Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
31
Flokkur Helmuts Kohls kanslara bíður enn einn ósigurinn
Hársbreidd munaði að flokkur
kommúnista yrði í öðru sæti
Bonn, Bcrlín. Reuter.
LITLU munaði að flokkur Helmuts Kohls kanslara, Kristilegi demó-
krataflokkurinn (CDU) yrði í þriðja sæti er kosið var í sambandsland-
inu Brandenburg í austurhluta Þýskalands á sunnudag. CDU fékk ein-
ungis 22,5% atkvæða en PDS, arftaki austur-þýska kommúnistaflokks-
ins, fékk 21,3% atkvæða. Frambjóðandi PDS varð einnig í efsta sæti
í kosningum um borgrastjóra Potsdam. Jafnaðarmannaflokkurinn
(SPD) vann sigur í kosningunum í Brandenburg, en flokkurinn hefur
farið þar með völd undanfarin ár, og hlaut 33,5% atkvæða.
Reuter
Kosningarnar ræddar
RUSSNESK t\jón skeggræða þingkosningarnar, sem fram fara á
sunnudag, á heimili sinu í þorpinu Tagankovo, um 40 km frá Moskvu.
Kosninganna í Brandenburg hafði
verið beðið með nokkurri eftirvænt-
ingu þar sem talið var að þær kynnu
að gefa vísbendingu um hvemig
vindar myndu blása í kosningum á
næsta ári. Alls verða þá haldnar nítj-
án kosningar, þar á meðal þingkosn-
ingar.
Úrslitin í Brandenburg hefðu varla
getað verið mikið verri fyrir CDU
og þeim fer sífellt fjölgandi er spá
því að Kohl muni bíða ósigur í þing-
kosningunum í september á næst
ári. Tímaritið Der Spiegel, sem kom
út í gær, birti mynd á forsíðu sinni
þar sem sjá má aftan á hnákka Kohls
undir fyrirsögninni: „Völd Kohls
þverra út - Tímabil líður undir lok.“
Sagði tímaritið að kominn væri tími
til að breyta til. Ellefu ár af Helmut
Kohl væru meira en nóg. Dagblaðið
Hamburger Abendblatt sagði að í
kosningunum 1990 hefði kanslarinn
verið verðlaunaður fyrir hversu vel
hann hélt á sameiningu Þýskalands.
„Sögulegur árangur hans þá mun
hins vegar ekki nægja í næstu kosn-
Lokaslagurinn fyrir þingkosningarnar í Rússlandi á sunnudag hafinn Margir lýstu yfir áhyggjum vegna
-----------------------------------------————---------------------—--------- góðs gengis PDS, sem líklega má
Líkur á að nýja þingið verði
sundurleitt og skammlíft
jVloskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
SIÐASTA vika kosningabaráttunnar í Rússlandi er hafin og svo
virðist sem Valkostur Rússlands, helsti flokkur stuðningsmanna
umbótastefnu stjórnarinnar, eigi í vök að verjast. Forystumenn
flokksins hafa í fyrsta sinn frá sigrinum yfir harðlínumönnum á
gamla þinginu fyrir tveimur mánuðum viðurkennt að nýja þingið
kunni að reynast enn sterkara vígi andstæðinga efnahagsumbót-
anna. Nýja þingið gæti reynst sundurleitt og skammlíft.
Kosningamar verða á sunnudag
og samkvæmt skoðanakönnunum er
Valkostur Rússlands enn með forskot
á hina flokkana tólf. Kannanirnar
eru hins vegar afar misvísahdi, ein- -
blína flestar á kjósendur í borgunum
og taka ekki heldur mið af milljónum
manna sem segjast ekki enn hafa
ákveðið sig.
Kjósendurnir verða því sem næst
einvörðungu að reiða sig á sjónvarps-
útsendingar á kvöldin og auglýsing-
ar, sem þykja ýmist ofstopafullar eða
leiðinlegar. Stjórnmálamennimir
gera sem minnst af því að halda
kosningafundi í borgunum. í mörg-
um borgum er lítið um auglýsinga-
spjöld eða bæklinga sem minna á
kosningarnar.
