Morgunblaðið - 07.12.1993, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
Hljóð sem ekki heyrast
Hvað liggur að baki „ástandinu“ í miðbæ Reykjavíkur?
eftirMarinó G.
Njálsson
Gömul austurlensk saga segir
af prinsi nokkrum sem sendur var
til spekings að læra stjórnun.
Spekingurinn sagði prinsinum að
fara út í skóg og koma aftur eftir
ár og segja sér hvaða hljóð hann
hefði heyrt í skóginum. Prinsinn
gerði það. Þegar hann kom aftur
sagði hann frá hljóðum dýra og
fugla, þytinum i vindinum og brak
í greinum. Spekingurinn var ekki
ánægður með þetta og sagði prins-
inum að hlusta í eitt ár enn. Ekk-
ert gekk þar til einn daginn heyrði
prinsinn nýtt hljóð. Þetta var hljóð-
ið sem ekki heyrist, hljóð hins
ósagða.
Þessi saga rifjaðist upp í sam-
bandi við ásókn unglinga í miðbæ-
inn um helgar, drykkju þeirra og
ofbeldið sem fylgt hefur. Viðbrögð
flestra er í dúr við fyrra árið hjá
prinsinum. Fólk heyrir bara það
sem sagt er og sér bara lausnir
sem tengjast því. Ofbeldi ber að
.3%;toppa með hertum reglum. Fylgja
ber eftir reglum um útivist ungl-
inga með virkara eftirliti. Drykkju
unglinga ber að stoppa með auk-
inni löggæslu.
Búast má við að þetta beri
árangur í takmarkaðan tíma. Eftir
það verður slakað á og ástandið
færist í sama horf eða unglingarn-
ir finna sér annan stað til að fá
útrás. Þetta er nefnilega ekki í
fyrsta sinn sem þjóðarsálin vaknar
uþp við vondan draum um
*„ástandið í miðbænum“.- Svona
ástand var um hver áramót hér á
Fataviðgerðir
Vatobreytingar
Opiðfrá kl. 7.30 -1900 iHrka daga
oglaugardaga frá kl. 1Q.~ 14
Garðatorgi 3, Garðabai, stmi 656680.
árum áður. Seinna var það Hallæ-
risplanið, þó það hafi verið hálf-
meinlaust á við áramótagleðina.
Útisamkomur um hvítasunnuhelgi
og verslunarmannahelgi eru af
sama toga.
Kynslóð eftir kynslóð fetum við
íslendingar í sama farið. Ungling-
ar dagsins í dag, mín kynlóð, kyn-
slóð foreldra minna og allar hinar.
Lögreglan hefur alla tíð þurft að
hafa afskipti af ölvuðu ungu fólki.
Þar sem unglingunum hefur fjölg-
að, hafa líkurnar á alvarlegum
atvikum aukist.
Grunnþörfum ekki sinnt?
En hvað býr að baki? Reynum
nú að hlusta á það sem ekki heyr-
ist. Dapurt sálarástand hlýtur að
vera ofarlega á baugi. Þeim, sem
drekkur sig blindfullan helgi eftir
helgi, ræðst á allt í kringum sig
eða er í uppreisn gegn umhverf-
inu, hlýtur að líða illa undir niðri.
í mörgum tilfellum er þetta ör-
væntingaróp eftir athygli. „Ég er
til. Takið eftir mér.“ Eða eftir
samþykki. „Sjáið, ég get þetta
líka. Fæ ég að vera með?“ Höfnun
foreldranna. „Pabbi og mamma
eru full og þykir ekkert vænt um
mig, þannig að ég ætla að detta
í það.“ Og svona mætti lengi telja.
Hvaða atriði eru þetta? Jú, þetta
eru grunnþarfir einstaklingsins.
