Morgunblaðið - 14.01.1994, Page 1
HEIMILI
ira
FOSTUDAGUR14. JANUAR1994
BLAÐ
Byggingarvísitalan
Göngustígar
og umferö
Að þessu sinni fjallar Bjarni
Olafsson um göngustíga í
þætti sínum, Smiðjan. Hann
segir m. a., að þessir stígar
hafi sannað gildi sitt. Áhugi
fólks fyrir göngum og skokki
utanhúss hefur vaxið mikið á
undanförnum árum. Sum íbúð-
arhverfi eru þeim kostum búin,
að stígar fyrir hjólandi og gang-
andi vegfarendur liggja fjarri
bílaumferð. - M
^íytt bygg-
íngarsvæði
í Iiópavogi
Mikil ásókn hefur verið í
byggingarlóðir í Kópavogi
undanfarin ár. Uppbyggingin
þar hefur verið mjög hröð og
nú er lóðaúthlutun þar íbæ sjö
árum á undan áætlun. Vegna
eftirspurnar hefur verið ráðizt f
að skipuleggja nýtt byggingar-
svæði í Fífuhvammslandi austan
Reykjanesbrautar. í viðtali við
Halldóru Bragadóttur, arkitekt
hjá Bæjarskipulagi Kópavogs,
hér í blaðinu f dag er fjallað um
þetta nýja byggingarsvæði, en
hún hefur skipulagt það. Þar er
gert ráð fyrir 280 íbúðum með
tæplega 1.000 íbúum auk mynd-
arlegs atvinnusvæðis fyrir verzl-
un, þjónustu og iðnað. Úthlutun
á lóðum á að hefjast í marz og
gert er ráð fyrir, að gatnagerð
fari fram f sumar en byrjað verði
á byggingaframkvæmdum
snemma í haust. _
14
Verö-
hjöónun
áóuslu
3 mánuói
Vfsitala byggingarkostnaðar
var 195,5 stig i' desember
og var þannig 0,1% lægri en í
nóvember. Þessi vísitala gildir
fyrir janúar 1994. Sl. tólf mán-
uði hefur byggingarvísitalan
hækkað um 3,1%, en undan-
farna þrjá mánuði hefur hún
lækkað um 0,1%, sem jafngildir
0,4% verðhjöðnun á ári. í fyrra
var vísitala byggingarkostnaðar
að meðaltali um 2,2% hærri en
árið þará undan.
Breytingar á byggingarvísi-
tölu eru mikill mælikvarði á þró-
un verðbólgunnar í landinu, en
breytingar á þessari vísitölu
voru lengi vel mjög stórstígar
og hún nær 17 þúsund faldaðist
átfmabilinu 1939-1991. Árleg
hækkun hennar var þá að með-
altali 20,6%. Frá árinu 1989 til
1990 hækkaði byggingarvísital-
an um 17,8%, en frá árinu 1990
til 1991 hækkaði hún um 7,6%
og árjð 1991 hækkaði hún um
8%. Á árinu 1992 var þessi vísi-
tala mjög stöðug og hækkaði
þá aðeins um 2,8% miðað við
árið þar á undan. í fyrra var
hækkunin 2,4%.
Á myndinni má sjá
unina á síðasta ári, en
eftir mitt ár hækkaði
vísitalan talsvert í
kjölfar gengisfelling-
arinnar.
ÞRÓUN BYGGINGARVÍSITÖLU 1993
Þriggja og 12 mánaða breytingar, umreiknaðar til árshækkunar miðað við hækkun vfsitölunnar
■ * ILísi •- • |
1 , |
I | •
. ________________________
§ • ...” V. f ...
ÞRIGGJA MÁNAÐA BREYTING
TÓLF MÁNAÐA BREYTING