Morgunblaðið - 07.12.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
13
Kvennakór Reykjavíkur.
Hallgrí mskirkj a varð of lítil
_________Tónlist___________
Ragnar Björnsson
Kvennakór Reykjavíkur hélt að-
ventutónleika í kirkjunni sunnu-
daginn 5. desember. Stjórnandi
kórsins er Margrét Pálmadóttir og
til leiks hafði hún kallað Dýrleifi
Bjamadóttur, flautu, Moniku
Abendroth, hörpu, Svönu Víkings-
dóttur, orgel, Bjöllusveit Laugar-
neskirkju undir stjórn Ronalds V.
Turners og einsöngvarana Elínu
Ósk Óskarsdóttur, Guðrúnu Stef-
ánsdóttur og Jóhönnu V. Þórhalls-
dóttur. Eins og vera ber samanstóð
efnisskráin af verkefnum tengdum
fæðingu frelsarans og þeirri ljóss-
ins hátið sem framundan er. Þegar
undirritaður kom til kirkjunnar var
hún þegar fullsetin og fjöldi fólks
varð að treysta á styrk fóta sinna
frammi við inngöngudyr. Söng
kórsins, sem telur rúmlega hund-
rað konur, heyrði maður því sem
úr fjarska, en í staðinn kom helgi
stundarinnar í þessum eina raun-
verulega „cathedrale" okkar ís-
lendinga, þar sem líklega hátt í tvö
þúsund manns komu saman til að
hlusta á lofgjörðarsöngva, frá 14.
öld og fram til okkar tíma, þar á
meðal átta lög um Maríu guðsmóð-
ur. Til fyrirmyndar var efnisskrá
tónleikanna þar sem erlendu text-
unum fylgdu alltaf þýðingar á ís-
lensku, oft mjög fallegar. Margrét
Pálmadóttir stjórnaði kórnum af
mikilli röggsemi og hefur henni
farið fram sem kórstjóra, ennþá
eru þó handleggjahreyfingar henn-
ar allt of stórar, nákvæmni í flutn-
ingi og vald yfir hópnum næst með
litlu ökonómísku slagi. Eitt var þó
í efnisskrá sem stakk mig. Antik-
hópur kórsins söng eitt lag. Talað
er um antik-hljóðfæri, antik-hús-
gögn, en antik-kvennahópar eru
nýmæli, að hyggju undirritaðs, en
gætu verið forvitnilegir, ef til eru.
En hvað sem þessu líður, stundin
í kirkjunni var indæl þrátt fyrir
að kórinn heyrðist illa endanna á
milli í þéttsetinni kirkjunni. Því
miður varð undirritaður að fara
þegar kom að Marías Wiegenlie
eftir Max Reger. Ein af fallegum
þýðingum í efnisskrá, og sú fyrsta
í skránni, hljóðaði svo:
Maria í skóginum
Um skóginn laufvana læðist hljótt
Kyrie eleison.
Og ljómi í augum blikar rótt
í þymum þýtur um myrka nótt,
Jesús og María.
Hvað ber hún undir beltisstað?
Kyrie elesion.
Eitt barn er eigi veit um það,
hve heimur komu þess hijáður bað.
Jesús og María.
Og mærin strýkur um þymana þýtt
Kyrie eleison.
Er þegar baðast rósum frítt
því syninum lífíð lýtur blítt.
Jesús og María.
Gítarleikur í
Þjóðleikhúsinu
_______Tónlist___________
Ragnar Björnsson
Gamla smíðaverkstæði Þjóð-
leikhússins var vettvangur gítar-
tónleika Péturs Jónassonar sl.
laugardag. Ósvarað er hversu
heppilegt smíðaverkstæðið fyrr-
verandi er til tónleikahalds, í
þessu tilfelli gítartónleika. Salur-
inn hjálpar a.m.k. ekki hljóðfæra-
leikaranum, endurómur virðist
enginn og erfitt hlýtur að vera
fyrir gítarleikarann að spila í
gegn um þennan hljóðmúr. Við
slíkar aðstæður þarf reynslu og
yfirvegað spil og hvorutveggja
þetta sýndi Pétur. Hann valdi til
flutnings eingöngu verk eftir
spænsk tónskáld, öll fædd á síð-
ari hluta nítjándu aldar. Galli var
að svo dimmt var í salnum að
ógerningur var að fylgjast með
í efnisskránni, þetta verður að
teljast tillitsleysi af hendi Þjóð-
leikhússins við gesti þess. Efnis-
skrá tónleikanna var öll á
spænsku og verður það einnig
að teljast nokkurt tillitsleysi, því
gera verður ráð fyrir að fjöldi
tónleikagesta sé lítt læs á
spænska tungu og þótt margir
sæki Spán heim í sumarfríum
sínum þá eru margir sem ekki
gera það og þótt nöfnin á
spænskum dönsum komi sumum
kunnuglega fyrir, vildu áreiðan-
lega margir vita deili á Alborata,
Arada, Albada, Madronos, Dansa
del molinero, Zorongo og svo frv.
Einhver smá vitneskja um þessa
dansa mundi einnig gera ágætan
Pétur Jónasson.
gítarleik Péturs ennþá ágætari í
eyrum áheyrenda. Pétur er skáld
á gítarinn sinn, leikur hans er
mjög vel skipulagður, hann bygg-
ir vel upp og ætlar hvorki sjálfum
sér né gítamum um of og leikur
hans því mjög agaður, en þetta
er vitanlega ágæti góðra hljóð-
færaleikara. Kannske má segja
að efnisskráin, að þessu sinni,
hafi verið nokkuð hljóðlát og ein-
lit, því þessum spænskum döns-
um hættir til að lílqast nokkuð
hver öðrum, hvað svo sem höf-
undurinn á bak við þá nefnist.
Næst kysi ég því að heyra til-
brigðaríkari efnisskrá.
Stubningur þinn
gæti foroab
mörgum
frá slysi!
Heildarverðmæti vinninga 16.854.000, m.a. flaggskipið frá Hyundai
og 4 aðrar bifreiðar, vélsleðar,
vöruúttektir o.m.fl.
Ágœti bifreiðareigandi!■
Endurskinsborði er einfalt
öryggistæki - hjálpið okkur að láta
ljós barnanna skína
678
iavnur
678
vimungar
Við höfum sent þér happdrœttisnUða þar semfram kemur
bílnúmer þitt og hvert bílnúmer hefur sitt ákveðna
lukkunúmer. íboði eru 678 vinningar. Þátttaka ogstuðningur
þinn getur leitt tilfœkkunar slysa á bömum í umferðinni.
Það er vinningurinn sem við sœkjumst öll eftir.
BANDALAG
ÍSLENSKRA SKÁTA
Londsátok
um velferö borno
í umferbinni
*
*
*
LATUM LJOS OKKAR SKINA