Morgunblaðið - 14.01.1994, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994
llóll flytui íh>
Hkipliolli 50B
— Meiri hreyfing á nýjum íbúó-
um en áóur, segir Franz
Jezorski fasteignasali.
FASTEIGNASALAN Hóll flutti fyrir skömmu í nýtt og stærra
húsnæði að Skipholti 50B í Reykjavík, en hún var áður að Borgar-
túni 18. Þar voru starfsmennirnir tveir, en þeir eru nú orðnir sex
og húsnæðið þess vegna orðið of lítið. Því hefur þessi fasteigna-
sala haslað sér völl í 150 ferm húsnæði á nýjum stað, þar sem öll
aðstaða er mun betri. Kom þetta fram í viðtali við Franz Jezorsk,
lögfræðing og fasteignasala hjá Hóli.
Starfsmenn fasteignasölunnar Hóll, talið frá vinstri: Runólfur Gunnlaugsson, Franz Jezorski, Finnbogi
Kristjánsson, Ásmundur Skeggjason, Guðlaugur Þorsteinsson og Lilja Georgsdóttir.
Að Skipholti 50B erum við í
mjög góðum húsakynnum á
afar hentugum stað miðsvæðis í
borginni, sagði Franz. — Þess má
geta, að Runólfur Gunnlaugsson
rekstrarhagfræðingur, sem áður
rak fasteignasöluna Austurströnd
á Seltjamarnesi, söðlaði um í
desember sl. og gekk til liðs við
okkur.
— Við hér höfum reynt að koma
fram með nýjungar í fasteignasölu
t. d. opið hús, en með því er átt
við, að eignir era auglýstar til
sýnis á ákveðnum tíma fyrirfram,
sagði Franz ennfremur. — Þá geta
þeir, sem áhuga hafa, komið á
þeim tíma til þess að skoða við-
að liggur ekki fyrir að hús-
bréfadeildin verði fyrir veru-
legum útlánatöpum í framtíðinni.
Um það getur enginn sagt. Hús-
bréfakerfið er enn ungt. En það
gefur auga leið,
að atvinnuleysi,
veikindi eða ann-
að ófyrirséð get-
ur kollvafpað
áætlunum íbúð-
arkaupenda, eins
og dæmin sanna
á undanförnum
mánuðum og
misseram. Verði atvinnuleysi af
komandi eign, án þess að gera boð
á undan sér. Þetta hefur mælzt
mjög vel fyrir. Bæði seljendum og
kaupendum þykir þetta mjög hent-
ugt og árangurinn af því hefur
verið góður.
Franz kvað mikla hreyfingu
vera nú á markaðnum og sagði: —
Það er mikið um fyrirspurnir og
greinilega mikill áhugi til staðar
hjá mörgum á fasteignakaupum
nú. Ég þakka það fyrst og fremst
vaxtalækkuninni í haust, enda eru
aðstæður núna gjörbreyttar miðað
við það sem áður var. Kaupendum
bjóðast miklu betri kjör en fyrir
aðeins fáeinum mánuðum og selj-
endur fá meira fyrir sín húsbréf
þeirri stærðargi'áðu sem nú er
varanlegt hér á landi á næstunni,
er óhjákvæmilegt að það skaði
ekki einungis þær fjölskyldur sem
þar eiga hlut að máli, heldur komi
jafnframt til með að hafa áhrif á
lánastofnanir og þar með á hús-
bréfakerfið. Þess má geta, að í
húsnæðislánakerfum í nágranna-
löndunum, sem eru sambærileg
við húsbréfakerfið hér á landi, er
vaxtaálag svipað því sem nú hefur
verið sett á hér.
Heppileg skilyrði
Segja má, að ef nauðsynlegrt var
vegna minni affalla. Báðir hagnast
á þessu og því eykzt hreyfingin á
markaðnum.
Munurinn á húsbréfunum sézt
bezt, ef litið er til baka. Fyrst
vora þau með 5,75 vöxtum. Síðan
voru vextirnir hækkaðir upp í 6%
og nú hafa þeir lækkað niður í
5%. Húsbréfakerfið hefur að þessu
leyti aldrei verið hagstæðara en
nú og það er greinilegt, að fólk
vill nota tækifærið, þar sem það
er ekki sannfært um, að þessi
hagstæðu vaxtakjör eigi eftir að
haldast.
að leggja á vaxtaálag í húsbréfa-
kerfínu, þá hafi aldrei fyrr verið
jafn heppilegt að gera það og nú.
Vextir hafa ekki verið lægri frá
upphafi húsbréfakerfísins í
nóvember 1989, og þrátt fyrir
vaxtaálag ættu afföll við sölu hús-
bréfa að verða mun lægri en þau
vora áður en vextir á fjármagns-
markaði lækkuðu í nóvember síð-
astliðnum. Skilyrðin fyrir vaxtaá-
lagi era því með besta móti.
