Morgunblaðið - 07.12.1993, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1993
63
Haustönn í Fj ölbrautoskólanum í Breiðholti
Kennslutími var
styttur um viku
Menntamálaráðuneytið gerði athuga-
semd til skólans vegna málsins
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur gert athugasemd við stjórn-
endur Fjölbrautaskólans í Breiðholti vegna þess hversu skammur
kennslutími var í skólanum á nýliðinni haustönn eða tæplega 12
vikur í stað 13 eins og jafnari er miðað við á haustönn. Ráðuneytið
hefur haft samband við fleiri framhaldsskóla og óskað eftir að
kennslutimi yrði lengdur. Kristín Arnalds skólameistari FB sagði í
samtali við Morgunblaðið að töluvert langur tími færi í próf í skólan-
um, en kennsla á haustönninni næði þó fullum 12 vikum. Hún sagði
það hins vegar vera vandamál hve haustönnin væri stutt og það
þyrfti að lagfæra.
Að sögn Harðar Lárussonar
deildarstjóra í menntamálaráðu-
neytinu höfðu kvartanir borist til
ráðuneytisins vegna kennslutímans
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
en stytting haustannar kom sér-
staklega illa við nemendur öldunga-
deildar, sem fengu færri stundir til
að fara yfir námsefni sitt en dags-
skólanemar.
„Ráðuneytið hefur oft rætt við
skólameistara framhaldsskólanna
um að kennslutíminn væri frekar
skammur og látið í Ijós óskir um
að reynt yrði að breyta þessu. Okk-
ur fínnst hlutfallið milli kennslutíma
og pRÓftíma óeðlilegt en þetta var
með lakari dæmunum sem við höf-
um heyrt um,“ sagði hann.
Snertir kjarasamninga
kennara
Sagði Hörður að málið væri tals-
vert erfitt úrlausnar þar sem breyt-
ing á kennslutíma snerti kjara-
samninga kennara. „Ég reikna með
því að þetta mál verði rætt frekar
við skólameistara fí-amhaldsskól-
anna og athugað hvort það séu
möguleikar á að breyta þessu,“
sagði hann.
Kristín Arnalds sagði að ekki
væri lögboðið að kennsluvikur ættu
að vera 13 á haustönn, og sam-
kvæmt kjarasamningum mætti ekki
kalla kennara til starfa fyrr en 1.
september.
„Hjá okkur er málið það að við
þurfum töluvert langan tíma í próf
en við erum þó á haustönninni núna
með 12 fullar kennsluvikur. Málið
stóð um einn dag sem við lengdum
önnina um, þannig að við náðum
þessum 12 kennsluvikum. Eins og
reglugerð gerir ráð fyrir er fjallað
um starfsáætlunina af kennurum
og nemendum og búið var að sam-
þykkja hana eins og hún var. Það
stóð hins vegar styr um þennan
eina dag, sem við svo lengdum önn-
ina um. Ég vil leggja áherslu á að
þar sem mjög fjölbreytt nám er í
skólanum okkar þurfum við mjög
langan tíma í prófin, en það er
ekki þar með sagt að menn séu
hérna í fríi, heldur vinna kennarar
hérna fulla vinnu. Þá set ég alltaf
skólann 31. ágúst og veit ég ekki
um neinn annan skóla sem byijar
svo fljótt,“ sagði Kristín.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Digraneskirkja risin
FjÖLDI fólks lagði leið sína í Digraneskirkju, sem
nú er risin í Suðurhlíðum í Kópavogi, í reisugildi
sem haldið var á laugardag. Jónas Frímannsson,
ritari sóknamefndar Digranessöfnuðar, stjómaði
stuttri athöfn sem hófst með því að sr. Þorberg-
ur Kristjánsson sóknarprestur flutti blessun. Þá
rakti Þorbjörg Daníelsdóttir, formaður sóknar-
nefndar, stuttlega byggingarsögu hússins og
þakkaði þeim sem þar hafa komið að. Bjarni
Bragi Jónsson flutti frumsamið ljóð til kirkjunnar
og að lokum tók Guðmundur Þorsteinsson dóm-
prófastur til máls og óskaði söfnuði allra heilla.
Þá hafði hann sérstaklega orð á því að svo stutt-
ur byggingartími væri óvenjulegur þegar kirkjur
væm annars vegar en fyrstu skóflustunguna að
Digraneskirkju tók dr. Sigurbjöm Einarsson bisk-
up 27. mars sl. Áætlað er að messa í kirkjunni
í fyrsta sinn 25. september á næsta ári. Að at-
höfn lokinni var viðstöddum boðið að þiggja veit-
ingar.
