Morgunblaðið - 31.12.1993, Side 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993
FRIÐARVERÐLAUN
ENDI var formlega bundinn á aðskilnaðarstefnuna í Suður-Afríku
á árinu og í desember hlutu F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku,
og Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, friðarverðlaun
Nóbels.
MORÐIÐ á hinum
tveggja ára gamla
James Bulger í Bret-
landi vakti mikinn
óhug, ekki síst er í ljós
kom að morðingjarnir
voru tveir tíu ára
gamlir drengir. Þeir
þekktust af mynd af
eftirlitsskjá úr versl-
unarmiðstöð þeirri er
þeir náðu Bulger í.
BARIST
UM ÞING-
HCXES3H
BARIST var um Hvíta
húsið, þinghús Rúss-
lands, fyrstu dagana
í október. Sveitir hlið-
hollar þingmönnum
undir forystu Rúslans
Khasbúlatovs, forseta
þingsins, og Alexand-
ers Rútskojs, varafor-
seta, börðust við lög-
reglu og her en urðu
að lúta í lægra haldi.
VILLI-
■ÚH.MJIHIIilB
MOGADISHU
ALMENNINGUR á
Vesturlöndum fylltist
hryllingi er myndir
bárust af villimann-
legri meðferð Sómala
á líkum bandarískra
friðargæsluliða í
Mogadishu.
JARÐSKJALFTI A INDLANDI
UM 10.000 manns fórust í öflugum jarðskjálfta á Indlandi í októbér
og 65.000 manns misstu heimili sín.
HANDTAK
YITZHAK Rabin, for-
sætisráðherra Israels,
og Yasser Arafat,
leiðtogi Frelsissam-
taka Palestínumanna,
innsigla friðarsamn-
ing er þjóðirnar und-
irrituðu í september.
A milli þeirra stendur
Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti.
Erlendar
frétta-
myndir
asins
MYRÐA
■•hómæhji