Morgunblaðið - 07.12.1993, Page 60

Morgunblaðið - 07.12.1993, Page 60
ÍO MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 -J- 4- iífópriLP . /Vlig /antcxr danssfco me& StdLtdnt ■ " morgunkaffinu Mamma er á spitala, svo nú erum við tvíburarnir, Halli, Lísa, Pétur, fuglarnir, Gunni gnllfiskur og pabbi ein heima. Ást er . . hún í fókus TM Reg. U.S Pat Otf.—aH rights reserved ® 1993 Los Angeles Times Syndicate HÖGNI HREKKVfSI BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Heilsuhagfræði, fræðigrein, ekki stjórnvald Frá Gunnari Má Haukssyni: í Morgunblaðinu 26. nóvember sl. gerir Júlíus Valdimarsson athuga- semdir við grein mína, sem birtist í blaðinu 20. sama mán. Júlíus misskil- ur greinilega hlutverk og tilgang heilsuhagfræðinnar. Hann grípur ákveðin atriði í grein minni, en miss- ir af aðalinntaki hennar. Hlutverk allrar hagfræði er að safna saman gögnum og forsendum, og þar sem um takmörkuð gæði er að ræða, þarf að setja fram þá val- kosti, sem fyrir hendi eru. A grund- velli þeirra gagna, sem þá liggja fyr- ir, er hægt að taka ákvörðun um, hvemig það fjármagn sem til ráðstöf- unar er, nýtist á sem hagkvæmastan hátt. Heilsuhagfræðingar taka ekki ákvarðanir í heilbrigðismálum frekar en hagfræðingar almennt taka ákvarðanir um efnahagsmál. Ákvarðanimar eru teknar af stjórn- málamönnum og stjórnendum stofn- ana. En væntanlega eru betri ákvarð- anir teknar þegar staðreyndir og valkostir liggja fyrir svart á hvítu. Sá áhugi á heilsuhagfræði, sem nú er að vakna meðal heilbrigðis- stétta og stjómenda heilbrigðisstofn- Frá Valdísi Jónsdóttur: Ég vona að sem flestir hafi lesið grein Sigurlínu Margrétar Sigurðar- dóttur, „Staða táknmálsfrétta í dag“,' sem birtist í Morgunblaðinu 1. des- ember þar sem hún fjallaði um bar- áttu heyrnarlausra við ríkissjónvarp- ið. Það er lærdómsríkt að lesa um hvemig hægt er að mismuna þegnum þessa iands bæði menningarlega og fjárhagslega. Ég vona að fleiri en ég velti því fyrjr sér hvernig í ósköp- unum forráðamönnum þessa fjölmið- ils getur dottið í hug að flytja frétta- tíma heymarlausra út fyrir dag- skrána. Það segir sig sjálft, að úti- vinnandi fólk hefur engin tök á því að geta fylgst með fréttum sem sendar eru út á tíma þegar fæstir eru komnir heim til sín. í mínum augum sýna forráðamenn sjónvarps heymarlausum fyrirlitningu með þessari gjörð. Fréttir eru það eina sem heyrnarlausir geta fylgst með í ana, er einmitt sprottinn upp af því að þessir aðilar upplifa mikinn niður- skurð í heilbrigðismálum án þess að kannað hafi verið hver áhrif niður- skurðaraðgerðirnar hefðu og hvort um raunverulegan sparnað hafi verið að ræða. Ef kostnaðargreining á ýmsum valkostum í heilbrigðisþjónustu lægi fyrir, væri tvímælalaust hægt að ná miklu betri árangri og bæta líf fleiri þegna þjóðfélagsins fyrir sömu fjár- muni og nú er eytt í þennan mála- flokk. Við komumst samt ekki hjá þvi að ræða um það sem Júlíus Valdi- marsson flökraði við, þ.e. forgangs- röðun sjúklinga í heilbrigðisþjónustu, Ég var að reyna að segja í grein minni, að val á milli sjúklinga á sér stað í dag og hefur alltaf átt sér stað, en það hefur verið mjög tilvilj- anakennt. Hins vegar hafa menn smátt og smátt verið að gera sér ljóst, að það var tálsýn að halda að aukinn hagvöxtur og tækni gæti uppfyllt allar þarfir þegnanna fyrir heilbrigðisþjónustu. í raun hefur tæknin vaxið okkur yfir höfuð. Það þýðir ekkert að stinga hausnum í sandinn. Við verðum að horfast í augu við raunveruleikann. Oft er sjónvarpinu fyrir utan þýtt erlent efni. Hugsið ykkur ef Islendingar kynnu erlend tungumál þá væri ná- kvæmlega ekkert sem heyrnarlausir gætu fylgst með í sjónvarpinu nema táknmálsfréttum sínum. Ég man ekki betur en það hefði verið ákveð- ið fyrir einhveijum tíma að koma til móts við heymarlausa og texta end- ursýnt íslenskt efni. Ekki hef ég orð- ið vör við efndir í þeim efnum. Und- anfarið hafa íslenskar kvikmyndir verið endursýndar en annaðhvort er ég farin að sjá svona illa eða textinn verið ritaður með ósýnilegu letri, allavega gat ég ekki komið auga á hann. Á degi heyrnarlausra var ég stödd í Háskólabíói þar sem heymarlausir héldu upp á daginn. Þar átti að af- henda forráðamönnum frá ríkissjón- varpi og Pósti og síma viðurkenning- ar fyrir veittan stuðning. Hvorugur var á staðnum og enginn í þeirra tækninni beitt til þess að halda í líf, sem er ekkert