Morgunblaðið - 25.11.1993, Side 12
12 B dagskrá
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NOVEMBER 1993
Ekki lengur poppstöð
með auglýsingum
Fullveldisdagurinn fyrir 10 árum er sögulegur í íslenskri útvarps-
sögu en þá hóf Rás 2 útsendingar sinar. í fyrstu var dagskráin stutt,
aðeins 6 klukkustundir á dag, en með árunum hefur útsendingar-
tíminn lengst og nú er sent út allan sólarhringinn. A afmælisdaginn
verður dagskrá Rásarinnar með talsvert öðru sniði en venjulega,
fyrrum starfsmenn líta við og þeir tónlistarmenn sem sett hafa svip
sinn á dægurtónlist áratugarins flytja tónlist í beinni útsendingu.
Dægurmálaút-
varp á oddinn
Dagskrárstjórinn - Sigurður G. Tómasson er
bjartsýnn á framtíð Rásar 2.
Eins og áður segir
hefur dagskrá Rásar
2 breyst verulega á
undanförnum 10
árum. Sigurður G.
Tómasson, dag-
skrárstjóri Rásar 2,
segir að stöðin sé
ekki lengur popprás
með auglýsingum. „Dægurmálaút-
varpið er orðinn svo stór þáttur í
dagskránni,“ segir hann. „Rás 2
hefur breyst í tónlistarútvarp sem
leggur áherslu á fréttatengt efni,
atburði líðandi stundar og íþróttir."
Sigurður er þriðji dagskrárstjór-
inn frá upphafi, en fyrirrennarar
hans voru þeir Þorgeir Ástvaldsson
og síðan Stefán Jón Hafstein, sem
lét af störfum á síðasta ári.
Fyrsta
tónlistarstöðin
á íslandi
verður 10 ára á
fullveldisdag-
inn. Af því
tilefni verður
dagskrá Rásar
2 með töluvert
ólíku sniði en
dags daglega
Rás 2 er fyrsta tónlistarrásin á
íslandi. Áður hafði Gufan fullnægt
þörfum landans varð^ndi útvarps-
efni, en léttari dagskrá á Rás 2 var
mikil breyting frá dagskrá Rásar 1
og til að byija með var nýja rásin
nær eingöngu tónlistarútvarp.
Þó svo að það hafi breyst, þá
hefur frá upphafi verið lögð áhersla
á tónlist flutta í beinni útsendingu,
og verður afmælisdagurinn engin
undantekning. Meðal þeirra sem
munu leika eru Bubbi Mortens, Meg-
as tekur lagið ásamt Ný danskri,
Sjórnin mun spila lag Gunnars Þórð-
arsonar Ég veit þú kemur og fær
sér til aðstoðar
óvæntan liðsauka og
Eyjólfur Kristjáns-
son og félagar taka
lagið. Af öðrum gest-
um má nefna Þorgeir
Ástvaldssson, Pál
Þorsteinsson, Jón
Axel Olafsson, Ernu
Indriðadóttur og
Arnþrúði Karlsdótt-
ur.
Annað sem hefur breyst er vinnu-
lagið á dagskránni. Það fylgir því
mikið álag að vinna á Rásinni og
segir Sigurður að kröfur um vinnu-
tíma séu miklar. Nú framleiði færra
starfsfólk meira útvarpsefni en fyrir
tíu árum. Þegar Rás 2 hóf starfsemi
sína var reglan sú að menn skrifuðu
handrit að heilu þáttunum, sem þeir
svo fylgdu orð frá orði.
„Menn fóru ■ ekki inn og sögðu
eitthvað," segir dagskrárgerðarmað-
urinn og morgunþáttarstjórnandinn
Margrét Blöndal, en hún hefur starf-
að við Rásina síðastliðin níu ár.
„Maður var í nokkra daga að und-
irbúa eina næturvakt.
Nú er þetta ekki lengur hægt,
aðallega vegna þess að fólk er mun
meira í útsendingu en áður var.
„Fólk er allt að 10 tíma eitt í útsend-
ingu á viku,“ segir Sigurður.