Iðnaðarráðuneytið beinir tilmælum til útgerðarmanna
Innlend skipasmíði fái
tækifæri eins og eriend
IÐNAÐAR- og viðskiptaráðuneytið hefur beint þeim eindregnu
tilmælum til samtaka útgerðarmanna, viðskiptabanka og Fisk-
veiðasjóðs að þeir gefi innlendum skipaiðnaði tækifæri til jafns
við erlenda aðila til að bjóða í eða semja á annan hátt um ný-
smíðar eða endurbætur skipa. Er það von ráðuneytisins að með
sameiginlegu átaki viðkomandi aðila á þessu sviði megi stuðla
að auknum verkefnum fyrir innlendan skipaiðnað, en ekki síður
að aukinni hagkvæmni fyrir verkkaupendur að nýsmíðum og
endurbótaverkefnum. Kristján Ragnarsson, formaður Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna, segist ekki kannast við annað
en að íslenskum skipasmíðastöðvum hafi í flestum tilfellum ver-
ið gefinn kostur á að bjóða í viðgerðarverkefni.
í bréfi iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytisins til ofangreindra aðila
segir m.a. að borið hafí á því að
undanförnu að nýsmíðar og endur-
bætur á fiskiskipum hafi verið
framkvæmdar erlendis án undan-
gengins útboðs innanlands. ís-
lenskum skipasmíðastöðvum hafi
þannig ekki verið gefinn kostur á
að bjóða í viðkomandi verkefni og
því hefði ekki verið ljóst hvort þær
hefðu verið samkeppnisfærar. Það
hljóti að vera kappsmál fyrir inn-
lenda aðila, verkkaupendur eða
Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna 1993
Fimm í flokki skáld-
verka og fímm fræðirit
TILKYNNT var í gær við athöfn í Listasafni íslands hvaða tíu bækur
keppa um íslensku bókmenntaverðlaunin 1993 en að undanförnu hafa
verið starfandi tvær þriggja manna dómnefndir við að velja bækurn-
ar. íslensku bókmenntaverðlaunin verða veitt af forseta íslauds eftir
áramót. Fimm bókanna eru úr flokki frumsaminna íslenskra skáld-
verka og fimm úr flokki fræðirita, frásagna, handbóka og annarra
rita sem teljast ekki til skáldskapar. í ávarpi Jóhanns Páls Valdimars-
sonar, formann Félags íslenskra bókaútgefenda, kom fram að nefndirn-
ar hefðu valið úr 30 bókum í flokki fagurbókmennta og 17 bókum í
flokki annarra verka.
Kór Kársnesskóla söng við upphaf
athafnarinnar en síðan flutti Jóhann
Páll ávarp þar sem hann sagði með-
al annars að íslensk bókaútgáfa ætti
í vök að veijast vegna þeirrar ákvörð-
unar stjórnvalda að leggja virðis-
aukaskatt á íslenskar bækur, og því
sýndu aðgerðir útgefenda til að halda
sama bókaverði og á siðast liðnu
ári, eindreginn vilja þeirra til að les-
endur þurfi ekki að bíða skaða af.
Formenn nefndanna tveggja sem
völdu bækumar, Guðrún Nordal og
Ólafur Oddsson, tilkynntu síðan
hverjir tilnefndir eru í ár og Vilborg
Harðardóttir, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda, af-
henti tilnefndum höfundum eða full-
trúum þeirra minjagripi, sem að
þessu sinni voru silfurbókahnífar.
Tíu tilnefningar
í flokki fagurbókmennta em til-
nefndar Borg, skáldsaga eftir Rögnu
Sigurðardóttur, Eldhylur, Ijóðabók
eftir Hannes Pétursson, Falsarinn,
skáldsaga eftir Bjöm Th. Bjömsson,
Hvatt að rúnum, skáldsaga eftir
Álfrúnu Gunnlaugsdóttur, og Sú
kvalda ást sem hugarfylgsnin
geyma, skáldsaga eftir Guðberg
Bergsson. í flokki fræðirita og verka
almenns efnis em tilnefndar íslensku
söguatlas í ritstjórn Árna Daníels
Júlíussonar, Jóns Ólafs ísberg og
Helga Skúla Kjartanssonar, Mergur
málsins eftir Jón G. Friðjónsson,
Saga daganna eftir Árna Bjömsson,
Saga Jónasar frá Hriflu I-III eftir
Guðjón Friðriksson og Siðfræði Lífs
og dauða eftir Vilhjálm Ámason.
