Morgunblaðið - 25.11.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1993
dagskrá B 7
SUNNUPAGUR 28/11
Fallnir englar
HVAÐ eiga þessir bandarísku leikarar og leiksljórar sameiginlegt:
Tom Cruise, Tom Hanks, Gary Oldman, Steven Soderbergh, Phil
Joanou, Jonathan Kaplan, James Woods, Gary Busey, Joe Man-
tegna, Bónnie Bedelia, Laura Dern, Alan Rickman, Isabelia Rossell-
ini og Nancy Travis? Nei, þetta er ekki fræga fólkið í nýjustu bíó-
mynd Roberts Altmans heldur fræga fólkið sem kemur fram í og
stendur á bak við nýja sjónvarpsþætti sem Propaganda Films Sigur-
jóns Sighvatssonar framleiðir ásamt öðrum.
Nýir, stjörnum
prýddir, sjón-
varpsþættir
sem Propag-
anda Films Sig-
urjóns Sig-
hvatssonar á
aðild að hafa
fengið góða
dóma í blöðum í
Bandaríkjunum.
Þættirnir eru
allir gerðir í fílm
noir stíl og eru
byggðir á saka-
málasögum rit-
höfunda á borð
við Raymond
Chandler og Jim
Thompson
Sannarlega gæfulegt lið og ekki
allt í þeim hlutverkum sem við eigum
að venjast. Cruise og Hanks eru t.d.
leikstjórar tveggja þátta en þeir
hafa ekki áður fengist við leikstjórn.
Þáttasyrpan heitir Fallnir englar eða
„Fallen Angels“ og samanstendur
af sex hálftíma löngum þáttum
byggðum á sakamálasögum rithöf-
unda eins og Raymond Chandlers
og Jim Thompsons. Þeir eru allir
gerðir í film noir stíl bíómynda eins
og Möltufálkinn eða Tvöfaldar
skaðabætur og framleiddir af
Propaganda Films í sainvinnu við
Mirage Enterpirses, kvikmyndafyr-
irtæki leikstjórans og framleiðand-
ans Sidney Pollacks, sem síðast leik-
stýrði Fyrirtækinu með Tom Curise,
en hún er nú sýnd í Sambíóunum
og Háskólabíói.
Þættirnir hafa verið sýndir í
Bandaríkjunum og fengið ágæta
dóma. í vikublaðinu Newsweek stóð
að hálftíminn væri einum og stuttur
fyrir þætti sem tækist svo vel að
hrífa mann aftur í tímann úr leið-
inda samtímanum. Þeir hafa líka
vakið athygli fyrir stjörnuflóðið sem
kemur fram í þeim og bræðinginn
sem útúr því kemur. Cruise leikstýr-
ir Isabellu Rossellini í þættinum
„The Frightening Frammis“ eftir
sögu Jim Thompsons, Steven Soder-
bergh, sem vann Gullpálmann á
kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir
Kynlíf, lygar og myndbönd, leikstýr-
ir Joe Mantegna, Jonathan Kaplan
(„The Accused") leikstýrir James
Tom Hanks - Hann leikstýrir sjálfum sér í Chandlersögu,
Phil Joanou - Hann leikstýrir
Gary Oldman í sögunni „Dead-
End for Delia.“
Woods og Gary Busey í sögu eftir
James Ellroy um kvennamál Howard
Hughes, Tom Hanks leikstýrir sjálf-
um sér í þættinum „ITl Be Waiting"
eftir sögu Raymonds Chandlers og
hinn ungi Phil Joanou leikstýrir
Gary Oldman en síðast þegar þeir
unnu saman gerðu þeir glæpamynd-
ina „State of Grace“. Handrit þess
þáttar skrifar Scott Frank, sem
skrifaði „Dead Again" með Kenneth ■
Branagh og Emmu Thompson.
