Morgunblaðið - 07.12.1993, Síða 50

Morgunblaðið - 07.12.1993, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 t Elskulegur faðir okkar og bróðir, BIRGIR HÁKON VALDIMARSSON, Vancouver, Kanada, er látinn. Börn og systur. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA EYÞÓRSDÓTTIR, Suðurgötu 25, Sandgerði, lést 3. desember sl. Jón Erlingsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Margrét Erlingsdóttir, Hannes Þ. Sigurðsson, Ólafía Þ. Erlingsdóttir, Eirikur J. Helgason, Stefanía Lórý Erlingsdóttir, Sigurður Einarsson, Ingibjörg Erlingsdóttir, Bjarni Einarsson, Sjöfn Erlingsdóttir, Oddný S. Gestsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar, systir og mágkona, HELGA HARALDSDÓTTIR, Hörðalandi 20, Reykjavík, lést í Landakotsspítala laugardaginn 4. desember. Naguib Zaghloul, Ragnhildur G. Pálsdóttir, Haraldur Guðnason, Páll Haraldsson, Björg Sigurðardóttir, Gunnar Haraldsson, Kristín Ögmundsdóttir og systkinabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, lést í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 5. desember. Erna Jónsdóttir, Steingri'mur Björnsson, Dagrún Björnsdóttir, Valdimar Víðir Gunnarsson, Jóhannes Björnsson, Esther Svavarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGILEIF GUÐMUNDSDÓTTIR frá Þjótanda, Hraunbæ 103, lést á heimili sínu sunnudaginn 5. desember. Útförin auglýst sfðar. Börnin. t Móðir okkar, RAGNHEIÐUR BACHMANN frá Siglufirði, lést 4. desember. Helga Bachmann, Gunnar Bachmann. 1 m*Biyi M. D I BlNAIf' f' HELLUHRAUNI 14 • 220 HAFNARFIRÐI SÍMI652707 Guðrún Asbjöms dóttir - Minning Fædd 7. desember 1924 Dáin 29. nóvember 1993 í einu riti Bjömstene Bjömsson segir: „Þar sem góðir menn fara em Guðs vegír.“ Þetta finnst mér vera viðeigandi einkunnarorð þeg- ar minnst er Guðrúnar Ásbjörns- dóttur og henni þakkað fyrir sam- veruna á þessari jörð. En Guðrún lést skyndilega af heilablæðingu 29. nóvember aðeins 68 ára að aldri. Ég þekkti Guðrúnu aðeins í tæp tvö ár. Strax vakti athygli mína góðvild hennar, hlýjar, næmar til- finningar, skarpur skilningur, létt lund og kímnigáfa sem oft birtist í kankvísu brosi og tilsvörum er hún sá hið skoplega gegnum alvör- una. Slíku fólki er gott að kynnast. Það auðgar líf okkar hinna og víkk- ar sjóndeildarhring. Við urðum fljótt góðir vinir, ferðuðumst sam- an, heimsóttum hvort annað og upplifðum það að hátt á sjötugs- aldri getur fólk orðið ástfangið þótt sumir haldi það of seint. Fáein æviatriði Guðrúnar skulu rakin: Lítil telpa ólst upp í húsi við Njálsgötu í Reykjavík. Foreldrar hennar vom Ásbjöm Guðmunds- son kennari, síðar bifreiðarstjóri við Kleppsspítala, og kona hans, Guðríður ísaksdóttir. Telpan gekk í Austurbæjarskóla sem þá var nýr. Ekki var þá til siðs eða tök á að stúlkur úr alþýðustétt færa í framhalds- eða háskólanám eins og nú, þótt nægir hæfileikar væra til þess. En Guðrún menntaðist samt vel í „skóla lífsins" af störf- um, lestri góðra bóka, ekki síst ljóðum, en hún hafði mikinn áhuga á fróðleik, listum og málefnum samfélagsins. Guðrún vildi sjá sig um í heimin- um og kynnast landinu. Hún fór því í sumarvinnu norður í Keldu- hverfi. Þar kynntist hún ungum bónda, Birni Þórarinssyni í Kíla- koti. Þau felldu hugi saman, gengu í hjónaband og bjuggu í rúm 20 ár í Kflakoti. Það var ekki stórt bú á nútíma mælikvarða, en