Morgunblaðið - 07.12.1993, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 07.12.1993, Qupperneq 64
Sandfok vegna Skaftár- hlaupa ógnar Lakagígum LAKAGÍGAR, gígaröðin á Síðumannaafrétti í Vestur-Skafta- fellssýslu, eru taldir í hættu vegna sandfoks. Skaftárhlaup hafa á undanförnum áratugum borið með sér mikinn sand upp á bakka árinnar og úr þessum sandnámum er nú farið að fjúka. Sandurinn hefur eytt þúsundum hektara af gróðri og er kom- inn að nokkrum Lakagíganna og farinn að skemma suma. Ólafur Arnalds, jarðvegsfræð- ingur hjá Rannsóknastofnun land- búnaðarins, segir að Skaftárhlaup séu tiltölulega nýtt fyrirbrigði, í þeirri mynd sem við þekkjum þau. Hlaupin eiga upptök í tveimur kötl- um í Vatnajökli og hleypur áin yfir stórt svæði. í nýútkomnum Landgræðslufréttum, fréttabréfi ■^^.andgræðslunnar, kemur fram að i- landinu stafi hætta af sandburði árinnar allt frá upptökum til sjáv- ar. Sandur sem berst ofarlega úr ánni stefnir í átt til Lakagíga og Ólafur Arnalds segir að hann sé kominn að nokkrum gíganna og farinn að skemma suma. Þá gæti sandurinn farið yfir hluta Skaftár- eldahrauns. Sandurinn eyðileggur mosann Gígaröðin er 25 kílómetrar á lengd. Gígarnir eru flestir þaktir þykkri breiðu af grámosa, þar sem skiptast á gulhvítar mosaþembur og rauðar og svartar gjallrákir og taumar. „Lakagígar eru, hvernig sem á þá er litið, ein stórfelldasta furðusmíð í náttúru landsins,“ seg- ir í bókinni Landið þitt, Island. Að sögn Ólafs eyðileggur sandurinn mosann og jafnar út landið svo það verður ékki svipur hjá sjón. Lakagígar gusu árið 1783 hinu mesta hraungosi sem sögur fara af á jörðinni, að því 'er fram kemur í bókinni. Kallaðist það Síðueldar eða Skaftáreldar. Afleiðingar þess urðu hín ægilegu Móðúharðindi þegar talið er að um 10 þúsund manns, eða tæplega 20% þjóð- arinnar, hafi látist á þremur árum. Lakagígar vóru friðlýstir árið 1971. Heimamenn í Skaftárhreppi hafa viljað vernda þetta svæði og vinna að stofhun landgræðslufé- lags meðal annars í þeim tilgangi. Að sögn Andrésar Arnalds, gróð- ureftirlitsmanns Landgræðslunn- ar, þarf að sá melgresi á stóru svæði til að hindra sandfokið og einnig er nauðsynlegt að setja upp varnargarða til að beina sandinum frá. Morgunblaðið/Kristinn. Forsætisráðherra tendrar jólaljósin DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra tendraði ljósin á jólatré Þjóðminja- safnsins á Nikulásarmessu sem var í gær. Nú styttist í jóladagskrá safnsins og hefur gömlum jólatijám í eigu safnsins verið komið fyr- ir víðs vegar um sýningarsalina og safnið allt fært í hátíðabúning. Þjóðminjasafnið bryddar upp á þeirri nýbreytni í ár að í safribúð verða seld spýtujólatré sem gerð eru eftir gömlu jólatré sem varð- veitt er í safninu. Standa svo vonirtil að fyrsti jólasveinninn, Stekkja- staur, láti sjá sig í safninu næstkomandi sunnudag kl. 14. Morgunblaðið/Páll Stefánsson Utboð húsnæðisbréfa Húsnæðisstofnunar fara fram í dag Lífeyrissjóðir vilja 5,2 til 5,3% ávöxtun Engum tilboðum í bréf upp á meir en 5% ávöxtun tekið Lakagígar LAKAGÍGAR eru taldir í hættu vegna sands sem Skaftárhlaup hafa borið fram á undanförnum áratugum. ÚTBOÐ húsnæðisbréfa Hús- næðisstofnunar mun fara fram í dag. Samkvæmt upplýsingum Sighvatur Bjarnason framkvæmdastjóri í Vestmannaeyjum Málinu lokið af hálfu Vinnslustöðvarinnar Kristján Ragnarsson harmar það umrót sem ummæli hans hafa valdið í bréfi til Vinnslustöðvarinnar DEILUR þær sem Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum og fram- kvæmdastjóri hennar, Sighvatur Bjarnason, hafa átt í við Krist- "sgán Ragnarsson, formann bankaráðs Islandsbanka, að undan- förnu, vegna ummæla Kristjáns í útvarpsviðtali um fjárhags- stöðu Vinnslustöðvarinnar, voru til lykta leiddar í gær, með bréfi sem Kristján skrifaði Vinnslustöðinni. Sighvatur Bjarnason sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að málinu væri lokið af hálfu Vinnslustöðvarinnar og hann væri sáttur við niðurstöðu þess. í bréfi Kristjáns Ragnarssonar segir m.a.:„í útvarpsþætti 