Morgunblaðið - 07.12.1993, Side 16

Morgunblaðið - 07.12.1993, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 Vatnslitamyndir Svavars Guðnasonar Frá sýningu á vatnslitamyndum Svavars Guðnasonar. _______Myndlist____________ Eiríkur Þorláksson Oft vill svo fara með verk lát- inna listamanna, að listunnendur dofna smám saman fyrir krafti þeirra og listrænu gildi; telja sig þekkja þau út í hörgul, og að þar sé ekkert meira að finna. Viðhorf- ið er að þessi listaverk séu ekki lengur lifandi list, heldur söguleg- ar heimildir um það sem eitt sinn var. Þessi afstaða er lífseig (einkum meðal yngra fólks), þrátt fyrir að hver sýningin af annarri sýni fram á að hún er út í hött, og byggist fyrst og fremst á fordóm- um. Enn skal hamrað á þessu; nú er uppi í sýningarsal'num Önn- ur hæð á Laugavegi 37 lítil sýn- ing á nokkrum verkum Svavars Guðnasonar, sem ætti að geta orðið til þess að opna augu margra fyrir þeim sannindum, að góð myndlist er ávallt fersk og kraftmikil. Hér er um að ræða tíu vatns- litamyndir, sem Svavar hefur lík- lega unnið á fyrri hluta sjöunda áratugarins. Myndirnar eru úr einkasafni ekkju listamannsins, Ástu Eiríksdóttur, og voru valdar úr miklum fjölda mynda á vinnu- stofu Svavars. Það hefur lítið borið á vatnslitamyndum Svavars í gegnum tíðina, en sýningin ber með sér að þessi miðill hentaði honum vel. Tímabilið eftir 1960 hefur oft verið talið síðasta megintímabilið í list Svavars, en það haust var haldin stór yfírlitssýning á verk- um hans í Kunstforeningen í Kaupmannahöfn, og síðan í Lista- safni Islands. Næstu ár sýndi hann m.a. með Cobrg»hópnum og varð félagi í Grönningen-sýning- arhópnum í Kaupmannahöfn, en stórverk hans, „Veðrið", vakti mikla athygli á sýningu hópsins í Kaupmannahöfn 1964. Á þess- um árum gerði Svavar þekktar myndir eins og „Klungurbjört“ (1961-62), „Ljósblik“ (1962) og „Gul mynd“ (1964), sem allar bera með sér það frjálsa flæði litarins, sem einkennir þetta tímabil, og minnir að nokkru á birtu impressionismans. Vatnslitamyndimar á sýning- unni hér eru greinar af sama meiði. Þær eru allar án titils, og er komið fyrir á afar hlutlausan hátt í hvítu kartoni, sem er fest við vegginn án ramma; þannig njóta litirnir sín án nokkurrar truflunar. Litaflæðið er fijálst og öruggt, og birta hinna gulu, rauðu og grænu lita verður enn sterkari í hvítu umhverfinu. Eink- um er athyglisvert að sjá á hvern hátt listamaðurinn hefur notað krítina í myndunum, en stundum lætur hann krítarlitinn standa óbreyttan, en í öðrum tilvikum hentar betur að bleyta litinn og láta jaðrana renna saman, án þess þá að liturinn verði nokkru sinni máður eða óhreinn. Óreyndari listamenn hafa ætíð nokkra tilhneigingu til að vinna verk sín of mikið, þannig að ár- angurinn verður ómeðvitað of- hlæði í fletinum. Svavar fellur aldrei í þá freistni. Hér kemur í ljós að líkt og í olíumyndum Svav- ars gegnir ómálaður grunnurinn oft nokkru hlutverki í myndbygg- ingunni, til jafnvægis við sterka litina; þannig verður hvítur papp- írinn virkur í verkinu, og á sinn þátt í að mynda þá spennu, sem myndbyggingin krefst. Þessi vinnubrögð, að geta skilið við hveija mynd í jafnvægi spennunn- ar, eru ætíð til marks um að þar sé þroskaður listamaður að verki. Þessi litla sýning er einnig góð áminning til listunnenda um að það er