Morgunblaðið - 07.12.1993, Síða 62

Morgunblaðið - 07.12.1993, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993 Hætt við að sameina Renault og Volvo Ljóst að Renault þarf að horfa til nýs samstarfsaðila PÉTUR Óli Pétursson, forstjóri Bílaumboðsins hf., sem er um- boðsaðili Renault á íslandi, segir að nú þegar áform um sam- runa Renault og Volvo séu úr sögunni sé ljóst að Renault þurfi að horfa til nýs samstarfsaðila til að takast á við samkeppnina á bílamarkaðnum í framtíðinni. Hann segir að samstarfssamning- ur sem Renault og Volvo gerðu fyrir þremur árum sé enn í fullu gildi þrátt fyrir að erfitt verði fyrir fyrirtækin að vinna í sama anda og áður. „Tækifærinu hefur verið glatað, en Re- nault mun skoða hvernig best er að vinna úr núverandi stöðu til hagsbóta fyrir félagið,“ segir Pétur Óli. Pétur Óli sagði að sameining Renault og Volvo hefði verið hugs- uð til að Renault/Volvo yrði nægj- anlega öflugt fyrirtæki til að tak- ast á við samkeppnina á bílamark- aðnum í framtíðinni. Nú þurfi Re- nault að horfa til nýs samstarfsað- ila, en samstarf eða samruni hljóti að verða til skoðunar ef menn álíti að það geti tryggt og bætt rekstr- arafkomu og framþróun þegar til langrar framtíðar sé litið. „Volvo er stolt Svía og samein- mgin með fyrirhugaðar aðalstöðv- ar Renault/Volvo í París var meira en Svíar gátu sætt sig við og því iáta þeir tilfinningar og þjóðar- rembing hafa yfirhöndina á skyn- seminni og hafa hafnað samrunan- um. Niðurstöður Renault núna þegar bílaiðnaðurinn í Evrópu gengur í gegnum mestu erfiðleika síðari ára eru þær að fyrirtækið er að hagnast á sínum rekstri fyrstu níu mánuði þessa árs. Þetta hlýtur að sanna að Renault eru færir til að takast á við þessar breyttu aðstæður þó svo að þeir meti stöðuna erfiðari án samein- ingar við Volvo heldur en ef af henni hefði orðið,“ sagði hann. Aðspurður um hvort það hefði áhrif á fyrirhugaða einkavæðingu Renault að hætt hefði verið við sameiningu fyrirtækjanna sagði Pétur Óli að Renault væri á lista yfír fyrirtæki sem franska ríkið ætlar að selja samkvæmt lögum sem samþykkt voru í júlí 1993. „Ef af sameiningunni við Volvo hefði orðið var franska ríkið búið að skuldbinda sig til þess að einka- væða fyrirtækið fyrir lok næsta árs. Nú hlýtur það að fara eftir fjárhagsafkomu Renault og að- stæðum á bílamarkaðnum hvenær hlutabréfin verða boðin til sölu á markaðnum,“ sagði hann. Morgunblaðið/Ami Sæberg 90 ára flugafmæli ÞORSTEINN Jónsson, fyrrverandi flugstjóri og fararstjóri í ferðinni, Helga Bernhard, flugfreyja, Gunn- ar Þorsteinsson, ritstjóri og fararstjóri, og Jón Grímsson, flugstjóri (t.h.). íslendingar taka þátt í 90 ára afmæli flugsins Flugferð í anda gullaldar- ára Ameríkuflugs Loftleiða „FERÐIN verður í anda gullaldarára Ameríkuflugs Loftleiða. Á fluginu verður stanslaust glens og gaman og allan tímann geta ferðalangarnir átt von á hvers kyns óvæntum uppákomum,“ segir Gunnar Þorsteinsson annar tveggja fararstjóra í þriggja daga hátíðarferð í tilefni af 90 ára afmæli flugsins. Hinn farar- sljórinn er Þorsteinn Jónsson fyrrverandi flugsljóri. Ferðinni er heitið til Kitty-Hawk í Norður Karólínu. Þar flugu Wright- bræður, þeir Willbur og Orville, fyrstir manna flugvél undir eigin vélarafli og með stýringu þann 17. desember árið 1903. Gunnar sagði að ferðin væri skipulögð af Fyrsta flugs félaginu. „Við stofnuðum félagið til að fara þessa einu ferð til að minnast þess að 90 ár eru liðin frá því flugvél sem hægt var að stýra og flaug fyrir eigin vélarafli var flogið í fyrsta sinn. Wright-bræður í Kitty- Hawk í Norður-Karólínu áttu heið- urinn af þessu afreki og í tilefni af því verður þar mikið um að vera þann 17. desember. Má öllum 24 tegundum flugvéla