Morgunblaðið - 07.10.1993, Qupperneq 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1993
iminu.ii.Miif
Selst lambakjöt sem lúx-
usvara í Bandaríkjimum?
Athuganir Catco hf. í Chicago benda til þess að markaður sé þar fyrir umtalsvert magn af
lambakjöti hjá fyrsta flokks veitingastöðum og hótelum
ÍSLENSKT Iambakjöt hefur hing-að til ekki átt greiða leið inn á
erlenda markaði sem úrvals náttúruleg afurð og tilraunir til að
markaðsselja kjötið í Bandaríkjunum hafa ekki tekist sem skyldi.
Nú hefur nýtt íslenskt fyrirtæki, „Clean air trading Company“
(Catco), ráðist í að kynna íslenskt lambakjöt í Bandaríkjunum undir
vörumerkinu Borealis, sem merkir norðurljós á latínu. Frumkvöðull
að stofnun Catco, Tómas Ragnarsson, hefur dvalið í Chigago í sum-
ar og kynnt íslenskt lambakjöt hjá fyrsta flokks veitingastöðum og
hótelum. Ein slík kynning fór fram í 100 manna veislu á Inter Cont-
inental-hótelinu í Chigago í síðustu viku, þar sem viðtökur urðu fram-
ar björtustu vonum. Innkaupaaðilar hótela og einkaklúbba hafa í
kjölfarið sýnt kaupum á kjöti áhuga og er ætlunin að prufusending-
ar fari utan á næstu vikum. Er stefnt að því að hefja útflutning í
smáum stíl innan tíðar, en bandarískur samstarfsaðili Catco telur
að markaður sé fyrir 18-20 tonn á mánuði án þess að ráðast þurfi
í kostnaðarsama auglýsingaherferð. Catco hyggst kaupa kjöt utan
greiðslumarks frá þeim tveimur sláturhúsum sem hafa Ieyfi til að
slátra fyrir Bandaríkjamarkað, sláturhúsi Sláturfélágs Suðurlands á
Selfossi og sláturhúsinu í Borgarnesi.
Hugmyndin að stofnun Catco
kviknaði hjá Tómasi Ragnarssyni
fyrir rúmum tveimur árum, en hann
var þá aðeins rúmlega tvítugur að
aldri. Tómas fékk Guðmar Krist-
jánsson í lið með sér og sameigin-
lega hófu þeir að viða að sér upplýs-
ingum um lambakjötsmárkaðinn í
Bandaríkjunum. í vor bættist síðan
í hópinn Þórhallur Steingrímsson,
kaupmaður í Grímsbæ, og var fyrir:
tækið stofnað formlega í apríl sl. í
-stjórn eru auk þeirra þremenninga
þeir Jón Zoega lögmaður og Krist-
inn Gunnarsson bóndi á Skarði í
Landsveit. Fljótlega eftir stofnun
fyrirtækisins var ráðist í gerð aug-
lýsingabæklings og hönnun vöru-
merkis. Var Ólafur Stephensen
fenginn til að hanna bæklinginn
og vörumerkið. I maí og júní heim-
sóttu þeir Tómas og Guðmar ásamt
íslenskum matreiðslumeistara
marga fyrsta flokks veitingastaði
og einkaklúbba í Chigaco til að
kynna kjötið. í kynningum hefur
m.a. verið stuðst við greinargerð
Brynjólfs Sandholts yfirdýralæknis
um kjötið og efnainnihald þess.
„Þar kemur berlega fram að ís-
lenska lambakjötið er með minna
mengunarinnihald en annað kjöt,“
segir Þórhallur. „Bandaríkjamenn
eru farnir að hugsa miklu meira
um matinn sem þeir láta ofan í sig
og vilja sem minnst af aukaefnum.“
„Fólk stappaði niður fótunum"
Tómas Ragnarsson hefur dvalið
í Chigago frá því í byijun maí og
unnið að því að kynna kjötið ásamt
bandaríska dreifingarfyrirtækinu.
Viðamesta kynningin fór fram nú
í lok september á Inter Continental-
hótelinu fyrir klúbb innkaupa-
manna á hótelum og veitingastöð-
um í Chigago. Auk lambakjöts var
þar á boðstólum íslensk bleikja,
'eldur-ís vodka og skyr. Tveir ís-
lenskir matreiðslumeistarar sem
báðir starfa í Perlunni höfðu yfir-
umsjón með matreiðslunni, þeir
Snorri B. Snorrason og Sturla Birg-
isson.
