Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 47 Ljósmyndastofan HJÓNABAND. Gefin voru samar. hinn 18. september sl. í Laugarnes- kirkju af sr. Jóni Dalbú Hróbjarts- syni, Hulda Björg Jónasdóttir og Kristján S. Sigurðsson. Heimili þeirra er í Köldukinn 3, Hafnarfirði. Ánanaustum 15, sími 621066 MARGT SMÁTT GERIR EITT STÓRT Sighvatur R. Björgvinsson Þórunn Pálsdóttir Hreggvióur Jónsson Ragnar Kjartansson Árni Sigfússon Ljósmyndastofan Svipmyndir HJÓNABAND. Gefín voru saman í hjónaband þann 25. september sl. í Askirkju af sr. Pálma Matthías- syni, María Þórunn Friðriksdóttir og Halldór Karl Hermannsson. Heimili þeirra er að Hlíðarvegi 2, Suðureyri. Jón Ásbergsson Benedikt Davíðsson Siguröur Ágúst Jensson eftir Jónas Þórisson HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar hefur um árabil leitað eftir stuðn- ingi landsmanna á jólaföstu. Nú sem fyrr fá heimilin sendan gíróseðil ásamt áföstum söfnunarbauk. Baukinn þarf að klippa út og líma saman sem gæti orðið fjölskylduf- öndur í upphafi aðventu. Væntum við þess að landsmenn taki sending- unni vel sem svo oft áður og leggi Hjálparstofnun lið því þörfin er mik- il. Oft hefur Hjálparstofnun kirkj- unnar minnt á að margt smátt gerir eitt stórt. Nú ber söfnunin þessa yfírskrift sem hvatningu til íandsmanna svo að sem flestir verði með, jafnvel þótt margir hafi minna milli handanna en fyrr. Stofnunin hefur engan fastan tekjustofn né opinbera styrki og á því allt sitt undir velvild og hlýhug landsmanna. Hlutverk stofnunarinnar íslenska þjóðkirkjan setti Hjálp- arstofnun kirkjunnar á fót til að sameina krafta íslensku kirkjunnar, einstaklinga sem safnaða, í þessu mikla og stöðuga hlutverki, að leggja þeim iið sem þurfandi eru. Verkefnin hafa flest verið meðal fólks sem hefur liðið mikla nauð erlendis, svo sem vegna hungurs og stríðsátaka. Má í því sambandi nefna neyðaraðstoð við Sómalíu og fyrrverandi Júgóslavíu. í báðum þessum löndum hefur aðstoð Islend- inga tekist vel og náð til þeirra verst settu. Síðustu ár hefur einnig verið lögð meiri áhersla á þróunarhjálp en þá er verið að hjálpa fólki til sjálfshjálp- ar. Verkefnin á því sviði snúa flest að menntunar- og heilbrigðismálum. Byggðir hafa verið skólar og heima- vistir fyrir nemendur, sjúkrahús og sjúkraskýli reist á Indlandi og í Jónas Þórisson. „Stofnunin hefur alla tíð sinnt verkefnum innanlands eftir getu og ástæðum.“ Eþíópíu. Einnig hefur verið unnið að vatnsöflun og konum í Nairóbí í Kenýju hjálpað til sjálfshjálpar. Mikil áhersla er lögð á að þessi verk- efni komi þeim fátækustu til góða og staða kvenna og barna borin fyrir brjósti við verkefnaval. Aðstoð innanlands Margir virðast halda að Hjálpar- stofnun kirkjunnar sinni aðeins hjálparstarfí á erlendri grund en svo er ekki. Stofnunin hefur alla tíð sinnt verkefnum innanlands eftir getu og ástæðum. Þessi aðstoð hef- ur skipst í tvo þætti, þ.e. aðstoð við einstaklinga og stuðning við mann- úðarsamtök. Má t.d. nefna að Kvennaathvarfið, Stígamót, fanga- hjálpin Vernd, Hjálparsjóður Sjálfs- bjargar