Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 Ný stjórn útgáfufélagsins Mótvægis hf. kjörin á hluthafafundi í gær Fyrsta mál að reyna að minnka skaða kröfuhafa og hluthafa STJÓRN Mótvægis hf., útgáfufélags Tímans, sagði af sér í gær og var ný stjórn kjörin. Ritstjórinn, Þór Jónsson, hefur sagt starfi sínu lausu. Að sögn nýkjörins stjórnarformanns, Gunnlaugs Sigmundsson- ar, verður fyrsta verk nýrrar stjórnar að reyna að minnka skaða hluthafa og þeirra sem eiga kröfur á hendur fyrirtækinu. Takist það verður hægt að fara að huga að uppbyggingu fyrirtækisins. Nýkjörin stjóm kemur saman til fundar í dag. Að sögn Bjarna Þórs Óskarssonar, fráfarandi stjómarformanns, var bág afkoma félagsins kynnt á hluthafa- fundi í gær og ný stjóm kjörin. Í henni sitja Gunnlaugur Sigmunds- son, formaður, Geir Magnússon, varaformaður, Gunnar Hilmarsson, Hrafn Magnússon og Bjarni Þór Óskarsson. í varastjóm em Margeir Daníelsson, Jóhann Pétur Sveinsson og Ágúst Þór Ámason. Tíminn kemur út Að sögn Bjama Þórs var rekstr- VEÐUR artap Mótvægis hf. 17,6 milljónir það sem af er árinu og er eigið fé í kring- um núllið. Hann segir að enn sé óselt hlutafé miðað við ákvörðun fyrri stjómar og eflaust verði skoðað að fá nýtt hlutafé inn í félagið með ein- hveijum hætti. Bjami Þór sagði í gær að Tíminn myndi koma út í dag og a.m.k. einhveija næstu daga. Milliuppgjör óundirritað Gunnlaugur Sigmundsson, nýkjör- inn stjómarformaður Mótvægis hf., segir það enga Iaunung að fjárhags- staða blaðsins sé langt frá því að vera góð. .„Þama hafa menn fengið að reyna sig en það hefur ekki geng- ið upp. Menn stóðu frammi fyrir því að stjómin gafst upp og fór og þá var það á ábyrgð hluthafa að skipa nýja stjóm. Hlutafé er nánast búið en eiginfjárstaðan samt sögð jákvæð. Það er samkvæmt milliuppgjöri sem er óundirritað af endurskoðanda þannig að ég tek öllu slíku með var- úð. Ég þarf að taka mér tíma til að kynna mér málin því ég kem alveg nýr að þessu en ég reikna með því að fyrstu mál á morgun [þriðjudag] verði að skipa málum niður til bráða- birgða," sagði Gunnlaugur. Aðspurður um hvort hlutafjársöfn- un yrði haldið áfram sagði Gunnlaug- ur að fyrst yrðu menn að gera sér grein fyrir því hvort þeir hefðu eitt- hvað til að selja. „Ég er ehginn IDAGkl. 12.00 Heimild: Veðurstola íslands (Byggt á veðurspá kt. 16.30 í gær) / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +3 snjókoma Reykjavik +2 skýjað Bergen 6 rigning Helsinki 2 lémkýjað Kaupmannahöfn 7 skýjað Narssarssuaq +15 léttskýjað Nuuk +8 skýjað Ósló +1 skýjað Stokkhólmur 3 léttskýjað Þórshöfn 4 snjóéi Algarve 18 skýjað Amsterdam 8 rigning Barcelona 11 þokumóða Berlín 8 alskýjað Chicago 3 rigning Feneyjar 12 heiðskírt Frankfurt 5 þokumóða Glasgow 8 rigning Hamborg 7 þokumóða London 10 skýjað Los Angeles 14 alskýjað Lúxemborg 4 þokumóða Madríd 8 þokumóða Malaga 19 léttskýjað Mallorca 16 skýjað Montreal 1 alskýjað NewYork 3 heiðskirt Orlando 11 skýjað París 10 skýjað Madelra 19 léttskýjad Róm 16 þokumóða Vín 6 léttskýjað Washington 3 heiðskírt Winnipeg +13 heiðskirt galdramaður í því að lokka fram hlutafé nema hafa einhveija söluvöru í höndunum. Við verðum að ákveða hvað við ætlum að gera og hvernig. Nú er fyrsta mál að minnka skaða þeirra sem þarna eiga kröfur og hlut- hafanna. Ef það tekst þá er hægt að gera eitthvað áfram, en ella ekki.“ Forsendur ráðningar brostnar Þór Jónsson sagði starfi sínu sem ritstjóri Tímans lausu í gær. „Ástæð- an er sú að ég taldi á sínum tíma, fyrir u.þ.b. mánuði og lýsti því á stjómarfundi, að forsendur fyrir út- gáfu þess blaðs sem til stóð í upp- hafi þegar ég var ráðinn, væru ekki lengur fyrir hendi af fjárhagsástæð- um. Ég ákvað þó að starfa áfram og þegar nú kom að því að sú stjórn sem réði mig, skilaði umboði sínu þá væri eðlilegt að ég segði upp á fyrrgreindum forsendum. Eg tel ekki að unni-sé að gefa út Tímann með þeim hætti sem menn ætluðu sér í upphafi og ég sóttist eftir þegar ég lagði inn umsókn mína um starf rit- stjóra," sagði Þór. Þór á tveggja vikna uppsagnar- frest. Hann sagði í gærkvöld að ákvörðun um hvort hann ynni frest- inn yrði tekin í dag. Jarðskjálfti 3,1 áRichter Fannst víða á höf- uðborgarsvæðinu JARÐSKJÁLFTAHRINA varð norðan við Kleifarvatn um kl. 16 f gær og mældist sterkasti kipp- urinn 3,1 á Richter. Jarðskjálft- inn fannst víða í Hafnarfirði og á nokkrum stöðum í Reykjavík. Að