Morgunblaðið - 07.12.1993, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
félk (
fréttum
Dansleikjavaktir 1948
voru púður þess tíma
Mér líst afskaplega vel á aðstöð-
una og fékk góðar móttökur
hér,“ sagði Jónmundur Kjartans-
son, nýráðinn yfirlögregluþjónn á
Selfossi. Hann mætti til starfa 1.
desember í lögreglustöðinni á Sel-
fossi. „Þetta er víðfeðmt svæði og
hér býr margt fólk og það gerir
starfið öðruvísi en það sem ég var
í fyrir, auk þess eru fleiri í starfi
hér,“ sagði Jónmundur sem sagðist
njóta aðstoðar og leiðsagnar Jóns
I. Guðmundssonar fyrstu dagana.
Jón, sem lét af störfum yfirlög-
regluþjóns fyrir nokkru, og starfs-
menn lögreglunnar buðu hinn nýja
yfirlögregluþjón velkominn til
starfa. 45 ár eru frá því Jón I.
Guðmundsson hóf lögreglustörf í
Árnessýslu. Nú eru starfandi 24
menn hjá lögreglunni þar.
Jón I. Guðmundsson fráfarandi
yfirlögregluþjónn kvaðst hafa byij-
að að taka ballvaktir vorið 1948 á
samkomum í Árnessýslu. „Þær
voru púður þess tíma,“ sagði Jón.
12. 1993
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543 3718 0006 3233
4546 3912 3256 0090
4842 0308 1995 3028
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4506 43** 4507 46**
4543 17** 4560 08**
4560 09** 4920 07**
4938 06** 4988 31**
4506 21**
kort úr umferð og sendið VISA íslanJi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa ð vágest.
^Ezm VISA ISLAND
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavlk
Slmi 91-671700
HREfiN HÚÐ
HREINSAR HÚÐINA
INNANFRÁ
HREINSIKÚR (TÖFLUR) FYRIR
ÓHREINA, BÓLÓTTA HÚÐ OG
UNGLINGAHÚÐVANDAMÁL
Náttúrulegt efni ásamt
andlitssápu.
Fæst hjá: Árbjæjarapóteki, Blómavali,
Fjarðarkaupum, Heilsu, Heilsuvali,
Heilsubúðinni, Heilsuhorninu,
Kornmarkaðnum, Mosfellsapóteki,
Sjúkranuddstofu Silju o.fl.
Sendum í póstkröfu.
BÍÓ-SELEN UMBOÐIÐ
SÍMI 76610
Hann var síðan fastráðinn lög-
regluþjónn 1958 og hefur starfað
síðan við lögregluembættið í Ár-
nessýslu.
Undirstaða starfsins sú sama
Jón sagði að þótt aðstæður
hefðu breyst mikið á þeim tíma
sem liðinn væri frá því hann kom
fyrst að lögreglustörfunum þá
væri undirstaða starfsins sú sama
— að taka á ýmsum hegðunarþátt-
um í samfélaginu, á samkomum,
í umferðinni og víðar. „Aðstaðan
hefur breyst mikið. Maður hafði
hér áður enga möguleika aðra en
að fljúgast á við þessa karla. Það
var enginn bílakostur eða hús til
að nota við starfíð. Nú er þetta
orðin allt önnur og betri aðstaða.
Síðan hefur það gerst' að með
meiri og betri samgöngum hefur
slysum fjölgað og þau harðnað
með öllum þeim sársauka sem því
fylgir. Það er alltaf erfitt að koma
að slysi og maður þarf að hafa
ákveðnar tilfinningar fyrir þeim
eins og öllum þeim atriðum sem
koma upp í starfinu. Það er mjög
ónotalegt að koma að þar sem
börn eða unglingar hafa lent í
óhöppum og eiga sér lítillar við-
reisnar von,“ sagði Jón.
„Hér höfum við þurft að sjá um
alla þætti þeirra mála sem upp
koma. Afbrotamál eru erfíð viður-
eignar og slysin eiga sér margar
viðkvæmar hliðar. Það er mín
reynsla að ekki sé hægt að búa
sér til eitthvert ákveðið form til
að vinna eftir. Hvenær sem nýtt
tilfelli kemur upp þarf maður að
skoða það sérstaklega."
- Stundum of djúpt kafað
„Afskipti fjölmiðla af slysum og
umfjöllun um þau þarf að eiga sín
takmörk. Ég hef átt góð samskipti
við fjölmiðlamenn. Þeir eru margir
miðað við stærð þjóðarinnar og
stundum finnst mér dálítið djúpt
farið ofan í málin, en það er ein-
MANNFJÖLGUN
Stefanía hefur stað-
fest óléttuna
Sá orðrómur hefur verið á kreiki
um nokkurt skeið, að yngri
Mónakóprinsessan, Stefanía, sé eigi
kona einsömul. Hafa ljósmyndarar
hver um annan þveran reynt að ná
myndum úr launsátri sem sýna
stækkandi maga prinsessunar. En
bæði hefur hún verið vör um sig,
svo og klætt sig í víð og gúlpandi
föt. En nú er allt orðið opinbert.
