Morgunblaðið - 07.12.1993, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIjD ÞRIÐJUDAGUR 7,. DESEMBER 1993
Bjóðum pínulítið (vart sýnilega)
framleiðslugallaða €íæ*amí KF-264
kæliskápa á frábæru verði.
€jnAJW KF-264 m/lúxusinnréttingu
254 lítra kæliskápur
með 199 Itr. kæli og 55 Itr. frysti.
HxBxD = 146,5 x 55 x 60 cm.
(Verðlistaverð kr. 67.680,-)
Nú aðeins kr. 52.690,- stgr.
Afborgunarverð kr. 56.660,-
Takmarkaður fjöldi skápa á þessu verði
VISA og EURO raðgreiðslur til allt að
18 mánaða, án útborgunar.
MUNALÁN með 25% útborgun og
eftirstöðvum kr. 3.000 á mánuði.
/FOniX
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
Málþing um vísindastefnu
í dag 7. des. 1993 kl. 14-17 í Borgartúni 6
DAGSKRÁ
1. Ráðherra setur málþingið og flytur inngangserindi.
2. Viðhorf til vísindastefnu ríkisstjórnarinnar:
Pétur Stefánsson, formaður Rannsóknaráðs ríkisins.
Jóhannes Nordal, formaður Vísindaráðs.
Sveinbjörn Björnsson, rektor Háskóla íslands.
Helgi Valdimafsson, formaður vísindanefndar Há-
skóla íslands.
Guðrún Kvaran, formaður Vísindafélags íslendinga.
Jón Þórðarson, forstöðumaður Rannsóknastofnunar
Háskólans á Ákureyri.
Kristján Kristjánsson, formaður vísindanefndar Há-
skólans á Akureyri.
Baldur Hjaltason, tæknilegur framkvæmdastjóri,
Lýsi hf.
Hallgrímur Jónasson, forstjóri Iðntæknistofnunar
íslands.
3. Viðbrögð vísindastefnunefndar:
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri.
Þórólfur Þórlindsson, prófessor.
4. Umræður.
5. Ráðherra flytur lokaorð og slítur málþingi.
Fundarstjóri: Dr. Sigmundur Guðbjarnason, prófessor.
Málþingið er öllum opið.
Salóme Þorsteins-
dóttir - Minning
Fædd 1. nóvember 1909
Dáin 1. desember 1993
Mig langar til að minnast með
nokkrum orðum móðursystur
minnar, Salóme Þorsteinsdóttur,
sem verður kvödd hinstu kveðju í
Lágafellskirkju í dag. Sallý, eins
og hún var jafnan kölluð, fæddist
í Álftafirði við ísafjarðardjúp 1.
nóvember 1909. Var hún næst
elst barna hjónanna Þorsteins M.
Ásgeirssonar sjómanns og Re-
bekku Bjarnadóttur, er lengst af
bjuggu á Isafirði, en böm þeirra,
sem á legg komust, voru 10 tals-
ins. Heimilið var því stórt og má
nærri geta að lífsbaráttan hefur
stundum verið hörð. Börnin þurftu
ung að byija að vinna til að létta
undir og þannig var það með Sallý.
Hún réðist snemma í vist eins og
þá var algengt, en hugur hennar
stóð samt mjög til þess að komast
til frekari mennta og það tókst
henni síðar með þeim dugnaði og
ákveðni, sem einkenndu hana alla
tíð. Á fjórða áratugnum fór hún
til Færeyja og vann þar um nokk-
urt skeið. Síðan lá leiðin til Dan-
merkur og á árinu 1937 fór hún
í lýðháskóla og síðan í hjúkrunar-
skóla, en þaðan lauk hún námi
1942. Stundaði hún síðan fram-
haldsnám í geðhjúkrun. Vegna
heimsstyijaldarinnar síðari komst
hún ekki heim til íslands þegar
að loknu námi, en starfaði við
hjúkmnarstörf á ýmsum sjúkra-
stofnunum í Danmörku fram yfir
stríðið. Á heimleið kynntist hún
ungum manni, Hálfdáni Ág. Jó-
hannessyni, sem hafði alist upp í
Danmörku hjá móður sinni, en var
að fara til íslands til að hitta föð-
ur sinn. Felldu þau hugi saman
og giftust 1946. Hálfdán starfaði
sem verkstjóri og verksmiðjustjóri
hjá Kexverksmiðjunni Frón í
Reykjavík. Bjuggu þau lengst af
að Hávegi 15 í Kópavogi. Eignuð-
ust þau tvo' syni, Ágúst, fæddan
1947, tæknifræðing hjá Gler-
tækni, sem kvæntur er Bente
Jensen, og eiga þau tvo syni, og
Kristján Þór, fæddan 1949, tækni-
fræðing hjá Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen, en hann er
kvæntur Margréti Jónsdóttur og
eiga þau tvo syni.
