Morgunblaðið - 07.12.1993, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
Langt mál um langa ferð
Békmenntir
Erlendur Jónsson
Michael Palin: PÓLA Á MILLI.
Þýð. Ásgeir Ásgeirsson. 320 bls.
Almenna bókafélagið hf. 1993.
Michael Palin er fjölmiðlamaður,
breskur. Hann er sýnilega vanur
að vinna með myndir. Og vanur
að vera með fólki. Og innan um
fólk. Málglaður er hann og sjálf-
glaður eins og títt er um menn sem
staðið hafa í brennidepli sviðsljós-
anna, öruggur um eigið ágæti.
Texti hans er fjörlega skrifaður.
Frásögn sína skreytir Palin gjarnan
með fyndni. Saklaus er hún. En
kannski ekki alltaf sem merkileg-
ust, getur jafnvel orðið leiðigjörn,
að minnsta kosti þegar til lengdar
lætur. Ferð Palins frá norðurpól til
suðurpóls sýnist hafa verið farin í
tvennum tilgangi: í fyrsta lagi til
að kvikmynda og í öðru lagi til að
safna efni í bók þessa. Manni kem-
ur í hug að ferðasagan hefði notið
sín mun betur í sjónvarpsþáttaröð
fremur en í bók. Landslag er Palin
lítils virði. Hann kynnir sig sem
borgarmann, mann fólks og fjölda.
í upphafí ferðar setur hann fótinn
á norðurpólinn. Til að segja það,
varla meira! Því stutt er staðið við
þaðra. Ekkert fólk og engin traff-
ík. Sviðið er svo autt að ijölmiðla-
maðurinn verður að tala um sjálfan
sig, við sjálfan sig, daginn þann.
Þá liggjir leiðin til Norður-Noregs,
þaðan um Finnland til Eistlands
og síðan til Leníngrad sem svo hét
þegar ferðin var farin. Og þá tekur
smásaman að rætast úr höfundi.
Hann er kominn á söguslóðir í
framandi umhverfi sem augu
heimsins höfðu þó lengi beinst að.
Þar voru pólitískir stóratburðir
farnir að liggja í loftinu og spennan
nógu sterk til að fjölmiðlamaðurinn
legði við hlustir. Síðan er haldið
um Rússland, Tyrkland, Afríku
endilanga (þar sem Bretinn er hálf-
partinn kominn á heimaslóðir
vegna fyrri áhrifa). Frá Afríku er
svo kóssinn tekinn á Suður-Amer-
íku og loks endað á suðurpólnum,
áætlun samkvæmt. Miðað var við
að fylgt skyldi 30. gráðu austlægr-
ar lengdar, eða því sem næst, þótt
JÓLATILBOÐ JÓL/iTILBOÐ
irunum Urmssón, þar sem
ódýv, auk þess að vera sterk ogfalleg.
MC-125-w
veA kr, stgr.
25.990,-
Mafarvinnsluvé!
KM 21 . ' ' .
Hrawir, þeyiir, hnoðor, rítur, HaWiar,
blomior hrtaHf, bryijtir, sirer...
verS kr. stgr. *•-.
9.980,-
ismet
Eggjasuðutæki ekói2
Sýður 7 egg í einu
-pú faerð eggið
soðið nákvaemlega
eins og þér hentar
y/erb kr. stgr.l «980
Handryksuga LilÍpUt
3.Ó volt- nouðsynbgt
tæki á hvert heimiii
ver& kr. stgr.
3.490,-
ismet
arn
Vöffluj
Rezept
Gerir 5 hjarta
vöfflur. Hitastillir.
verb kr. stgr.
5.690,-
ismet
AEG
Brauðrist
AT36BA
Fyrir tvær sneiðor
-brouðgrind
verb kr stgr.
3.290,-
Áleggshnífur
AS 900
Stillanlegur fyrir breidd
sneÍða.Hentar vel
fyrir brauð og álegg.
verö kr. stgr. —
4.980,-
HADEN
Hraðsuðuketill dsk 3 u
Krómaður ekta breskur ketill
verð kr. stgr.
4.390,-
AEG
suga
Vampyr 821 i
1100 wött, stillanlegur sogkraftur
fylgihlutageymsb, aregur inn
snúruna. Microfilter.