Björn sinnti málefnum sveitarinnar sem oddviti og fleiri störfum. Hann var m.a. varaþingmaður fyrir Norður- landskjördæmi eystra um skeið. Þarna ólu þau upp börn sín þijú, Ingveldi, Þórarin og Ásbjörn, en einn dreng misstu þau á fyrsta ári. Búskapur í einni harðbýlustu sveit landsins, þar sem vetrarveður era hörð, sumur stutt og landgæði takmörkuð bauð án efa upp á erf- iði og krafðist mikiis. Ung kona úr Reykjavík tókst á við þetta af fullum kjarki, lærði öll sveitastörf og leysti þau vel af hendi. Hún var dýravinur, hafði yndi af hestum, kúm og öðram dýrum svo að þau hændust að henni enda vel með- höndluð. Árið 1966 brugðu hjónin búi og fluttu til Reykjavíkur þar sem Björn fékk starf á Skattstofunni. Guðrún varð þá Reykvíkingur á ný, húsmóðir, en vann auk þess mörg ár á sjúkrahúsum, Landakoti og sjúkradeild Heilsuverndarstöðv- ar. Þetta starf átti vel við hana og sannfrétt hef ég að sjúklingar dáðu hana og henni tókst oft. með lipurð sinni og einlægni að ná til þeirra sem erfitt var að nálgast eða við að skipta. Guðrún varð ekkja vorið 1989, en bjó eftir það ein í íbúð sinni að Framnesvegi 61. Hún hafði þó nóg um að hugsa, hafði mikið samband við böm sín þijú, bamabörnin tíu og bamabarnaböm fjögur og bar heill þeirra allra fyrir brjósti. Guðrún var vinsæl og veit ég að margar vinkonur hennar ræddu við hana áhyggjuefni sín. Mann- skilningur hennar, hlýja ásamt ákveðni gerði það að verkum að þetta varð til hjálpar og hugarlétt- is. Þær sem aðrir hafa nú misst traustan vin. Guðrún hreyfst ávallt af fögra landslagi, blómum og tign náttúr- unnar. Fyrir fáum dögum talaði hún um að næsta sumar vildi hún aftur skoða fallega staði svo sem Þjórsárdal og hún skyldi ganga á Esjuna til að njóta hins fagra út- sýnis. En líf okkar er stopult og stutt svo margar óskir okkar og vonir rætast ekki. í upphafi kynna okkar, er við sögðum hvora öðra lauslega frá aðstæðum og ævi, gat Guðrún þess að hún ætti „þijú mjög góð böm“ og lagði þá sérstaka áherslu á orðið mjög. Þetta hef ég vissu- lega sannreynt síðan. Ég votta þeim, mökum þeirra og öllum öðr- um aðstandendum einlæga samúð. Kristínn Björnsson. Elsku amma okkar Guðrún Ás- björnsdóttir er dáin. Okkur langar + Ástkær eiginkona mín, (ANTONIA) SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Berunesi, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykja- vík laugardaginn 4. desember. Antoníus Ólafsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, YNGVI GRÉTAR GUÐJÓNSSON, Löngumýri 24, Garðabæ áður Skólavörðustfg 44, lést þann 5. desember á gjörgæslu- deild Landspítalans. Valdfs Gunnlaugsdóttir, Guðmundur Pétur Yngvason, Berglind Bragadóttir, Elvar Andri Guðmundsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, TORFHILDUR ÞORVALDSDÓTTIR, Stigahlíð 41, Reykjavík, lést í Landspítalanum aðfaranótt 4. desember. Ragnar Guðmundsson, Þorvaldur Ragnarsson, Fanney Einarsdóttir, Jakob Ragnarsson, Guðrún Birgisdóttir, Sigurrós Ragnarsdóttir, Stefán Á. Einarsson, Svandfs Ragnarsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og barnabörn. Faðir okkar, ÚLFAR V. ÞORKELSSON vélstjóri, sfðast til heimilis á Kumbaravogi, lést 4. desember. Jarðarför auglýst síðar. Kolbrún Úlfarsdóttir, Örn V. Úlfarsson, Sævar Úlfarsson, Þorkell Úlfarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.