„Viðtökurnar voru með ólíkind-
um góðar og fólk nánast stappaði
niður fótunum af ánægju yfir kjöt-
inu og framreiðslunni,“ segja þeir
Þórhallur og Guðmar. „Við fengum
frekari viðbrögð strax daginn eftir
frá fulltrúa eins af helstu einka-
klúbbum Chicago, sem óskaði eftir
að við héldum kynningu fyrir með-
limi hans. Það hefur þegar verið
ákveðið að halda íslenska daga í
desember hjá þessum klúbbi og
setja kjötið strax á matseðilinn.“
Ákveðið hefur verið að prufu-
sendingar af lambakjöti fari til
Bandaríkjanna á vegum Catco á
næstu vikum. Aðeins tvö sláturhús
á landinu hafa hins vegar heimild
til að framleiða kjöt fyrir Banda-
ríkjamarkað, þ.e. Sláturfélag Suð-
urlands á Selfossi og sláturhúsið í
Borgarnesi. Þórhallur bendir á að
það sé algjört skilyrði fyrir því að
útflutningur geti hafist að vinnu-
brögðin séu rétt í húsunum við
vinnsluna á kjötinu. „Bandaríkja-
menn vilja allt öðruvísi skurð á
lambakjötinu en við eigum að venj-
ast. Þeir eru mjög nákvæmir varð-
andi vinnubrögðin og það hefur
verið vandamál að fá réttan skurð
á hryggina. Ef við ætlum að ná
árangri á þessum markaði verðum
við að breyta um vinnubrögð.“
Aðspurðir um hversu mikið magn
Catco geti hugsanlega selt til
Bandaríkjanna ef prufusendingarn-
ar fá góðar viðtökur segja þeir að
rætt hafi verið um að senda einn
gám á mánuði á þessu nýhafna slát-
urári. Magnið gæti verið um 18-19
tonn af kjöti á mánuði þannig að
heildarmagnið á árinu 1994 yrði
allt að 200 tonn. Hafi bandaríska
dreifingarfyrirtækið lýst því yfir að
markaður sé til staðar fyrir þetta
magn án þess að miklu sé kostnað
til í markaðssetningu. „Við erum
með ákveðnar viljayfirlýsingar frá
þessum aðilum í Bandaríkjunum
sem vilja fá sendingar af kjöti sem
fyrst.“
Gert er ráð fyrir að kaupa kjöt
sem er utan greiðslumarks og segja
Dalshraun - Hfj.
Vorum að fá í einkasölu 280 fm atvinnuhúsnæði á
einni hæð. Góð lofthæð. Innkeyrsludyr. Möguleiki
að skipta í tvær 140 fm einingar. Húsnæðið er í
góðu ástandi. Agæt áhvíiandi lán.
Nánari upplýsingar hjá:
Fasteignasölunni Ás,
Strandgötu 33, 2. hæð,
Hafnarfirði,
sími 652790.
Morgunblaðið/Sverrir
UTFLUTIMINGUR — Fyrstu áætlanir Catco hf. gera ráð
fyrir að hægt verði að flytja á Bandaríkjamarkað um 18-20 tonn af
lambakjöti á mánuði á næsta ári. Á myndinni eru tveir af eigendum
fyrirtækisins, þeir Þórhallur Steingrímsson og Guðmar Kristjánsson.
þeir Þórhallur og Guðmar að áætlað
sé að 800-1.000 tonn af slíku kjöti
falli til árlega.
Markaðssetningin fjármögnuð
með eigin fé og lánum
Catco hefur að mestu fjármagnað
markaðssetninguna með eigin fé
og lánum að undanskildum 850
þúsund króna styrk frá Framleiðni-
sjóði. Kostnaðurinn við markaðs-
setninguna hefur hins vegar verið
mun hærri en ráð var fyrir gert í
upphafi.