Rás 2 leggur áherslu á að dag-
skrárgerðarmennirnir hafi fqálsar
hendur varðandi efni og tónlist í
þætti sína og segir Sigurður að ekki
sé neinn lagalisti í gangi, dagskrár-
gerðarmennirnir fái að velja tónlist-
ina sjálfir.
„Rás 2 er og verður karakterút-
varp,“ segir-Sigurður. „Þáttastjórn-
endurnir eru ekki bara plötusnúðar."
Hann segir að þar sem fyrifram
valinn lagalisti sé í gangi verði stöðv-
arnar sviplausar og fólkið sem
stjórni þáttunum hætti að skipta
máli. „Rás 2 byggir á sambandi
þáttastjórnandans við hlustendur,"
segir hann.
„Okkur er treyst fyrir því sem við
erum að gera,“ bætir Margrét við.
„Vlð stöndum óg föllum með því.“
Á síðastliðnum tíu árum hefur
orðið önnur mikilvæg breyting í út-
varpsmálum hérlendis, þegar rekst-
ur útvarpsstöðva var gefinn fijáls.
Með tilkomu Bylgjunnar árið 1986
fékk Rás 2 samkeppni.
Sigurður segir að dægurmálaút-
varpið sem nú einkennir dagskrána
sé afleiðing þessarar samkeppni, það
hafi hreinlega verið sett til höfuðs
þættinum Reykjavík síðdegis, undir
stjórn Hallgríms Thorsteinssonar.
Og Sigurður segir að í dag sé
dægurmálaútvarpið og gott sam-
band við hlustendur grunnurinn að
velgengni Rásar 2, og hann er bjart-
sýnn á framtíðina. „Rás 2 verður
áfram til staðar," segir hann.
Á leið til frægðar á ný - Reeves hefur undanfarin ár leikið í lítt
þekktum kvikmyndum.
Ofurmennið sýnir
á sér nýja hlið
CHRISTOPHER Reeves, leikarinn sem sló í gegn í hlutverki Ofur-
mennisins í myndunum fjórum sem gerðar voru um kappann hefur
látið lítið á sér bera á undanförnum árum. En nú birtist hann á
hvíta tjaldinu á ný í myndinni Dreggjar dagsins, eða „Remains of
the Day“ sem gerð er eftir skáldsögu Kazuo Ishiguro, en hún kom út
í íslenskri þýðingu fyrir jólin 1990.
Leikarinn
Christopher
Reeves,
sem flestir
þekkja sem
Ofurmennið,
hefur látið
lítið á sér
bera síðan
hann hætti
að leika
kappann
fljúgandi, en
er nú að
koma fram á
sjónarsviðið
á ný
Mótleikarar hans í myndinni eru þau Anthony
Hopkins og Emma Thompson, en í Dreggjum leik-
ur Reeves bandarískan húsbónda þjónsins Stevens,
sem leikinn er af Hopkins.
Reeves segir að þetta brotthvarf hans af stjörnu-
himninum hafi verið að yfirlögðu ráði. Eftir að
hann lék Ofurmennið þá hafi einu hlutverkin sem
honum hafi boðist verið að leika hetjur í hasar-
myndum, en hann hafi ekki haft áhug á því, en
þess má geta að Reeves hlaut leikaramenntun sina
í Yale háskóla í Bandaríkjunum. „Flestar þessara
mynda hefðu eflaust gengið vel í kvikmyndahús-
um,“ segir hann.
í staðinn sóttist hann eftir minna áberandi hlut-
verkum í óvenjulegum myndum, sem uppfylltu
óskir hans um frumleika og sköpunarkraft.
Nú þegar hann er að verða kunnur fyrir þessi
hlutverk sín hefur hann aftur áhuga á að leika í
hasarmynd og segir að það sé jafnvel í bígerð.
