Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
9
Franskir frúarkjólar,
pils og blússur
TESS
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
622230.
NEÐ5
Opið virka daga
kl.9-18,
laugardag
kl. 10-18.
MOULINEX
gufustraujárn með
krómuðum botni, skila
sléttum og snyrtilegum
fatnaði.
MOULINEX gufustraujárn
fyrir þá vandlátu.
Fasst í næstu
roftækiaverslun
I. Guðmundsson & C«. hf.
•JMBOÐS OG’HEIlDVEHS! JN
SlMI 91-24020 FAX 91-623145
TOSHIBA
Attþú
ekki <
örbylgjuofn ?
Þeir sem eiga TOSHIBA örbylgjuofn segja að það sé tækið, sem
þeir vildu síst vera án. TOSHIBA eru mest seldu örbylgjuofnarnir á
Islandi og þeim fylgir ókeypis kvöldnámskeið hjá
Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara.
Hvernig væri að láta drauminn rætast og fá sér slíkan kostagrip ?
Við bjóðum yfir 10 gerðir af TOSHIBA örbylgjuofnum á verði og
kjörum, sem allir ráða við!
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 S 622901 og 622900
I ,
I
I Vinnuvernd
íverki
Þrefalt öryggi:
Stáltá,
stálþynna í sóla •
og það nýjasta er f
slithetta á tá! •
I
Skeifan 3h - Sími 81 26 70 - FAX 68 04 70
Sólveig Pétursdóttir alþingismaður.
Refsivernd vegna kyn-
ferðisafbrota aukin
Aðskilnaður dóms- og framkvæmda-
valds, ný lög um nauðungarsölu, einka-
málalög, hjúskaparlög og'-barnalög eru
merk skref í nýrri löggjöf. Sem og veiga-
mikil breyting á hegningarlögum varð-
andi kynferðisafbrot þar sem refsivernd
er verulega aukin.
Ákvæði gerð
ókynbundin
Sólveig Pétursdóttir
alþingismaður sagði m.a.
í ræðu hjá ungum sjálf-
stæðismönnum 1. desem-
ber sl.:
„Sjálfstæðismenn fara
með forystu í þessari rík-
isstjórn sem nú situr og
á þessu kjörtímabili hef-
ur löggjöf verið breytt
og lagfærð á ýmsan hátt
á sviði dómsmála, til þess
að tryggja betur réttar-
öryggi abnenningsMig
langar til að gera hér
stuttlega grein fyrir
helztu breytingum laga
varðandi kynferðisaf-
brot...:
* Oll ákvæði kaflans um
kynferðisafbrot eru gerð
ókynbundin, sem þýðir
að bæði karlar og konur
geta verið þolendur
verknaða. Samkvæmt
gildandi lögum voru
nauðgun og fleiri brot
samkvæmt lögunum kyn-
bundin sem þýddi að ein-
ungis konur nutu refsi-
verndar og karlar einir
gátu verið gerendur...
* Refsivemd er verulega
aukin því að önnur kyn-
ferðismörk em lögð að
jöfnu við samræði þegar
metið er hvort brot hafi
verið framið. Með öðmm
kynferðismörkum er átt
við kynferðislega mis-
notkun á líkama annarr-
ar mauncskju sem kemur
i stað hefðbundins sam-
ræðis eða hefur gildi sem
slíkt,...
Öll böm njóti
refsivemdar
* í lögunum em ný
ákvæði um kynferðislega
áreitni. Er þar átt við
ýmiss konar káf, þukl og
annars konar líkamlega
snertingu og Ijósmyndun
af kynferðislegum toga.
* Afnumin vom sér-
ákvæði um kynferðisaf-
brot samkynhneigðra.
Þar sem ákvæði kaflans
em ókynbimdin þýðir
þetta að hugsanleg brot
samkynhneigðra falla nú
undir viðeigandi greinar
kaflans.
* ÖU böm njótii nú sömu
refsivemdar og skiptir
ekki máli um tengsl
þeirra við gerendur.
* Refsirammi var ekki
lækkaður eins og frum-
varpið gerði t.d. ráð fyrir
varðandi nauðgun, sem
átti að verða tvískipt
ákvæði, og böm yngri en
14 ára. Astæðan var sú
að nefndin vildi senda
skýr skilaboð út um al-
vöm þessara afbrota og
jafnframt skilaboð til
dómara um að taka
ákveðnar á þessum mál-
um.
Refsivemd
nær til ein-
staklings í hjú-
skap
* Auk þessarar breyt-
ingar felur ákvæðið í sér
rýmkun á nauðgunarskil-
greiningunni á þann hátt
eins og áður er fram
komið að öimur kynferð-
ismök em lögð að jöfnu
við samræði og að auk
beinnar valdbeitingar
tekur ákvæðið nú til allra
refsiverðra ofbeldishót-
ana og ekki er lengur
áskilið að þessar hótanir
vekji ótta um líf, heil-
brigði og velferð.
* Þá þykir mér rétt að
minna á þann útbreidda
misskilning að refsivemd
nauðgunarákvæðisins
nái ekki til þeirra sem
em í hjónabandi eða sam-
búð og því þurfi að taka
upp í greinina pósitívt
ákvæði þar að lútandi.
Akvæði þessa kafla
hegningarlaganna taka
til þeirra sem em í hjóna-
bandi eða sambúð nema
annað sé tekið fram.
* I hegningarlögum
vom ekki ákvæði um það
þegar menn sem komast
í trúnaðarsamband við
mann vegna starfa sinna
misnota þá aðstöðu til
samræðis eða annarra
kynferðismaka. Allsheij-
amefnd og þingið töldu
ástæðu til að breyta
þessu. Er hér m.a. átt við
þau tilvik ef læknir eða
aðrar heilbrigðisstéttir
eða sálfræðingar mis-
nota samband sitt við
sjúkling, prestur við
syrgjendur, kennari við
nemanda, yfirmaður við
undirmann o.s.frv."
Rlkissjóður
ábyrgist kyn-
ferðisbrota-
greiðslur
Sólveig Pétursdóttir
gerði og grein fyrir þing-
sályktunartillögu, sem
hún flutti á síðasta þingi,
þess efnis, að ríkissjóður
ábyrgist greiðslur bóta
vegna kynferðisafbrota
eða annarra grófra of-
beldisbrota. Dómsmála-
ráðherra mun skipa
nefnd tii að kanna það
mál.
Nýtt útbob spariskírteina
ríkissjóbs fer fram
mibvikudaginn 8. desember
Á morgun kl. 14:00 fer fram nýtt
útboö á spariskírteinum ríkissjóðs.
Um er að ræða hefðbundin,
verðtryggð spariskírteini í eftirfarandi
flokkum:
Þessir flokkar em skráðir á Verðbréfa-
þingi íslands og er Seðlabanki íslands
viöskiptavaki þeirra.
Spariskírteinin verða seld með tilboðs-
fyrirkomulagi. Löggiltum verðbréfa-
fyrirtækjum, verðbréfamiðlumm,
bönkum og sparisjóðum gefst einum
kostur á áð gera tilboð í spariskírteinin
samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu.
Lágmarkstilboð er kr. 5.000.000 að
nafnverði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í
spariskírteinin eru hvattir til að hafa
samband við framangreinda aðila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir
þá og veita nánari upplýsingar.
Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 á morgun, miðvikudaginn
8. desember. Tilboðsgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.
GOTT FÓLK