Morgunblaðið - 07.12.1993, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 07.12.1993, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 55 PAUL Simon (t.h.) og Art Garfunkel hafa tekið upp samstarf að nýju og eru nú á tónleikaferðalagi utan Bandaríkjanna. TONLIST Simon og Garfunkel saman á ný Tónlistarmennirnir Paul Sim- on og Art Garfunkel voru upp á sitt besta upp úr 1970 þegar þeir spiluðu og sungu saman. Síðan fóru þeir hvor í sína áttina sem sólóistar. Fyrir skömmu tóku þeir síðan aftur upp samstarf og eru um þessar mundir á tónleikaferðalagi. Var meðfylgjandi mynd tekin í Sin- gapore, sem er einn viðkomu- staðanna. Ekki eru þó fyrir- hugaðir margir tónleikar utan Bandaríkjanna að sinni, en samt fá íbúar Toronto og Tókýó að heyra í þeim félögum. IMYND Eins og ódýr gleðikona sínum yngri árum. Velski söngvarinn góðk- unni, Tom Jones, sagði svo frá í viðtali við BBC fyrir nokkru að hann hefði næstum fengið áfall er hann tók sig til og horfði á myndbandsupptök- ur af gömlum söngskemmtun- um sínum. Jones var og er ekki hvað síst frægur fyrir sviðsframkomu sína, en aðall hans á sviði fyrir utan kröftug- an sönginn er að aka og hnykkja til miðbiki sínu. Þegar hann var upp á sitt besta hafði atferli þetta þau áhrif úti í áheyrendasölum, að konur klæddu sig sem óðast úr nær- fatnaði sínum og þeyttu flíkun- um upp á svið til goðsins! Aldurinn hefur færst yfir Jones og hann allur róast á sviðinu þótt enn eimi eftir af gömlu töktunum. í viðtalinu sem um ræðir segist Jones hafa farið hjá sér er hann horfði á gömiu spólurnar. Roðnað og svo falið andlitið í lófunum. „Það er mér óskiljan- iegt í dag að konum þætti ég eitthvert augnayndi. Ef ég væri kona, hefði mér verið best lýst sem ódýrri gleði- konu,“ sagði Jones. Happdrætti bókaútgefenda Vinningsnúmer gærdagsins í happdrætti bókaútgefenda var 8841 og dagsins í dag 19932, en happdrættisnúmerin eru á bak- síðu íslenskra bókatíðinda. Vinn- ingshafi getur vitjað vinnings síns, bókaúttektar að andvirði 10 þúsund krónur, í næstu bókabúð. VERSLUN Hefur rekið bókaverslun í 50 ár Hér voru heilmikil jól, serrí og veitingar, blóm og skeyti,“ sagði Böðvar B. Sigurðsson, eig- andi Bókabúðar Böðvars, um 50 ára afmæli verslunarinnar, 1. des- ember síðastliðinn. Böðvar hafði m.a. unnið í tveimur bókabúðum þegar hann setti búðina á stofn, aðeins 28 ára gamall. Hún var lengst af til húsa á Strandgötu 3 í Hafnarfirði en er nú á Reykjavík- urvegi 64. Böðvar segist alla tíð hafa haft gaman af bóksölunni og hann er hvergi banginn varðandi bóksölu nú fyrir jólin. „Titlarnir eru færri en salan verður ágæt,“ sagði hann. Morgunblaðið/Þorkell Með Böðvari B. Sigurðssyni á myndinni eru starfsmenn bókabúðar- innar (f.v.) þær Kristín Bjarnadóttir, Þorgerður Nielsen og Sigríður Erla Berg. i Fatnaður frá ITVTTCO Pelskápur í miklu úrvali. Verð fyrir alla 4 Pelsfóðurs- kápur Pelsjakkar og húfur Fatnaður frá í miklu úrvali / raðgreiðslur Greiðslukjör við allra hæfi Kirkjuhvoli ■ sími 20160 L_J_HU Þar sem vandlátir versla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.