Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 Nýjar bækur Sprek af reka Lj óðaþýðingar eftir Þorstein Gylfason ÚT er komin bókin Sprek af reka, ljóðaþýðingar eftir Þor- stein Gylfason heimspeking. í kynningu útgefanda segir: „Ljóðaþýðingar Þorsteins Gylfa- sonar eru með ólíkindum fjölbreyti- legar. í þessari bók birtast margar perlur heimsbókmenntana eftir skáld á borð við Goethe, Lucretius, Bums, Withman, Yeats, Rilke, Brecht, T.S. Eliot og Dylan Thom- as, svo nokkrir séu nefndir. Þar eru söngtextar sem fræg sönglög hafa verið sett við og þar er líka að finna grallaraskap Toms Lehrer. í öllum tilfellum hefur þýð- andinn kosið að lata frumgerðir ljóðanna fylgja svo lesendur geti skemmt sér við að bera þær saman við þýðingar ljóðanna. í bókarlok er svo itarlegur eftirmáli þar sem Þorsteinn gerir grein fyrir þessum skájdum og tildrögum hvers ljóðs.“ Útgefandi er Mál og menning. Bókin ér 240 bls., unnin í Prent- Þorsteinn Gylfason. smiðjunni Odda hf. Jón Reykdal gerði kápuna. Verð kr. 1.985. Morgunblaðið/Helga Jónasdóttir Frá kynningarkvöldi Leiklistardeildar Ungmennafélags Tálknafjarðar. Leikhúslíf á Tálknafirði Tálknafirði. FYRIR skömmu hélt Leiklistar- deild Ungmennafélags Tálkna- fjarðar kynningu á starfsemi sinni í Iþrótta- og félagsheimili Tálkna- fjarðar. Kynningin fólst í því að skemmta Tálknfirðingum með æfðum og óæfðum skemmtiatrið- um, upplestri og fleira. Börnin fengu sinn skammt því haldin var sérstök dagskrá fyrir þau, ýsmar skemmtilegar persónur mættu á staðirin, og fóru í leiki við börnin. Um kvöldið var síðan dagskrá fyrir fullorðna. Með kynningunni vonast leiklist- arfólkið að ná til sem flestra með því hugarfari að einstaklingar með leikhæfileika gangi til liðs við deild- ina. - Helga. Leikendur og aðstandendur sýningar Leikbrúðulands. HALLOAMMA! _________Leiklist____________ Guðbrandur Gíslason Leikbrúðuland Fríkirkjuvegi 11 Jólasveinar einn og átta Höfundur texta og leiksljórn: Jón Hjartarson Brúðugerð: Erna Guðmundsdótt- ir, Bryndís Gunnarsdóttir, Helga Steffensen Tónlist og leikhljóð: Magnús Kjartansson Fyrst er niðdimmt í salnum. Það er ekki laust við að fari um suma. Svo birtir á sviðinu og inn í birtuna stökkva jólasveinamir, svipir frá þeim sæla tíma æskunnar þegar allt var sem sýndist, raunverulegt, nýtt og mögulegt. Næstur kemur Páll. Hann er ungur og ekki laust við að það setji að honum beyg eins og jafnöldrum hans meðal áhorf- enda. Hér er eitthvað nýtt að ger- ast. En þá kemur amma fram á sviðið. Hún er í peysufötum, breið- leit, góðlátlega vís og hvergi bang- in. Þá heyrði ég að sumum létti og einn ungur sveinn kallaði feginn til hennar úr salnum: Halló amma! Það sem er yndislegt við þessa sýningu er hve auðvelt er að skilja vantrúna eftir í fatahenginu með frakkanum og ganga á vit ævintýra fortíðarinnar og lifa þau upp á nýtt. Systursonur minn sex ára sat við hlið mér og þurfti ekki að kasta af sér kufli efasemdana heldur hitti jólasveinana, Leppalúða og Grýlu og Álfadrottninguna á þeirra eigin forsendum. Það voru góðra vina fundir. Auðvitað eru þetta töfrar eins og alltaf þegar það sem sýnist, er. Það er líka töfrandi að heyra kjarn- yrt