Aðrir í valnefndum vom Ásdís
Egilsdóttir og Ingibjörgu Haralds-
dóttir í flokki fagurbókmennta, og
Haraldur Ólafsson og Gunnar Karls-
soní flokki annarra rita. Guðrún og
Ólafur eru tilnefnd af Félagi ís-
lenskra bókaútgefanda, en aðrir em
tilnefnidir af Heimspekideild Háskóla
Islands, Rithöfundasambandi ís-
lands, Vísindaráði og Hagþenki.
Þriggja manna dómnefnd mun síðan
velja eina bók af fímm tilnefndum
úr hvorum flokki til verðlauna. For-
menn nefndanna tveggja eiga sæti
í lokadómnefnd ásamt Helga Þor-
lákssyni, sem tilnefndur er af forseta
íslands.
verkseljendur, að það sé ljóst hvort
innlendir aðilar hefðu getað boðið
hagstæðari skilmála. Er það von
ráðuneytisins að með sameiginlegu
átaki viðkomandi aðila á þessu
sviði megi stuðla að auknum verk-
efnum fyrir innlendan skipaiðnað,
en ekki síður aukinni hagkvæmni
fyrir verkkaupendur að nýsmíðum
og endurbótaverkefnum.
Kristján Ragnarsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að fyrir
útgerðarmenn skipti íslenskur
skipasmíðaiðnaður miklu máli og
þeir gerðu sér vel grein fyrir því
að iðnaðurinn ætti í erfíðleikum
sem fyrst og fremst stöfuðu af
erfiðleikum sem útgerðarmenn
ættu í.
„Það er viðtekin venja hér þegar
á að gera meiriháttar viðgerðir á
skipum að bjóða þau verk út bæði
erlendis og hér heima. Hins vegar
þegar um nýsmíðar hefur verið að
ræða undanfarin ár hefur íslenskur
skipasmíðaiðnaður ekki verið sam-
keppnisfær við það sem okkur hef-
ur verið boðið erlendis, og það
hefur verið viðurkennt af íslensk-
um skipasmíðastöðvum," sagði
hann.
Kristján sagði að LÍÚ myndi að
sjálfsögðu hvetja félagsmenn sína
til að eiga viðskipti við ísienskar
skipasmíðastöðvar um viðgerðar-
verkefni ef um væri að ræða sam-
bærilegt verð og tíma sem til boða
stæði erlendis. „011 minniháttar
verkefni eru unnin hér á landi og
það eru aðeins örfá tilfelli sem
fara til útlanda, og þá fyrst og
fremst stærstu verkefnin," sagði
hann.
48. leikvika, 4. des. 1993
Nr. Leikur:
RöSin:
1. Coventry - Arsenal 1 - -
2. Evcrton - Southamptn 1 - -
3. Ipswich - Oldham - X -
4. Leeds - Man. Cíty 1 - -
5. Man. Utd. - Norwich - X -
6. QPR - Aston V. - X -
7. ShefT. Wed - Liverpool 1 - -
8. Swindon - Sheff. Utd - X -
9. Tottenham - NcwcasUc - - 2
10. Wimbledon - West Ham - - 2
11. Bristol C. - Middlesbro - X -
12. Nott'm For - Birmingh. 1 - -
13. Oxford - Millwall - - 2
Heildarvinningsupphæðin:
113 milljón krónur
13 réttin | 2527.850 | kr.
12 réttir: | 40.460 | kr.1 2 3
j kr-
-I
11 réttin
10 réttin
3.050
780
SCANIA
mm hf.
SKÓGARHLÍÐ 10 - SÍWl 20720
VLTINN
48. Icikvika , 5. des. 1993
Nr. Leikur:
Röðin:
1. Atalanta - Lazio - X -
2. Cremone.se - Piacenza 1 - - ^1.
3. Foggia r Udincse - X -
4. Juvcntus - Napoli 1 - -
5. Lecce - Inter - - 2
6. AC MUan - Torino 1 - -
7. Reggiana • Cagliari 1 -
8. Roma - Parma 1 -
9. Ascoli - Padova 1 -
10. FiorenUna - Ancona 1 - •
11. Pisa-Bresda 1 - ■
12. Venezia - Bari - X •
13. Verona - Ccscna - X ■
Hcildarvinningsupphæðin:
12 milljónir króna
13 réttin
12 réttir:
11 réttin
10 réttin
69.430 j kr.
2.590 |kr.
280 1 kr'
0 J kr.