Morgunblaðið - 31.12.1993, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.12.1993, Qupperneq 30
JO B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 /'HaC/Gvendur' \/(xJcna.&u.SQörihn i/i'il uitcc hvort þú \/iL t vinna, yfiin/innu.- *' UJAIS6(-ASS/Ct>OCTUfi>fLT 11-11 01992 Farcus Cartoons/Distntxjled by UnNsrsal Press Syndicate Með morgunkaffiriu Ja, fyrst þú spyrð mig, þá finnst mér að hann hafi aug- un mín, nef mannsins míns og eyru fisksalans. sem er gift þessu fífli! HÖGNI HREKKVÍSI BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Helgispjöll Frá Jóhannesi Eiríkssyni: HÁTÍÐ ljóssins fór að þessu sinni fram með líkum hætti og venjulega hér í höfuðborginni í prýddum kirkj- um með fögrum söng. Götur og torg voru óvenju myndarlega skreytt og ný jólalög sáu dagsins ljós á hljómdiskum, flest þó vond með enn verri textum. Hitaveitan stóð sig með prýði í kuldakastinu fyrir hátíðar og sem betur fer veit enginn hve margir íhuguðu sjálfs- morð um þessi jól. Á aðfangadagskvöld klukkan sex fór ég með fjölskyldu minni í kirkju eins og ég hef gert í 30 ár og þar áður með föður mínum og móður. Þrátt fyrir kirkjuræknina er vafa- samt ég teljist kristinn, því enda þótt ég trúi á Jesúm og kenningar hans og jafnvel svolítið á heilagan anda, hefur sjálfur Jave alltaf vafist svolítið fyrir mér. Við lestur Gamla testamentisins verður manni ljós einstæð byggingarsaga þjóðfélags á stormasamri tíð og Jave kemur mér fyrir sjónir sem sameiningartákn og refsivöndur og ég get bara alls ekki hugsað mér að guð minn reki póli- tíkina kjóstu mig, ég styrki þig. Jesús er hins vegar barnið í spilltum heimi, byltingarmaðurinn sem þagga verður niður í, hinn vopn- lausi hermaður sem vinnur aðeins fullnaðarsigur í einni orustu, hinni síðustu — trúum við. Messan þessi á aðfangadagskvöld var ágætlega heppnuð að flestu leyti, kórinn söng frábærlega, vel studdur af tékkneskum orgelleik, en þó reis lofgjörðartónlistin hæst í dramatískum einsöng laglegrar konu í „Helga nótt“, sem er fastur liður í þessari messu. Hinn myndar- legi prestur talaði óvenju fast og sköruglega en þó með klökkva á stöku stað, enda nýbúinn að fá launahækkun að makleikum, sem virkaði meira að segja aftur fyrir sig. Hins vegar, svo ég víki að sjálf- um mér, man ég bara ekki eitt orð af því sem hann sagði nema trúar- játninguna_ sem þó er alltaf verið að breyta. Ég held minnisleysið stafí af því að ég var með hugann við annað verkefni, að telja stóla. í þetta sinn var kirkjan mín nefnilega hálf- tóm, sem sjaldan áður á aðfanga- dagskvöld og þó var veðrið með allra besta móti. I kirkjunni voru sem oft áður ýmsir máttarstóipar þjóðarinn- ar, forstjórar ríkisstofnana, eldri góðborgarar með vel tryggðan líf- eyrisrétt, fiskútflytjendur og kvóta- eigendur, allskonar braskarar af hinni betri sortinni og náttúrlega formaður sóknarnefndar, ungur lagðprúður maður, sem ég þekki hvorki haus né sporð á, enda safnað- arstarf ekkert í minni gömlu kirkju. í upphafi bílaaldar datt einhveijum í hug nafnið sjálfrennireið um þetta furðutæki, sem