og rismikið mál fagurlega flutt. Á því eru hvergi ólíublettir vélmenn- ingarinnar heldur er það slípað aldalangt af hugarflugi genginna kynslóða. Jón Hjartarson hefur leit- að víða fanga í íslenskri þjóðtrú og meðal skálda sem hafa sótt til henn- ar yrkisefni, og hann hefur spunnið saman af listfengi mörg minni sem öllum eru (og verða vonandi áfram) kær. Aldrei er talað niður til áhorf- enda þótt ungir séu heldur fá þeir að teygja skilning sinn mót tungu- takinu. Hér er veitt innsýn inn í þann þátt íslenskrar mennirigar sem er hvað dýrmætastur vegna þess að hann veitir okkur fyrstu nasasjón af hinu óráðna í tilverunni og sjá: Ef við mætum því á miðri leið er það fagurt og skemmtilegt. En til að töfrar hrífi þarf skyn- semi og vönduð vinnubrögð. Brúðu- leikurinn Jólasveinar einn og átta var frumfluttur 1975 og leikinn fyrir hver jól næstu fimm ár, en leikritið hefur nú verið endurgert, brúður eru nýjar svo og umgjörðin öll, leikraddir og tónlist. Brúðurnar eru hver með sínum svip, jólasvein- ar klæddir upp á gamla mátann, hæfilega groddalegir enda hið mesta hyski, og álfar, með tígulega drottninguna í fararbroddi, dulúð- legir og framandlega fagrir í híalín- inu. Skuggarbrúðurnar vöktu mikla kátínu, ekki síst þegar jólakötturinn skaut upp kryppunni á mæninum. Rennslið var ímökralaust eins og við var að búast frá hendi reyndra listamanna. Tónlistin, einföld og með þjóðlegu ívafi, hæfír efninu vel. Þetta er sýning sem ég hefði vilj- að sjá þegar ég var krakki og ég held einfaldlega að allir krakkar ættu að sjá. Sá þjóðarauður sem skaparar þessarar sýningar töfra fram á sér notalegri sess í vitund- inni en flest annað. Fullorðnir ættu hinsvegar að fara með þeirn. Ekki til að vernda þau gegn Leppalúða eða Grýlu (sem er sýnu ógurlegri), heldur til að verða ungir í annað sinn. Frændi minn Kári var hrifn- astur af jólasveinunum, enda eru þeir ófyrirleitnir ærsiabeigir. Sjálfum þótti mér skemmtilegast að skyggnast inn í hulduheima til álfanna því: „Tungls þeir tína geisla til að snúa i kveik.“ „Dauðinn er lækur, en lífið er strá ...“ __________Bækur______________ Pétur Pétursson Karl Sigurbjörnsson: Hvað tekur við þegar ég dey? Spurningar um kristna trú, dauðann og eilífða lífið. Skálholtsútgáfan 1993, 60 bls. Spurning sú sem felst í titli þess- arar bókar er áleitnasta spurning mannsins. Hún hefur sennilega fylgt honum frá upphafi hans sem hugsandi veru. Álmúgamaðurinn glímir við hana jafnt sem heim- spekingurinn og endanleg lausn, endalegt svar, hefur ekki fundist. Hins vegar gefa trúarbrögðin svör. Þar er að fínna svörin við spurning- um mannsins um dauðann, lífið og eilífðina. íslendingar hugsa mikið um þessi mál og hika ekki við að velta upp spurningunni um hvað taki við eftir dauðann. Þessi spurn- ing brennur á okkur öllum fyrr eða síðar og menn nálgast hana á ólík- an hátt út frá aðstæðum sínum og grundvallarlífsviðhorfum. Það er langt síðan að jafn þarft kver og hér um ræðir hefur komið út. Mikill áhugi er á andlegum málum svo sem „lífinu fyrir þetta líf“ (þ.e. fyrri lífum) og lífinu eftir þetta líf. Margar útgáfur eru í gangi og margir, einkum ungt fólk, eru ráðvilltir gagnvart