Morgunblaðið - 15.01.1994, Síða 5
4 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 1994
AMSTERDAM
LÍTT þekkt ópera eftir Mozart var
frumsýnd í Tónlistarhúsinu Het Muzi-
ektheater í Amsterdam 12. janúar. II
Re Pastore er eitt af síðustu æsku-
verkum hans. Einsöngvararnir koma
frá Bandaríkjunum og Þýskalandi; Bruce Ford, Ter-
esa Ringholz, Christine Schafer, Petra Lang og Ric-
hard Croft. Hollenska kammersveitin sér um tónlist-
arflutning undir stjórn Graeme Jenskins og leikstjórn
er í höndum Pierre Audi.
Ballettar eftir Lucindu Childs verða í sama húsi
1 .-3. febrúar, dansaðir af flokki kenndum við höfund-
inn. Á dagskránni eru þrennt: Rhythm Plus við tón-
list eftir Gyorgy Ligeti og Luc Ferrari. One and One
við tónlist eftir lannis Xenakis og Concerto við tón-
list eftir Henryk Mikolay Górecki.
Gustav Leonhardt stjórnar Barrokhljómsveit og
einsöngvurunum Moniku Frimmer, Marten Root,
Marcel Ponseele og Francois Fernandez á tónleikum
í Yakult salnum í kauphöll Amsterdam (Beurs van
Berlage) hinn 21. janúar. Á efnisskránni eru Kantöt-
ur eftir Bach og verk eftir Telemann.
í Carré leikhúsinu lýkur Mozart-veislu á morgun
og verður óperan Porgy og Bess eftir Gershwin á
fjölunum frá 18. janúar til 6. febrúar. Flytjendur eru
frá New York Harlem Theater.
Konunglega Concertgebouw-hljómsveitin heldur
nokkra tónleika í stóra saln-
um í Concertgebouw í Amst-
erdam. Hinn 26. janúar verð-
ur stjórnandi Charles Dutoit,
einleikari Chantal Julliet, fiðla.
Á efnisskránni eru verk eftir
Bizet, Szymanowski og Sa-
int-Saens.
Annan febrúar er svo röðin
á ný komin að Riccardo Cha-
illy aðalstjórnanda hljóm-
sveitarinnar að stjórna tón-
leikum. Einsöngvari er Hákan
Hagegard, baritón, og á efn-
isskránni eru verk eftir We-
ber, Diepenbrock og Rac-
hmaninow.
Gestur á næstu tónleikum
Gidons Kremer, hinn 30. jariúar í stóra salnum í
Concertgebouw, verður sænska útvarpshljómsveitin
undir stjórn Esa-Pekka Salonen. Á efnisskránni eru
verk eftir Sandström, Berg og Stravinsky.
í hádeginu á miðvikudögum (klukkan 12.30) eru
haldnir stuttir tónleikar í stóra salnum í Concertgebo-
uw. Flytjendur koma úr ýmsum áttum og efnisskrár
eru mjög fjölbreyttar, en iðulega er tónlistarfólkið
að undirbúa tónleika í fullri lengd. Aðgangur er alltaf
ókeypis.
í litla salnum verður Schumann Ensamble með
aðra tónleika úr tónleikaröð sinni 18. janúar. Að
þessu sinni leika Willem Brons og félagar strengja-
kvartett eftir Mendesllohn, Trio fyrir klarinett, víólu
og píanó eftir Escher og Silungakvintettinn eftir
Schubert.
Um miðjan janúar verður opnuð sýning á verkum
eftir Baltasar í Íslandsgalleríinu í Haag.
Kristín Waage og Reynir Þór Finnbogason
BERLÍIM
EINS og fyrri daginn er það í Berlín sem mest er
að gerast í þýsku leikhúsi og óperu. í Volksbuhne
er umtalaðasta sýningin á fjölunum, „Kuhnen ’94“,
sem ungur maður í uppreisnarhug, kvikmyndaleik-
stjórinn Schlingensief ber ábyrgð á. Verkið, sem ber
nafns leiðtoga nýnasista sem lést úr eyðni nú fyrir
skömmu, gerir allt sem hugsast getur til að ganga
fram af góðborgurunum, en reynir þó að koma fram
þeim boðskap að Adolf gamli geti gengið aftur hve-
nær sem er. Þekktari leikstjórar standa á bak við
tvær Ibsen sýningar; Frank Castorf færir upp Kon-
una við hafið í Volksbúhne, sýningin reynir að vera
frumleg en því miður á kostnað verksins, en Heddu
Gabler uppfærsla Andreu Breth í Schaubúhne er
hinsvegar lofuð í hástert í pressunni. í óperunni er
um þessar mundir hægt að sjá Valkyrju og Tristan
og ísolde Wagners, Töfraflautu Mozarts, Brúðkaup
Figarós og Traviötu.
