Morgunblaðið - 07.12.1993, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
Salan á SR-mjöl
Margir
kaupend-
ur gefa
sig fram
TALSVERT á annan tug fjár-
festa hefur Iýst áhuga á að
kaupa hlutabréf SR-mjöls hf.
(áður Síldarverksmiðjur ríkis-
ins) frá því að fyrirtækið var
auglýst til sölu fyrir tveimur
vikum, samkvæmt upplýsing-
um Ásgeirs Þórðarsonar hjá
Verðbréfamarkaði íslands-
banka sem hefur umsjón með
sölunni. Nafnverð hlutafjárins
er 650 milljónir króna sem á
að selja í einu lagi.
Ásgeir sagði að verið væri að
meta kaupendahópinn vegna
fyrirhugaðrar sölu áður en einstök
tilboð yrðu sett fram en hann
sagði ekki útilokað að hægt yrði
að ganga frá sölunni á milli jóla
og nýárs. .
Verðmæti á bilinu 650-1000
milljónir króna
**■ Nafnverð hlutafjárins er 650
millj. kr. en Verðbréfamarkaður
íslandsbanka hefur lagt mat á
verðmæti félagsins sem er nokkru
meira en nemur nafnverði eða á
bilinu 650-1.000 millj. kr. skv.
upplýsingum Ásgeirs. Væntanleg-
ur kaupandi yfirtekur einn millj-
arð kr. í langtímaskuldum en rík-
issjóður hefur þegar létt 400 millj-
ónum kr. af fyrirtækinu.
Horfið frá lokun hluta
Fljótagrunns
Tillit tekið
lil þckkingai'
heimamanna
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
hefur ákveðið að taka tillit til
þekkingar heimamanna á staðhátt-
um á Fljótagrunni og loka ekki
því veiðisvæði þar sem fiskurinn
er hvað skástur. Að sögn Björns
Ævars Steinarssonar fiskifræð-
ings munu veiðieftirlitsmenn fylgj-
ast með því hvernig veiðar á svæð-
inu þróast, en reglugerð verður
væntanlega sett í dag um lokun
ákveðinna svæða á Fijótagrunni
fyrir Iínuveiðum.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu á sunnudaginn kynnti Haf-
rannsóknastofnun s.l. föstudagskvöld
fyrirhugaða lokun grunnslóðarinnar
frá austurkanti Skagafjarðar og í
Eyjafjarðarál fyrir línuveiðum. Sjó-
menn mótmæltu þessari lokun þar
sem með henni væri verið, að loka
nánast öllum hefðbundnum veiði-
svæðum þeirra og taka frá þeim lífs-
björgina.
Bjöm Ævar Steinarsson sagði að
fundurinn með smábátasjómönnum á
Siglufirði á föstudagskvöldið hefði
verið mjög gagnlegur og á fundi físki-
fræðinga á Hafrannsóknastofnun í
gær hefði verið ákveðið að taka tillit
til þekkingar heimamanna á svæðinu
og skilja eftir opið það svæði þar sem
fiskurinn er hvað skástur.
Umsögn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um skattafrumvörp
Slaðgrciðshihlutfallið mun
liækka í 41,89% á næsta ári
3500 tonn af brotajárni til Spánar
ÚTSKIPUN brotajárns á vegum Hringrása/ hf. var í fullum gangi þegar ljósmyndari Morgunblaðsins
átti leið um Sundahöfn á föstudag. Einar Ásgeirsson sagði að um væri að ræða 1.500 tonna farm og
væri hann nú á leið til Spánar, en þar í landi væri verð á brotajárni hvað hagstæðast um þessar
mundir. Alls sagði hann að flutt hefðu verið út um 6.000 tonn af brotajárni á vegum fyrirtækisins á
árinu. Að auki væru fluttir út ýmsir góðmálmar.
Annað íslenskt fyrirtæki, Fura hf., flytur út tætt brotajám og góðmálma. Á vegum þess fóru 2.000
tonn af brotajárni til Spánar sl. miðvikudag. Haraldur Olason framkvæmdastjóri fynrtækisins sagði
að samtals hefðu 12.000 tonn af brotajárni verið flutt út frá því í apríl. Söluverðmæti þess væru 120
milljónir.
Morgunblaðið/Kristinn
REYKJAVÍK missir tæplega 190 millj. kr. tekjur vegna breytinga
sem fyrirhugaðar eru með frumvarpi um tekjustofna sveitarfé-
laga vegna afnáms aðstöðugjalds, en önnur sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu fá auknar tekjur sem nema nær tvöfalt þessari
upphæð. Þetta kemur fram í umsögn stjórnar Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu en þar er varað við auknum skattaá-
lögum sem fram komi í frumvarpinu og öðrum frumvörpum sem
nú liggja fyrir Alþingi. Bent er á að á þessu ári sé staðgreiðslu-
hlutfall útsvars og tekjuskatts 41,34% en stefni í að verða 41,89%
á næsta ári.
SR-mjöl rekur fímm loðnu-
bræðslur á Siglufírði, Seyðisfírði,
Reyðarfírði, Raufarhöfn og
Skagaströnd og nam velta þeirra
á síðasta ári 2,2 milljörðum.
Auglýsingablaðinu Jóla - Kringl-
an, sem Kringlan gefur út, er
dreift með Morgunblaðinu í dag.
Fram kemur í greinargerð með
umsögn samtakanna að á móti
tekjutapi vegna niðurfellingar að-
stöðugjalds sé gert ráð fyrir að
hækkun útsvars nemi um 3.905
millj. fyrir sveitarfélögin í landinu,
hækkun á hámarki fasteigna-
skatts fyrirtækja gefí um 275
millj. og skattur á skrifstofu- og
verslunarhúsnæði um 360 millj. I
stað landsútsvars renni 0,227% af
álagningarstofni útsvars næstlið-
ins árs til Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga sem gefí um 521 millj. kr.