þó þurfti stöku sinn- um að stansa til að taka eldsneyti. Kirkjan íslenska er hins vegar ennþá nær því að vera sjálfrennireið, því að hún þarf aldrei að stoppa vegna eldsneytisskorts, sósíalismusinn í kerfinu fyllir á jafnóðum. Þetta mun framtíðinni þykja skrýtið „sistem“ í jafn háþróuðu markaðshagkerfi fijálshyggjandi lýðræðisríkisins. En hveijir voru það sem vantaði í kirkjuna á aðfangadagskvöld árið 1993? Komið til mín allir sem erfíði og þunga eruð hlaðnir, sagði Hann sem fæddist í jötunni í Betlehem fyrir meira en tvö þúsund árum, löngu fyrir daga Kjaradóms og sjálf- rennireiða hverskonar. Það eru erfiðir tímar og atvinnu- þref og gjörspillt þjóð í vanda. Verkalýðshreyfingin er nær dauða en lífi og sá sem veitti henni náðar- höggið er nú bankastjóri. Gömul sögn frá gyðingum komin hermir frá fiskimönnum sem lögðu frá sér netstubbana og fóru á sálnaveiðar með mikilli veiðikió. Nú á tímum hefur allri veiðitækni fleygt fram, enda fara menn létt með að fanga heila verkalýðshreyfingu og eru möskvamir gerðir af þúsund kaup- töxtum og sérkjarasamningum og ótal stéttarfélögum sem eru í felu- leik hvert við annað og gagnvart meðlimunum sjálfum. Já, það eru erfiðir tímar. Kaup- gjald í landinu hefur í raun verið fært niður. Aukavinna tekin af, yfir- borganir þekkjast varla og berstríp- aðir taxtamir eru staðreynd. At- vinnuleysi er líka staðreynd. Á sama tíma hafa lögfræðingamir verið að dæma sér og nokkrum vel megandi hópum betri kjör. Hér er öfugt far- ið að og sérstaklega ef miðað er við kristna siðfræði. En verkalýðshreyf- ingin lætur sér ekki bregða og seg- ir: Slóstu mig — og svo segir hún ekki meira þann daginn. Fyrir 60 ámm hafði bæjarstjórinn í Reykjavík tvöfalt verkamannskaup í laun og þótti nokkuð gott. Nú hefur borgarstjórinn tíföld verka- mannslaun og þykir heldur klént. Væri ekki ráð að ASÍ og öll hreyf- ing launamanna krefðist rannsókn- ar á launakerfi hins opinbera, raun- tekjum og vinnutíma. Að því loknu ættum við sem borgum þessum mönnum kaupið að gera upp við oss hvaða launamunur getur talist eðli- legur og réttlátur. Síðan gætu þess- ar hreyfingar litið í eigin barm og rannsakað eigin launataxta og kaup sinna eigin starfsmanna með ein- földun í huga, því að ennþá mun gilda hið fomkveðna: Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Þessi orð hafa í raun og vem ekk- ert með pólitík að gera heldur heil- brigða skynsemi og ég beini þeim ekki að einhveijum sérstökum stétt- um, heldur allri þjóðinni. Við skulum á vondri tíð standa saman og vinna að réttlátara þjóðfélagi. Gleðilegt nýtt ár. JÓHANNES EIRÍKSSON, prentari, Fjarðarseli 31, Reykjavík. Víkveiji skrifar Aramót hafa verið breytileg eftir löndum og tímum. Hérlendis verður 1. janúar að nýársdegi á 16. öld, og virðist sú venja fylgja siða- skiptum. Þetta segir í Sögu dag- anna, sem nýlega kom út og er eft- ir Árna Björnsson þjóðháttafræðing. Bók þessi er mjög skemmtilegt uppl- sláttarrit um sögu daganna og hvernig mál hafa þróazt um aldir. En ef við kíkjum svolítið nánar á hvað Árni segir um