SæmundurG. Halldórsson
BONN OG KÖLN
SJÁLFSAGT er að mæla með tveim stórum myndlist-
arsýningum í Bonn og Köln. í Bonn má sjá í sýningar-
höll Sambandslýðveldisins stóra yfirlitssýningu á 130
verkum þýska nútímalistamannsins Gerhard Richter,
sem fluttist alfarinn frá Aust-
ur-Þýskalandi til Dússeldorf
1961. Á sýningunni ber mest
á 48 portrettum af þekktum
persónum eins og Thomas
Mann, André Gide, Albert
Einstein og fleirum, sem
máluð eru eftir Ijósmyndum.
Nýjustu verkin eru óhlut-
bundin og í stíl ofurraunsæis.
Einn myndaflokkur vekur sér-
staka athygli: „18. október
1977". Þeir sem til þekkja
skilja strax að hér er átt við
dularfullan dauðdaga foryst-
uliðs Baader-Meinhofssam-
takanna í Stammheimfangelsinu.
Myndirnar, sem eru málaðar eftir
blaðaljósmyndum, eru allar gráar og
óskýrar, sem á að vísa til óupplýstra
örlaga þessa unga byltingarfólks.
Þegar komið er út úr sýningarhöllinni
er alltaf hægt að mæla með impres-
sjónistunum í Borgarlistasafninu í Bonn sem stendur
andspænis hinu safninu, þó ekki væri nema til að
sjá frábæran arkítektúr þessara tveggja nýbygginga.
í Köln er í Wallraf-Richartz safninu himnesk feg-
urð á sýningunni „Stefan Lochner - meistari frá
Köln". Lochner fæddist árið 1400 og lærði list sýna
m.a. í Niðurlöndum og á Ítalíu. Þekktasta verk Loc-
hners er altaristafla, María með Jesúbarnið og dýrl-
ingar Kölnborgar standa hjá, sem alltaf er hægt.að
sjá í dómkirkjunni. Á sýningunni eru einnig mörg
verk samtímamanna Lochners á síðmiðöldum eins
og Jan van Eyck og Rogier van der Weyden.
SGH
FLÓRENS
OFT er sagt að þessi borg á Mið-Ítalíu sé líkust stórri
listsýningu með öll sín gömlu og fallegu mannvirki
og söfnin Uffizi og Palazzo Pitti og önnur sem fylla
fjóra tugi. Hér verður sá kostur tekinn að segja frá
því helsta sem
við ber í lista-
lífi borgarinn-
ar næstu
daga.
I Pergola
leikhúsinu eru
eftirfarandi
tónleikar á
döfinni: Hinn
15. janúar Claudio Abbado
leikur Lazar
Berman á fiðlu verk eftir Schuman og Liszt. Hinn
16. janúar kemur Vladimir Tretiakov fiðluleikari með
verk allt frá Mozart til Grieg, frá Dvorak til Tsjajkovskí
og allt til Saint-Saens. 20. janúar spilar Chamber
Orchestra of Europe undir stjórn Claudio Abbado,
en einleikari er ungur fiðluleikari, David Garret. Leik-
in verður tónlist eftir Ravel, Mozart og Haydn. Fone’
kvartettinn kemur fram 22. janúar með verk eftir
Sjostakovitsj Bartok og
Tsjajkovskí. Síðan heldur Andrei
Gavrilov píanótónleika hinn 23.
og leikur verk eftir Bach, Schu-
bert og Ravel. Hinn 29. janúar
heldur Hagen kvartettinn tón-
leika með verkum eftir Beethov-
en, Weber og Mozart.
Af óperum þer hæst Rakarann
frá Sevilla sem sýndur verður frá
23. janúar til 10. febrúar.
í Flórens skortir aldrei sýning-
ar listmuna og mynda. í Badini safninu stendur ein
yfir á teikningum af skartgripum frá árinu 1903 til
dagsins í dag, og er hún opin til 18. janúar. í Uffizi
safninu stendur yfir sýningin „3 aldir teikninga" og
er það sýning á verkum Philip Buncey og stendur
hún yfir til 22. mars.
