Morgunblaðið - 07.12.1993, Page 59

Morgunblaðið - 07.12.1993, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 59 HÆTTULEGT SKOTMARK Hörk“*p*"n* VAI\I DAMME Sýnd kl. 5, 7, g og 11. Stranglega bönnuð i. 16 ára. HJALP... GIFTING Nú ætlar einkadóttir Bjarna aö gifta sig. Veislan skal vera vegleg en hvar fóst aurarnir? Frábær gamanmynd, full af lóttum húmor aö hætti Dana. PRINSAR í L.A. Frábær grín- og ævintýramynd. Sýnd kl. 5 og 7. LAUNRÁÐ ■iMiiiiia mmMi Frönsk spennu- og grínmynd. Sýnd kl. 8.55 og 11. B. i. 16ára. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Biskup íslands vígir safnaðarheimilið en á myndinni eru einnig sr. Jónas Gísla- son, sr. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sr. Halldór Reynisson, sr. Tómas Guðmundsson og Þorsteinn Pálsson, kirkjumálaráðherra. SafnaðarheimiK vígt í Hruna í anddyri safnaðarheimilisins var til sýnis kirkjuklukka sem taiin er vera frá þrettándu öld en heimiidir eru um hana í Skálholti á fjórtándu öld. Bryiyólfur Sveinsson, Skálholtsbiskup gaf hana að Hruna á ofanverðri sautj- ándu öld og þar var hún til ársins 1930. Þessi forna klukka komtil Skálholts árið 1959. Sr. Halldór Reynisson í Hruna stendur hjá klukkunni. Syðra-Langholti. NYTT safnaðarheimili var vígt við hátíðarguðsþjón- ustu að Hruna í Hruna- mannahreppi sunnudag- inn 28. nóvember. Biskup Islands, herra Ólafur Skúlason, prédikaði en auk sóknarprestsins, séra Halldórs Reynissonar, þjónuðu við messuna séra Jónas Gíslason vígslubisk- up, séra Tómas Guð- mundsson prófastur Ár- nesprófastsdæmis og séra Sveinbjörn Sveinbjörnsson fyrrverandi prestur í Hruna. Þennan dag voru 128 ár liðin frá vígslu kirkjunnar í Hruna. Safnaðarheimilið stendur skammt austan við kirkjuna. Það er tæplega 100 fermetr- ar að flatarmáli en húsið hefur verið rúmlega eitt ár 1 byggingu. í því er fundar- salur, eldhúsaðstaða, snyrt-. ingar og geymsla ásamt rúmgóðu anddyri. Það er Þorgeir Jónsson sem er arki- tekt hússins en smiðir voru þeir Guðmundur Magnússon, Þröstur Jónsson og Smári Vignisson, allir frá Flúðum. Einnig var unnið allmikið í sjálfboðavinnu við bygging- una af sóknarbörnum, t.d. við málningarvinnu o.fl. Þetta safnaðarheimili kemur til með að nýtast vel við margs konar safnaðarstarf í Hrunasókn og við fjölmennar athafnir s.s. jarðarfarir. Á undanförnum misserum hafa verið gerðar ýmsar breyting- ar á umhverfi Hrunastaðar. Þjóðvegurinn hefur verið færður og aðkomu að prests- setrinu breytt. Þá hefur verið lögð upphituð stétt frá bíla- stæðum að kirkjunni og safnaðarheimilinu. Einar Sæmundsen landslagsarki- tekt er að vinna að frekara skipulagi á umhverfi staðar- ins með gróðursetningu í huga. I fjölmennu kaffisamsæti í félagsheimilinu á Flúðum eftir athöfnina í Hruna, kom fram hjá Jóhannesi Helga- syni í Hvammi, formanni sóknarnefndar, að bygg- ingarkostnaður safnaðar- heimilisins væri um 10 millj- ónir króna. Þar voru ávörp flutt og árnaðaróskir, safn- aðarheimilinu færðar pen- ingagjafir frá kvenfélagi sveitarinnar og kirkjukórn- um, einnig vegleg gestabók frá Hrepphólasókn. Í tilefni vigslu safnaðarheimilisins var vefnaðarlistasýning í hinu nýja húsi á nokkrum verkum Guðrúnar Gunnars- dóttur listakonu. - Sig. Sigm. VU/BÍÓilN VU/BlÓWN XU/BÍÓWN SAMBÍÓVM .VU/BÍÓHN FRUMSÝNA JÓLAMYNDINA 1993 AFTUR Á VAKTINNI „ANOTHER STAKEOUT" - EIN ALVEG ÓTRÚLEGA GÓD! SÍMI: 19000 Lokað í dag vegna lagfæringa L OtCAÐt Of QUAlllY m 1 BÍÓHÖLL BÍÓB0RG Sýnd kl. 9og 11.10. Sýnd kl. 5,7,9 og 11.10. rí© B lllMil ■aBd 620 laxar á land í Eystri-Rangá Laxaverðlaun INGÞÓR Arnórsson tekur við bikar úr hendi Markúsar Runólfssonar fyrir stærsta lax sumarsins. Hvolsvelli. ALDREI áður hafa jafn margir laxar komið á land í Eystri-Rangá og nú í sum- ar, en veiðitímabilinu lauk 20. október sl. Alls veiddust 620 laxar í sumar en metár- ið 1991 veiddust 611 laxar í ánni. Heimtur á slepping- um voru all góðar og er áætlað að sleppingar í sum- ar hafi tekist vel vegna hlý- viðris. Bráðabirgðaniðurstöður á heimtum örmerkja á vatna- svæði Rangánna sýna að allur lax sem veiðist í ánni kemur úr sleppitjömum árinnar. Einnig hefur komið í ljós að því hlýrri sem sleppitjarnirnar eru þvi betri heimtur, en kjör- hitastig er talið vera um 11 gráður. Ástand seiða sem komu frá uppeldisstöðinni í sumar var gott og ekki spillti góðviðrið fyrir. Því er búist við góðri veiði í ánni næsta sumar. Stjórn Veiðifélags Eystri- Rangár hefur ákveðið að verð á veiðileyfum næsta ár verði frá 2.000 kr. dagurinn á ódýr- asta tímabilinu en 25.000 kr. á dýrasta tímabilinu. Það er Sælubúið á Hvolsvelli og Vesturröst sem sjá munu um sölu veiðileyfa. Stærsti laxinn Nýlega verðlaunaði stjórn árinnar Ingþór Arnórsson sem veiddi stærsta laxinn sl. sum- ar, en það var 18 punda hængur. Ingþór dró jafnframt flesta laxa úr ánni þetta árið, ríflega 50 stykki. Honum var afhentur veglegur bikar sem Vesturröst gaf. Þá var einnig dregið í happdrætti sem efnt var til meðal þeirra sem skil- uðu veiðileyfum í Sælubúið að kvöldi veiðidags og var númerið á veiðileyfinu látið gilda sem happdrættisnúmer. Eftirtalin númer hlutu vinn- ing: 1. vinningur, nr. 1284, 4 stangir í E-Rangá næsta sum- ar, 2. vinningur, nr. 1295, gisting á Hótel Hvolsvelli með morgun- og kvöldverði, 3. vinningur, nr. 956, Þórsmerk- urferð og gisting í skála Aust- urleiðar, 4. vinningur, nr. 904, veiðistöng frá Vesturröst og 5. vinningur, nr. 998, veiði- vöðlur frá versluninni Björk á Hvolsvelli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.