Sterk og kraftmikil ryksuga.
verö kr. stgr.
14.490,-
VELDU GJAFIR SEM ENDAST 1
Hjá Bræbrunum Ormsson bjóðast þér
góð heimilistæki á sérstöku jólatilbodsverbi l
JOLATILBOÐ JOLATILBOÐ JOLATILBOÐ JOLATILBOÐ
Umboösmenn Reykjavík
og nágrenni:
BYKO Reykjavík, Hafnarfiröi
og Kópavogi
Byggt & Búiö, Reykjavik
Brúnás innréttingar.Reykjavík
Fit, Hafnarfiröi
Þorsteinn Bergmann.Reykjavík
H.G. Guöjónsson, Reykjavík
Rafbúöin, Kópavogi.
Vesturland:
Málningarþjónustan, Akranesi
Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi
Blómsturvellir, Hellissandi
Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi
Ásubúö.Búöardal
Vesttirölr:
Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi
Edinborg, Bíldudal
Verslun Gunnars Sigurössonar
Þingeyri
Verslun E. Guöfinnsson.Bolungarvík
Straumur.ísafiröi
Noröurland:
Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavík
Kf. V-hún., Hvammstanga
Kf. Húnvetninga, Blönduósi
Skagfiröingabúö, Sauöárkróki
KEA, Akureyri
KEA, Dalvík
Bókabúö, Rannveigar, Laugum
Sel.Mývatnssveit
Kf. Þingeyinga, Húsavfk
Urö, Raufarhöfn
Austurland:
Sveinn Guömundsson, Egilsstööum
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi
Stál, Seyöisfiröl
Verslunin Vík, Neskaupsstaö
Hjalti Sigurösson, Eskifiröi
Rafnet, Reyöarfiröi
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi
KASK, Höfn
Suöurland:
Kf. Rangæinga, Hvolsvelli
Mosfell, Hellu
Árvirkinn, Selfossi
Rás, Þorlákshöfn
Brimnes, Vestmannaeyjum
Reykjanes:
Stapafell, Keflavík
Rafborg, Grindavík.
AEG
-iHeimííistæki og handverkfæri
Heimilistæki I
V. , .. :/
Heimilistæki
HADEN
Heimilistæki
BRÆÐURNIR
œMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
Umbodsmenn um land allt
út af því yrði víðast hvar að bregða
ýmissa orsaka vegna.
Höfundur mun vera bæði kunnur
og vinsæll í heimalandi sínu. Að
öðrum kosti hefði hann vart verið
kostaður í slíka reisu. Texti hans
ber líka með sér að hann gengur
út frá því sem gefnu að fólk þekki
sig og hafi gaman af að heyra sig
segja frá sjálfum sér. Sýnt er að
hann gerir sér far um að skemmta
fremur en að fræða. Þar sem Palin
er eins konar atvinnuferðamaður
og ferðin var farin til að stytta
öðrum stundir verður hann einatt
að vera í góðu skapi og gera gott
úr öllu. Þess vegna leitast hann
hvarvetna við að bregða spaugileg-
um blæ yfir hversdagsleg smáatvik
sem fleiri ber við en tölu verði á
komið. Á því byggist raunar þessi
langa saga. Stundum skyggnist
hann - þótt í smáu sé - inn í dag-
legt líf fólksins sem á vegi hans
verður og er sá þátturinn athyglis-
verðastur af því sem bók þessi
hefur fram að færa. Náttúruunn-
endur og áhugamenn um landa-
fræði fá hins vegar naumt skammt-
aðan fróðleik í riti þessu.
Það getur talist eðli ijölmiðlunar
að gera mikið úr litlu. Höfundur
Póla á milli er sannarlega kunn-
áttumaður á því sviðinu. Því má
spyija hvort textinn hefði ekki að
skaðlausu mátt vera helmingi
styttri?
Hversu brýnt erindi bók þessi
eigi til íslenskra lesenda? Því er
vandsvarað. íslenskur texti þýð-
andans, Ásgeirs Ásgeirssonar, er
að mínu viti stilltur á rétta bylgju-
lengd, það er að segja venjulegt
blaðamannamál. Myndafjöld prýðir
líka ritið, bæði í litum og svart-
hvítu. Sömuleiðis landakort.