áramótin, þá segir hann, að fyrir siðaskipti hafi áramót verið talin á jólum, og 1. janúar var þá áttundarhelgi jóla- dagsins. Jólanótt var því áður hið sama og nýársnótt og hafa þær svip- aða drætti í þjóðtrú. Á síðari árum hefur slíkur átrúnaður færzt æ meir yfir á núverandi nýársnótt og þrett- ándanótt. Meða! annars tala kýr á þeim nóttum, selir fara úr hömum, kirkjugarður rís og álfar flytjast búferlum. Þeir sækja þá heim mennska menn, og geta eignast auðævi þeirra með því að sitja þolin- móðir á krossgötum. Álfadans á nýársnótt eða þrettánda frá því á síðari hluta 19. aldar tengist þessum álfasögum. Áramótabrennur hófust í lok 18. aldar, fyrst sem skemmtun skóla- pilta í Reykjavík. Fylgdu þessu blysf- arir og ýmis ljósagangur. Á síðari hluta 19. aldar breiddist brennusið- urinn út um landið. Úr brennum dró á hernámsárunum á höfuðborgar- svæðinu, en þær hófust aftur af miklum krafti eftir miðja öldina. xxx að er ærið breytilegt eftir tíma- bilum, löndum og jafnvel hér- uðum hvenær nýtt ár var talið hefj- ast. Rómveijar létu árið í fyrstu hefjast með marzmánuði eins og sjá má af því að síðustu fjórir mánuðirn- ir í okkar ári draga nöfn sín af lat- neskum töluorðum, 7-10, septem, octo, novem, decem. Á 2. öld fyrir Krist færðu Rómveijar síðan nýárs- daginn til 1. janúar. Konstantínus mikli gerði 1. september að nýárs- degi á 4. öld og hélzt hann lengi í austrómverska ríkinu enda gegnir sá dagur lykilhlutverki í því 19 ára tímabili sem kallast tunglöld. Flestir páfar héldu sig þó við 1. janúar, en sumir hölluðust að 1. september. Það gerði til að mynda hinn áhrifamikli páfi Gregoríus 7. á ofanverðri 11. öld. í byijun 9. aldar færði Karl mikli nýársdaginn í ríki sínu til 25. marz eða boðunardags Maríu. í Englandi byijuðu menn árið á jóladag fram til 12. aldar, sem mátti ekki síður kalla rökrétt, þar eð tímatalið var miðað við fæðingu Krists. Þá tóku þeir einnig upp 25. marz sem nýárs- dag. Jóladagur var mjög algengur sem upphaf árs í Norður-Evrópu, en sumir miðuðu við páska. Árið 1582 fyrirskipaði Gregoríus páfi 13. að árið skyldi hefjast 1. janúar. Var það boð ítrekað árið 1691. Þessu var ekki sinnt í löndum mótmælenda í Norður-Þýzkalandi og Danmörku fyrr en árið 1700 og Bretar héldu sig við 25. marz til ársins 1752, þegar Georg konungur 2. færði ný- árið loks til 1. janúar. xxx á má geta þess að orðið gaml- árskvöld sést ekki í rituðu máli fyrr en árið 1791 og gamlárs- dagur ekki fyrr en með þjóðsögum Jóns Árnasonar 1862. Fyrst^ eru þessi heiti færð inn á almanak Ólafs S. Thorgeirssonar, sem gefið var út 1897. I almanak Þjóðvinafélagsins kemst orðið gamlársdagur ekki inn fyrr en 1923. xxx En hvað sem allri sögu áramót- anna líður eru áramót á mið- nætti næstkomandi. Árið 1993 kveð- ur „og aldrei það kemur til baka“ eins og segir í sálminum, en upp rís árið 1994. Um leið og Víkveiji óskar þess og vonar að hið nýja ár beri í skauti sér velsæld og hamingju fyrir Islendinga, segir hann við lesendur sína og alla landsmenn:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.