bandaríska flughersins verður flogið yfir svæð- ið og gerð verður tilraun til að flúga eftirlíkingu af flugvél Wright-bræðra,“ sagði Gunnar. Flugvél Wright-bræðra var tví- þekja með 12,3 m vænghafi, 275 kg að þyngd og hreyfillinn 80 kg og framleiddi 13 hestöfl. Skrúfurn- ar voru tengdar hreyflinum með keðjum eins og á reiðhjólum en Wright-bræður voru einmitt hjól- hestasmiðir frá Ohio. Ferðatilhögun Allt verður gert til að andi ferð- inni minni sem mest á gullaldarár í Ameríkuflugi Loftleiða eftir því sem Gunnar segir. „En við legggj- um af stað eldsnemma þann 16. desember og millilendum í Gander á Nýfundnalandi þar sem mótt- tökuathöfn fer fram. Ferðinni verður síðan haldið áfram til Nor- folk og þaðan í rútu til Kitty- Hawk, vöggu flugsins. Daginn eft- ir verður svo haldið upp á sjálft afmælið en þann 18. getur fólk t.d. valið um að skoða Smithsonian flug- og geimminjasafnið í Wash- ington eða versla í Norfolk," sagði Gunnar. Hann sagði að ferðin væri öllum opin og^ mikill áhugi væri fyrir henni. „Ég hef fundið fyrir miklum áhuga skipuleggjenda hátíðarinnar að sjá sem flesta íslendinga. Ferð- in virðist líka falla í góðan jarðveg hér og við erum að selja síðustu sætin um þessar mundir,“ sagði Gunnar og bætti við að hér væri tvímælalaust um óvenjulegustu flugferð seinni tíma frá Islandi að ræða. ;,Hún verður hluti af flug- sögu Islendinga. Og á þessum tímamótum er áhugavert að velta því fyrir sér hvað flugið hefur þró- ast ört á aðeins einum mannsaldri og ekki síst ef það er borið saman við bifreiðina," sagði hann að lok- um. UR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 3.-6. desember 1993 Um helgina var tilkynnt um 34 umferðaróhöpp. í tveimur óhapp- anna var um að ræða meiðsli á fólki og í tveimur tilvikum öðrum er grunur um ölvun við akstur. Á sama tímabili hafði lögreglan af- skipti af 185 ökumönnum vegna ýmissa umferðarlagabrota. Þar af voru 53 kærðir fyrir að aka of hratt, 23 voru staðnir að því að virða ekki rautt ljós, 5 reyndust ekki hafa ökuréttindi, 15 eru grun- aðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis, 5 virtu ekki stöðvunar- skyldu og aðrir voru kærðir eða áminntir fyrir að nota ekki bílbelti eða ástandi ökutækja þeirra þótti ábótavant. Þá reyndist nauðsyn- Iegt að fjarlægja skráningarnúmer af 18 ökutækjum. Afskipti þurfti að hafa af rúm- lega 70 einstaklingum vegna ölv- unar, auk þeirra ölvuðu er tengd- ust öðrum málum, s.s. ölvuna- rakstri, hávaða og ónæði utan dyra og innan, heimilisófriði, ágreiningi ýmiss konar, líkamsmeiðingum, slysum, innbrotum og þjófnuðum. Alls eru 569 færslur í dagbókinni á tímabilinu. Alls var tilkynnt um 6 líkams- meiðingamál. Þau áttu sér öll stað á eða við skemmtistaði borgarinn- ar. Meiðsli voru í öllum tilvikum minniháttar. Á laugardagsmorgun slösuðust tveir menn er þeir voru að taka niður byggingakrana við hús við Eggertsgötu. Annar endi bómunn- ar lá í jörð, en mennirnir voru að taka bómuna sundur við sam- skeyti í u.þ.b. 10 metra hæð. Virt- ist hafa gleymst að ganga frá vír sem átti að halda uppi bómunni, því er hún var tekin í sundur féll hún niður við samskeytin og menn- irnir með henni. Á laugardagskvöld var tilkynnt um að reyk legði frá íbúð við Rauð- arárstíg. Við athugun slökkviliðs- ins kom í ljós að pottur hafði gleymst á eldavélarhellu. Skemmd- ir urðu litlar. Skömmu síðar urðu slagsmál í Vallarstræti. Þau hófust þegar maður lamdi konu. Þá kom þar að eiginmaður konunnar ásamt vinum sínum og blandaði eigin- maðurinn sér í slagsmálin með því að beija á manninum, sem hafði verið að lemja konuna. Skömmu síðar komu tveir vinir hjónanna og bættu um betur. Hjálpuðu þeir eiginmanninum og konunni að lumbra á þeim sem hafði átt