Hinn 21. janúar opnar sýningin „Martin-Begue: 2
óperur og 1 ballett" í Marino Marini safninu og er
hún opin til 6. febrúar. Sigfrido Martin-Begue er
ungur myndlistarmaður, leiksviðsmaður pg búninga-
hönnuður en hann varð mjög vinsæll á Ítalíu og er-
lendis þegar hann setti upp Coppelíu. í ár sér hann
um uppsetninguna á Rakaranum frá Sevilla í Borgar-
leikhúsinu. Á sýningunni eru um 70 hlutir: Skyssur,
búningar og mjög frumlegir sviðshlutir sem eru til
marks um sköpunargáfu þessa 34 ára gamla lista-
manns. Sýningin er sett upp í samvinnu við La Nu-
ova Pesa galleríið í Róm og er hún virkileg sprengja
lita og hugmynda sem mun vekja undrun sýningar-
gesta.
Hinn 28. janúar opnar sýningin „Perluhálsfestin"
í Medici Riccardi höllinni og stendur hún yfir til 15.
mars. Á sýningunni eru um 70 hlutir frá 13. til 20.
aldar og koma þeir frá 15 söfnum. Þetta er ekki
sýning á perlufestum, heldur stafar nafngift sýningar-
innar af menningarlegu gildi munanna.
Bergljót Leifsdóttir
HAMBORG
HÉR vekja um þessar mundir austur-evrópskir lista-
menn mikla athygli, í desember var sölusýningin ART
Hamburg nær eingöngu helguð listamönnum úr
þessum hluta álfunnar og nú er mikil sýning í gangi
á rússneskri framúrstefnu: „Noma" í Kunsthalle til
30. jan. Ilja Kabakov sýnir Malewitsj og konseptlista-
menn sjöunda og áttunda áratugsins í Moskvu. Sýn-
ingin er byggð upp sem tólf sjúkrahúsherbergi, hvert
helgað einum listamanni. Trúlega ber að skilja þetta
sem tákn fyrir þrúgandi andrúmsloft Brésnefstímans.
SGH
HELSINKI
AF listviðburðum í Helsinki langar mig að segja frá
tveim sýningum. í Listahöllinni (Taidehalli/Konsthal-
len, Nervandersgötu 3, aftan við Þinghúsið) er í jan-
úar sýning þar sem leitað er um ólík(leg)ustu kima
myndlistarinnar. Allt frá rauðum vélsleðum til talandi
„málverka", sem reynast við nánari athugun vera
brenglaðar vídeómyndir með hátalara.
Sýningin ,sem verður einnig í Pétursborg í Rúss-
MEIMIMIIMG
OG LISTIR
í MÖRGUM
BORGUM
Esa-Pekka Salonen
Rossini
+
Ghita Nörby
laridi 15. febrúar til 13. mars, heitir Applikaatio og
á að vera fyrst í nýrri röð myndlistarsýninga sem
verða haldnar á þriggja ára fresti. Nafnið Applika-
atio vísar til vilja umsjónarmanna að leggja saman
ýmsar gerðir innan myndlistarinnar. Enda eru hér
til sýnis verk úr vídeósmiðjum og tölvum, frá iðnhönn-
uðum og alls kyns áttum öðrum.
Til 31. janúar geta menn einnig kynnst myndlist
frá Lettlandi. Þar sem Lettar halda upp á 75 ára
afmæli lands síns hafa þeir sent út farandsýningu
með verkum eftir helstu listamenn þjóðarinnar frá
byrjun aldarinnar. Þessi sýning er á vegum Ríkislista-
safnsins í húsi bruggarafjölskyldunnar Sinebrychoff.
Lars Lundsten
KAUPMANNAHÖFN
Á NÝJA sviði Konunglega leikhússins er
enn verið að sýna rómaða uppsetningu á
leikriti Öhlenslægers, Kjartan og Guðrúnu,
sem hann hyggir á Laxdælu. Og einnig
hefur verið bætt við nokkrum aukasýning-
um á leikriti Lars Noréns, Sumri, en Þjóð-
leikhúsið hefur tekið til sýningar annað
verk eftir hann. Þeir sem aðeins þekkja
Ghitu Nörby úr kvikmyndum geta þarna
fengið tækifæri til að sjá stórbrotinn leik
hennar í hlutverki gamallar leikkonu, sem
ætlar að fara að njóta fjölskyldunnar, en
uppgötvar að þar er ekki allt sem sýnist.
Suðrið er ný uppsetning á leikriti frá
1935 eftir fransk-bandaríska leikritaskáld-
ið Julien Green og gerist í Suðurríkjunum
á nokkrum dögum 1861, rétt áður en
Frelsisstríðið braust út. Sýningin hefur fengið fremur
góða, en þó ekki alveg einróma dóma. Á litla sviðinu
er verið að sýna rússneskt leikrit um erfiða lífsbar-
áttu nú. Það heitir „Tre Kvinder í det blá" og fékk
þokkalega dóma, þegar það var frumsýnt. Leikurum
og leikstjóra þótti takast vel, en leikritið þótti í meðal-
lagi, þó efnið sé athyglisvert og gefi innsýn inn í
daglega lífið fyrir austan.
