Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 UMÁRAMÓT eftir Ólaf Ólafsson Fyrir nokkrum árum hófust miklar umræður um kostnað við heilbrigðisþjónustu. Vegna deilna um þetta atriði óskaði þáverandi heilbrigðisráðherra eftir hagfræði- legri úttekt á vegum OECD á stöðu þessara mála hér á landi. Skýrslan kom út vorið 1993. Nið- urstöður hagfræðinganna voru í aðalatriðum þessar: 1. ísland hefur náð „öfunds- verðum“ (enviable) árangri í heil- brigðisþjónustu borið saman við OECD-lönd. 2. Miðað við heildarkostnað er ísland í 8. sæti miðað við OECD- ríkin. 3. Heildarútgjöld íslendinga eru 4% neðan við væntigildi heilbrigð- isútgjalda OECD-ríkja (meðaltal), leiðrétt fyrir verðlag í hveiju landi, og er þá einnig tekið tillit til ald- ursdreifingar þjóðarinnar, tekna á íbúa, greiðsluhlutfalls opinberra aðila til félagsþjónustu o.fl. þátta er OECD tekur tillit til við saman- burð á heilbrigðisútgjöldum. A reikning heilbrigðismála á íslandi eru færðar atvinnuleysis- bætur og ýmis kostnaður við fé- lagslega þjónustu sem ekki eru á slíkum reikningi meðal OECD- ríkja (OECD Economic surveys OECD 1993). Útgjöld munu því lækka um næstu áramót þegar atvinnuleysisbætur verða færðar til félagsmálaráðuneytisins. Svo virðist sem þessi skýrsla hafí lítið verið kynnt, því að stöð- ugt er klifað á að við séum með dýrustu heilbrigðisþjónustu í heimi. Náðst hefur góður árangur í hagræðingu, t.d. væri lyfjakostn- aður um 2,5 milljarða kr. hærri ef ekki hefði verið gripið til að- gerða fyrir nokkrum árum (Lyfja- máladeild heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins 1993) og ber áfram að neyta allra ráða í þessu efni. Einnig má minna á fækkun bráðasjúkrahúsa. Hliðar- áhrif sparnaðar og hagkvæmni mega þó ekki auka álag á heil- brigðisstarfsfólk meira en orðið er og verða til þess að draga þarf úr þjónustu og önnur vandræði af hljótist. Við athugun á út- skriftartíðni (afköstum) íslenskra sérgreinasjúkrahúsa, borið saman við dönsk sérgreinasjúkrahús, kemur í ljós að þrátt fyrir minni mannafla koma fleiri útskrifaðir sjúklingar í hlut íslenskra heil- brigðisstarfsmanna en þeirra dönsku — álagið er því trúlega meira á íslensku sjúkrahúsunum (Afköst sérgreinasjúkrahúsa, Landlæknisembættið des. 1993). Mér er ekki kunnugt um svo hag- stæðan samanburð á „framleiðni“ hér á landi borið saman við það sem gerist erlendis. Þjónustugjöld eru sjálfsögð en sníða verður þau að efnahag fólks- ins. Þjónustugjöld fyrir fyrirbyggj- andi aðgerðir, s.s. leghálskrabba- meinsskoðanir og lungnabólgu- bólusetningar eldra fólks, sem er Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 ...og peningarnir fara ekki í vaskinn! Ert þú tilbúinn íyrir tvö virðisaukaskattþrep? Vantar þig sjóðsvél sem reiknar og sýnir á strimli breytilegan virðisaukaskatt? MA305 SJÓÐSVÉLIN FRÁ TEC ER LAUSNIN Tæknival MA305 er fallkomin lausn fyrir rekstraraðlla sem gera kröfur um ódýran og elnfaldan bunað. Helstu elglnlelkar MA305 eru: VERÐIÐ ER AÐEINS KR. 41.900,- STAÐGREITT M/VSK. MA305 ER TIL AFGREIÐSLU NÚ ÞEGAR. Einnig bjóðum við tölvuvædd afgreiðslukerfi fyrir aðila sem vilja ná betri árangri. Veljið tækni sem leysir vandann. Hafið samband við ráðgjafa okkar... • Útreiknlngur á tveggja þrepa virðisaukaskatti auk 0 skatts. • Möguleiki á 10 til 15 deildum. • Allt að 200 vörunúmer með föstum verðum (PLU). • Þrjár greiðslutegundir, peningar, ávísanir og reikningsviðskipti. • Hægt að gefa afslætti, leiðrétta, endurgreiða og taka á móti innborgunum. • Skilgreining á sölu á klst. • Sundurliðun á sölu fyrir allt að fjóra starfsmenn. Verslunareigendur athugið! talin vera sú bólusetning sem skil- yrðislaust borgar sig best, eru of há því dregið hefur úr þátttöku fólks. Til lengdar verður þetta því dýrt. Er hægt að draga meira úr kostnaði með aukinni