Þegar Sidney Pollack var spurður I
að því hvernig tekist hefði að fá allt
þetta eftirsótta hæfileikafólk til að
leika í og leikstýra þáttunum sagði
hann sakamálasögurnar hafa ráðið
mestu þar um. „Fólk hefur mjög
rómantískar hugmyndir um þessar
sögur og tímabilið sem þær gerast
á. Sumar sögurnar eru of litlar fyrir
bíómyndir en henta fullkomlega á
skjáinn,“ sagði hann. Pollack er
reyndur leikstjóri og vanur að fást
við stjörnurnar en hvernig leist hon-
um á t.d. Cruise sem leikstjóra? „Ég
var mjög hrifinn - og sorgmæddur
- yfir því hversu góða mynd Cruise
gerði“, sagði hann. „Það er óþolandi
þegar þessir leikarar eins og Rob
Reiner, Robert Redford og Clint
Eastwood reynast allir svona góðir
leikstjórar".
„Það sem hefur alltaf heillað mig
í sambandi við gömlu sakamála-
myndirnar," var haft eftir Steven
Soderbergh, „er að þær fengust við
frumkenndirnar sem fmnast í
Tom Cruise - Kappinn leikstýrir þætti eftir sögu Jim Thompsons.
Leikstjórn - Gary Busey mundar skotvopnið undir leikstjórn Jonat-
hans Kaplans.
skuggahliðum mannsins. Þær fjalla
um fólk sem hefur svo sterkar lang-
anir að þær ýta algerlega siðferðis-
vituns þess til hliðar. Það þráir eitt-
hvað, venjulega peninga, kvenfólk
eða völd, en býr yfir veikleika sem
kemur því í koll. Þessar sögur eru
næstum því eins og grískur harm-
leikur að því leyti og þegar mér
gafst tækifæri til að fást við slíka
sögu greip ég það fegins hendi.“
Sjálfur át Soderbergh í sig saka-
málasögur þegar hann var ungur
og uppáhaldsmyndirnar hans voru
fullar af harðjöxlum, hættulegum
kvenpeningi og hrollköldum morð-
um.
Mismunandi útfærslur
Hver þáttur kostaði 700.000 doll-
ara (49 milljónir ísl.) og höfðu leik-
stjórarnir fijálsar hendur varðandi
útlit þeirra þátta sem þeir gerðu.
Joanou notaði hraðar klippingar og
miklar hreyfingar myndavélarinnar
en Kaplan kvikmyndaði í svart/hvítu
og reyndi að láta líta út eins og
myndin hefði verið gerð árið 1950.
Hugmyndina að baki þáttasyrp-
unni á framleiðandinn William Hor-
berg sem varð sér úti um réttinn til
að kvikmynda nokkrar smásögur
þekktra sakamálahöfunda með það
í huga að búa til úr þeim sjónvarps-
þætti. Hann var einn af fjölmörgum
aðdáendum gömlu sakamálamynd-
anna en fyrir tíu árum hitti hann
glæpasagnarithöfundinn Mickey
Spillane í Las Vegas og hugmyndin
varð til. „Við höfðum áhyggjur af
því í fyrstu hvort við gætum fundið
nægilega einfaldar sögur fyrir þetta
stuttmyndaform," var haft eftir hon-
um. Það tókst og eftir því sem þær
voru skornar niður og þéttar fyrir
sjónvarpið urðu þær straumiínulagð-
ari að hans mati. Efniviðurinn frá
sakamálahöfundunum nær yfir
nokkra áratugi - elsta sagan var
skrifuð árið 1937 en sú yngsta árið
1988 - en ákveðið var að sögusviðið
yrði Los Angeles uppúr seinni heim-
styrjöldinni. Horberg: „Við höfðum
ekki efni á að fara fram og til baka
í tíma. Með þessum hætti gátum við
notað sömu bílana, sama fatnaðinn
og svipaðar leikmyndir í öllum þátt-
unum. Hver þáttur hefur sín sér-
stöku einkenni og stílbrögðin eru
fjölbreytt en þeir eru allir af sömu
slóðum. Okkar vegna má vel vera
að barþjónninn úr einni sögunni
hafi verið handtekinn fyrir morð í
einhverri annarri."
Stöð tvö hefur keypt Fallna engla
til sýninga en ekki er enn ljóst hve-
nær þeir verða á dagskrá.
Arnaldur Indriðason
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
8.00 Fréttir.
8.07 Morgunandakt. Séra Bragi Bene-
diktsson prófastur flytur.
8.15 Tónlist ó sunnudagsmorgni.
- Þóttur fyrir píanókvortett eftir Gustov
Mahler. Domus-kvartettinn leikur.