Sérekki eftir neinu
Reeves segist ekki sjá eftir að hafa kosið að
hafa þennan háttinn á ferli sínum, þó svo að hann
segi að það sé skrýtið til þess að hugsa að ef
hann hefði valið að leika í einni eða tveimur vinsæl-
um hasarmyndum þá hefði honum verið boðin hlut-
verkin sem hann vildi fyrr, en nú er hann að reyna
að fá að leikstýra og leika aðalhlutverkið í mynd
um mannfræðing sem er að gera athuganir á
Samburu-ættflokkinum í Kenýa.
Einkalíf Reeves ber einnig merki þess að hann
kýs að halda sig utan sviðsljóssins, en hann býr
ásamt eiginkonu sinni og barni í New York-ríki.
BIOIN I BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Fanturinn ★ ★ Vi
Hið illa og góða togast á í tveimur
drengjum með vofeifilegum afleiðing-
um. Góð afþreying þótt hún risti
grunnt.
Rísandi sól ★ ★ Vi
Philip Kaufman breytir metsölubók
Michaels Crichtons í of veigamiklum
atriðum til að myndin hans verði
spennandi en ekkert er til sparað og
hún er ágætlega kvikmynduð og leik-
urinn er góður.
Flóttamaðurinn ★ ★ ★
Dr. Kimble, flóttamaðurinn frægi frá
árdögum sjónvarpsins, mættur til leiks
í nýjum búningi. Tekst enn á ný eink-
ar vel að hafa ofanaf fyrir áhorfend-
um.
Veiðiþjófarnir ★ ★ Vi
Ágætlega gerð og spennandi ævin-
týramynd fyrir ungiinga um þijú ung-
menni sem leggja á flótta yfir Kala-
harí-eyðimörkina í Afríku.
Tina ★★★.'/!i
Stormasamri sambúð Tinu og Ike
Turner gerð glimrandi góð skil í þess-
ari frábæru ævisögulegu mynd um
„ömmu rokksins". Leikararnir góðir
en Laurence Fishburne er stórkostleg-
ur sem karLrembusvínið Ike.
BÍÓHÖLLIN
Dave ★ ★ ★
Tvífari forsetans gerist umsvifamikill
í Hvíta húsinu. Lengst af vel skrifuð,
bráðfyndin gamanmynd með ádeilu-
broddi. Kevin Kline og Frank Langella
í toppformi.
Hókus pókus ★ '/2
Hugmyndin um þriggja alda gamlar
nornir sem detta inn í samtímann er
góð en úrvinnslan vond.
Glæfraförin ★
Afspyrnuléleg spennumynd um geð-
sjúklinga og sjávarháska. Geggjun
Erics Roberts er ástæðan fyrir stjörn-
unni.
Fyrirtækið ★ ★ Vi
Ungur lögfræðingur blindast af gróða-
von um sinn. Langdregin, brokkgeng
en óaðfinnanleg útlits. Betri skemmt-
un þeim sem enn hafa ekki lesið bók-
ina.
Ung í annað sinn ★ ★
Góður leikarahópur kemur saman í
rómantískri gamanmynd um vanda-
mál nokkurra fjölskyldumeðlima í
Brooklyn á sjöunda áratugnum. Ein-
stakir kaflar betri en heildarmyndin.
Einu sinni var skógur ★ ★
Falleg teiknimynd með umhverfis-
vænu yfirbragði um lítil skógardýr
sem takast á hendur langt ferðalag.
Ævintýraferðin ★ ★
Tveir hundar og einn köttur lenda í
ævintýrum í leit sinni að fjölskyldunni
sem flutt hefur í burtu. Þrír þékktir
leikarar tala fyfir dýrin í hugljúfri
gæludýramynd.
Skógarlíf ★ ★ ★
Ein af gömlu Disneyperlunum segir
frá ævintýraferð drengsins Mógla úr
frumskóginum til mannabyggða.
Gamansemi og fjör allan tímann.
HÁSKÓLABÍÓ
Hetjan ★ '/i
Basinger misráðin í bankaræningja-
hlutverk í linkulegri hasar- og spennu-
mynd. Terence Stamp og Val Kilmer
bjarga engu.
Hættulegt skotmark ★ ★ Vi
Ofbeldið er sett ofar öllu í andstyggi-
legri en spennandi drápsmynd.