Prinsessan og sambýlingur henn-
ar, Daniel Ducruet, sendu nýverið
frá sér fréttatilkynningu þar sem
grunur allra var staðfestur. Prins-
essan eigi von á sér í maí á næsta
ári. Þau eiga fyrir eitt barn, Louis,
VÁKORTALISTÍ
Dags.7.12.1993. NR. 145
5414 8300 0310 5102
5414 8300 0957 6157
5414 8300 2814 8103
5414 8300 3122 1111
5414 8300 3163 0113
5414 8301 0494 0100
5422 4129 7979 7650.
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
sem er eins árs og Ducruet á auk
þess eldra barn með fyrrum vin-
stúlku sinni. Þrátt fyrir vaxandi
fjölskyldu hefur ekki verið minnst
á klingjandi kirkjubjöllur og brúð-
kaup, enda er haft fyrir satt að
furstinn gamli Rainier nái ekki enn
upp í nefíð á sér vegna karlfangs
Stefaníu. Ducruet er ekki með blátt
blóð í æðum og ekki af efnuðum
foreldrum kominn, sem væri það
næstbesta. Hann er fyrrum lífvörð-
ur Stefaníu og þegar síðast fréttist
rak hann fiskmarkað í norðurhluta
Frakklands.
Stefanía hefur átt ótal kærasta
KVIKMYNDIR
Clinton bið-
ur um að
dregið verði
úr ofbeldi
Fjöldi leikara og annarra
frammámanna í kvikmynda-
og skemmtiiðnaðinum í Hollywood
voru saman komnir þegar Bill Clint-
on Bandaríkjaforseti hélt ræðu sl.
laugardag. Flutti hann erindi þar
sem hann benti á nauðsyn þess að
draga úr ofbeldi í kvikmyndum og
sjónvarpsmyndum.
Kom m.a. fram í ræðu hans að
bjarga þyrfti heilli kynslóð frá glöt-
un sem komin væri á ystu nöf.
Benti hann jafnframt á að hann
ætlaðist ekki til þess að kvikmynda-
iðnaðurinn sneri alveg við blaðinu
heldur aðlagaði sig þeim staðreynd-
um að fyöldi ungra Bandaríkja-
manna ætti ekki fjölskyldur sem
styddu við bakið á þeim eða væru
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Jónmundur Kjartansson nýráðinn yfirlögregluþjónn lögreglunnar í
Árnessýslu ásamt forvera sínum í starfi, Jóni I. Guðmundssyni.
staklingsbundið. Það sem þarf að
gæta að er að brotamenn geti ekki
haft hag af umfjölluninni. Gjörn-
ingsmennimir þeir hlusta vel, hafi
þeir ekki náðst,“ sagði Jón.
Hann sagði að auðvitað væri
margt ákaflega minnisstætt úr
starfinu, en gosið í Eyjum það
minnisstæðasta. „Sú uppákoma
gekk ótrúlega vandræðalítið fyrir
sig og án stóráfalla.
Nú á tímum samdráttar er ákaf-
lega þýðingarmikið að fólk missi
ekki fótanna í því sem það er að
fást við,“ sagði Jón og benti á að
margir árekstrar í mannlegum
samskiptum fylgdu því að fólk
gæti ekki sætt sig við að geta
ekki veitt sér sömu lífsgæði og
áður.
Flugið er innan seilingar
„Ég er mjög sáttur við þá upp-
byggingu sem hér hefur orðið. Ég
hef unnið með góðu fólki og er
þakklátur fyrir það og þau góðu
samskipi sem ég hef átt við fólk í
héraðinu,“ sagði Jón I. Guðmunds-
son. Hvað framundan væri sagði
Jón að það væri honum eðlilegt
að stússast í einhverju. Flugið og
umstangið í kringum flugvöllinn á
Selfossi væri innan seilingar. „Ég
lít björtum augum til framtíðarinn-
ar,“ sagði hann.
Sig. Jóns.
Ducruet og Stefanía.
í gegnum árin og lengi vel var búist rennarar hans. Er að sjá að al-
við því að Ducruet hefði ekki lengri mannarómur hafí haft rangt fyrir
viðdvöl í bóli prinsessnnar en fyrir- sér og er það engin nýlunda.
LEIKARAHJÓNIN Annette Benning og Warren Beatty hlusta á
ræðu Bills Clintons.
færar um að leiðbeina þeim. Hann
bað menn íhuga hvaða leið væri
hægt að fara til þess að leiðbeina
ungmennum hvernig hægt væri að
leysa vandamál án ofbeldis.
Ofbeldishneigð meðal yngra fólks
hefur oft verið rakin beint til kvik-
mynda. Eru bandarísku sjónvarps-
stöðvamar því vegna þrýstings frá
þinginu farnar að merkja kvik-
myndir með viðvörun ef um ofbeldi
er að ræða.