Morgunblaðið - 15.01.1994, Side 1
Listin
og lífið
eiga að
veraá
hreyfingu
FARANDSÝNING á verkum eftir
fluxus-listamanninn Geoffrey
Hendricks stendur yfir á Kjarv-
alsstöðum um þessar mundir.
Hingað er hún komin frá Óðinsvé-
um í Danmörku og héðan fer hún
til Finnlands. Hendricks sagðí í
samtali við Morgunblaðið , að
þau spönnuðu 30 ára feril hans
og þróun sem listamanns. En
hvernig telur Hendricks að list
sinni sé best lýst?
Morgunblaðið/Kristinn Ingason
erk mín eru mjög persónuleg og á ýmsan hátt
ævisöguleg. Oft flétta ég saman ýmsa þætti ævi
minnar, annaðhvort hlut eða minningu, saman við eitt-
hvað sem stendur á móti til samanburðar. Oft er það
himinninn sem stendur andspænis. Hann er fastur
punktur, en engu að síður síbreytilegur. Hann einfald-
lega er og gefur því sterkar skírskotanir. Ég reyni með
þessu móti að sýna fram á skyldleika ólíkra hluta,“ seg-
ir Hendricks.
Ef litið er á verk listamannsins kennir þar margra
grasa. Himinn leikur þar stórt hlutverk. Eru þarna heilu
„dagbækur“ tunglgangs, séð frá ýmsum stöðum. Má
nefna Berlín. í sumum tilvikum eru myndirnar festar á
milli þrepa í stigum rétt eins og stigarnir eigi að opna
leið áhorfenda til himna. En þarna eru einnig hlutir sem
erfiðara er að átta sig á. Hvernig útskýrir Hendricks til
dæmis þá áráttu að mála himininn á gamalt skótau?
Jú, þeg-
ar ég tala
um að
sýna
skyld-
leika ólíkra hluta, þá er eitt dæmið skyldleiki andans og
efnisins. Þessi verk eru auðvitað ekki í anda þess sem
fólk hefur fyrir augum sér daglega. Þetta er öðruvísi.
Virkar meira eins og draumar. Stundum hef ég slíkar
draumfarir, þegar hlutirnir smella saman og liggja Ijósir
fyrir hugskotssjónum mínum. Ef til vill þó á fáránlegan
hátt sem enginn skilur nema ég sjálfur. En það er þó
ekki algild útlistun. Sum verkin höfða til persónulegrar
upplifunar, önnur persónulegrar þróunar."
Þegar litið er yfir sýningu sem spannar þrjátíu ára
feril er ekki úr vegi að spyrja listamanninn hvort hann
sé kominn á einhvern leiðarenda, eða hvort slík enda-
stöð sé í sjónmáli. Hendricks lætur þess getið að hann
geti ekki ímyndað sér listina með einhverja endastöð.
„Ég get ti| dæmis svarað þessu með þeim hætti, að ég
er ekki nærri eins spenntur fyrir svörum og ég er fyrir
spurningum. Ég hef fundið margar áleitnar spurningar
í minni listsköpun, en minna af svörum og þannig vil
ég gjarnan hafa það. Stöðuga leit. Nafnið á sýning-
unni, „Day into Night", gefur þetta dálítið til kynna. Það
bendir til Ijósaskipta þegar hlutir eru óljósir og menn
verða að rýna vel á þá til að átta sig á þeim. Nafnið
er afsprengi hugmyndar sem ég fékk frá mynd eftir
Chagall, „Between Dog and Wolf“ (milli hunds og úlfs),
þ.e.a.s. sá tími sem maður átt-
ar sig ekki á því hvort maður
er að horfa á úlf eða hund."
- En hvers vegna finnst fátt
af svörum. Beinist list þín ef til
vill að því að sneiða fram hjá þeim?
„Þannig er, að ég tengist svoköliuðum fluxus-hópi.
meðal þekktra listamanna í þeim hópi má nefna Yoko
Ono. Frumkvöðull hópsins er Lithái að nafni George
Maciunas. Fluxus þýðir hreyfing og það felur ekki aðeins
í sér leit í listsköpuninni, heldur einnig ferðalög með list-
ina, hring eftir hring umhverfis jörðina. Maciunas sá
sýnir þar sem fluxus-listin fór í slíkar hringferðir, braust
áfram með fulltingi óstöðvandi farartækja á borð við
jeppa og tundurduflaslæðara. Óháð öllu og öllum. Listin
óumdeilanleg, listamennirnir sjálfum sér nógir. Það er
eitthvað við þetta lífsviðhorf, þetta hugarástand, að leyfa
lífinu og listinni að vera á stöðugri hreyfingu, sem heill-
ar mig og fleiri. Það er eitthvað villt og frumstætt við
það.“
Nánari útlistingu á listsköpun Hendricks er að finna
í eftirfarandi línum úr kynningu á sýningunni sem Kjarv-
alsstaðir sendu frá sér: „Verk hans eru síst af öllu ein-
föld, því í augum hans er heimurinn flókinn og margræð-
ur og sem listamaður og einstaklingur tekur hann ávallt
réttu og nauðsynlegu leiðina fram yfir þá sem er styst
og auðveldust. Þau eru á margan hátt leið hans til að
kanna samspil sjálfsmyndarinnar og hins mikla leyndar-
dóms tilverunnar." Og einnig segir: „Verkin hafa yfir sér
raunsæi, en eru listamanninum leið til að fjalla um heim-
inn, náttúruöflin og hringrás náttúrunnar. Það sem venju-
lega er í bakgrunni er sett í forgrunn."
Hendricks er fæddur í Bandaríkjunum árið 1931 og
nam list við ýmsa háskóla. Árið 1962 útskrifaðist hann
með MA-gráðu í list frá Colombiu-háskóla. Hann hefur
haldið um 30 einkasýningar víða um heim, m.a. í Nýlista-
safninu við Vatnsstíg árið 1984. Hann hefur einnig verið
með í fjölda samsýninga, gefið út myndbönd, bækur og
fjölrit. Sýningin stendur til 13. febrúar.
GEOFFREY HENDRICKS FLUXUS-
LISTAMAÐUR Á KJARVALSSTÖÐUM
gg