- Sónoto fyrir selló og pionð i F-dúr ópus
6 eftir Richard Strauss. Esther Nyfeneg-
ger leikur ó selló og Gerard Wyss ó pionó.
9.00 Fréttir.
9.03 Á orgelloftinu.
10.00 Fróttir.
10.03 Uglon hennor Mínervu. Umsjón:
Arthúr Björgvin Bolloson.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Messo í Akureyrorkirkju. St. Þór-
hellur Höskuldsson.
12.10 Dogskró sunnudagsins.
12.20 Hódegisfréttit.
12.45 Veðurfregnir. Auglýsingor. Tónlist.
13.00 Heimsókn. Umsjón: Ævar Kjortons-
son.
14.00 „Heimsólfon sokkno er hér". Dog-
skró um Atlontis i sögnum og skóld-
skop. Umsjón: Gunnor Stefónsson. (Áður
ó dogskró ó póskodag.)
15.00 Af lífi og sól. Þóttur um tóniist
áhugomonno. Islenskir alþýðukórar og
bandoriskir söngleikir. Umsjón: Vernharð-
ur Linnet. (Einnig á dogskrá þriðjudagsk.
kl. 20.00.)
16.00 Fréttir.
16.05 Erindi um fjölmiðla. Stefán Jón
Hafstein flytur. (Einnig á dogskrá ó
þriðjudag kl. 14.30.)
16.30 Veðurfregnir.
16.35 Sunnudagsleikritið. (Einnig á dag-
skró þriðjudogskvöld kl 21.00.)
Tónverk eftir Gusfav Mahler og Richard Strauss á Rás 1 kl. 8.15.
17.40 ilr tónlistorlifinu. Frá Ijóðotónleik-
um í Gerðuberg 13. sept. sl., síðori hluti:
- Spaugileg trúlofun eftir Froncis Poulenc.
- Fjögur Ijóð: forn armenskur olþýðukveð-
skapur eftir Ottorino Respighi.
- Koppróðurinn í Feneyjum eftir Gioocchino
Rossini. Sigrún Hjólmtýsdóttir sópran,
syngur og Jónas Ingimundarson leikur á
pionó.
18.30 Rímsirams. Guðmundur Andri Thors-
son rabbar við hlustendur.
18.50 Dánarfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Veðurfregnir.
19.35 Frost og luni. Helgarþóttur barno.
Umsjón: Elisabet Brekkan.
20.20 Hljómplöturobb Þorsteins Hannes-
sonor.
21.00 Hjálmoklettur. Þóttur um skáld-
skop. Umsjón: Jón Korl Helgoson. (Áður
útvorpað sl. miðvikudagskv.)
21.50 íslenskt mál. Umsjón: Gunnlaugut
Ingálfsson. (Áður á dogskrá s.l. laugar-
dog.)
22.00 Fréttir.
22.07 „Liljo" Eysteins Ásgrímssonar. Þór-
unn Magneo Magnúsdéttir flytur. Fyrsti
hluti af fjórum.
22.27 Orð kvöldsins.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Tánlist.
23.00 Frjálsar hendur llluga Jökulssonar.
(Einnig ó dogskró i næturútvorpi aðfara-
nótt fimmtudags.)
24.00 Fréttir,
0.10 Stundarkorn i dúr og rnoll. Um-
sjón: Knútur R. Mognússon. (Endurtekinn
þóttur frá mánudegi.)
1.00 Næturútvarp til morguns.
fráttir kl. 8, 9. 10, 12.20, 16, 19,
22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/94,9
8.05 Stund með Jonis lan. 9.03 Sunnu-
dagsmorgunn með Svavori Gests. 11.00
Úrval dægurmólaútvarps liðinnor viku. Um-
sjón: Lisa Pálsdóttir. 13.00 Hringbotðið i
umsján starfsfálks dægurmálaútvarps.
14.00 Gestir og gangondi. Umsjón: Mogn-
ús R. Einarsson. 17.00 Með grátt i vöng-
um. Gestur Einar Jónosson. 19.32 Skí-
furabb. Andrea Jánsdéttir. 20.30 Úr ýmsum
áttum. Andrea Jánsdóttir. 22.10 Blógresið
blíða. Magnús Einorsson. 23.00 Rip Rap
og Ruv. Umsján: Ásmundur Jánsson og Ein-
ar Örn Benediktsson. 0.10 Kvöldtónar.
