Morgunblaðið - 07.12.1993, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.12.1993, Qupperneq 1
88 SIÐURB/C STOFNAÐ 1918 279. tbl. 81. árg. ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Wolf dæmdur Reuter MARKUS Wolf, fyrrum yfirmaður austur-þýsku leyniþjónustunnar, var í gær dæmdur til sex ára fangelsisvistar fyrir landráð og njósnir. Búist er við að stjórnlagadómstóll Þýskalands muni nú verða að skera úr um hvort hægt sé að dæma mann fyrir landráð gegn ríki, sem hann hafði ekki ríkisborgara- rétt í. Hópur stuðningsmanna gamla austur-þýska kommúnistaflokksins hafði komið saman fyrir utan dómshúsið í Dússeldorf er dómurinn var kveðinn upp og_ krafðist fólkið þess að Wolf yrði sleppt úr haldi. Á myndinni ræðir Wolf við blaðamenn ásamt Gregor Gysi, leiðtoga kommúnista á þingi (t.v.). Hugmyndir bandarískra sérfræðinga Kjamavopnum beint að N-Atlantshafi? VARNARMÁLARÁÐUNEYTI Bandaríkjanna hefur tekið til skoðun- ar hvort beina beri langdrægum eldflaugum þeim sem bera kjarn- orkuvopn frá skotmörkum í Rússlandi og raunar fleiri fyrrum sovét- lýðveldum. Þetta fékk Reufers-fréttastofan staðfest síðdegis í gær en bandaríska dagblaðið The New York Times hafði fyrr um daginn greint frá því að þessi hugmynd hefði komið upp í viðræðum full- trúa Rússa og Bandaríkjamanna. Ónefndur hershöfðingi einn banda- rískur sagði í samtali við The New York Times að til greina kæmi að beina eldflaugum þessum á haf út, hugsanlega í Ishafið eða í Norður-Atlantshaf. Að sögn heimildarmanna Reuters var þessi hugmynd til umræðu á fundi í fyrri viku er ígor Sergeijev, yfirmaður kjarnorkuherafla Rússa, var á ferð í Bandaríkjunum. Ekki hefur komið til tals að taka gjöreyð- ingan'opn þessi úr umferð en á hinn bóginn þykir ýmsum það við hæfi að finna þeim ný skotmörk á þeim slökunartímum sem nú ríkja í sam- skiptum Rússlands og Bandaríkj- anna. Slík breyting hefði í raun þó aðeins táknrænt gitdi þar sem auð- veidlega mætti stilla búnað eldflaug- anna á ný þannig að þær gætu tor- tímt eldri, skilgreindum skotmörk- um. Tæki það að sögn sérfróðra um 15 mínútur en rússnesk landeldflaug Staðan í viðræðunum um GATT ekki kynnt Evrópubandalaginu fyrr en í dag Juppe segir Frakka ekki sátta við GATT-samning Kantor o g Brittan deila enn um innflutning- á bandarísku menningarefni Brussel, París. Reuter. The Daily Telegraph. ÓVISSA ríkir á nýjan leik um hvort GATT-samningar nást eftir að Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakklands, lýsti því yfir í gær- kvöldi að Frakkar gætu ekki sætt sig við stöðu mála í viðræðum Bandaríkjamanna og Evrópubandalagsins (EB). Sagðist hann ekki hafa neina ástæðu til að ætla að samningar næðust. í gær átti að kynna ráðherra- ráði og utanríkisráðherrum EB landbúnaðarsamning þann sem Sir Leon Brittan, viðskiptafulltrúi EB Breytingar á kyn- fræðslu í Bretlandi Lundúnum. Reuter. BRESKI menntamálaráðherrann, John Patten, tilkynnti í gær breyting- ar á kynfræðslu í breskum skólum. Verður kynfræðslan tekin af kennsiuskrá í líffræði og kennd þess í stað sem sjálfstæð grein. Aukin áhersla verður lögð á fjölskyldugildi og siðferðislega ábyrgð. í engu landa Evrópubandalagsins eru skilnaðir jafn algengir og ein- stæðar mæður jafn margar og í Bret- landi. Endurspegla hinar nýju reglur um kynfræðslu áskorun Johns Maj- ors forsætisráðherra um að menn hverfi frá frjálslyndi sjöunda áratug- arins, sér í lagi hugmyndum um fijálsar ástir. Mackay lávarður hefur lagt fram tillögu þess efnis að hjón geti fengið lögskilnað er eitt ár er liðið frá skiin- aði að borði og sæng í stað tveggja ára. Vill Mackay að meiri áhersla verði lögð á að koma í veg fyrir skiln- að í þeim tilfellum sem það sé hægt. Vill hann að settar verði upp „sátta- stöðvar" þar sem hjón geti gert út um ágreinirigsmá! sín áður en lög- fræðingar komi til sögunnar. Þá eru málefni einstæðra mæðra pólitískt deilumál. Nokkrir íhalds- samir þingmenn