Hjá Konunglega ballettinum verður Þyrnirós í upp-
setningu Helga Tómassonar nokkrum sinnum á dag-
skrá, meðal annars 1. og 5. mars, þegar titilhlutverk-
ið verður dansað af heimsþekktri rússneskri dans-
mey, Ninu Ananiashvili. Hjá óperunni verður Cosí fan
Tutte frumsýnd 17. janúar, en annars eru sýningar
á La Traviata og La Boheme á dagskrá, að ógleymdri
óperu Carls Nielsens, Maskerade.
í Betty Nansen leikhúsinu í Friðriksbergi er verið
að leika Tupilak, sem er nýtt leikrit eftir Per Olov
Enquist. í leikritinu er fléttað saman hjónabands-
og skilnaðarsögu og óhugnalegu morði á gleðikonu,
þar sem réttarlæknir liggur undir grun. Hér er það
ein af bestu leikkonum Dana af yngri kynslóðinni,
Kirsten Olesen, sem fer með eitt aðalhlutverkið og
einnig Sören Spanning, sem er einn af athyglisverð-
ari leikurum hér um slóðir. Á litla sviði Betty Nansen
leikhússins, Edison, er verið að sýna einleikinn Or-
lando, sem er byggður á samnefndri skáldsögu Virg-
inu Woolfs, en samnefnd og
nýleg kvikmynd Sally Potters
er einnig gerð eftir henni. Hér
er það Susse Wold, sem fer
með aðalhlutverkið. Lesend-
ur dönsku blaðanna þekkja
nafnið örugglega, en leikkon-
an hefur leikið mikið og víða
og þýkir sýna einstæðan
stjörnuleik sem Orlando í
firna vel heppnaðri uppsetn-
ingu, svo hér er enn eitt tæki-
færið til að sjá þekkta leik-
konu á sviði.
Ef einhver hefur áhuga á
að rifja upp umbrot '68 kyn-
+ t'slóðarinnar og ef til vill Ijúft
■L<|., líf í Kaupmannahöfn á þeim
H A árum, þá býðst tækifærið nú
W K W í® í útibúi Þjóðminjasafnsins úti
PPJ.’i'** y, 'W"* í Brede. Indversku mussurn-
" * ar, lituðu bleyjurnar um höf-
uðið, hasspípurnar, kynlífs-
fræðingarnir, Kristjanía, hett-
an, Woodstocktónlistin og margt fleira frá þessum
tíma er komið á uppbyggilega sýningu. Leiðin aftur
í þessa fortíð liggur um Lyngby, en Brede er þar
rétt hjá.
Úti í Louisiana á Norður-Sjálandi stendur yfir
Monet-sýning út fyrstu vikuna í mars. Á sýningunni
gefur að líta myndir, sem málarinn gerði í garðinum
sínum í Giverny, en hann var honum stöðugur inn-
blást-
ur.
Þarna
eru
vatna-
lilju-
myndir
málar-
ans af
ýms-
um
stærðum, en einnig myndir sem hann málaði í kring-
um 1920 og vísa veginn að myndum síðari málara,
þar sem hann hefur að mestu leyst myndefnið upp
í litasprengjur. Kaffistofan er alltaf einkar skemmtileg
heimsóknar og meðan Monet-sýningin stendur yfir
eru á matseðlinum gómsætir réttir frá ráðskonu
málarans, svo heildaráhrifin. verða fullkomin, auk
Vatnaliljur Monets
þess sem einnig stendur yfir Ijósmyndasýning frá
garðinum eins og hann er núna.
Á tónlistarsviðinu er úr mörgu að velja. Hinn 24.
janúar kemur Esa-Pekka Salonen í heimsókn með
sænsku útvarpshljómsveitina, sem hann var fastur
stjórnandi hjá þar til nýlega að hann tók við Los
Angeles fílharmóníusveitinni. Á efnisskránni er með-
al annars 5. sinfónía Beethovens. Hinn 3. febrúar
gefst tækifæri til að njóta bæði tónlistar og bygging-
arlistar, því þá flytur danska útvarpshljómsveitin 10.
sinfóníu Mahlers í Grundtvigkirkjunni, en 12. febrúar
verður óperettukvöld hljómsveitarinnar og 19. febr-
úar Ijóðakvöld, þar sem Hákan Hagegárd syngur Ijóð
eftir Mahler og Ravel, auk sænskra þjóðlaga.