Líklegt þykir að niðurstaðán verði
sundurleitt þing þar sem umbóta-
sinnar verði ívið fleiri en kommúnist-
ar og bandamenn þeirra, en margir
þingmannanna verði á hinn bóginn
staðráðnir í að halda sjálfstæði sínu.
Svo gæti jafnvel farið að „óháðu“
þingmennimir legðust á sveif með
harðlínuöflunum. Margir spá því að
Borís Jeltsín leysi þingið upp um leið
og það fari að valda honum vandræð-
um.
Leiðtogi Valkosts Rússlands er
Jegor Gajdar sem boðaði opið mark-
aðshagkerfi, fijáls viðskipti og minni
ríkisafskipti þegar hann var forsætis-
ráðherra. Nú kveður hins vegar við
annan tón því hann boðar takmark-
aða vernd fyrir rússneskan iðnað og
innflutningstolla til að vernda illa
stæð fyrirtæki.
Ósamlyndis er þegar farið að gæta
innan Valkosts Rússlands, sem oft
er nefndur „stjórnarflokkurinn"
vegna þess hversu margir ráðherrar
eru í honum. Spjótin beinast einkum
að Vladímír Shúmejko, metnaðar-
gjörnum aðstoðarforsætisráðherra
sem stóð fyrir ritskoðun blaða eftir
árásina á þinghúsið í Moskvu 4. októ-
ber. í síðustu viku mistókst honum
að fá yfirkjörstjórnina til að banna
Kommúnistaflokkinn og Lýðræðis-
flokkinn fyrir að hafna stjórnarskrár-
drögum Jeltsíns forseta. Þetta varð
til þess að endurvekja umræðuna um
hvort kosningarnar væru fijálsar og
lýðræðislegar; sumir segja þær ein-
kennast af hlutdrægni en aðrir telja
þær eins lýðræðislegar og mögulegt
er miðað við aðstæður.
Jafnvel stuðningsmenn Jeltsíns
voru hissa á þeim ummælum forset-
ans nýlega að flokkarnir mættu ekki
nota ókeypis sjónvarpsútsendingar
sínar .til að gagnrýna stjórnarskrár-
drögin. Þeir segja að úr því að forset-
inn vilji ekki lýðræðislegt þjóðarat-
kvæði um málið ætti hann einfald-
lega að knýja drögin fram með for-
setatilskipun.
Forystumönnum Valkosts Rúss-
lands hefur ekki tekist að tryggja'
samstarf við aðra flokka, svo sem
flokka hagfræðingsins Grígoríjs
Javlínskíjs og Sergejs Shakhrajs,
annars aðstoðarforsætisráðherra.
Kommúnistaflokkurinn og Bænda-
flokkurinn hafa hins vegar náið sam-
starf og gætu fengið 30% fylgi sam-
anlagt. Vladímír Zhírínovskíj, nýfas-
istinn sem varð þriðji í forsetakosn-
ingunum árið 1991, virðist njóta
vaxandi vinsælda og gæti komið á
óvart í kosningunum.
fyrst og fremst rekja til óánægju
með mikið atvinnuleysi og slæmt
efnahagsástand í Brandenburg. Pet-
er Hintze, framkvæmdastjóri CDU,
sagði árangur PDS „ógnvekjandi"
og bætti við: „Þeir sem skildu eftir
sig efnahagslegar brunarústir virðast
nú hagnast á hinum efnahagslegu
erfiðleikum."
Blaðið Stuttgarter Nachrichten
sagði um fimmtung íbúanna hafa
veitt mönnum atkvæði sitt, er hefðu
njósnað um þjóð sína og svikið. „Er
búið að sýkna þetta óréttláta kerfi?,“
spurði blaðið.
Rolf Kutzmuts, sem leiddi lista
PDS, hefur opinberlega viðurkennt
að hann njósnaði fyrir hina illræmdu
öryggislögreglu Stasi er Austur-
Þýskaland var og hét.
