Morgunblaðið - 07.12.1993, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
r^/% Hense
bonilion
Fiske
bouillon
Svine
3 kodkraft
0kse
kodkraft
sovs
Alt-i-én teming
-med smag, kuler og jævning
Gronsags
bouillon
Lamb
STOCK CUBES
Klar bouillon
Sveppa-
kraftur
Alltaf uppi á
temngnum!
'f&tf&1
kraftmikið
og gott ]
bragð!
Claus og Ulu Becker heimsótt að Grenzlandhof
Markaðsraiuisóknar er þörf
leg’ur klárhestur með tölti dæmigerður Grenzlandhof-hestur.
Þau eru stór og myndarleg trippin og ekki er styggðinni fyrir að fara.
__________Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
EFTIR sex vikna dvöl við vinnu
hjá Stefáni heitnum Jónssyni í
Kirkjubæ á sjötta áratugnum var
teningnum varpað í lífi Clausar
Becker; hann skyldi rækta ís-
lenska hesta. I dag rekur hann
stórt bú í Grenzlandhof í Zaar-
landi í Þýskalandi. Bústofninn
er holdanaut og íslenskir hestar
þar sem hann og kona hans Ulu
sem einnig tekur virkan þátt í
búrekstrinum ásamt því að reka
umfangsmikla reiðtygjaverslun í
Saarbrucken, rækta hross út af
Geysi frá Stóru Giljá, Ljúfi og
Randver frá Kirkjubæ.
Claus er afar líflegur maður, full-
ur af lífsþrótti og athafnagleði. Þá
er hann sannur Islandsvinur, ekki
í sömu merkingu og ýmsar stór-
stjörnur sem drepa hér niður fæti
tvo sólarhringa og þiggja að launum
milljónir. Hann elskar íslenska hest-
inn og landið og allir íslenskir hesta-
menn eru vinir hans. Þegar umsjón-
armaður hestaþáttarins heimsótti
Grenzlandshof bað hann fyrir skila-
boð til þeirra hestamanna sem væru
á ferð um Þýskaland að þeir vel-
komnir að gista í Grenzlandshof og
þegar hann var spurður hvort um
væri að ræða fría gistingu svara
hann og hlær: „Að sjálfsögðu, ís-
lendingar hafa alltaf tekið vel á
móti mér þegar ég hef komið til
íslands og get ég ekki endurgoldið
það nema á þennan hátt.“
Nauðsynlegt að samræma
kynbótadóma
Claus hefur mjög ákveðnar skoð-
anir á dómum kynbótahrossa og
efast ekki um að menn innan FEIF
muni ná saman. „Þeir sem fást við
dómsörf innan FEIF eiga að vinna
meira saman. Takmarkið á að sjálf-
sögðu að vera samræmdir dómar
innan FEIF-landanna. Það þarf að
blanda fólki meira í dómnefndirnar
t.d. að danskur dómari komi og
dæmi með þýskum dómurum í
Þýskalandi og svo öfugt. Einnig að
íslenskir dómarar dæmi hér með
Þjóðveijum og svo framvegis. Ég
held að mikilvægur þáttur í að sam-
ræma mat dómaranna sé að þeir
vinni saman. Sjálfur hef ég unnið
með svissneskum dómurum og eftir
stutta stund vorum við orðnir vel
samstilltir. Ég dæmdi með Þorkeli
Bjarnasyni á Falkenhorst hjá Reyni
og Kóka og þar var lítill munur á
skoðunum okkar. Við lítum öðrum
augum á fetið en þið íslendingar,
þið hafið meiri áhuga á skeiðinu,"
segir Claus og hlær. „En þetta er
ekki stórt mál að mínu mati. En
það er ekki nóg að vinna saman,
dómarar verða einnig að koma sam-
an og ræða málin,' kryfja þau til
mergjar. Við Ulu höfum mikinn
áhuga á að bjóða hingað dómurum
víða að þar sem farið yrði ofan kjöl-
inn á þessum málum. Slík samkoma
yrði vel til þess fallin að samræma
dómstörf milli landa. í þessu sam-
bandi má einnig geta þess að ég
tel mikið atriði að reynt sé að staðla
aðstæður við dómsstörf eins mikið
hægt er,“ segir Claus og því næst
barst talið að fyrirkomulaginu við
dómstörfin í Þýskalandi.