sögn Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings á Jarðeðlis- fræðideild Veðurstofunnar voru upptök jarðskjálftans í Sveifluhálsi fyrir norðan Kleifarvatn. Fyrsti jarðskjálftakippurinn varð kl. 15.55 og mældist 3,1 á Richter. Eftir fylgdu tugir minni skjálfta, sá sterkasti 2 á Richer. Jarðskjálftar eru tíðir á þessu svæði og urðu síð- ast hinn 12. nóvember sl. Ekki er talið að jarðskjálftahrinan bendi til þess að umbrot séu að hefjast á svæðinu. STJÓRN Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar telur að ætlunin sé að hafa að engu gefin loforð um að ráðningarkjör starfsmanna SVR hf. verði óbreytt frá því sem var áður en fyrirtækinu var breytt í hlutafé- lag frá og með 1. desember sl. Engir ráðningarsamningar hafa verið gerðir við starfsmenn fyrirtækisins og búa þeir við óvissu um kjör sín eftir að greinargerð Vinnuveitendasambands Islands var kynnt stjórn starfsmannafélagsins, að sögn Sjafnar Ingólfsdóttur, formanns Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Hefur stjórnin ritað borgarstjóra bréf af því tilefni, en fyrirtækið er alfarið í eigu borgarinnar. Sjöfn segir að í greinargerð sem Vinnuveitendasambandið hafi kynnt komi fram hvernig framtíðarkjör starfsmanna muni verða. „Greinar- gerðin er í andstöðu við það sem við höfum lagt upp með eða eins og fram kemur í upphafsorðum erindis til starfsmanna frá borgarstjóranum í Reykjavík og Sveini Andra Sveins- syni frá 7. júní síðastliðnum að breyta eigi Strætisvögnum Reykja- víkur í hlutafélag, en að forsenda fyrir breytingunni sé að starfsmenn haldi störfum sínum og að laun og réttindi þeirra verði þau sömu fyrir og eftir breytingar," sagði hún. „í greinargerð VSI kemur hins vegar fram að öll ávinnsla réttinda er úr sögunni og þar með teljum við að ekki sé lengur staðið við þau loforð sem gefin voru fyrir sameiningu.11 Óvissa í bréfí stjórnarinnar til borgar- stjóra segir að svo virðist sem ætlun- in sé að hafa að engu þau loforð sem hann hafi gefið fyrrum starfsmönn- um borgarinnar um að þeir „... haldi störfum sínum og laun og réttindi þeirra verði þau sömu fyrir og eftir breytingar" eins og segir í áður- nefndu bréfi. Þá segir: „Þessi fram- koma VSÍ er sérstaklega ámælisverð í Ijósi þess að nokkur óvissa hafði verið meðal starfsmanna um hvort staðið yrði við fyrirheit þín til starfs- manna. Þessari óvissu töldum við að hefði verið eytt á fundi með forsvars- mönnum hlutafélagsins þann 25. og 26. nóvember sl. þar sem þeir til- kynntu að við fyrirheitin yrði staðið. Var þar m.a. rætt um atriði eins og ávinning til veikindaréttinda, starfs- aldurshækkanir og önnur ávinnslu- atriði. Tugir starfsmanna voru vitni að yfirlýsingum forsvarsmanna Stjóm Starfsmaimafélags Reylqavíkiirborgar Loforð um óbreytt kjör höfð að engu hlutafélagsins í þessu efni sem vitn- uðu til persónulegra viðræðna við þig. Forsvarsmenn St.Rv. kynntu starfsmönnum SVR á fundi þann 27. nóvember að við fyrirheitin yrði stað- ið og gengu menn til vinnu hjá hluta- félaginu í þeirri trú.“ Lögum breytt Bent er á að lögum starfsmannafé- lagsins hafi verið breytt til að mæta vilja starfsmanna SVR hf. um áfram- haldandi aðild að félaginu. Langflest- ir starfsmannanna hafa valið starfs- mannafélagið sem sitt stéttarfélag og fer það með umboð til kjarasamn- inga gagnvart SVR hf. Þá segir að nauðsynlegt sé að Reykjavíkurborg, sem eigandi alls hlutaijár, tryggi að félagið geri án tafar kjarasamninga við starfsmannafélagið en beri ekki fyrir sig að umboð sem það hefur veitt VSÍ geri félaginu ókleift að gera kjarasamninga við félagið. Fram kemur að vandséð sé að erfitt geti verið að ná kjarasamningi milli aðila þegar fyrir liggur að kjör starfsmanna eigi að vera þau sömu og þau voru meðan þeir störfuðu hjá Reykjavíkurborg á grundvelli kjara- samnings St.Rv. og Reykjavíkur- borgar og þeirra sérstöku réttinda sem starfsmenn borgarinnar njóti. Jafnframt sé nauðsynlegt að ganga án tafar frá persónulegum ráðning- arsamningum við starfsmenn þar sem óbreytt starfskjör þeirra verði tryggð í samræmi við gefin fyrirheit. Fram kemur að starfsmenn SVR hf. hafi óskað eftir áframhaldandi aðild að IJfeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar. í því felist ósk um að félagsmenn greiði áfram tii sjóðsins og að réttindaávinnsla þeirra verði óbreytt frá því sem áður var.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.