þessum spurningum og svörum. Markviss og alþýðleg framsetning kristin- dómsins varðandi þetta svið er því mikils virði einmitt nú. Biblían nálgast eilífa lífið eftir dauðann út frá fleiri en einu sjónar- miði og til þess að fá heildstæð svör sem gilda við ákveðnar að- stæður þurfa leikmenn (óprest- lærðir) að fá leiðsögn og góð ráð. Óvissuna og örvæntinguna sem vart verður við gagnvart þessari tilvistarspurningu má að mínu viti oft rekja til þess að leiðsögn skort- ir. Fólk er ekki eins mikið undir áhrifavaldi klerka og kirkju eins og áður og leitar því á eigin for- sendum fyrst og fremst. Styrkur bókarinnar er tvímæla- laust sá að höfundur er ekki fastur í guðfræðilegri orðræðu heldur opnar hann kenningu kristninnar fyrir venjulegt fólk. Þó er umfjöllun hans alls ekki útvatnað hjal um daginn og veginn og lesandinn fær ýmislegt að hugsa um og vinna úr með sjálfum sér. Kostur er hve Karl Sigurbjörnsson kaflamir eru stuttir. Heiti kaflanna gefa til kynna hvað fjallað er um, t.d. Hvað um endurholdgun? Fortil- vera sálarinnar? Upprisa dauðra. Hvaða sannanir höfum við fyrir framhaldslífi? Höfundurinn hefur starfað sem prestur í Reykjavík um árabil og greinilegt er að hann er næmur á þær spurningar sem leita á fólk í samtímanum. Umfjöllun hans er fremur í ætt við sálgæslu, eða eins- lega predikun, en upphafíð málfar postillunnar. Blásarakvintett á háu plani Hljómdiskar Oddur Björnsson Tónverk eftir amerísk tón- skáld leikin af Blásarakvintett 'Reykjavíkur (The Reykjavík Wind Quintet). Bernharður Wilkinson (flauta), Daði Kolbeinsson (óbó), Einar Jóhannesson (klarinett), Joseph Ognibene (horn), Hafsteinn Guðmunds- son (básúna). CHAN (D05) 91743 Ég tek ofan minn andlega hatt fyrir þessum hljómdiski, The Reykjavík Wind Quintet! Tónlist- in er auðvitað fyrsta flokks, enda eftir þekkt amerísk tónskáld á þessari öld, en það er þó frábær leikur blásaranna sem gerir út- slagið, enda hver og einn snilling- ur á sitt hljóðfæri. Samvinnan er þó það fallegasta við músiser- ingu á jafn háu plani og hér um ræðir. Og þar af leiðandi fær enginn meira hrós en annar. Hitt skal svo alveg viðurkennt að undirrituðum þótti sumt skemmtilegra en annað, þótt allt séu þetta vandaðar tónsmíðar. Svítan hans Ljunthers Schuller (sem mörgum íslenskum músík- mönnum er að góðu kunnur) fór beint í æð, einkum miðkaflinn („blúsinn"), svo er djasselsku tónskáldsins fyrir að þakka. Svipað má segja um verk Vila- Lobos, þótt hugur hans sæki næringu í suður-ameríska mold eða öllu heldur arfleifð alþýðunn- ar (þjóðvísuna eða („stem- muna“). Mér þótti þó mest koma til verks John Harbison, Quintet for Winds, bæði frá „tæknilegu" sjónarmiði en þó fyrst og fremst sem djörf (ekki til að hneyksla heldur í góðri merkingu orðsins) og umfram allt skemmtileg tón- list, sem reynir verulega á hæfni flytjenda. Áðrir munu svo finna meiri (ljúf-sára) fegurð í verkum Samuels Barber og Amy Beach, eða í miilispili (interlude) úr part- ítu Irvings Fine (sem að mínu mati hefur mjög fínan lokakafla. Hljóðritun er í sama gæða- flokki og allt annað. „Semsagt gott,“ eins og Jón úr Grindavík sagði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.