„Kostirnir við þetta opna kerfi
þar sem dómarar gefa hver sína
einkunn með spjaldauppréttingu og
við notum hér í Þýskalandi er að
áhrifamiklir eða sterkir dómarar
ná ekki að yfirgnæfa þá sem ekki
eru eins framfæmir en alls ekki
verri dómarar. Þá gefur þetta rækt-
endum og öðrum áhugamönnum
færi á að fylgjast mun nánar með
einkunnagjöfinni. Sé um að ræða
ágreining eða skiptar skoðanir um
eitthvert dómsatriði kemur það
fram með slíku fyrirkomulagi en
alls ekki ef dómarar semja um ein:
hveija eina tölu,“ segir hann. í
Þýskalandi tekur allt að hálftíma
að meta hvert hross en þar fer einn
dómari á bak hrossinu og prófar
allar gangtegundir. Til samanburð-
ar má geta þess að á íslandi tekur
að meðaltali 10 til 12 mínútur að
meta hvert hross og segir Claus það
lágmarkskröfu ræktanda og þjálf-
ara hrossanna að dómnefnd gefí sér
góðan tíma til að skoða hrossin.
Þeir eyða miklum tíma og peningum
til að hrossið komi sem best fyrir
við dóm og það má ekki spilla neinu
með fljótfærnisvinnubrögðum.
„Það er mín prívat skoðun að
hafa eigi aðskilda dóma á ijór-
gangs- og fimmgangshrossum,"
segir Claus sem hefur eins og áður
kemur fram reynt að rækta fjór-
gangshesta og var hann spurður
hvort hann hafi aldrei lent í vand-
ræðum í sinni ræktun með að rækta
of Jklárgenga hesta sem á megin-
landinu hafa verið í gamni kallaðir
þriggja og hálfgangshestar.
Fjölhæf hross frá
Grenzlandhof
Markmiðið hefur verið frá upp-
hafi að rækta stór og myndarleg
fjórgangshross. Fylkir frá Élögu var
notaður tvö ár i Grenzlandshof og
keyptar voru nokkrar gamlar hryss-
ur frá Stokkhólma út af Geysi frá
Stóru Giljá. Hrappur frá Garðsauka
var keyptur 1964. „Það var í brúð-
kaupsferðinni okkar til íslands,"
segir Claus og brosir.
„í byijun þegar við vorum að
rækta fyrst og fremst fyrir okkur
sjálf var þetta ekkert vandamál
þótt það tæki árið að gangsetja
hrossin. Við vorum mikið í fimiþjálf-
un (dressur) og hindrunarstökki og
segja má að töltið hafí þá verið í
þriðja sæti. Seinna þegar umfang
ræktunarinnar jókst og salan að
sama skapi tókum við gangsamari
hross inn í ræktunina. I dag koma
héðan bæði fjór og fimmgangshest-
ar og Ulu skýtur inn í að þetta sé
nú kannski ekki alveg rétt hjá
Clausi því fyrir tuttugu árum unnu
þau bæði tölt og fjórgang á þýska
meistaramótinu og Claus hlær létt
og bætir við að orðstír af ræktun
þeirra hafi ekki verið góður á þess-
um tíma, talað var um að þau rækt-
Margir litir. Dömu- og herrastærðir.
Verð m/rúllukraga
kr. 3.150
Verð m/rúllukraga og rennilás
kr. 3.520
Útsölustaðir
Versl. Rafsjá, Bolungarvík
Sporthlaðan, ísafirði
Siglósport, Siglufirði
Skíðaþj. Viðars, Akureyri
Versl. Sún, Neskaupstað
K-sport, Keflavík
5% staðgreiðsluafsláttur,
| einnig af póstkröfum
1 greiddum innan 7 daga.
wúmiFmm
GLÆSIBÆ. SÍMI812922
Hjördís o g Asmundur unnu
Kauphallarbridsmótið aftur
__________Brids_____________
Guðm. Sv. Hermannsson
ÁSMUNDUR Pálsson og Hjördís
Eyþórsdóttir unnu Kauphallarmót
Bridgesambands Islands annað
árið í röð um helgina. í öðru sæti
urðu Guðmundur Páll Arnarson
og Þorlákur Jónsson og Hrólfur
Hjaltason og Sigurður Sverrisson
urðu í 3. sæti.
Þau Ásmundur og Hjördís voru
meðal efstu para allt mótið og höfðu
forustúna í upphafi á laugardag þar
til Páll Hjaltason og Oddur Hjaltason
tóku á mikinn sprett. Um tíma höfðu
-þeir náð miklu forskoti á næstu en
gáfu svo eftir síðari mótsdaginn og
þegar íjórar umferðir voru eftir höfðu
þeir misst forustuna til Jóns Hjalta-
sonar og Jóns Inga Bjömssonar.
Útreikningur síðustu þriggja lot-
anna var ekki birtur fyrr en í lokin,
til að hafa ekki áhrif á viðskipti í
kauphöllinni sem rekin er í mótinu,
en í þessum umferðum gekk Páli og
Oddi og Jónunum illa. Asmundur og
Hjördís tóku forustuna í þriðju síð-
ustu umferðinni og héldu henni til
loka. Þau voru meðal annars eitt af
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Sigurvegarar í annað sinn
ÁSMUNDUR Pálsson og Iljördís Eyþórsdóttir gunga fram til að
taka við sigurlaunum sínum á Kauphallarmótinu í brids.