Morgunblaðið - 07.12.1993, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
33
til kaldra kola og sökk
iji bjargaðist
i leik í gúmbát
Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson
Einar á Flóka
EINAR Björn Einarsson um borð í báti sínum, Flóka SF, en hann
bjargaði Bjarna Garðarssyni úr gúmbáti, sem hann komst í við illan
leik, eftir að kviknaði í báti hans, Kiðey SF, síðdegis á laugardag.
beint að honum og tók hann um
borð. Það var norðangola og renni-
slétt. Ég fór svo beint i land með
Bjarna en hélt strax út aftur með
2 slökkviliðsmenn og lögreglu-
mann. Við vorum með slökkvidælu
og gekk vel að slökkva eldinn, enda
nánast allt brunnið sem brunnið
gat. Við tókum Kiðeyna í tog en
eftir um hálfa mílu fór hún niður,“
sagði Einar. Kiðey SF var tæplega
10 tonna plastbátur.
- segir Bjarni Garðarsson sem bjargaðist naumlega úr brennandi báti
„ÞETTA var óskemmtileg lífsreynsla og ég er ekki búinn að
jafna mig ennþá. Ég hefði ekki trúað að þetta gæti gerst og þó
er ég búinn að vera til sjós í 30
Hann sagðist ekki hafa trúað því
að eldurinn gæti breiðst jafnhratt
út og raun hefði verið á. Hann
hefði farið í gúmbjörgunarbátinn
því það hefði ekki neitt verið hægt
að gera. „Ég gat ekkert gert. Reyk-
urinn var svo ofboðslega mikill að
það var ekki hægt að komast að
neinu,“ sagði hann.
Aðspurður hvort hann hefði
þurft að vera lengi í bátnum sagði
hann að það hefði líklega verið um
hálftími, en það væri langur tími
við þessar aðstæður. Hann hefði
ár,“ sagði Bjarni Garðarsson.
skotið upp tveimur blysum. „Þeir
voru komnir mjög fljótlega, þó ég
geti ekki alveg gert mér grein fyr-
ir tímanum og við fórum beint í
land. Báturinn varð alelda á þessum
tíma og stóð í ljósum logum. Það
varð 'ekkert að gert. Þetta er óskap-
legur eldmatur, mörgum sinnum
meiri heldur en ég hefði nokkurn
tíma getað ímyndað mér, en ég hef
að vísu aldrei séð plast loga,“ sagði
hann.
„Það rennur ýmislegt í gegnum
huga manns við þessar aðstæður.
o 10 km
Trillan Kiðey brann og sökk
skammt undan Skinneyjarhöfða
Maður er búinn að vera með svo
mörgum sem hafa farið,“ sagði
Bjarni að lokum.
Reykurinn var svo ofboðs-
legur að ég gat ekkert gert
Morgunblaðið/Jóhanna Valgerður Arnbjömsdóttir
Heimtur úr helju
BJARNI Garðarsson ásamt þremur sonum sínum. Taldir frá vinstri Steinþór Viggó, Jón Garðar, Bjarni
og Rúnar Þór.
Ingólfstorg
NÝR áfangi í endurskipulagingu miðbæjarins næst á eftir Miðbakkanum við höfnina og lagningu Geirsgötu.
með bústað hans í næsta nágrenni.
Þar af leiðandi hefur torgið verið
nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni."
Gufa vísar til nafns
Markús benti á að á torginu eru
eftirlíkingar af öndvegissúlum Ing-
ólfs úr steini og að auki eru þar
leiðslur sem dæla gufu yfir svæðið
og minna um leið á hvaðan nafn
borgarinnar er fengið í ljósi lýsinga
Landnámubókar á því hvernig Ing-
ólfur sá gufumekki stíga upp af
heitum lindum á svæðinu og nefndi
bæ sinn í samræmi við það. Þessi
sögn er þar með rifjuð upp á torginu
með þessum skemmtilega hætti.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi og formaður hönnun-
arnefndar torgsins, gerði í stuttu
máli grein fyrir framgangi verksins
og Miðbæjarfélagið bauð gestum
upp á heitt súkkulaði í tilefni dags-
ins.
ykjavík var tekið formlega í notkun um helgina
í endurskipu-
igu miðbæjarins
Morgunblaðið/Þorkell
Vinnufær
ÁGÚST Erlingsson var ögn stirður í gær en ætlaði til vinnu í dag. Hann
vinnur hjá KS-verktökum sem eru að byggja nýja stúdentagarða vestur
í bæ.
Féll 8 til 10 metra með kranabómu
Man bara tilhugsun-
ina að henda sér af
„EF ÉG hef hugsað eitthvað á leiðinni niður er allt þurrkað úr minni
mínu annað en sú tiihugsun að henda inér af. Ég náði hins vegar ekki
að framkvæma þessa hugdettu því áður en varði skullum við niður,“
sagði Ágúst Erlingsson starfsmaður KS-verktaka. Hann varð fyrir því
ásamt vinnuféiaga sínu, Vilhjálmi Þorvaldssyni, að falla 8-10 m niður til
jarðar með bómu við Eggertsgötu 18 rétt fyrir hádegi á laugardag.
„Ég er alveg viss um að einhver,
þarna uppi, hefur haldið yfir mér
verndarhendi," sagði Ágúst þegar
blaðamaður Morgunblaðsins heim-
sótti hann í gær. Hann marðist á
höndum, baki og læri en slapp við
beinbrot þegar hann féll með félaga
sínum til jarðar. Sá síðarnefndi, sem
lenti undir Ágústi, var hins vegar
ekki eins heppinn, hlaut slæmt lær-
brot og verður eflaust frá vinnu í ein-
hvern tíma.
Mannleg mistök
Ágúst sagði að þeir félagar hefðu
verið að fella kranann þegar slysið
atti ser stað. „Við ætluðum að flytja
kranann á milli spora og þurftum að
stytta bómuna um helming fyrir flutn-
inginn. Allt gekk vel þar til mannleg
mistök komu í ljós, gleymst hafði að
festa vír til að halda bómunni saman,
og við féllum með henni að turninum
til jarðar,“ sagði Ágúst, en viðstaddir
vinnufélagar tvímenninganna brugð-
ust skjótt við og hringdu á sjúkrabíl.
„Mér fannst sjúkraflutningamennimir
eiginlega komnir um leið og mig lang-
ar að skila kæru þakklæti til þeirra
og allra á slysadeildinni. Við fengum
yndislegar móttökur þar,“ sagði Ág-
úst að lokum.