Morgunblaðið - 07.12.1993, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
Clinton vill
enn þrengja
að byssunni
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í viðtali við dagblað-
ið The Los Angeles Times á
sunnudag, að hann teldi setn-
ingu Brady-laganna aðeins
fyrsta skrefið í átt til aukins
eftirlits með byssueign í landinu.
Kvaðst hann vera að velta fyrir
sér hvort taka ætti upp opinbert
leyfiskerfí. Er sú hugmynd kom-
in frá Rudolph Giuliani, væntan-
legum borgarstjóra New York,
og hefur Clinton faiið Janet
Reno dómsmálaráðherra að
kanna málið.
Segja Esco-
bar hafa svipt
sig lífi
MÓÐIR og systir kólombíska
kókaínskóngsins Pablo Esco-
bars sögðu um helgina, að hann
hefði ekki fallið fyrir kúlum lög-
reglumanna, heldur svipt sig lífi
þegar hann sá, að hann átti
ekki undankomu auðið. Að
þeirra sögn hafði hann aðeins
eitt skotsár á höfði og augljós-
lega hefði verið skotið af mjög
stuttu færi. Escobar var jarð-
settur sl. föstudag og fylgdu
honum þá til grafar um 3.000
manns úr fátækrahverfunum í
Medellinborg en í þeirra augum
var hann eins konar Hrói höttur.
Caldera
sigraði
RAFAEL Caldera bar sigur úr
býtum í forsetakosningunum í
Venesúela á sunnudag og er
þetta í annað sinn á 25 árum,
sem hann er kjörinn í embættið.
Fékk hann 31% atkvæða, sem
skiptust annars á milli 18 fram-
bjóðenda. Var hann í framboði
fyrir samband 17 fiokka, sem
spanna allt pólitíska litrófið frá
hægri til vinstri.
Bréfsprengj-
ur í Vín
SKRIFSTOFUMAÐUR særðist
alvarlega þegar bréfsprengja
sprakk í Vín í gær en lögregl-
unni tókst að gera þrjár sprengj-
ur óvirkar. Daginn áður hafði
borgarstjórinn í Vín, Helmut
Zilk, misst fingur þegar hann
opnaði bréf á heimili sínu. Ails
hafa tíu sprengjur sprungið eða
fundist frá því á föstudag og
sprengjutilræðin beindust að
flóttamönnum og stuðnings-
mönnum þeirra. Grunur leikur
á að hægriöfgamenn hafi staðið
fyrir tilræðunum.
Frakkland
Kvóti á er-
lent popp
París. The Daily Telegraph.
FRANSKA þingið samþykkti
á laugardag lög, þess efnis að
hlutfall franskrar tónlistar af
útsendu tónlistarefni, megi
ekki vera minna en 40%. Mik-
il umræða hefur verið um
framtíð franskrar menningar
að undanförnu og er sam-
þykkt frumvarpsins talin vera
beint framhald þeirrar um-
ræðu.
Allir er þó ekki jafn sannfærðir
um ágæti þessara nýju laga en
markmið þeirra er að reyna að
breyta neysluvenjum ungra
Frakka hvað varðar tónlist. í Eftir
að frelsi var aukið í útvarpsmálum
á síðasta áratug hafa sprottið upp
fjölmargar útvarpsstöðvar, sem
útvarpa nær einvörðungu engil-
saxneskri tónlist.
Margir teija vissulega að fram-
tíð franskra sönglaga sé í hættu
vegna þessa en jafnframt er bent
á að ekki sé víst að Frakkar eigi
nógu mikið af góðu tónlistarefni
til að fylla upp í kvótann. Óttast
margar útvarpsstöðvar að þær
verði að senda út töluvert af þögn
ef lögunum verður framfylgt til
hins ítrasta.
Vinstriöflin signrvegarar seinni umferðar ítölsku kosninganna
Fyrrverandi kommúnistar
stefna að stjórnarforystu
Róm, Mílanó, Napólí. Reuter.
LÝÐRÆÐISFLOKKUR vinstrimanna, PDS, sem reistur var á
rústum gamla kommúnistaflokksins, sigraði í síðari umferð ítölsku
sveitarstjórnarkosninganna á sunnudag og eru næst-stærsti flokk-
ur landsins á eftir nýfasistum. „Borgarstjórar Ítalíu eru Rauðlið-
ar“, var fyrirsögn hægriblaðsins II Giornale í Mílanó í gær en PDS
bauð fram eða studdi sigurvegarana í Róm, Napólí, Feneyjum,
Genúa og Tríeste. Nýfasistar urðu fyrir nokkrum vonbrigðum en
þeir höfðu gert sér vonir um sigur í Róm og Napólí þar sem Ales-
sandra Mussolini var í framboði.
„Næsta takmark okkar er
stjómarforystan,“ sagði Achille
Ochetto, leiðtogi PDS, er úrslitin
vora ljós. Hann hvatti flokksmenn
sína og bandamenn PDS til að
samþykkja drög að stjórnarsátt-
máia sem tryggði að vinstrimenn
héldu því miðjufylgi sem þeir
fengu nú vegna hrans hefðbund-
inna stjórnmálaflokka. Gert er ráð
fyrir að kosið verði til þings í
mars á næsta ári. Núverandi stjórn
bankamannsins Carlos Azeglios
Ciampis er samsteypa sem nýtur
stuðnings kristilegra demókrata
og sósíalista, flokka sem era nú
fylgislítil reköld eftir óveður spill-
ingarmálanna sem upplýst hafa
verið og þúsundir stjórnmáia- og
kaupsýslumanna eru flæjktir í.
Einn helsti frammámaður
nýfasista, Gianfranco Fini, sem
tapaði naumlega í Róm fyrir vinst-
rimanni, sagði ljóst að vinstriöflin
væra líkleg til að leiða næstu
stjórn. „Við getum ekki unnið
nema hægriöflin nái samkomulagi
um að mynda bandalag", sagði
hann. Fini bar sig þó vel og sagði
nýfasista hafa tryggt sér sterka
stöðu í stjórnmálum Ítalíu en þeir
hafa ekki þótt fyllilega húsum
hæfir vegna tengslanna við ein-
ræðistíma Benitos Mussolinis, afa
Allessöndru. Hún hlaut 44,4% í
Napólí en andstæðingur hennar,
PDS-maðurinn Antonio Bassolino,
55,6%; kosið var milli tveggja efstu
í fyrri umferð kosninganna sem
var fyrir tveim vikum. í Róm sigr-
aði 39 ára gamall græningi, Franc-
esco Rutelli, hann fékk 53,1% at-
kvæða.
Annar hægriflokkur, Norður-
sambandið, sem vann fyrir nokkra
sigur í Mílanó og víðar á Norður-
Italíu, kom illa út úr þessum kosn-
ingum. Flokkurinn vill draga úr
fjárstuðningi norðursvæðanna við
hina fátæku Suður-Ítalíu og segja
andstæðingar hans að flokksmenn
vilji kljúfa landið í tvennt. Leiðtogi
sambandsins, Umberto Bossi, var-
aði ítala við, sagði að svo gæti
farið að vinstriöfl fengju 60% þing-
sæta í væntanlegum þingkosning-
um sæju kjósendur ekki að sér.
Velkomin til 'Islands
Handtöskur ♦ Fylgihlutir
MCM Fæst Hjá cg/eOMVK/, Borgarkrjnglunni, Sími 91 /677230