og Miðstöð fólks í atvinnu- leit hafa fengið stuðning síðustu árin. Erfiðar efnahagsaðstæður og at- vinnuleysi hafa sett mark sitt á okkar litla þjóðfélag síðustu misser- in og því hefur einstaklingsaðstoð aukist verulega. Hún er unnin í sam- starfí við prestana í landinu en til þeirra leitar fjöldi einstaklinga sem illa eru staddir. Slík aðstoð er í flest- um tilvikum neyðaraðstoð svo fólk hafi mat að borða en ekki er hægt að leysa endanlega úr fjárhags- MOIIDO MtDUN At AltO N R9JC.J wrmm. Skútuvogi 10a - Sími 686700 mmm « vanda fólks enda þá oftast um háar upphæðir að ræða. Ný verkefni Á jólaföstu safnar Hjálparstofnun kirkjunnar fjármunum til fram- angreindra verkefna. Stofnunin hef- ur einnig ákveðið að hefja starf í Mósambik og takast á við ný verk- efni í Eþíópíu. í þessum löndum hafa mörg undanfarin ár ríkt innri átök og hungursneyð hefur herjað á íbúana. Nú hefur friður komist á og mikil uppbygging er fyrir hönd- um. Verkefni Hjálparstofnunar munu aðallega beinast að heilbrigð- is- og skólamálum í þessum löndum og verða unnin í samvinnu við trausta samstarfsaðila. . Mikill og góður árangur hefur náðst í verkefnum Hjálparstofnunar kirkjunnar síðustu árin. í þróunar- löndum margfaldast krónan til heilla fyrir þá lægst settu og hér heima er reynt eftir bestu getu að sinna þeim sem verst eru settir. Allir ættu því að geta verið með og ekkert framlag er of lítið. Hver króna get- ur skipt sköpum. Látum verkin tala, sýnum hug okkar til líðandi með- bræðra og notum gíróseðilinn og baukinn. Sælla er að gefa en þiggja. Höfundur er framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar. Þróunarhjálpin hefur borið árangur og meðal nýrra erlendra verk- efna Hjálparstofnunar kirkjunnar á næstunni er margs konar upp- bygging í heilbrigðis- og skólamálum í Mósambik og Eþíópíu. 1994 SPÁSTEFNA haldin i Höfóa.’llótel I.oftleiðum, mjóvikudaginn 8. desemher 1993, kl. 14.00-17.30 lastjóra Efnahagshorfur 1994 - „Islensk framtíð|rsýn“ Kl. 14.00 Setning spástffnui^fön Ásbergsson, formaður SFÍ Kl. 14.10 Framtíðarsýnl'Sighvats jPt. Björgvinssonar, viðskipta- og iðnaðarráðherra. Kl. 14.25 FramtíðarSýn Þ^runnSr Pálsdóttur, verkfræðings og rekawarhagfræðings, íjármálastjóra hjá ístaki hf. m Kl. 14.40 Franrttfjarsýn Hreggviðs Jónssonar, MBA, McKinsey & Co, Stokkhólmi. Kl. 14.55 Framnoarsyn Ragnars Kjartanssonar, framkvæmdastjóra Aflvaka Reykjavíkur hf. KJ. 15.10 Framtíðarsýtf’Benedikts Davíðssonar, forseta Alþýðusamband* íslands. Kl. 15.45 Kafflhlé ’ Kl. 16.05 Spá fyrirtækja um efnahagsþróun 1994. Hagstærðir, kjarasamningar, ríkisbúskapurinn, langtímahorfur. Umsjón Siguröur Ágúst Jensson, viðskiptafræðingur. Kl. 16.25 1994 - Pátlborðsumræður: Sighvatur R. Bljörgvinsson, Þórunn Pálsdóttir, HreggvilJúr Jónsson, Ragnar Kjartansson og Benedikt Davíðsson. Ámi Sigfússon stýrir umræðum. Spástefnustjóri: Árni Sigfússön, framkvæmdastjon Stjórnunarfélags íslands Kl. 17.30 Spástefnu slitið. Skráning er hafín í síma 621066 . • ••«•
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.