upp- tökin. Sá átti sér nálægan vin, sem vildi ólmur aðstoða, en þá bættist í hópinn enn einn vinur hjónanna er lamdi vin þess sem átti upptök- in í andlitið. Þann varð að flytja á slysadeild ásamt konunni, sem upphaflega var veist að. Talið var að maðurinn hafí verið nefbrotinn og framtennur losnuðu í konunni. Upphafsmaðurinn komst hins veg- ar undan, en það er vitað hver hann er. Tiltölulega fátt fólk var í mið- borginni aðfaranótt sunnudags. Ölvun var nokkur, en ekki teljandi. Aðfaranótt sunnudags var til- kynnt um lausan eld í húsi við Askarholt í Mosfellsbæ. Lampi, sem kveikt hafði verið á og stóð við glugga, féll niður og Ienti í rúmi við gluggann. Þrettán ára drengur vaknaði við það að eldur var kominn upp í rúminu. Hann vakti foreldra sína og komu þau logandi dýnunni út úr húsinu og náðu að slökkva í rúminu. Ekki urðu miklar skemmdir á íbúðinni. Unglingaathvarfið var opið í miðborginni um helgina. Þrátt fyr- ir leit fundust engir unglingar und- ir 17 ára aldri. Athvarfið verður opið næstu helgi. Þangað verða allir þeir unglingar sem láta sjá sig í nágrénni miðborgarinnar fluttir. Nú þegar nær dregur jólahátíð- inni og undirbúningurinn er í há- marki fer umferðin að þyngjast í nágrenni stórmarkaða og verslun- armiðstöðva. Fólk er eindregið hvatt til þess að gefa sér rúman tíma, sýna þolinmæði og umfram allt tillitssemi. Þjófur í leikhúsi OKUNNUR maður stal ávísunum og seðlaveski úr búningsher- bergi tveggja leikara Þjóðleik- hússins meðan á sýningu stóð á laugardagskvöldið. Maðurinn komst baksviðs meðan sýning stóð yfir undir því yfirskyni að hann ætti erindi við nafngreind- anleikara. í hléi saknaði einn leikar- anna veskis með ávísanahefti og persónuskilríkjum úr búningsher- bergi baksviðs og annar leikari sakna í tveimur óútfylltum ávísana- eyðublöðum. Þjófurinn var þá á bak og burt. Lögregla hafði tiltæka allgóða lýs- ingu á manninum en hann hafði ekki verið handtekinn í gær. -----» ♦ ♦---- ■ HINN árlegi Jólablús Vina Dóra er lagður af stað um allt land. Hljómsveitin er á leið til Chicago eftir áramót til að taka upp nýtt efni á geislaplötu sem á að koma út næsta sumar. Stórviðburður verður hjá Vinum Dóra í mars nk. þegar lagt verður af stað til Mexíkó á svokallað „Blues Cruise Festival" sem haldið verður á skemmtiferða- skipi sem siglir í Karíbahafinu. ís- lendingum gefst kostur á að upplifa þennan viðburð þar sem ferðaskrif- stofan Samvinnuferðir/Landsýn hefur fengið nokkra miða til sölu. Jólablúsinn fer fram á eftirtöldum stöðum: Höfn í Homafirði, Hótel Höfn, þriðjudaginn 7. desember, Breiðdalsvík, Hótel Bláfell, mið- vikudaginn 8. des., Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf, föstudaginn 10. des., Eskifjörður, Félagsheimilið, laugardaginn 11. des., Vopnafjörð- ur, Hótel Tangi, sunnudaginn 13. des., Raufarhöfn, Hótel Norður- (jós, þriðjud. 14. des., Húsavík, Hótel Húsavík, miðvikud. 15. des., Dalvík, Sæluhúsið, fimmtud. 16. des., Akureyri, föstud. 17. des., Siglufjörður, Bíókaffi, laugard. 18. des., Skagaströnd, Kántríbær, sunnud. 19. des., Hvammstangi, Hótel Vertshús, mánud. 20. des., Ólafsvík, VER-salir, þriðjud. 21. des. og Stykkishólmur, Hótel Stykkishólmur, miðvikudaginn 22. desember. ----» ♦ ♦---- Jólapakkar til námsmanna á Norðurlöndum SÍÐUSTU forvöð til þess að senda námsmönnum á Norðurlöndum jóla- pakka með Samskipum eru í dag, en tekið er á móti pökkunum í Holta- görðum. Skip félagsins sigla til Árósa, þar sem skip verður statt 16. desember, Kaupmannahafnar, þar sem það verður 17. desember, Vars- berg 17. desember og Mors 17. og 18. desember. Pakkagjald Samskipa er 1.000 krónur og má hver pakki vera allt að 25 kg að þyngd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.