myndlistin sjálf, sem skipt- ir mestu, og oftar en ekki koma svipuð viðfangsefni upp aftur og aftur. Þær abstraktsjónir, sem hér ber fyrir augu, eru ekki Ijarri ýmsum þeim hlutum, sem yngri listamenn hafa verið að fást við í greiningu á eðli forma og lita; þannig er myndlistin í stöðugri endumýjun, sem er oftar en ekki einfaldlega endurmat á því sem hefur þegar hefur komið fram. Sýningin á vatnslitamyndum Svavars Guðnasonar í sýningar- salnum Önnur hæð á Laugavegi 37 er opin á miðvikudögum kl. 14-18 út desembermánuð, og er rétt að hvetja listunnendur að líta við. Nýjar bækur ■ Út er komin fslensk bók- menntasaga II. I kynningu útgef- anda segir: „í þessu bindi, öðru af fjóium alls, er fjallað um Islend- ingasögumar ásamt þáttum. Fjall- að er um baksvið sagnanna og stöðu þeirra meðal annarra bók- mennta, þær eru tengdar saman eftir efnistökum, stílblæ og áætl- uðum aldri, og rætt er um hveija sögu fyrir sig. Þvínæst er hugáð að íslensku rómönsunum, fomald- arsögum og riddarásögum, og skýrt hvemig norrænar arfsagnir blandast suðrænum straumum í sjálfstæðri bókmenntagrein. Pjallað er um trúarlegar bók- menntir í lausu máli á síðmiðöld- um, helgisögur, leiðslur og dæmi, og rakin þróun helgikvæða og skáldlista þeirra fram að siðaskipt- um, og er sjálf Lilja þar í önd- vegi. Þá er fjallað um seiðandi sagnadans, og um upphafsaldir rímnanna. Að lokum þessa bindis er lýst áhrifum siðaskiptanna á íslenskar bókmenntir og sagan rakin fram til miðrar 18. aldar, fjallað m.a. um útgáfuverk Guð- brands biskups, um Hallgrím Pét- ursson, Jón Vídalín, „austfirsku skáldin", Jón Indíafara, lærdóms- menn og höfunda galdrarita." Höfundar efnis eru Böðvar Guðmundsson íslenskufræðingur og rithöfundur, Torfi H. Tulinius dósent við Háskóla íslands og sér- fræðingur um riddarasögur og fornaldarsögur, Sverrir Tómas- son fræðimaður við Stofnun Árna Magnússonar, og Vésteinn Óla- son prófessor í íslenskum bók- menntum við Háskóla íslands. Myndritstjóm er í höndum Hrafn- hildar Schram. íslensk bókmenntasaga er fjög- urra binda verk, og koma síðari bindin út á næstu tveimur árum. Fyrsta bindi þessa verks hlaut Is- lensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 1992. ✓ Mál og menning gefur út fs- lenska bókmenntasögu II og er hún 571 bls., unnin í Prentsmiðj- unni Odda hf. Ingibjörg Eyþórs- dóttir hannaði kápuna. Verð kr. 4.900 krónur. ■ Út er komin unglingasagan Komdu að kyssa eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur. í kynningu útgef- anda segir: „Sagan segir frá ungl- ingum sem eru að taka sín fyrstu sjálfstæðu spor á lífsbrautinni. Únglingarnir prófa ýmislegt eins og unglingum er tamt, ýmsir skondnir hlutir gerast en spennan er aldrei langt undan og verða þeir meðal annars varir við heima- brugg og það sem kannski verra er kynferðislega áreitni. Höfundur kemur í þessari sögu inn á ýmis- legt sem borið hefur á góma í þjóð- félagsumræðunni en skrifar það á einfaldan og skemmtilegan hátt á góðu máli.