Af öllu hjarta ★ ★ Vi
Sérstök og frumleg mynd nýsjálenska
leikstjórans Vincent Wards segir frá
eskimóa sem kynnist „siðmenning-
unni“ og fær sig fullsaddann. Ágætur
leikur hjá Jason Scott Lee.
Fyrirtækið ★ Vi
Ungur lögfræðingur blindast af gróða-
von um sinn. Langdregin, brokkgeng
en óaðfinnanleg útlits. Betri skemmt-
un þeim sem enn hafa ekki lesið bók-
ina.
Indókína ★ ★ ★
Falleg, hádramatísk, frönsk stórmynd
um miklar ástir og umbrot í Indókína
undir Frökkum. Catherine Deneuve
ógleymanleg.
Rauði lampinn ★ ★ ★
Fínleg, döpur en minnisstæð mynd um
tilgangslitla jafnréttisbaráttu kvenna
gegn karlaveldinu í Kína.
Jurassic Park ★ ★ ★ Vi
Ein af eftirminnilegu myndunum hans
Stevens Spielbergs hefur átt geysileg-
um vinsældum að fagna erlendis og
byijaði með látum hér heima. Stór-
kostleg ævintýramynd og ein af fáum
í seinni tíð sem er virkilega nauðsyn-
legt að sjá.
LAUGARÁSBÍÓ
Hættulegt skotmark ★ ★'/j
Ofbeldið er sett ofar öllu í andstyggi-
legri en spennandi drápsmynd.
Prinsar í L.A. ★ ★
Oft skopleg endaleysa um þræður tvo
sem komast að því að þeir eru í raun-
inni prinsar í fjarlægu ríki.
Hinir óæskilegu ★ ★ ★ Vi
Hreinskilni og vonleysi myndarinnar
kemur eins og köld vatnsgusa framan
í áhorfendur. Ein sterkasta mynd sem
gerð hefur verið um ömurleg kjör og
virðingarleysi þeldökkra unglinga
gagnvart umhverfi sínu.
REGNBOGINN
Svik ★
Áströlsk della um tryggingarsvik og
vafasama kraktera. Myndin er nánast
svik við kröfuharða áhorfendur.
Hin helgu vé ★ ★ Vi
Lítil og ljúf mynd um fyrstu reynslu
sjö ára drengs af ástinni og afbrýð-
inni. Yngstu leikararnir fara á kostum.
Óvenjuleg mynd frá Hrafni.
Píanóið ★ ★ ★
Einkar vel get’ð og leikin nýsjálensk
verðlaunamynd um mállausa konu
sem kynnist ástinni í óbyggðum og
píanóið sem verður örlagavaldurinn í
lífí hennar. Gott mál.
Áreitni ★ ★
Miðlungsspennumynd um áreitna og
ruglaða stelpugálu. Ristir grunnt en
aðalleikkonan státar af réttum Lolitu-
sjarma.
Red Rock West ★ ★
Ekki ólaglega gerð og leikin en
spennulítil og fyrirsjáanleg mynd í film
noir stíl.
SAGABÍÓ
Strákapör -k-kVi
Skemmtileg drengjamynd um stráka
sem leika hornabolta allan liðlangan
daginn og lenda í ævintýrum þegar
boltinn fer inn í garð nágrannanns.
Rísandi sól (sjá Bíóborgiim)
STJ8RNUBÍÓ
Ég giftist axarmorðingja ★ ★
Rómantísk gamanmynd sem tekur
undarlega beygju í lokin og lendir
mjög utan vegar. Ágætir aukaleikarar
gera meira fyrir myndina en myndin
fyrir þá.
Svefnlaus í Seattle ★★★
Einkar aðlaðandi rómantísk gaman-
mynd um samdrátt manns og konu
sem teygir sig þvert yfir Bandaríkin.
Full af húmor og skemmtilegheitum
varðandi ástina 'og hjónalífið.
í skotlínu kkkVi
Fyrstaflokks afþreying. Mynd sem
gerir fólk að bíófíklum og heldur því
ánetjuðu við efnið.