hag- ræðingu án þess að minnka þjónustu? Margt bendir til að svo sé og má benda á aðgerðir í nágranna- löndunum því til sönnunar. Á und- anförnum árum hefur orðið bylting í byggingu og rekstri bráðasjúkra- húsa. Áður fyrr voru legudeildir aðalhluti bráðasjúkrahúsa, en nú eru móttöku-, göngu-, dagdeildir og rannsóknastofur orðnar mun stærri hluti bráðasjúkrahúsa en áður. Þessi breyting hefur fylgt í kjölfar mikilla framfara í skurð- og svæfíngartækni (smágata- skurðaðgerðir = kögunaraðgerð- ir), auk þess sem verulegur hluti skurðaðgerða er nú framkvæmdur utan spítala. Legutími hefur því styst verulega, m.a. vegna þess að tekin hafa verið í noktun dag- deildir og sjúklingahótel. Þar sem þessi þróun hefur verið hröðust, t.d. í Bandaríkjunum, hefur rúmum fækkað mikið á sér- greinasjúkrahúsum; rúmum á skurðdeildum hefur fækkað um 30%, á lyflæknisdeildum um 30-40%, á bæklunardeildum um 30-40%, á kvensjúkdómadeildum um 30-40% og svo mætti lengi telja. Við framtíðaráætlanir um byggingu nýrra sjúkrahúsa verður að taka tillit til þessarar þróunar. Á skurð- og kvensjúkdómadeildum Landspítalans, Landakotsspítala, St. Jósefspítala í Hafnarfirði og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hefur þessi þróun hafist fyrir nokkru. í vaxandi mæli eru nú sjúkrahót- el af góðum „hótelstandard" rekin á lóðum sjúkrahúsa eða í eldri deildum, sem lagðar hafa verið nið- ur á sjúkrahúsum, og taka við fólki nokkrum dögum eftir aðgerð eða jafnvel samdægurs, t.d. frá fæðing- ardeildum. Sjúkrahótel „úti í bæ“ gagnast ekki vel því fólk vill vera innan seilingar frá meðferðardeild ef eitthvað ber út af, sem er þó sjaldan. Þetta fyrirkomulag kemur sér vel því að legutími hefur styst, jafnvel um of í sumum tilfellum. Heimilin eru verr í stakk búin til að taka við veiku fólki en áður. Fólk er yfírleitt mjög ánægt með þessa breytingu og rekstrarkostn- aður dregst saman verulega. (Upp- lýsingar frá Winnipeg Clinic, Canada, Háskólasjúkrahúsinu í Lundi, Svíþjóð og fleiri sjúkrahús- um í Bandaríkjunum.) Bretar, sem ekki eru taldir nýjungagjamir, hafa farið inn á þessa braut og telja að 15-20% sjúklinga bráðasjúkrahús- anna nýti sér þessa þjónustu (J. Epidemiology nóv. 1993). Ef haft er í huga að 60-70% af kostnaði við heilbrigðisþjónustu er vegna Ólafur Ólafsson „Svo virðist sem hjól efnahagslífsins séu far- in að snúast á ný. Verð- ur framtíðin svipuð því sem nú er að gerast víða í Vestur-Evrópu, þ.e. að við náum okkur upp úr efnahagslægð- inni, en verulegur hóp- ur manna verði afskipt- ur, þ.e. atvinnulaus, áfram? Og vonandi verður svo ekki.“ reksturs sjúkrahúsa er þetta fýsi- legur kostur. Nokkrir yfirlæknar hér á landi hafa skilið þessa þróun, en hvað dvelur stjórnendur sumra sjúkra- húsa? Langir biðlistar og fjárskort- ur kalla á þessar breytingar. Ihaldssemi getur verið dyggð en má ekki verða að áráttu. Erfðafræðileg læknisfræði opnar dyr framtíðarinnar Á Islandi eru miklir möguleikar á að stunda erfðafræðilega rann- sóknarstofu. Þar kemur til þekk- ing og áhugi okkar á ættfræði og miklir möguleikar á að veita góða erfðafræðilega ráðgjöf. Sú st-arf- semi er þegar hafin hér á landi á Ríkisspítölunum og af Krabba- meinsfélagi íslands. Möguleikar á lækningu á erfðagöllum eru innan seilingar. Vinna er hafin við undir- búning þessa en gæta þarf að rétt- indum borgaranna og skyldum heilbrigðisstétta. Röng forgangsröðun Umræða um forgangsröðun hér á landi hefur tekið á sig mynd HAPPDRÆTTI STYRKTARFÉLAGS YANGEFINNA VINNIN GSNÚMER 1. vinningur: Corolla hatcback XLi kr. 1.200.000 nr. 29730. 2.-5. vinningur: Bifreiðar að eigin vali á kr. 450.000 nr. 7135 - 9297 - 17295 - 25691. Félagið þakkar veittan stuðning. Gleðilegt nýár. ______________Styrktarfélag vangefinna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.