Að lestri loknum undrast maður
mest að ferðalag sem þetta - póla
á milli - skuli ekki vera meiri leið-
angur en raun ber-vitni nú á dögum.
Róbert Arnfinnsson og Eðvarð Ingólfsson með nýju bókina.
Nýjar bækur
Minningar Róberts -
ævisaga listamanns
ÚT ER komin bókin Róbert -
ævisaga listamanns sem Eðvarð
Ingólfsson hefur skráð. Róbert
Arnfinnsson á að baki hálfrar
aldar leikferil og hefur unnið
marga leiksigra bæði heima og
erlendis.
í kynningu útgefanda segir:
„Róbert stiklar á stóru í starfs-
sögu sinni og segir frá mörgu at-
hyglisverðu og skemmtilegu, bæði
innan sviðs og utan. Frásagnir úr
einkalífinu skipa einnig háan sess:
Uppvaxtarárin á Eskifirði,
harmóníkuleikur í áratugi, síldar-
ævintýri fyrir norðan, fyrstu kynn-
in af eiginkonunni - og margar
fleiri."
Útgefandi minnir á að þrátt fyr-
ir velgengni í starfi hafi líf Ró-
berts ekki alltaf verið dans á rósum
og að hann lýsi á einlægan hátt
sorgum sínum og raunum.
I bókinni, sem er 252 blaðsíður,
eru íjölmargar myndir úr einkalífi
Róberts og starfi.
Útgefandi er Æskan. Umbrot
og filmuvinnslu annaðist Offset-
þjónustan hf., prentun ísa-
foldarprentsmiðja hf., bókband
Flatey sf. Kápumynd tók Ragn-
ar Th. Sigurðsson. Almenna
auglýsingastofan hf. teiknaði
útlit kápu. Bókin kostar 2.980
krónur.
Skemmtisveit
Hljómplötur
Árni Matthíasson
Rokkabillyband Reykjavíkur
er mikil skemmtisveit og hefur
verið í rúm fímm ár. Það var
einmitt til að halda upp á fimm
ára afmælið að sveitin hljóðrit-
aði tónleika á Gauk á Stöng
með ýmsum gestum og gaf út
á geisladisk í sumar undir nafn-
inu Rokkabillyband Reykjavíkur
„Læf“.
Af nafni disksins má ráða að
Rokkabillybandið er hljómsveit
sem tekur sjálfa sig og tónlistina
hæfílega alvarlega, og það má
glöggt heyra á plötunni í því
hvaða tökum þeir félagar taka
lögin. Margt er þar vel gert, þá
ekki síst í samspili þeirra félaga,
Tómasar Tómassonar gítarleik-
ara og söngvara, Björns Vil-
hjálmssonar bassaleikara og Jó-
hanns Hjörleifssonar trommu-
leikara. Tómas er ágætis gítar-
leikari, á smekklega spretti víða
og kemst yfirleitt vel frá söngn-
um, og hinir eru traustir.
Aðal Rokkabillybands
Reykjavíkur hefur verið að spila
lög eftir aðra, flest vel þekkt,
og þá gjarnan rokkabillí- eða
rokkkyns, þó oft sé erfitt að
draga mörkin og þá kannski
sérstaklega í meðförum sveitar-
innar. Það er kannski helsti
ókostur þeirrar plötu sem hér
er til umijöllunar að gamanið
er svo mikið og stuðið svo
grimmt að áheyrandanum finnst
hann vera hálf útundan, sérstak-
lega þar sem keyrslan er nánast
stanslaus í gegnum alla plötuna.
Líklega hefði sveitinni farnast
betur ef hún hefði lagt meiri
rækt við útsetningar og reynt
að gera þær persónulegri. Þann-
ig er útgáfan á Devil in Disgu-
ise, þar sem örlar á hug-
kvæmni, líklega eitt það besta
á plötunni. Lokalag plötunnar,
þar sem Andrea Gylfadóttir
klæmist á gamanstemmu Janis
Joplin, bætir engu við orðstí
sveitarinnar og hefði að meina-
lausu mátt lenda í ruslakörfunni.