Morgunblaðið - 07.12.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 07.12.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 TOnLflKflP OUL HSKeifTflPPÖÐ tlflSKÓLfl bíÓI fimmtudaginn 9. desember, kl. 20.00 Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Efnisskrá: Ludwig uan Beethoven: Egmont, forleikur Franz Liszt: Les Preludes Richard Strauss: Hetjulíf Frumflutningur á íslandi! Missið ekki af frumflutningi á einu af risaverkum tónbókmenntanna, Hetjulífi, eftir Richard Strauss. Sími 622255 SINFÓNlUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Hljómsvelt allra Islendlnga 622255 kynningartilboð í örfáa daga í Canon FAXB200 •Notar venjulegan pappír •64 gráskalar •20 bls. skjalaminni •37 skammvalsminnT •Innbyggður faxdeilir kynningarverð: Kr. 99,800.- stgr.m/vsk. FSlMiJlf SUÐURLANDSBRAUT 6, SlMI 685277, FAX 689791 Hvar stendur íslenski listdansinn í dag? eftir Báru Magnúsdóttur Samkvæmisdansinn hefur verið í mikilli sókn hér á landi undanfar- in ár. Danskeppnirnar verða fleiri og glæsilegri með hveiju ári og fréttir eru farnar að berast utan úr heimi að landinn sé að raða sér í efstu sætin í erlendum keppnum, bæði fullorðna fólkið og börn og unglingar. Hvað gerðist? Lærðu íslendigar allt í einu að dansa og urðu bestir bara sisvona? Nei, skilyrði til framfara voru sköpuð. Ákvörðunartaka stjórn- enda skólanna, sem allir eru í einkageiranum, tóku höndum sam- an og ákváðu að kynna dansinn. Það hefur skilað umtalsverðum árangri. Þúsundir áhorfenda flykkjast á keppnimar, sem orðnar eru fimm á ári hveiju og keppend- ur skipta orðið hundruðum í hverri keppni. Börn og unglingar hafa eignast metnaðarfullt tómstunda- gaman sem fylgir þeim í gegnum skólaárin og það sem meira er, þetta á eftir að nýtast þeim í gegn- ym allt lífið. Einnig hafa áhorfend- ur fengið nýja grein til að horfa á; læra að þekkja, meta og biðja um meira. Hvað er sagt um sýningu sem ekki fær aðsókn? Sýningin er fallin og þá er sama hvað höfundurinn er sagður góður og leikararnir miklir listamenn. Ef enginn er áhorfandinn þá er engin sýning. Svo mikilvægur er þessi þáttur á milli listamannsins og móttakanda, til að af útsendingu verði, að vart má á milli sjá hvor er í stærra aðalhlutverki, flytjandinn eða áhorfandinn. Og þá erum við komin að list- dansinum. Hvar stendur íslenskur listdans í dag? Hvað hafa margir landsmenn séð listdans á þessu ári, eða saman- lagt á þessu ári og því síðasta? Flestir landsmenn vita að við eig- um fámennan listdansflokk sem æfír alla daga og þiggur ríkislaun fyrir erfiði sitt. En hvar stendur þjóðin í sínu listdansnámi? Hvar fer námið fram og hvenær? Er list- greinin kennd eða kynnt í grunn- og framhaldsskólum landsins? Svar: Nei. Eru fastir þættir í sjónvarpinu sem sýna listdans, íslenskan og erlendan? Er listdans sýndur að staðaldri í leikhúsum borgarinnar? Svar: Nei, aðeins ein til tvær sýningar á ári þegar best lætur. Ekki er það gott; náminu miðar hægt áfram með þessu móti. Hvernig eigum við að kynna þessa listgrein fyrir landsmönnum? Dansinn er sjónrænn og verður því að sjást. Við getum ekki keypt góða sýningu og hengt hana upp á vegg í stofunni né getum við keypt hana á geisladisk eða hlust- að á hana í útvarpi. Það skilur okkur eftir með aðeins tvo miðla; leikhús og sjónvarp. Ef við skoðum hvernig öðrum greinum úr lista- og menningargeiranum er komið til fólksins, er fyrst að telja tónlist- ina, sem er allt í kringum okkur. Ríkisútvarpið hefur frá fyrstu tíð talið það í sínum verkahring að kynna og leika klassíska tónlist. Dúxinn kemur í næstu viku ... Bára Magnúsdóttir „Kannski þurfum við einn ráðherra enn, lista- og menningar- málaráðherra. “ Klassíska tónlistin er ekki ein- göngu spiluð einu sinni eða tvisvar á ári hveiju, heldur eru vissir tímar á dag ætlaðir klassískum hlustend- um. Sama gegnir um aðra tónlist. Tónlistin er einnig notuð í kvik- myndum, leikritum, auglýsingum og barnaefni, svo eitthvað sé nefnt. Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika reglulega allan veturinn. Óperan starfar allt leikárið í eigin húsnæði, en telur sig samt standa í kynningarstarfi ennþá og þrátt fyrir þau skilyrði sem hún býr við í dag sé óperan í frumbernsku og verði að vaxa fiskur um hrygg eigi hún að komast til aldurs og þroska. Leikararnir nýta sér alla miðla, leikhús, sjónvarp og útvarp. Senni- lega líður vart sá dagur að lands- menn horfi ekki á leikþátt í ein- hverri mynd, erlendan eða innlend- an, í sjónvarpi, leikhúsi eða kvik- myndahúsi. I samanburði við þessa upptaln- ingu er listdansinn ekki í frum- bernsku heldur á fósturstigi. Þetta væri rökrétt niðurstaða ef ekki væri þeirri staðreynd fyrir að fara, að listdansflokkur er búinn að starfa hér í 20 ár á ríkislaunum, nægjanlegum til að halda honum lifandi, en ekki starfandi í þeirri merkingu að koma listgreininni til fólksins. Kannski þurfum við einn ráð- herra enn, lista- og menningar- málaráðherra. Þá mundi hann setja fólk í nefnd sem væntanlega mundi finna það út, að verið væri að veita fé til framleiðslu á vöru sem dag- aði upp í verksmiðjunni, því enginn bæri ábyrgð á að koma henni á markað. Nefndarálit gæti litið svona út: 1. Kynningarstarf skal hafið í öllum grunnskólum landsins og skal það fara fram í lista- og menn- ingaitímum. 2. Ráðuneytið skal standa að myndbandagerð gagngert í þess- um tilgangi, og panta af íslenska dansflokknum 5-6 stutt verk á ári hveiju. Ekki minna en 30% verk- anna séu eftir íslenska höfunda. 3. Ekki minna en 3 uppfærslur skulu vera fastur liður í starfi flokksins á hveiju leikári; í upp- hafi leikárs, jólasýning og í kring- um páska. 4. Listdans skal sýndur í ríkis- sjónvarpi, fastur þáttur einu sinni í viku (laugardaga eða sunnu- daga). Ekki minna en 30% efnis skal vera innlent. 5. Samið skal barnaefni fyrir sjónvarp; ævintýri, jólaballettar og fleira. 6. Allar sýningar flokksins skulu varðveittar á myndböndum. 7. Verkefni, sérstaklega unnin fyrir sýningarferðalög innanlands, skal staðið að að minnsta kosti annað hvert ár. 8. Upptaka á baliettverki fyrir kvikmyndahús. Nefndaráliti lokið. Hvemig skyldi staða íslensks listdans vera í dag hefði hann búið við þessar aðstæður undanfarin ár? Staða íslenska flokksins er nán- ast verri í dag en hún var í upp- hafi. Flokkurinn hefur enga sýn- ingaraðstöðu og má ganga betli- veginn á milli þeirra tveggja húsa, sem með góðu móti geta tekið að sér ballettsýningu, Þjóðleikhússins og Borgarleikhússins. Þetta er eintómt vesen... til hvers þarf íslenski dansflokkurinn að sýna yfirleitt? Fá ekki dansar- arnir laun sín í hveijum mánuði? Því þurfa þeir að vera með þessa heimtufrekju líka? Getur verið að ráðamenn, þ.e.a.s. atvinnurekendur íslenska dansflokksins, vildu helst af öllu að flokkurinn sýndi aldrei? Það er minnsta vesenið. Þar að auki er Helgi Tómasson heimsfrægur þannig að allir vita að Island er liðtækt í lista- og menningar- heiminum. Spurning dagsins í dag er: Á flokkurinn að vera að fara? Er það ekki sóun á almannafé að veita til hans svo litlu fjár- magni, að fyrirfram er vitað að hann getur með engu móti staðið undir því sem gera þarf? Er það ekki spun á tíma, þreki og hæfileikum þeirra listamanna sem við flokkinn starfa, að hafa þetta ástand öllu lengur viðvar- andl? Er ekki kominn tími til að kynna þessa eign landsmanna fyrir þjóð- inni, þ.e.a.s. að leyfa flokknum að dansa við þau skilyrði sem hann þarf, eins oft og hann getur. Náum flokknum út úr æfingasalnum og til fólksins, því það er þar sem uppskerunnar er að vænta. Ef jarð- vegurinn er réttur verður uppsker- an góð. Með öflugu kynningarstarfi, skipulögðu í samráði við opinbera aðiía, má renna sterkum stoðum undir íslenskan listdans, þannig að hann fari að þjóna sínu markm- iði og sinna því lista- og menn- ingarstarfi sem honum er ætlað — eða skyldi það ekki hafa verið ætlunin í upphafi? Höfundur er skólastjóri Jazzballettskóla BAru. Wicanders Kork'O'-Plast EF ÞÚ BÝRÐ ÚTI Á LANDI ÞÁ SENDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS SÝNISHORN OG BÆKLING. > JKprk-O'Plast er með slitsterka vinylhúð’ og notað á gólf sem mikið mæðir á, svo sem flugstöðvum og sjúkrahúsum. JKoric-O'Plast er auðvelt að þrifa og þægilegt er að ganga á því.. Þ. ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.