hafa úthrópað mæð- ur á unglingsaldri og segja þær ala upp glæpamenn framtíðarinnar undir verndarvæng velferðarkerfisins. Kirkjunnar menn segja þær hins vegar þarfnast hjálpar. Hefur stjórn- in lýst því yfir að framfærsla barna ungra mæðra eigi fremur að vera á herðum foreldra stúlknanna eða unn- usta en ríkisins. og Mickey Kantor, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, gerðu en í gær- kvöldi var tilkynnt að því hefði verið frestað þar til í dag. Brittan og Kantor héldu áfram viðræðum í gærkvöldi og var allt eins búist við því að þær stæðu í nótt. Talið er að Bandaríkjamenn hafi gefið eftir í landbúnaðarsamningi Kantors og Brittans og fyrr um daginn höfðu yfirlýsingar ýmissa ráðamanna vakið vonir um að samningar væru brátt í höfn. Yfirlýsing Juppe kom hins vegar í kjölfar orðsendingar sem Edouard Balladur, forsætisráðherra Frakk- lands, sendi Helmut Kohl, kanslara Þýskalands og Brittan, þar sem hann krafðist þess að EB óskaði eftir auknum tryggingum gegn ódýrum innflutningi. Þá hafa Frakkar gert kröfur um að brugð- ist verði með skjótari hætti en áður við undirboðum. Enn deilt um menningarmál Gúnther Rexrodt, viðskiptafull- trúi Þýskalands, sakaði Frakka í gær um að ganga of langt. Sagði hann að sökum þrákelkni þeirra væri útséð að EB og Bandaríkin kæmust að samkomulagi á mánu- dag sem talið hefði verið nauðsyn- legt til að að samningar næðust fyrir 15. desember. Ætlunin var að Kantor og Britt- an héldu fund í Genf í dag, þar sem samningurinn yrði kynntur. Þeir deildu hins vegar enn í gær- kvöldi um mál á borð við innflutn- ing á bandarískum kvikmyndum og sjónvarpsefni, styrki til flug- vélasmíði og aðgang að bandarísk- um fjármálamörkuðum. er um 30 mínútur að ná til Banda- ríkjanna. Dregið úr hættu af slysaskotum Að sögn The New York Tiiues hafa bandarískir sérfræðingar rætt þá hugmynd að beina megi vopnum þessum að stöðum á hafi úti. Segir blaðið að 24 slíkir staðir hafi komið til tals og að ágæti þessarar hug- myndar hafí m.a. verið rökstddmeð tilvísun til þess að rússneskum borg- um eða hernaðarskotmörkum yrði ekki eytt ef bandarískri eldflaug með kjarnaodd innbyrðis yrði skotið á loft fyrir mistök. Á meðal þeirra hafsvæða sem komið hafa til tals eru, að sögn bandaríska blaðsins, Ishafið og Norður-Atlantshaf. Bandarískur herforingi, ónafngreindur, segir í samtali við blaðið í gær: „Ef eldflaug er af einhveijum ástæðum skotið á loft fyrir mistök er hugmyndin sú að hún lendi í íshafinu eða Norður- Atlantshafinu og þá yrði helsta áhyggjuefni okkar hugsanlega það að drepa nokkra hvali.“ Umhverfisáhrif ókönnuð Embættismenn þeir sem Reuters- fréttastofan ræddi við í Washington vildu hvorki staðfesta né neita þeirri frétt að til athugunar væri að beina eldflaugunum að skotmörkum á hafi úti og lögðu áherslu á að engin ákvörðun hefði verið tekin I þessum efnum. í frétt The New York Times er haft eftir háttsettum embættis- mönnum í bandaríska varnarmála- ráðuneytinu að ekki hafi verið skoð- uð sérstaklega hugsanleg umhverf- isáhrif ef eldflaug með gjöreyðing- arvopn innanborðs yrði skotið á haf út fyrir slysni. Rutelli vann íRóm FRANCESCO Rutelli, frambjóð- andi græningja og fyrrverandi kommúnista í Róm, fagnar sigri. Rutelli vann nýfasistann Gian- franco Fini í síðari umferð sveitar- stjórnarkosninganna á Ítalíu á sunnudag en þá var kosið milli tveggja efstu úr fyrri umferðinni. Nýfasistar fengu mest fylgi á landsvísu en PDS, flokkur fyrrver- andi kommúnista, sigraði í nokkr- um helstu borgunum og er eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur umtalsvert fylgi í öllum landshiut- um. Það þykir sýna vel breytta tíma að viðbrögð á fjármálamörkuðum við sigri vinstrimanna voru að þessu sinni fremur jákvæð, hluta- bréf hækkuðu. Sérfræðingar sögðu marga hafa talið skárra að PDS skyldi sigra en nýfasistar. Sjá frétt á bls. 30.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.