Frank Zappa látinn af völdum kirtilkrabbameins
Hlífði engum við hvassri ádeilu
Los Angeles. Reuter.
FRANK Zappa, sem varð goðsagnapersóna í rokkheiminum, lést
af völdum krabbameins í blöðruhálskirtli á laugardag, 52 ára að
aldri. Zappa var þekktur fyrir hvassa háðsádeilu sína sem beind-
ist jafnt að forsetum sem ýmsum hópum í samfélaginu, svo sem
hommum og auðjöfrum.
Zappa varð fyrst þekktur á sjö-
unda áratugnum þegar hann var
leiðtogi hljómsveitarinnar Mothers
of Invention, sem þótti fara ótroðn-
ar slóðir í tónlistinni. Hann gaf út
næstum 50 breiðskífur, og hlaut
Grammy-verðlaunin fyrir breiðskíf-
una „Jazz from Hell“ árið 1987.
Lög Zappa heyrðust sjaldan í
bandarísku útvarpi síðustu árin
þótt hann hefði alltaf átt traustan
aðdáendahóp' í Bandaríkjunum og
nyti mikillar hylli í öðrum löndum.
Plötum hans var til að mynda
smyglað til Tékkóslóvakíu fyrir
hrun kommúnismans og nutu vin-
sælda meðal andófsmanna og hópa
sem störfuðu leynilega. Vaclav
Havel, forseti
Tékklands, var
svo hrifinn af
tónlist Zappa
að hann gerði
hann að sérleg-
um menning-
arsendiherra
við litla hrifn-
ingu banda-
ríska utanríkis-
ráðuneytisins.
Zappa átti
við krabbamein að stríða í nokkur
ár en hélt áfram í tónlistinni þar
til undir það síðasta. Hann gaf út
nýja breiðskífu, „The Yellow
Shark“, fyrr á árinu. Vegna veik-
Reuter
FRANK Zappa
indanna varð hann þó að aflýsa
tónleikum og hætta við boðað
framboð í forsetakosningum.
Textar Zappa hneyksluðu for-
eldra og margir urðu skotspónn
háðsádeilunnar. Hommar móðguð-
ust til að mynda vegna lagsins
„He’s So Gay“ og Zappa sætti
gagnrýni gyðinga fyrir „Jewish
Princess". Hann var oft krafinn um
afsökunarbeiðni en neitaði alltaf.
Þótt hann hneigðist til vinstristefnu
í stjómmálunum fengu margir
vinstrimenn að kenna á háðsádeilu
hans, svo sem blökkumannaleið-
toginn Jesse Jackson.
Zappa fæddist í Kaliforníu árið
1940. Hann var sonur veðurfræð-
ings sem stundaði eiturgasrann-
sóknir fyrir herinn. Gasgrímur voru
alltaf til taks á veggjum heimilisins
ef ske kynni að mengunarslys yrði
vegna efnavopnanna sem faðirinn
rannsakaði.
Langar þig í heima í stofu?
■ w 9S(?C.tS " ... _
p^lpwiiSiS®
KENWOOD KR-V7050 meö fjarstýríngu
Verö kr. 66.400 stgr.
KENWOOD
Aörir Kenwood magnarar: KR-V6050 2x100 vött RMS kr. 54.055 KR-A5050 2x100 vött RMS
kr. 37.900 KR-A4050 2x60 vött RMS kr. 33.155 KR-A3050 2x50 vött RMS kr. 28.400 stgr.
KENWOOD KR-V7050 útvarps- og videó-
magnari meö „Dolby Pro-logic Surround“
kerfi, 2x100 vött RMS.
Þú tengir magnarann viö stereó videótæki og 5
rása hljómur verður aö veruleika. Þitt eigiö bíó
meö bíóhljómgæðum heima í stofu. Magnarinn
hefur einnig fullkomiö DSP (Digital Sound
Processing) kerfi sem líkir eftir hljómburði í
hljómleikasölum. KR-V7050 var valinn A/V
(audio/video) magnari ársins af hinu virta
fagtímariti „What Hi-Fi“.
þar sem gœðiti heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 688840