Sveiflusveit útvarpsins heldur tónleika með jazz-
stjörnunum Ole Kock Hansen og Niels-Henn-
ing Örsted Pedersen 30. janúar. Þeir sem
sækjast eftir jazz geta fundið eitthvað í þá
veruna í Copenhagen Jazz House í Niels
Hemmingsensgade og Long John við Köbma-
gergade, hvort tveggja í miðbænum og Café
Apoteket úti í Hellerup.
Sigrún DavíAsdóttir
LEIPZIG
NÚ gerast þau undur í borginni að frumsýnd-
ur er ballett eftir Stravinskí, 15 mínútna verk,
„Scenes de ballet" sem hann mun hafa sam-
ið fyrir leikhús á Broadway fyrir hálfri öld, án
þess að það hafi verið sýnt. Auk þess er
dönsuð Sinfónía í þrem þáttum frá 1945, og
Eldfuglinn sem Rússinn Vladimir Derevianko
dansar af snilld.
SGH
LONDON
ENGLENDINGAR fara ekki varhluta af skammdeginu
frekar en íslendingar og eitt af því sem þeir fyrr-
nefndu gera sér til dundurs í myrkrinu, er að halda
rækilega upp á dag heilags Valentínusar, 14. febr-
úar. Valentínus var verndardýrlingur elskenda og því
skal þeim sem eiga
leið um Lundúnar-
borg bent á ýmis
konar uppákomur og
tilboð í veitingahús-
um borgarinnar þann
dag. Þó að þegar
þetta er ritað sé of
snemmt að geta sér
til um nákvæmlega
hvað verður á boð-
stólnum í ár á þess-
ari hátíð hjartans, má
hafa dágóða
skemmtan af því að
lesa einkamáladálka
dagblaðanna, sem
verða uppfullir af skondnum skilaboðum frá feimnum
elskendum.
Ballett hefur alltaf verið með rómantískari list-
greinum og 26. janúar frumsýnir Konunglegi ballett-
inn í Covent Garden verkið Mayerling, eftir Kenneth
MacMillan, sem byggir á einni harmrænustu ástar-
sögu seinni tíma, ástum og dauða Rúdolfs, erkiher-
toga og erfingja austurríska keisaradæmisins og
ástmeyjar hans, Maríu Vesteru. Nær nútímanum og
heldur óhefðbundnari er tjáning dansflokksins
Stomp, sem leikur listir sínar í Sadlers Wells leikhús-
inu til 15. febrúar og notar hversdagslega hluti á
borð við kústa og ruslafötur til að ná fram Ijóðrænum
takti.
í Konunglegu óperunni, Royal Opera House, hefj-
ast 26. janúar sýningar á
Elektru eftir Richard
Strauss, þar sem tón-
skáldið byggir á leikriti
Sófóklesar um forboðnar
ástríðu.
Undir mánaðamót
verður á boðstólum gott
úrval sinfóníutónleika í
höfuðborginni. Sinfóníu-
hljómsveit Hamborgar
heldur gestatónleika í
Royal Festival Hall 29. jan-
úar undir stjórn Eliot
Gardiner, 17. janúar leikur
Sinfóníuhljómsveit Lundúna verk eftir Haydn og
fjórðu sinfóníu Brahms undir stjórn Andre Previn
og dagana 25. og 28. janúar gefst kostur á að hlýða
á Konunglegu fílharmóníusveitina leika Requiem
Verdis, Þriðju sinfóníu Brahms og fleiri stórvirki sí-
gildrar tónlistar.
Hvað varðar leikhús og kvikmyndir þá geta þeir
sem missa af frábærri eins manns sýningu hins
þekkta leikhúsmanns Stevens Berkoff, sem er að
Ijúka í Garrick leikhúsinu, huggað sig við að nú eru
að hefjast hér sýningar á kvikmynd Berkoffs „Decad-
ence", Úrkynjun. Þetta verk Berkoffs varpar grág-
lettnu Ijósi á tvöfalt siðgæði breskrar borgarastéttar
og hefur áður átt miklum vinsældum að fagna í bresk-
um leikhúsum. Höfundur leikur sjálfur annað aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni og þótti sýna talsvert hug-
myndaflug þegar hann valdi drottningu sápuóp-
eranna, hina síungu Joan Collins, í hitt aðalhlutverk-
ið. Ógleymanleg afþreying, segja þeir sem séð hafa.
Eitt af örfáum leikritum skáldkonunnar Daphne Du
Maurier, „September Tide", verður frumsýnt í
í táskóm og froufrou
Málverk eftir Holbein
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 1994
B L
Comedy leikhúsinu 18. jan. Það var upphaflega til-
einkað Gertrude Lawrence og þessi sjaldgæfa upp-
færsla þykir lofa góðu, enda hin þekkta leikkona
Susannah York í aðalhlutverki.