Bernskuminningar mínar og
systkina minna era margar tengd-
ar Sallý og fjölskyldu liennar, enda
mættum við þar ætíð mikilli hlýju.
Samgangur milli fjölskyldnanna
var mikill og oft var glatt á hjalla.
Heimsóknir á Háveginn voru með
skemmtilegustu viðburðum og átt-
um við ekki síst gleðistundir þar
á gamlárskvöldum um árabil.
Heimilið var einstaklega fallegt
og settu hannyrðir húsmóðurinnar
á það sterkan svip. Garðurinn var
einnig heimur út af fýrir sig og
bar fagurt vitni smekkvísi og sam-
hentra vinnubragða ijölskyldunn-
ar. Þau Sallý og Hálfdán höfðu
yndi af ferðalögum og fóm víða
um hálendi íslands áður en slíkar
ferðir urðu eins algengar og nú
er. Synir þeirra erfðu þennan
ferðaáhuga í ríkum mæli og eru
miklir íjallagarpar. Fjölskyldur
okkar fóm oft saman í óbyggða-
ferðir og em margar góðar minn-
ingar þeim tengdar. Hálfdán var
mikill veiðimaður og naut þess að
standa við kyrrlát fjallavötn eða
-ár og renna fyrir físk. Fékk ég
oft að vera með honum og naut
þá reynslu hans og kunnáttu í
þessum efnum.
Sallý og Hálfdán byggðu sér
lítið sumarhús á árbakka austur í
Landbroti, sem þau köllu Strýtu,
og áttu þau þar margar og góðar
stundir, bæði ein og með sonum
sínum og síðar fjölskyldum þeirra.
Þarna unnu þau mikið ræktunar-
starf og tækifæri til útivistar og
veiðiskapar vora mörg. Ég átti því
láni að fagna að vera hjá þeim
hjónum þarna nokkrar páskahelg-
ar og munu þær seint gleymast.
Sallý var einstakur gestgjafi, en
mest var um verð sú umhyggja
og vinsemd, sem ég ætíð naut úr
hennar garði.
Hálfdán veiktist skyndilega fyr-
ir nokkrum ámm af ólæknandi
sjúkdómi, sem leiddi hann til
dauða á skömmum tíma, en hann
lést á árinu 1988. Varð þetta Sallý
mikið áfall og hrakaði heilsu henn-
ar mjög eftir það. Síðustu tvö árin
dvaldist hún á Hrafnistu í Hafnar-
fírði.
Sallý er nú kvödd með söknuði
af stórum hópi systkina og ann-
arra skyldmenna og venslafólks,
þökkuð samfylgdin og dýrmæt
vinátta. í huga okkar er geymd
mynd hógværrar, en ákveðinnar
konu, sem umvafði alla þá, er
henni þótti vænt um, með fölskva-
lausri hlýju og ástúð. Sonum henn-
ar, tengdadætrum og sonarsonum
eru sendar samúðarkveðjur á erf-
iðri kveðjustund.
Haraldur Henrysson.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs-
ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsbiaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fóik sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Ákjósanlegast er að fá greinarnar sendar á disklingi.
KVENFÉLAGIÐ Hringur-
inn er með jólafund í Átt-
hagasal Hótel Sögu á morgun
miðvikudag kl. 19. Gestir
fundarins verða hr. Sigur-
bjöm Einarsson, biskup og
Auður Hafsteinsdóttir, fiðlu-
leikari.
KVENFÉLAG Hringsins er
með jólakortasölu alla virka.
daga á Ásvaliagötu 1 frá kl.
14-16. Síminn þar er 14080.
Jólakortin eru í einum lit og
kosta sextíu krónur stykkið.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Gerðubergi. Á morgun kl.
14.30 býður Mál og menning
í verslunarferð. Akstur og
kaffí í boði.
FÉLAG eldri borgara í
Rvík. og nágrenni. Les-
hringur um Sturlungu kl. 17
í dag í Risinu, Hverfisgötu
105. Sigvaldi stjórnar þriðju-
dagshópnum kl. 20 í kvöld í
Risinu. Lögfræðingur félags-
ins er til viðtals á fimmtudag,
panta þarf tíma í s. 28812.
SLYSAVARNADEILD
kvenna í Reykjavík heldur
jólafund sinn í Höllubúð, Sig-
túni 9, nk. fimmtudagskvöld
kl. 20. Jólapakkaskipti og
veitingar.