Allir hafa þörf fyrir næringu, ör-
yggi, athygli, að vera samþykktir,
að tilheyra, ástúð og umhyggju
og heilbrigt sjálfsmat svo nokkur
atriði séu nefnd. Hjá hvaða hópi
er þessum grunnþörfum síst full-
nægt? Þegar stórt er spurt er oft
fátt um svör og ekkert eitt svar
rétt. En ég veit um einn hóp sem
þetta á vel við. Þetta eru uppkom-
in böm fíkla. Fíkilinn getur m.a.
verið alkóhólisti, vinnufíkill, spilaf-
íkill eða háður ýmsum vanabind-
andi efnum. Fíklarnir eru margir
í þessu þjóðfélagi og því eru börn
þeirra líka mörg. Raunar vil ég
ganga svo langt að segja að fíkill-
inn og uppkomin börn hans séu
það sem einkenni íslenskt þjóðfé-
lag. Ég er alveg klár á því að
margir telja þetta algjöra fásinnu,
en það er líka allt í lagi.
Fáir hafa þorað að benda á
þessa meinsemd þjóðfélagsins.
Helst er að Óttar Guðmundsson
ijalli um þessi atriði í helgarpistl-
um sínum í DV, Súsanna Svavars-
dóttir var með greinarflokk í
Morgunblaðinu um alkóhólistann
og fjölskyldu hans og Spaugstofan
fjallaði með kaldhæðni um lífsbar-
áttu landans í samnefndum þætti.
En ekkert er gert. Ég er ekki að
ætlast til þess að fíklar landsins
láti af fíkn sinni, en við getum
ekki látið það viðgangast að enn
ein kynslóð alist upp við óbreytt
eða versnandi ástand.
Hvað er hægt að gera?
Vandamálið er stórt og því verð-
ur lausnin ekki auðveld. Það sem
ég sé helst er að skólakerfið komi
til hjálpar. Nauðsynlegt er að hefja
mjög víðtæka kennslu í sjálfsrækt
sem má ekki hafa minna vægi en
líkamrækt.
Eiga ekki foreldrarnir að sjá um
þetta? Vissulega, en ef foreldri
kann ekki frönsku þá kennir það
ekki barni sínu frönsku. Á sama
hátt getur foreldri, sem ekki kann
eðlileg samskipti, ekki kennt barn-
inu sínu eðlileg samskipti. Það er
raunar merkilegt að foreldrar ung-
barna eiga margir hveijir mjög
auðvelt með að skilja ótjáðar þarf-
ir barna sinna áður en börnin læra
að tala, en svo glata þau þessum
hæfileika þegar börnin læra að
tala.
Skólum landsins er ætlað það
hlutverk að búa nemendur sem
best undir lífið. Til þess að gera
það sjá þeir nemendum fyrir undir-
stöðumenntun í íslensku, stærð-
fræði, ensku, dönsku, eðlisfræði,
efnafræði, handmennt, heimilis-
fræðum, íþróttum og svona mætti
lengi telja. Allt er þetta mjög gott
og almenn grunnkunnátta í ofan-
greindum fögum kemur nemend-
um að sjálfsögðu til góða. Það er
hollt og gott fyrir nemendur að
skilja sögu lands síns og þjóðar,
geta sagt „nei“ á mörgum tungu-
málum og tjáð sig þolanlega á
móðurmálinu.
En þessi fög kenna nemendum
ekki að vera góðir foreldrar, rétta
samskiptatækni eða skilgreina,
hvað þá leysa, vandamál sín. Að
minnsta kosti ekki á markvissan
máta. Það er helst að nemendur
Marinó G. Njálsson
„Ég tel að nám í sjálfs-
styrkingu eigi að vera
hluti af námsefni allra
nemenda frá sex ára
aldri og upp í gegnum
framhaldsskólann. “
í efstu bekkjum framhaldsskól-
anna lesi Hávamál og geti lært
eitthvað af þeirri speki, sem þar
er. En ég læri ekki að umgangast
barnið mitt betur, þó ég tali ís-
lensku, dönsku, ensku, þýsku og
frönsku. Ekki kenna tíu áfangar
í stærðfræði eða eðlisfræði mér
neitt um hvernig ég leysi mín innri
vandamál. Málið er nefnilega að
skólarnir hjálpa okkur meðan ekki
þarf að takast á við raunveruleg
vandamál. Þessu verður að breyta.
