. Hann lauk
próft frá viðskiptadeild Háskóla Is-
lands árið 1974 og vann hjá Seðla-
banka íslands síðasta námsárið og
í eitt ár eftir að námi lauk. Síðan
var hann hjá Landssambandi iðnað-
armanna í fimm ár. 1980-1986 var
Sveinn forstöðumaður hagdeildar og
síðar lánasviðs Iðnaðarbanka Is-
lands. Næstu sex árin var Sveinn
framkvæmdastjóri eignarleigufé-
lagsins Lýsingar hf. og í mars 1992
tók hann við framkvæmdastjóra-
starfi FÍI sem hann hefur gegnt síð-
an. Sveinn er kvæntur Áslaugu Sig-
urðardóttur hjúkrunarfræðingi og
eiga þau fjórar dætur.
lefloiíngaskápar
FYRIR ALLAR TEIKNISTOFUR
Margar stærðir og gerðir.
A-0, A-1, A-2.
Mjög gott verð.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN
:
LEITIÐ UPPLYSINGA
BlLDSHÖFÐA 16 SÍMI 67 24 44 TELEFAX 67 25 80
FORGANGSPÖSTUR
TNT
í nútíma viðskiptum skipta hraði og öryggi mestu máli. Það getur ráðið
úrslitum um hvort af viðskiptum verður að tilboð, sýnishorn, varahlutir,
teikningar, tölvugögn eða annað berist á tilsettum tíma.
Þetta vitum við hjá Hraðflutningsdeild Pósts og síma og með tengingu
EMS hraðflutningsþjónustunnar við dreifikerfi TNT í yfir 190 löndum
tryggjum við þér þann hraða og öryggi sem nauðsynlegt er.
Með okkur getur þú sent nánast hvað sem er: stórar sendingar sem smáar,
böggla, pinkla, skjalasendingar o.fl.
90 afgreiðslustaðir um land allt
Móttökustaðir sendinga eru á póst- og símstöðvum um land allt og
í Hraðflutningsdeildinni að Suðurlandsbraut 26. Þar eru
veittar allar nánari upplýsingar í síma 91-637300.
Opið frá kl. 8.30-18.00 alla virka daga og á laugardögum frá 9-12.
póstur og sími
Hfímwúmwmgfmm
Suðurlandsbraut 26, sími 91-637300, fax 91-637309
Þegar
hraðinn
skiptir máli