Morgunblaðið - 31.12.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 31.12.1993, Qupperneq 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 félk í fréttum STUÐNINGUR Söfnuðu fyrir MND-félagið Nemendur 7 TR í Seljaskóla í Reykjavík safna árlega and- virði einnar vídeospólu á hvern nemenda og gefa til styrktar ákveðnu málefni. Á dögunum kvöddu þau Rafn Jónsson, for- mann MND-félags íslands á sinn fund og afhentu honum rösklega 8 þúsund krónur og voru myndirn- ar teknar við það tækifæri. SAMSTÍGA BRÆÐUR Hafa spilað bríds í tæp fimmtíu ár Allir bridsáhugamenn þekkja bræðurna Vilhjálm og Þráin Sigurðssyni. Þeir hafa verið í eld- línunni í bridsheiminum í um 50 ár. Vilhjálmur byrjaði að spila keppnisbrids 1946 en þá hafði Þráinn bróðir hans spilað í nokk- ur ár. Meira hefir borið á Vilhjálmi í gegnum tíðina. Hann spilaði m.a. á Norðuriandamóti 1951, 1953 og 1955 og á Evrópumótinu 1957. Vilhjálmur hefir þrívegis orðið íslandsmeistari í sveita- keppni og einu sinni í tvímenn- ingi en þá spilaði hann við föður þeirra bræðranna, Sigurð Krist- jánsson sparisjóðsstjóra á Siglu- firði. Meðfylgjandi mynd var tekin á jólamóti Bridsfélags Hafnar- fjarðar, sem halöið var sl. þriðju- dag. Þar voru þeir bræður meðal 108 para sem þátt tóku í mótinu en þeir taka þátt í nær öllum stærri mótum sem haldin eru hérlendis og eru þá undantekn- ingarlaust elzta par mótsins. Þrá- inn er 81 árs gamall en Vilhjálm- ur „aðeins" 67 ára. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Bræðurnir Vilhjálmur og Þráinn Sigurðssynir. Þeir sækja flest stærstu bridsmót hérlendis. Helztu vandamál þeirra í samskipt- unum eru þau að Vilhjálmur býr í Reykjavík en Þráinn á Akra- nesi. Við óskum öllum landsmönnum gleði og farsældar á komandi ári og þökkum fyrirþað liðna. J.Lhiísinu, Hringbraut 121, sími: 91 - 16670. og kynntum okkur kað nýjasta sem er að gerast í æfingasölum þar Þessar nýjungar œtluni við að kyniia viðskiptavinum okkar strax á iiýju ári omdu á mánudaginn eða hringdu í síma: 91 -16670 og íáðu nánari upplýsíngar HNEYKSLI Forsetabróð- ir í stöðugu klandri Roger Clinton, lítt þekktur popp- ari, sem á sér frægari bróður sem er enginn annar en Bill Clinton forseti Bandaríkjanna, er stöðugt að koma sér í klandur. Fyrir skömmu lennti han'n í ryskingum við unga konu í keiluhöll í New Jersey. Þau skiptust fyrst á fúkyrðum, síðan heilsaði hann henni að sjómannasið með þeim eftirmála að hún kærði hann og fékk nokkrar bætur. Þetta er í þriðja skiptið sem Roger fær illt umtal í blöðunum eftir að Bill komst til æðstu metorða í Bandaríkjunum. Roger fer fyrir poppsveit sem nefnd er „The Politics" og hafði sveit- in fengið samning við útgáfufélagið Atlantic. En þetta stöðuga vesen á Roger fer nú í taugarnar á þeim hjá Atlantic og hefur fyrirtækið rift samningnum og skilað sveitinni aftur til „Great Pyramid Records" sem er sæsmátt fyrirtæki í Chattanooga. Umboðsmaður Rogers, Butch Stone að nafni, er ekki hissa á þessu og sagði nýverið að hann væri búinn að vara Roger við. Segir Stone að Roger gæti náð nokkrum árangri sem poppari, bara ef hann gæti gleymt því að hann héti Clinton.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.