Það er erfitt að takast á við líf-
ið, brautin er þyrnum stráð og
bautasteinarnir fáir. Reynslan
(sem mjög oft er fulldýru verði
keypt) er okkur helsti lærimeist-
ari, námskeið úti í bæ eða heim-
sóknir til sálfræðinga eða félags-
ráðgjafa (leikra eða lærðra) ann-
aðhvort af eigin hvötum eða vegna
neyðartilfella, sbr. meðferð áfeng-
issjúkra. Við tönnlumst á því að
það sé heilbrigð sál í hraustum
líkama. í íþróttum byggjum við
upp líkamann, en sálin er skilin
eftir í örvæntingarhnipri innan í
sterkri skel, sem felur vandamálin
og varnar því að nokkur komist að.
Sjálfsstyrking hluti af öllu
námi
Ég tel að nám í sjálfsstyrkingu
eigi að vera hluti af námsefni allra
nemenda frá sex ára aldri og upp
í gegnum framhaldsskólann. Sjálf-
ur fékk ég í sumar tækifæri til
að prófa hluta af hugmyndum
mínum er ég kenndi á annað hund-
rað nemendum við sumarskóla
Iðnskólans í Reykjavík og Reykja-
víkurborgar. í eina viku var ég
fjórar kennslustundir með hveijum
hópi. í fyrri hlutanum tók ég nem-
endur í slökun, hugleiðslu og skoð-
aði í stuttu máli hvar ábyrgðin
fyrir breytingum liggur. í seinni
hlutanum fór ég í tjáskipti og ein-
faldar aðferðir við ákvörðunar-
töku. Undirtektimar voru mjög
góðar. Raunar svo góðar að nokkr-
ir kennarar spurðu hvort þeir
gætu fengið að koma í tíma líka.
Ég er ekki einn um að hafa
prófað óhefðbundnar aðferðir við
kennslu. Ég hef bara heyrt að alls
staðar þar sem slíkt hefur verið
reynt, hefur útkoman verið já-
kvæð. Notfærum okkur allt þetta
fólk úti í þjóðfélaginu, sem heldur
námskeið í sjálfsrækt hvort sem
um er að ræða jóga, samskipti
foreldra og barna, meðvirkni,
framkomu eða hvað það nú er sem
verið er að kenna. Fáum það til
samvinnu við skóla og foreldra til
að aðstoða nemendur og ekki síður
foreldrana til sjálfsræktar.
Borgar sig sjálft á nokkrum
árum
Þetta kostar peninga! Jú, mikil
ósköp. Þetta kostar líklegast tvö
til þijú hundruð milljónir á ári,
jafnvel meira. Hvar eigum við að
taka þessar milljónir á síðustu og
verstu tímum? Ég hef ekki lausn
á því, en ég veit að innan fárra
ára mun þjóðfélagið spara þessa
upphæð margfalda með lægri
kostnaði í heilbrigðiskerfinu,
menntakerfínu og félagslega kerf-
inu. Nemendur verða skilvirkari í
námi og komast hraðar yfir meira
efni. Vinnuveitendur fá betra
vinnuafl. Launþegar fá betri sjórn-
endur.
Höfundur er áhugamaður um
sjálfsrækt, kennari við Iðnskólann
í Reykjavík og stundakennari við
Háskóla íslands.
Canon
cLc-10
er fullkomin litmyndaljósritunanvél,
sem litavæöir skrifstofuna. Hana
getur þú notaö eina sér eöa fengiö
þér....
Canon
...PC/MAC
tölvutengi og tengt hana viö
Macintosh eöa PC tölvuna þína og þá
verður hún ekki bara
litmyndaljósritunarvél heldur....
J*L-
Canon
...KRAFTAVERK.
allt í einu tæki:
LITMYIMDASKAIMNI,
LITMYIMDAPREIMTARI OG
LITMYIMDALJOSRITUIMARVEL.
Mögulegt er aö fá fleiri aukahluti á
CLC-10 sem auka eiginleika hennar
enn frekar....
SUÐURLANDSBRAUT 6, SÍMI 685277,FAX 689791