1.00 Næturútvarp á samtengdum rásum
til morguns: Næturtónor.
NÆTURÚTVARPID
1.30Veðurfregnir. Næturtánar hljáma
ófram. 2.00 Fréttir. 2.05 Tengja. Um-
sjón: Kristján Sigurjánsson. (Endurtekinn
þóttur frá fimmtudagskv.) 3.30 Næturlög.
4.30 Veðutfregnir. 4.40 Næturlög. 5.00
Frettir. 5.05 Föstudagsflétta Svonhildor
Jakobsdóttur. 6.00 Fréttir af veðri, færð
og flugsamgöngum. 6.05 Morguntónar.
Ljúf lög i morgunsárið. 6.45 Veðurfréttir.
AÐALSTÖDIN
FM 90,9 / 103,2
10.00 Ljúfur sunnudagsmorgun. 13.00
Ásdís Guðmundsdóttir og Þórunn Helgadótt-
ir. 16.00 Albert Ágústsson. 19.00 Tónlist-
ordeild Aðalstöðvarinnar. 21.00 Kertaljós.
Sigvaldi Búi Þórarinsson. 24.00 Tónlisar-
deild Aðalstöðvarinnar til morguns.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morguntónar. 8.00 Ólofur Mót
Björnsson. 13.00 Holldór Backman. 16.00
Tónlistargótan. Umsjón: Erlo Friðgeirsdóttir.
17.15 Við heygarðshornið. Bjorni Dogur
Jónsson. 20.00 Coca Cola gefur tóninn á
tónleikum. Umsján: Pálmi Guðmundsson.
21.00 Inger Anna Aikman. 23.00 Nætur-
vaktin.
Fréttir kl. 10, II, 12, 14, 15, 16,
17 og 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRÐI
FM 97,9
8.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9. 21.00
Rúnar Rafnsson með það sem ísfirðingar
vilja heyra. 23.00 Somtengt Bylgjunni FM
98,9.
BROSID
FM 96,7
9.00 Klassik. 12.00 Gylfi Guðmundsson.
15.00 Tónlistorkrossgátan. 17.00 Svan-
hildur Eiriksdóttir. 19.00Friðrik K. Jónsson.
21.00 Ágúst Magnússon. 4.00Næturtónl-
ist.
FM957
FM 95,7
10.00 í takt við tímann. Endurtekið efni.
13.00 Tímavélin. Ragnat Bjarnason. 13.15
Blöðum flett og fluttar skrýtnar fréttir. 13.35
Getraun. 14.00 Gestur þáttarins. 15.30
Fróðleikshornið. 15.55 Einn kolrugloður i
restina. 16.00 Sveinn Snorri á Ijúfum
sunnudegi. 19.00 Ásgeir Kolbeinsson.
22.00 Nú er lag.
SÓLIN
FM 100,6
10.00 Sá stilltasti sem uppi er. Ragnar
Blöndol. 13.00 Hann er mættur í frakkan-
um frjðlslegur sem fytr. Arnar Bjarnason.
16.00 Kemur beint af vellinum og var
snöggur. Hans Steinar Bjarnason. 19.00
Ljúf tónlist. Dogný Ásgeirs. 22.00 Sunnu-
dagskvöld. Guðni Már Hennningsson. 1.00
Ókynnt tónlist til morguns.
STJARNAN
FM 102,2 og 104
10.00 Sunnudagsmorgun með Veginum.
13.00 Úr sögu svortor gospeltónlistar.
Umsjón: Thollý Rósmundsdóttir. 14.00 Sið-
degi á sunnudegi með Ungu fólki með hlut-
verk. 18.00 Ókynnt lofgjörðartónlist.
20.00 Sunnudagskvöld með Filadelfiu.
24.00 Dagskrárlok.
Bænastund kl. 10, 14.00 ag
23.15. Fréttir kl. 12, 17 ag 19.30.
X-ID
FM 97,7
10.00 Bjðssi. 13.00 Rokk x. 17.00
Ómar Friðleifs. 19.00 Elli Schram. 10.00
Sýrður rjómi. 1.00 Rokk x.