Guðmar og Þórhallur benda á að
verðið sem verið sé að ræða um
fyrir kjötið í Bandaríkjunum sé
hærra en hafi t.d. fengist fyrir ís-
lenskt lambakjöt í Færeyjum og
Svíþjóð. Hins vegar verði að fara
mjög varlega í verðlagningu til að
komast inn á markaðinn. Þeir telja
mögulegt að selja nálægt 65-70%
af lambaskrokknum í Bandaríkjun-
um, þ.e. læri, hryggi, hluta af fram-
parti og skanka. „Við höfum verið
að ræða um 240-280 krónur fyrir
hvert kíló miðað við heilan skrokk
sem skilaverð til sláturleyfishafa
og bænda. Það er hins vegar mjög
brýnt að lækka sláturkostnaðinn
hér á landi og gera búin hagkvæm-
ari til að við verðum samkeppnis-
færir á alþjóðamarkaði með kjötið.
Sláturkostnaðurinn er fáránlega
hár hér á landi m.a. vegna hins
stutta sláturtíma. Með því að lengja
sláturtímann gætu húsin nýtt betur
fast starfsfólk og einnig væri hægt
að selja kjötið ferskt úr landi á
hærra verði en frosið.
Ef þetta á að takast vel verða
menn að sýna því sem við erum að
gera meiri skilning. Þetta er ijár-
festing fyrir alla þjóðina og fram-
leiðendur verða að gefa aðeins eftir
í verði meðan við erum að ná mark-
aðnum,“ segja þeir Þórhallur og
Guðmar. KB
Fyrirtæki
„Stórmarkaður með
skrifstofuvörur“
Prentsmiðjan Oddi hf. breikkar vöruúrvalið
PRENTSMIÐJAN Oddi hf. mun
í næstu viku hefja dreifingu á
sérstökum vörulista þar sem
boðið verður upp á flest sem
þarf til almenns skrifstofuhalds.
Jón Gunnarsson, markaðsstjóri
Odda, sagði í samtali við
Morgunblaðið að fyrirtækið
stæði nú á vissum tímamótum,
það ætti hálfrar aldar afmæli á
árinu og því hefði verið ákveðið
að auka þjónustuna með því að
breikka vöruúrvalið. Þessi nýj-
ung væri hugsuð til að styrkja
enn frekar tengslin við fyrir-
tækin.
„Með þessu aukna vöruúrvali
munum við þjónusta fyrirtæki með
allt sem þau þurfa til skrifstofu-
halds. Við verðum nokkurs konar
stórmarkaður með skrifstofuvör-
ur,“ sagði Jón. Hann sagði enn-
fremur að Oddi myndi bjóða upp
á lægra verð en almennt þekktist
á þessum markaði, þar sem áhersla
væri lögð á sölu í stærri einingum.
Sölumenn okkar eru daglega á
ferðinni í mörgum fyrirtækjum
með pappír og með þessari nýju
þjónustu erum við að reyna að ein-
falda stöðuna fyrir þessi fyrirtæki
og teljum þetta til mikilla þæginga-
auka fyrir þau. Ef vörurnar eru
pantaðar fyrir hádegi verða þær
keyrðar út samdægurs."
Oddi hefur um nokkurn tíma
boðið upp á takmarkað úrval vöru
til almenns skrifstofuhalds. „Við
erum nú að stíga skrefið til fulls
og finnum fyrir jákvæðum áhuga
fyrirtækja," sagði Jón. „Fyrsta
mánuðinn stefnum við að því að
Morgunblaðið/
VORULISTINN — Jón Gunnarsson, markaðsstjóri Prent-
smiðjunnar Oddi er hér með sýnishorn af nýjum vörulista fyrirtækisins
sem hannaður var í tengslum við aukið vöruúrval fyrirtækisins.
breiða vörulistann út í um 3.000
fyrirtæki, annars vegar með heim-
sóknum sölumanna og hins vegar
samhliða útkeyrslu pappírs. Til
lengri tíma litið stefnum við að því
að koma út um 4.000-4.500 list-
um.“
Jón sagði að fyrirtækið hefði
bætt við starfsfólki í tengslum við
aukið vöruúrval. Þá er vörulistinn
að öllu leyti hannaður og unninn
innan fyrirtækisins. Um er að ræða
fallega möppu sem í eru litprentuð
og myndskreytt blöð með ítarleg-
um upplýsingum um þá vöru sem
í boði er og verðlista. Fyrirtæki
sem eru í viðskiptum við Odda
munu fá möppuna í áskrift og síð-
an verða blöð með breytingum send
til þeirra wþannig að hægt verður
að bæta í möppuna og taka efni
út eftir þörfum.