líf. Heilsuhagfræðing- ar hafa fjallað mikið um þetta efni undanfarin ár. Hugmyndir hafa kom- ið um að meta læknisaðgerðir eftir því hve mikið þær bæti líf og líðan hvers einstaklings. Ég legg áherslu á, að hér er átt við ávinning einstakl- ingsins sjálfs (ekki þjóðfélagsins). Ég dró ekki dul á það í grein minni, að ýmsar mjög erfiðar siðfræðilegar spumingar vakna þegar fjallað er um þetta viðkvæma efni. Heilsuhag- fræðingar hafa bent á þær og hvetja til opinskárrar umræðu um þær. Þeir eru ekki „að búa til hagfræði til að réttlæta mannlegar hörmung- ar“ eins og Júlíus heldur. Það eru stjómmálamennimir, ekki hagfræð- ingamir, sem taka ákvarðanir um skiptingu fjármuna til samneyslunn- ar. Við kjósendur höfum væntanlega áhrif á þeirra ákvarðanir með at- kvæðum okkar. Eins og Júlíus tel ég mig vera húmanista og það er ástæðan fyrir því að ég er að skipta mér af þessum málum. Það hlýtur að vera til góðs ef við stuðlum að því að það fjár- magn, sem samféiagið leggur til heilbrigðisþjónustunnar, verði nýtt á sem bestan hátt fyrir þegna þjóðfé- lagsins. GUNNAR MÁR HAUKSSON, Laugarásvegi 14, Reykjavík. stað til að taka á móti viðurkenning- unum. Hvers vegna? Á degi blindra fengu blindir verðskuldaða athygli. Hemmi Gunn setti sig rækilega í spor þeirra og sjónvarpið sýndi vand- aðan þátt um blinda. Á degi heymar- lausra var örstutt frétt frá skemmtun þeirra í Háskólabíói, ekkert annað. Hvar er jafnréttið? Ég á eftir að sjá hvort enn eitt árið líður án þess að áramótaskaupið verði textað. Hvernig þætti okkur heyrandi að sitja og horfa á fólk hlæja án þess að vita af hveiju verið væri að hlæja? Ég á mér eina veika von. Maður með prestsmenntun situr nú í stól yfirmanns. Þar sem prestar predika réttlæti og miskunnsemi trúi ég ekki öðm en að prestur sýni það í verki sem hann predikar öðrum. Að lokum. Hvar eru þingmennirn- ir með réttlætiskenndina? Hvernig væri að málefni heymarlausra væru tekin upp á þingi og t.d. sett í lög að texta beri allar fréttir sem varða almenningsheill. Má þar nefna sem dæmi fréttir um náttúruhamfarir og veðurofsa. Það væri allavega góð byijun. VALDÍS JÓNSDÓTTIR, talmeinafræðingur, Akureyri. Hvers vegna þessi fyrirlitning? „ ÉG LEIGÞI HERBERjGIÐ ÞittÁv MePAH þð VARST í BUKTU." Víkveiji skrifar Hvað sem segja má um hönnun- arkostnað, framkvæmda- kostnað og framkvæmdahraða, hafa breytingarnar á hinu svo- nefnda Hallærisplani, sem hér eftir heitir Ingólfstorg, tekizt frábærlega vel. Þetta er án efa skemmtilegasta torg af þessu tagi í höfuðborginni og vekur m.a. upp spurningar um, hvort ekki sé hægt að gera betur á Lækjartorgi. Ingólfstorg hlýtur líka að vekja upp hugmyndir um einhveijar þær breytingar á Austur- stræti, sem tengja betur saman þetta skemmtilega svæði fyrir framan gamla Morgunblaðshúsið og Lækjartorg. Ingólfstorg á áreiðanlega eftir að verða vinsæll samastaður fólks á öllum aldri. Þótt kaupmenn við torgið hafi misst viðskipti á meðan þessar framkvæmdir hafa staðið yfir, eiga þeir áreiðanlega eftir að ná því upp í auknum viðskiptum, nú þegar torgið hefur verið opnað, Hér hefur vel tekizt til og á þessi breyting þátt í að gefa gamla mið- bænum nýjan svip. xxx Bygging gamla Morgunblaðs- hússins við Aðalstræti 6 hefur stundum verið gagnrýnd. Þetta myndarlega hús nýtur sín einstak- lega vel við hið nýja torg. Hins vegar er því ekki að leyna, að eftir breytinguna á þessu svæði hljóta kröfur um niðurrif gamalla timbur- húsa og bygging nýrra húsa við Ingólfstorg að fá byr undir báða vængi. Staðreyndin er því miður sú, að mörg gömlu húsin í miðbænum eru svo gersamlega úr sér gengin, sum nánast ónothæf fyrir verzlanir, þar sem fúkkalyktin tekur á móti þeim, sem inn koma og ekki líkleg til þess að að vekja áhuga á viðskipt- um, að þau verða tæpast endurnýj- uð. Er hugsanlegt, að húsaröðin á milli Austurstrætis og Austurvallar eigi einfaldlega að hverfa til þess að opna þetta svæði betur? Ingólf- storg á áreiðanlega eftir að vekja upp margvíslegar umræður um end- urnýjun gömlu miðborgarinnar og það sýnir hvað hægt er að gera. xxx Jólaskreytingar við Lækjargötu hafa tekizt einstaklega vel. Þær hafa ekki sést áður í þessari mynd, ef Víkveiji man rétt. Reykja- vík fær á sig stórborgarsvip með þessum skreytingum og væri raun- ar skemmtilegt ef hægt væri að setja þær upp alveg frá Skothús- vegi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.