Framboð
húsbréfa
Fasteignaveðbréf hafa safnast
upp í töluverðum mæli, þar sem
þeim hefur ekki verið unnt að
skipta fyrir húsbréf síðan um miðj-
an desember. Nú þegar opnast
fyrir það aftur, má gera ráð fyrir
að margir muni vilja selja hús-
bréf. Gerist það, getur ávöxtunar-
krafan á fjármagnsmarkaði hækk-
að, ef framboð á húsbréfum verður
meira en eftirspurnin. íbúðaselj-
endur, húsbyggjendur og aðrir
sem eiga húsbréf ættu að fylgjast
vel með ávöxtunarkröfunni og þar
með afföllunum, og taka ákvarð-
— Það er líka greinilega mun
meiri hreyfíng nú á nýbyggingum
en var, sagði Franz ennfremur. —
Skýringin er vafalaust sú, hve af-
föllin á húsbréfunum skipta miklu
máli á þeim markaði, en það hefur
tíðkazt að seljendur og kaupendur
nýrra íbúða skipti afföllunum á
milli sín. Þessi afföll fóru upp í
25%, þegar þau voru hvað mest,
en era nú aðeins um 5%. Vegna
þess hve lítil afföllin eru nú, skipt-
ir þetta miklu minna máli en áður
og því eykst eftirspurnin eftir nýj-
um íbúðum nú.
anir um sölu þeirra að teknu tilliti
til þessa, ef það er mögulegt.
Líflegur
fasteignamarkaður
Vaxtalækkunin í nóvember
hafði jákvæð áhrif á fasteigna-
markaðinn. Eftirspurn eftir íbúð-
arhúsnæði hefur aukist veralega
og svo er að sjá sem mun meiri
bjartsýni ríki á þessum markaði
en fyrir örfáum mánuðum.
Áhrif vaxtaálags
Greiðslubyrði af húsbréfalánum
kaupenda mun ekki breytast frá
því sem var, með tilkomu vaxta-
álags í húsbréfakerfinu, nema ef
íbúðarverð hækkar af þessu til-
efni. Seljendur íbúða munu hins
vegar fá minna fyrir þau húsbréf
sem þeir selja, sem nemur um 25
þúsund krónum af hverri milljón
af húsbréfum. Sé tekið mið af því
hver afföllin voru við sölu hús-
bréfa áður en vextir lækkuðu í
nóvember, verður að teljast ólík-
legt að vaxtaálag í húsbréfakerf-
inu muni hafa veruleg áhrif á fast-
eignamarkaðinn.
Franz var spurður að því að
lokum, hvaða áhrif nýr flokkur
húsbréfa með 4,75% vöxtum í stað
5% kunni að hafa á markaðinn,
en þessi bréf verða gefín út 15.
janúar. — Fyrir kaupandann
breytir þetta engu, þar sem hann
greiðir sömu vexti og áður vegna
0,25% vaxtaálags, sagði Franz. —
Fyrir seljendur skiptir þetta ein-
hveiju máli, þar sem afföllin
hækka lítillega eða upp í liðlega
7%. Eftir sem áður eru þau rninni
en oftast áður, þegar litið er til
sögu húsbréfakerfisins.
Fast-
eigna-
sölur
í blaðinu
Agnar Gústafss. 11
Ármannsfell 28
Ás 24
Ásbyrgi 12
Berg 28
Borgareign 22 & 26
Eignaborg 24
Eignahöllin 26
Eignamiðlunin 7
Eignasalan 12
Fasteignamark. 5
Fasteignamiðstöðin 16
Fasteignamiðlun 25
Fjárfesting 18
Framtíðin 12
Garður 24
Gimli 8-9
Hátún 15
Hóll 17
Hraunhamar 19
Huginn 27
Húsakaup 21
Húsvangur 10
íbúð 14 & 28
Káupmiðlun 22
Kjörbýli 20
Kjöreign 13
Laufás 4
Lyngvík 22
Óðai 23
Séreign 26
Skeifan 1 1
Stakfell 6
Vagn Jónsson 4
Valhús 20
Þingholt 3
Vettvangur
húsbréfaviðskipta
Hjá okkur færðu ráðgjöf og þjónustu
í húsbréfaviðskiptum.
? Vertu velkomin(n).
! L 9,
Landsbanki LANDSBREF HF.
» .. i ■
Isiands Löggilt veröbréfafyrirtæki.
Bankl allra landsmanna Aöili aö Veröbréfaþingi íslands.
Markaðurinn
Vaxtaálag í hnsbréfakeifínu
EFTIR næstu helgi verður byrjað að skipta á húsbréfum fyrir
fasteignaveðbréf hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins,
með 0,25% Iægp*i vöxtum á húsbréfunum en á fasteignaveðbréfun-
um. Vextir á fasteignaveðbréfum, sem eru hin eiginlegu langtíma-
lán íbúðarkaupenda, verða áfram 5%. Vextir á húsbréfum, sem
seljendur íbúðarhúsnæðis fá í hendur í skiptum fyrir fasteignaveð-
bréf sem kaupendur gefa út, lækka úr 5% í 4,75%. Með þessu
er tekið upp vaxtaálag í húsbréfakerfinu. Tilgangurinn með þess-
ari breytingu er að byggja upp sérstakan varasjóð hjá húsbréfa-
deildinni til að mæta hugsanlegum útlánatöpum i framtíðinni.
eftir Grétar J.
Guðmundsson