Myndlistarunnendur ættu síðan ekki að missa af
óviðjafnanlegri sýningu National Portrait Gallery,
Holbein og hirð Hinriks áttunda, og enn síður af
stórskemmtilegri yfirlitssýningu um sögu sjálfs-
myndarinnar fyrr og nú á sama stað.
Hildur Helga Sigurðardóttir
MADRID
LÝSINGARHÁTTUR þátíðar heitir nýtt leikrit sem
Alfil-leikhúsið frumsýnir hinn 11. janúar. Á frummál-
inu nefnist þetta leikrit katalónska rithöfundarins
Mercedes Abad „Pretérito Perfecto." Verkið, sem
leikstýrt er af Jurdi Llop, fjallar um það hvernig heim-
urinn liti út ef við værum ódauðleg, og ekkert til sem
kallast kynlíf. Þetta er gamanleikur, en Teatro Alfill
er í Pez 10, jarðlestarstöð Noviciado.
Á skuggalegri línum er hins vegar Nosferatu, eft-
ir Francisco Nieva, í Sala Olimpia, Pza. de Lavapi-
és. Hér er á ferðinni heldur nýstárleg útgáfa af vamp-
írunni frægu, með dansi og tónlist.
Flamenkó-gítarleikarinn Rafael Rigueni heldur
tónleika öll fimmtudagskvöld í janúar í Casa Patas,
Canizares 10, á miðnætti. Hann er rúmlega þrítugur
Sevilla-búi sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir
leik sinn, er þykir í senn frumlegur og fagmannlegur.
í Galería Estiarte, Almagro 44, stendur yfir sýning
á verkum súrrealistans André Massons, og í Ga-
lería BW, Doctor Fourquet 8, prýöir annar súrreal-
isti, Robert Matta, veggina.
Ragnar Bragason
MUNCHEN
BORGIN býður upp á frumsýningu á hermönnunum
eftir Lenz í leikgerð Kipphardts í Residenzleikhús-
inu, og Von og ótta Sambandslýðveldisins eftir Kro-
etz sem og Von og ótta Þriðja ríkisins eftir Brecht
í Volkstheater. Sérstaklega er vert að benda á kvik-
myndahátíðina sem hefst 20. janúar. Þar verður
frumsýnd ný þýsk kvikmynd um Kasper Hauer, sem
nú er talið víst að hafi verið krónprins konungsfjöl-
skyldunnar í Baden en var látinn dúsa í dyflissu framá
unglingsár og var því eins og vera frá öðrum hnetti
þegar hann kom fyrst í mannlegt samfélag. Hann
lærði að tala og koma fram meðal fólks en þegar
allt virtist ætla að ganga í haginn fyrir þessum vesal-
ings manni var hann myrtur og málið hefur aldrei
verið upplýst. Hver veit nema hér sé loksins komin
þýsk kvikmynd sem á möguleika á alþjóðavett-
vangi, að minnsta kosti hefur þetta mál hingað til
þótt það heillandi að um það hafa verið skrifaðar
2.000 vísindalegar bækur!
SGH
NEW YORK
í METROPOLITAN-safninu í
New York stendur nú yfir
sýning á málverkum þýsk-
enska málarans Lucian Fre-
uds, sem er frægur af
tvennu: List sinni og því að
vera barnabarn sálkönnuðar-
ins Sigmundar. Öfugt við af-
ann eru Lucian umbúðir
mannsandans hugleiknar og M-maybe eftir Roy
flestar myndir hans af nöktu Lichtenstein
fólki. Hann dvelst sjaldan við
þokkadísir og -drengi, en margar af hinum fimmtíu
myndum á sýningunni eru af dætrum og vinum
málarans eða þá afar holdugum fyrirsætum. Sum
málverk Freuds eru umdeild, en ekki listamaðurinn
sjálfur, sem hefur verið kall-
aður besti raunsæismálari
sem nú er uppi.
Önnur góð ástæða til að
fara í Metropolitán er opnun
fjögurra nýrra sala, þar sem
gefur að líta evrópska skrey-
tilist frá átjándu öld.
Steinsnarfrá Metropolitan
er sýning þar sem nekt
mannslíkamans fær að njóta
sín og myndirnar þar jafnvel
sýnu umdeildari en málverk
Freuds. Guggenheim-safnið
hefur opnað nýjan sal fyrir
Ijósmyndir, kenndan við Rob-
ert Mapplethorpe, og sýnir
Prince
þar sjálfsmyndir hans. Mapplethorpe lést úr eyðni
fyrir nærri fimm árum, en nær enn að æsa upp
hatrammari pólitískar deilur um list í Bandaríkjunum
en nokkur annar, en þær deilur snúast um styrkveit-
ingar opinberra listasjóða. Á einni myndinni snýr
listamaðurinn baki í linsuna með svipuskaft í óæðri
endanum, svo það er kannski ekki kyn þó að hlaupi
hland fyrir hjartað á sumum sómakærum íhalds-
mönnum, sem sjá skattpeninga almennings á skaft-
inu. Mapplethorpe á sér til Ijóðrænni hliðar, þótt
hann snúi þeim ekki alltaf að áhorfandanum á þess-
ari sýningu.