“ Útgefandi er ísafold. Bókin er unnin hjá ísafoldarprent- smiðju hf. og kostar 1.690 krón- ur. með bleksprautuprentun •örugg *hraövirk •hljóölát *ódýr I miskunnarlaus- um milliþætti Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Beatrice Saubin: Eldraunin Guðrún Finnbogadóttir þýddi Útg. Forlagið 1993 BEATRICE Saubin segir hér sögu sína er hún var tekin með heróín í tösku sinni er hún var á heimleið til Frakklands frá Malasíu. Sett í fangelsi og síðar dæmd til dauða. Hún var innan við tvítugt þegar þessi atburður var. Hún hélt fram sakleysi sínu alla tíð og því trúði ég líka. Hún grun- aði fljótt kínverskan ástmann sinn um að hafa komið heróíninu fyrir. Hann hafði gefið henni töskuna og komið eitrinu fyrir í földum botni töskunnar. Þau höfðu afráðið að hann kæmi nokkrum dögum seinna á eftir henni til Evrópu og álítur hún að hann hafi þá ætlað að koma heróíninu í verð. Dauðadómnum tókst æði löngu seinna að fá breytt í lífstíðarfangelsi og eftir mikið þref og samninga var hún látin laus eft- ir meira en tíu ára fangavist. Beatrice segir í fyrstu frá æsku sinni hjá strangri ömmu sinni og hafði ekki nema sérstaklega yfir- borðsleg kynni af móður sinni sem vildi aldrei með hana hafa. Henni og ömmunni semur illa, Beatrice er óstýrilát og amman gamaldags og siðavönd. Seinna átti amman svo eftir að verða ein hennar styrkasta hjálparhella þegar í nauðirnar rak. Beatrice er fjörmikil og forvitin, hún vill sjá heiminn, blæs á hefð- bundið og formfast líf sem mundi bíða hennar í litla franska þoirpinu. Svo hún fer af stað út í heim,. Kynnist þar ýmsum kunningjumÞg lendir í heitu ástaræfintýri í Thai- landi sem hún vonar að sé framtíð- in fögur og björt. En þegar hún kemur aftur á fund ástmannsins hefur hann látið sig hverfa og von- brigðin eru mikil hjá stúlkunni. Þó ekki meiri en svo að hún verð- ur fljótlega ástfangin af nefndum Kínveija og á með honum eldheitt ástarævintýri og það á líka að vera til frambúðar. Eftir að hún hefur lent í fangelsi og hefur jafnað sig af fyrstu skelfingunni og angistinni segir hún frá honum, en svo virðist sem aldrei hafi verið gerð alvarleg tilraun til að hafa hendur í hári mannsins. Margra ára vera í fangelsi í Beatrice Saubin Malasíu er lýst mjög vel svo úr verður eftirminnileg saga. Beatrice og sú breyting sem verður á henni smátt og smátt í bókinni tekst að koma ágæta vel til skila. Það er sömuleiðis athyglisvert að lesa um þegar hún, reið og sár en samt með ákveðið raunsæji upp á vasann sér að hún verður að læra tungumál fangavarða sinna ef hún eigi að afbera vistina. Sá tími sem hún er í dauðaklefanum er vel sagður. Beatrice er ekki full beiskju út í þá sem tóku hana og héldu henni í þessari ömurlegu fangavist öll þessi ár. Ekki verður skilið af text- anum að hún líti á þau sem glötuð, hún telur sig, að minnsta kosti þeg- ar hún hefur gert málin upp og skrifar bókina að hún hafi grætt á reynslunni. Meira að segja gætir kvíða þegar hún veit að frelsið er framundan og hún er að fara úr „vernduðu" fangelsislífi út í harða lífsbaráttu. Miðað við hve skynug Beatrice er og dugleg virðast karlmenn vera hennar veika hlið, það er með ólík- indum hversu þessum tveimur mönnum sem við sögu koma tekst að plata hana upp úr skónum. Og sannar náttúrlega bara það sem þar stendur að „enginn skilur hjartað.“ Guðrún Finnbogadóttir hefur þýtt söguna á lipurt og gott mál og nær orðfæri hverrar persónu prýðisvel. Ég geri ráð fyrir að þessi saga mundi af bókmenntapáfuni vera talin á mörkum bókmenntaverks og afþreyingar. Mér finnst hún bragðgóð blanda af hvorutveggja. > í > > i > I >

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.