KVENFÉLAGIÐ Fjallkon-
urnar heldur jólafund í kvöld
kl. 20 í safnaðarheimili Fella-
og Hólakirkju. Hátíðarmat-
seðill, jólapakkaskipti.
ITC-deiIdin Irpa og fris
halda sameiginlegan jólafund
í kvöld kl. 20.30 í Hverafold
1-3. Á fundinum flytur Óiaf-
ur Þórisson cand.theol jóla-
hugleiðingu. Öllum opið.
Uppl. gefur Vilhjálmur í síma
78966.
BRIDSKLÚBBUR félags
eldri borgara í Kópavogi.
Spilaður verður tvímenningur
í kvöld kl. 19 í Fannborg 8
(Gjábakka).
KVENNADEILD Barð-
strendingafélagsins heldur
jólafund sinn á Hallveigar-
stöðum á morgun miðviku-
dag. Skrifað verður á jóla-
kortin.
KVENFÉLAG Seljasóknar
er með jólafund í kvöld kl.
20. Jólahugvekja, hátíðar-
matur, kórsöngur o.fl. Jóla-
pakkaskipti.
KVENFÉLAG Langholts-
sóknar heldur jólafund sinn
í kvöld kl. 20.30 í safnaðar-
heimilinu. Jólapakkaskipti.
Gestir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN er
með fataúthlutun í Herkastal-
anum, Kirkjustræti 2, í dag
kl. 10-18. Mikið af góðum
fatnaði.
VORBOÐI Sjálfstæðis-
kvennafélagið í Hafnarfirði
heldur sinn árlega jólafund
sunnudaginn 12. des. nk. kl.
20 í veitingahúsinu Gaflinum
v/Reykjanesbraut. Skemmti-
atriði, happdrætti og hug-
vekja. Veitingar. (Ath. breytt-
an tíma).
BÚSTAÐASÓKN. Fótsnyrt-
ing fimmtudag. Uppl. í síma
38189.
DÓMKIRKJUSÓKN: Fót-
snyrting í safnaðarheimili kl.
13.30. Uppl. í s. 13667.
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA: Opið hús fyrir
alla aldurshópa í dag kl.
14-17.
BÚSTAÐAKIRKJA: Starf
11-12 ára krakka í dag.
Húsið opnar kl. 16.30.
DÓMKIRKJAN: Mömmu-
morgunn í-safnaðarheimilinu
Lækjargötu 14a, ki. 10-12.
GRENSÁSKIRKJA: Kyrrð-
arstund kl. 12. Við upphaf
stundarinnar leikur Hallfríður
Ólafsdóttir á þverflautu í 10
mín. Altarisganga, fyrirbæn-
ir, samvera. Bænarefnum má
koma til prestanna í s. 32950.
Opið hús kl. 14. Sr. Halldór
S. Gröndal verður með biblíu-
lestur. Síðdegiskaffi.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
LANGHOLTSKIRKJA: Aft-
ansöngur í dag kl. 18.
NESKIRKJA: Mömmumorg-
unn í safnaðarheimilinu kl.
10-12. Jólaföndur.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Foreldramorgunn
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12
ára í dag kl. 17.30.
BREIÐHOLTSKIRKJA:
Starf 10-12 ára barna (TTT)
í dag kl. 16.30. Bænaguðs-
þjónusta með altarisgöngu kl.
18.30. Fyrirbænum má koma
til sóknarprests í viðtalstím-
um hans.
FELLA- og Hólakirkja:
Mömmumorgunn í fyrramálið
kl. 10.
HJALLAKIRKJA: Mömmu-
morgunn í fyrramálið kl.
9-12.
VEGURINN, kristið samfé-
Iag, Smiðjuvegi 5, Kópa-
vogi. Biblíulestur sr. Halldórs
S. Gröndal í dag kl. 18.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Foreldramorgnar kl. 10-12
og umræða um safnaðarefl-
ingu kl. 18-19.30 í Kirkju-
lundi á miðvikudögum.
Kyrrðar- og bænastundir eru
í kirkjunni á fimmtudögum
kl. 17.30.
SKIPIN ____________
REYKJAVÍKURHÖFN: Um
helgina komu Akurey,
Kyndill, Sólborg og Reykja-
foss. Þá fóru Bizon og Tuv-
ana. I gær fór Kyndill og
rússneski togarinn Ostsrina
kom.
H AFN ARF J ARÐ ARHÖFN:
í fyrradag kom Hvítanesið.
í gær komu Venus, Freyr
ÁR og Tjaldanesið. Súráls-
skipið Skautroll fór og þá
var Kyndill væntanlegur til
Straumsvíkur í nótt.