Guggenheim opnaði að nýju eftir miklar endur-
bætur fyrir rúmu ári og sýnir myndir popplista-
mannsins Roy Lichtensteins í aðalsalnum sem ann-
ars er frægastur fyrir frábæra hönnun Frank Lloyds
Wrights.
Svo áfram sé dvalist við safnalist, þá sýnir Whit-
ney-safnið verk Mike Kelleys um þessar mundir,
en Time-tímaritið hélt því nýlega fram að hann
væri orðinn áhrifamesti listamaður sinnar kynslóðar
í Bandaríkjunum, en kannski þó ekki éndilega sá
besti. Kelley býr til skúlptúra úr mjúkum efnum, svo
sem teppum og leikfangaböngsum, en áhrifin koma
meðal annars frá súrrealisma og væminni trúarlist
frá kaþólsk-
um uppvaxt-
arárum hans.
Á sviði
danslistarinn-
ar er hvað vin-
sælust upp-
færsla Jof-
frey-balletts-
ins á Billbo-
ards, eða
Auglýsingar-
skiltum, sem
er samin við
tónlist popp-
goðsins
Englar í Ameríku: Perestroika á Prince. Haft
Broadway er ef(jr gtjóm-
anda dans-
flokksins að Auglýsingaskiltin hafi náð til nýrrar
kynslóðar og stórbætt bágan fjárhag ballettsins,
þannig að hann geti nú ráðist í sviðssetningu tor-
meltari dansverka.
Síðari hluti leikritsins margverðlaunaða Englar í
Ameríku, sem íslendingum hefur gefist kostur á að
sjá í vetur, var settur á fjalirnar á Broadway í nóvem-
ber undir nafninu Perestroika. Hann hefur fengið
góðar viðtökur áhorfenda, sem láta sig ekki muna
um að sitja í sjö stundir allt í allt undir leikriti Tony
Kushners um pólitík, kynlíf og eyðni-faraldurinn.
Af öðru nýju og markverðu á fjölunum má nefna
eintal Spalding Grays um vinstra augað á sér, sem
var víst eitthvað að angra leikarann. Þetta kann að
virðast þunnur þrettándi, en Gray hefur fengið frá-
bæra dóma fyrir skemmtilegheit og er enda þekktur
fyrir einræður sínar, ekki síst Swimming to Öambo-
dia, sem var kvikmynduð á sínum tíma við þokkaleg-
ar undirtektir.
Hugi Ólafsson
PARÍS
SIRKUSVEISLA heldur áfram í París frá því í desem-
ber og milli 20. og 24. janúar verður „Sirkushátíð
morgundagsins" í Vetrarsirkusnum við Ámelot-götu
í 11. hverfi. Síðan færist fjörið alla leið til Monte
Carlo þar sem alþjóðlegu
sirkushátíð verður 27. jan-
úar til 3. febrúar. Og úr því
að sirkus er til umræðu
verður að geta um Philippe
Decouflé sem hóf margvís-
lega menntun sína í sirkus-
skóla. Síðan lærði hann lát-
bragðsleik, dans og galdra
og telst nú í fremstu röð
danshöfunda og leikstjóra
Frakka aðeins 32ggja ára
gamall. Borgarleikhúsið
sýnir frá 6.-22. janúar nýj-
asta verk Philippe Decouflé,
„Petites pieces montées,
og sér dansflokkurinn DCA
um flutnings verksins. Yfir-
leitt eru mjög góðar sýning-
ar í Borgarleikhúsinu og frá
25.-29. janúar verður verk-
ið „Her body doesn’t fit her
soal", eftir flæmska dans-
höfundinn Wim Vandekey-
bus á fjölum leikhússins, en
það var við lestur smásögu
ítalska rithöfundarins Italo
Calvino sem Venderkeybus fékk hugmyndina að
þessum dansi. I Théatre du Chátelet mun spænski
danshöfundurinn og (flamenco) dansarinn Christina
Hoyos dansa með flokki sínum verkið, Vaminos
Andaluces til 23. janúar.