„í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að til þess að bæta
sveitarfélögum upp tap vegna að-
stöðugjalds þurfí um 1,7% hækkun
á útsvari. Gert er ráð fyrir að
tekjuskattur lækki samsvarandi,
þannig að staðgreiðsluhlutfallið
hækki ekki frá því sem það er nú.
í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1994
er gert ráð fyrir að tekjuskatturinn
lækki ekki nema um 1,5%. Til við-
bótar er í skattalagafrumvarpi
gert ráð fyrir 0,35% hækkun á
tekjuskatti. Þessar hækkanir
koma til viðbótar við þær skatta-
hækkanir sem lagðar voru á í
fyrra. Staðgreiðsluhlutfallið
stefnir því í að vera 41,89% á
næsta ári, þ.m.t. 8,74% meðaltal
útsvars.
Vsk. á akstur kostar
sveitarfélög 65-85 millj.
Aðrar álögur hækka eða er
Ovenjumik-
il jarovegs-
eyðing í naust
MIKIÐ sandfok hefur verið í norð-
austurhluta landsins í haust og
vatnsrof á afréttum sunnanlands.
Vegna þessa hefur jarðvegseyðing
verið óvenjulega mikil að mati
Andrésar Arnalds gróðureftirlits-
manns Landgræðslu ríkisins.
Andrés sagði að vegna samspils
óvenjulegs snjóleysis, þurrka og
hvassviðris hefði verið mikið sandfok
á Norðausturlandi í haust, eða þar
til fyrir nokkrum dögum. A afréttum
Suðurlands hefði einnig verið vatns-
rof. Vegna frostlyftingar og ísnála-
myndunar hefði jarðvegur fokið burt
í óveðursköflunum svo að melar
stæðu sums staðar eins og hvít-
þvegnir eftir.
bætt við. Til dæmis verður lagður
14% vsk. á akstur almennings-
vagna og akstur fatlaðra frá og
með næstu áramótum. Þessi skatt-
ur mun kosta sveitarfélögin sam-
tals um 65-85 mkr. á ári,“ segir
í greinargerð með samþykkt sam-
takanna.
Nýtt skíðaland
Vindmælingar og jarðfræðisrann-
sóknir fara fram á Vindheimajökli
vegna skíðalands 28
Rússnesku kosningarnar
Síðasta vika kosningabaráttunnar
í Rússlandi er hafin 31
Ingólfstorg
Ingólfstorg var formlega opnað á
laugardag 32-33
Leiðari
Öfgaflokkar og ítölsk reiði 32
—rr" | Valdimar Grfmsson «2»
áteriogflugi 3»
. ‘ - -Vi
Iþróttir
► Héðinn Gilsson slasaðist og
liggur á sjúkrahúsi í Diisseld-
orf. íslendingar unnu þrenn
bronsverðlaun á HM og NM í
lyftingum.
Drengur lenti undir bíl og dróst 60 m
Marðist aðeins og
fékk að fara heim
eftir læknisskoðun
Faðir drengsins varð vitni að at-
burðinum og hljóp á eftir bílnum
HALLDÓR Gíslason, sjö ára drengnr í Höfnum þótti sleppa
á undraverðan hátt við alvarleg meiðsli í gærkvöldi er
hann lenti undir bíl og dróst með honum um 60 metra.
Er talið að drengurinn hafi lent undir öðru framhjóli bíls-
ins en hann var fastur undir afturöxli bílsins og þegar
að var komið. Læknisskoðun í gærkvöldi leiddi í ljós að
drengurinn hafði aðeins marist en var að öðru leyti
ómeiddur, nema hvað hann hafði fengið snert af heilahrist-
ingi og var skipað að liggja fyrir í dag að minnsta kosti.
Gísli Hjálmarsson, faðir
drengsins, stóð fyrir utan heim-
ili þeirra við Hafnargötu á tali
við annan mann og var Halldór
á leik þar hjá. Gísli sagðist í
samtali við Morgunblaðið hafa
heyrt dynk þegar bíl var ekið
hægt framhjá húsinu og sá eitt-
hvað liggja á götunni sem hann
hélt að hefði fallið úr bílnum en
þegar hann fór að aðgæta þetta
nánar sá hann að þetta var húfa
Halldórs. Áttaði hann sig þá
strax á hvað hafði gerst og seg-
ist hafa hlaupið hrópandi á eftir
bílnum. Bílstjórinn hafði hins
vegar ekki orðið drengsins var
og taldi sig hafa ekið yfir snjó-
hindrun á götunni. Ökumaður-
inn stöðvaði bílinn við hús um
60 metrum neðar í götunni.
Drengurinn var þá fastur undir
afturöxli bílsins við annað aftur-
hjólið. Gísli og ökumaðurinn
náðu drengnum undan bílnum
með því að lyfta bílnum upp.
Er talið að Halldór litli hafí
ætlað að hlaupa yfír götuna og
runnið undir bílinn. Mikill snjór
var á götunni sem var órudd og
sagði Gísli að það hefði áreiðan-
lega orðið Halldóri til lífs. Var
Halldór fluttur á sjúkrahúsið í
Keflavík og kom í ljós að hann
var með áverka á öðrum vang-
anum og marinn á bijóstkassa
og baki og hafði fengið snert
af heilahristingi en sloppið að
öðru leyti ómeiddur og fékk
Halldór að fara heim að skoðun
lokinni.