29. nóv- ember sl. þar sem leitað var álits míns á hugmyndum sem uppi eru um að útgerðinni í landinu verði , gert að greiða fyrir veiðileyfi, við- '^pbafði ég ummæli um fyrirtæki ykkar sem valdið hafa nokkru upp- námi. Ég taldi mig vera að fjalla almennt um erfiða stöðu sjávarút- vegsfyrirtækja um allt land og ummæli mín um Vinnslustöðina hf. voru fyrst og fremst til að und- irstrika að hún væri ekki fremur en önnur sjávarútvegsfyrirtæki - timkomin að taka á sig viðbótará- lögur. í þeim efnum væru öll fyrir- tækin jafnilla sett. Ég taldi enn- fremur að ummæli mín byggðust á upplýsingum sem fram hefðu komið opinberlega hálfu fyrirtæk- isins. Mér er hins vegar ljóst að sem formaður bankaráðs ber ég þunga ábyrgð og tel mér skylt að sjá til þess að ég valdi ekki óróa hjá við- skiptamönnum bankans. Ef mig hefði órað fyrir því, að einhver teldi, að ég hafi verið í hlutverki formanns bankaráðs Is- landsbanka hf. í umræddu viðtali, þá hefði ég kosið að haga orðum mínum með öðrum hætti og harma það umrót, sem þau hafa valdið. Ég er sammála stjórn Vinnslu- stöðvarinnar hf. um að bankinn og fyrirtækið hafa átt mjög gott samstarf undanfarna mánuði, er miða að endurreisn fyrirtækisins og í þeim efnum hefur margt gerst. Ég tel jafnframt miklu skipta að Vinnslustöðin og íslandsbanki geti átt gott samstarf eftirleiðis og ég vona að þau ummæli sem gengið hafa okkar á milli síðustu daga, verði ekki til þess að trufla sam- starfið.“ Sighvatur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn- ar, sagði í samtali við Morgunblað- ið í gær, að með þessu bréfi frá formanni bankaráðs íslandsbanka væri málinu lokið af hálfu Vinnslu- stöðvarinnar. Svör formannsins hafi verið viðhlítandi og þeir hjá Vinnslustöðinni sáttir við þessi málalok. Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs íslandsbanka, vildi ekk- ert segja þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gærkveldi. Morgunblaðsins verður engum tilboðum tekið í bréfin, sem gera kröfu um meira en 5% ávöxtun. Lífeyrissjóðirnir munu hafa látið í veðri vaka að þeir muni gera kröfu um 5,2 til 5,3% ávöxtun. Til stóð að útboð spariskírteina ríkis- sjóðs færi fram á morgun, en í gær hafði engin ákvörðun verið tekin um það hvort út- boðið færi fram á morgun eða ekki, þar sem menn vildu bíða og sjá hvað gerðist varðandi húsnæðisbréfin í dag. Húsnæðisbréfin öðruvísi Lífeyrissjóðirnir munu hafa lát- ið í veðri vaka, að þar sem hús- næðisbréfin væru öðru vísi bréf en spariskírteini ríkissjóðs, með rýrari ábyrgð ríkissjóðs að baki en spariskírteinin, væri eðlilegt að ávöxtun þeirra bréfa sé ívið hærri en af spariskírteinunum, eða 0,2 til 0,3% hærri. Talsmenn ríkissjóðs segja á hinn bóginn að ábyrgð ríkissjóðs af húsnæðis- bréfum sé jafnmikil og af spari- skírteinum, og því séu húsnæðis- bréfin jafntrygg fjárfesting og spariskírteinin og þar með eigi ávöxtun þeirra að vera hin sama, eða að hámarki 5%. Hefur í þeim efnum verið bent á að húsnæðis- bréf bera það nafn, en ekki nafn ríkisskuldabréfa, vegna þess að lífeyrissjóðirnir hafi viljað að það kæmi fram í nafngiftinni að þeir væru að styðja fjármögnun hús- bygginga á íslandi, auk þess sem Húsnæðisstofnun hafi kosið að um jafnar afborganir yrði að ræða af bréfunum, en þau ekki greidd upp í einu lagi. Ekki gefið eftir í fjármálaráðuneytinu mun vera litið þannig á, að miklu máli skipti, að gefa hvergi eftir, að því er varðar hámarksávöxtunarkröfu og því verði engum tilboðum upp á meira en 5% tekið, hvorki í út- boðinu í dag, né í útboðinu sem hugsanlega fer fram á morgun. Verði niðurstaðan sú að útboð á ríkisbréfum fari fram á morgun, án þess að tilboð berist í bréfin sem eru upp á 5% ávöxtun, er viðbúið að ríkissjóður afli lánsfjár í beinu framhaldi af því á erlend- um markaði. Þó er ekki víst að talin verði þörf fyrir slíka lántöku þegar í stað, þar sem fjáröflun á heimamarkaði hefur að sögn gengið betur, en búist hafði verið við, sérstaklega á skammtíma- markaðinum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.