Nú er að hefjast viðamikil rússnesk leiklistarkynn-
ing á vegum Odéon, Théatre de l’Europe leikhúss-
ins og hefst hún með uppsetningu Lluis Pasqual, á
Sumargestum eftir Maxime Gorki (6. janúar til 27.
febrúar). Og Comedie Francaise er nýbyrjað að
sýna Dom Juan eftir Goldoni í leikstjórn’ Jacques
Lassalle.
Reyndar er janúarmánuður, mánuður tónlistarinn-
Philippe Decouflé
Innsetning amerísku listakonunnar Lis Larner
ar í París vegna þess að þá er tónlistarunnendun
boðið upp á tvo aðgöngumiða fyrir hvern miða sen
keyptur er og borgar Parísarborg mismuninn. Tilboð
ið gildir frá 9.-23 janúar.
í Bastillu-Óperunni munu bráðlega hefjast sýning-
ar á Die Soldaten eftir Bernd Alois Zimmermann
(22.-31. janúar) og sér Harry Kupfer um sviðsetning-
una og Bernhard Kontarsky um tónlistarstjórn. í
febrúar verður síðan uppfærsla Roberts Wilsons á
Töfraflautunni eftir Mozart.
Þeir sem sáu myndina Allir heimsins morgnar,
muna eftir Jordi Svali, en hann mun stjórna tónleik-
um 21. janúar í Theatre des Champs-Elyssés og
17. janúar í hljómleikasal Louvre safnsins, sem hef-
ur hlotið nafnið, La Grande Louvre, síðan að Richeli-
eu-álman var enduruppgerð og opnuð.
Allir sem koma til Parísar þurfa að gefa sér góð-
an tíma til að skoða þetta stórkostlega safn, sem
er nú orðið eftir breytinguna stærsta og eflaust feg-
ursta safn í heimi. Grand Palais höllin, sem var byggð
um aldamótin í tilefni heimssýningarinnar og sem
hefur verið einn aðal sýningarstaður Parísarborgai
hefur nú því miður þurft að loka dyrum sínum vegna
lélegs ástands bygginarinnar. Það verður gerð ein
undantekning með sýninguna L’Ame au corps, sem
verður opnuð aftur fyrir almenning frá 1.-28. febr-
úar. Aftur á móti verður sýningin Les Nabis flutt yfir
á hinn bakkann í Orsay safnið og verður til sýnis til
12. febrúar. í listasölum Jeu de Paume verða tvær
sýningar opnaðar á þriðjudaginn og standa þær til
13. mars: Sýning á verkum amerísk-evrópska lista-
mannsins James Bishop, sem segist sjálfur vera
„abstrakt expressjónisti á rólegu línunni" - fyrsta
yfirlitssýning hans hér í París. Hin sýningin er á
verkum eftir suður-franska listamanninn Toni Grand
sem býr til skúlp-
túra í í andstöðu
við minimal
skúlptúrinn, þó
þeir séu líka
skyldir honum um
margt. Á sýning-
unni verða ein-
göngu splunkuný
verk sem hafa
aldrei verið sýnd
áður.
[ Pompidou
safninu opna þrjár
sýningar í nýlista-
sölum þess um
þessar mundir:
Verk eftlr Tonl Grand Sýning á þrem in-
stallasjónum
Kanadamannsins Stan Douglas þar sem hann bland-
ar saman ólíkum miðlum á mjög snjallan hátt. Einn-
ig sýning Francois Rouan, Pappírsverk 1965-1992,
sem á að sýna fram á mikilvægi teikningarinnar í
verkunum, en Rouan þykir með betri listamönnum
Frakka í dag. Þriðja sýningin er á verkum ítölsku lista-
konunnar Marisa Merz sem margir þekkja frekar
fyrir að vera eiginkona listamannsins Mario Merz.
Marisa Merz var snemma upptekin af hugmyndum
sem síðar áttu eftir að einkenna Arte Povera hópinn
og er þetta í fyrsta skipti sem
stór sýning er haldin á verkum
hennar í París.
Þeir sem kjósa frekar að fara
í galleríin geta til dæmis gengið
um Mýrina og nágrenni ög litið
inn í sýningarsalina á Debel-
leyme-götu, en þar sýnir m.a.
ameríska listakonan Lis Larner í
Galerie Jennifer Flay og sýningin
New York on Paper stendur til
29. janúar í Galerie Thaddaeus Ropac. Danski lista-
maðurinn Per Kirkeby, sem fékk finnsku Ars Fennica
verðlaunin í ár, sýnir til annars sunnudags ný verk
í Galerie Lelong og opnuð verður sýning með verkum
Errós í Palais des Congrés á föstudaginn. Hún stend-
ur til 21. apríl.
Norræn kvikmyndahátíð verður haldin dagana 19.
janúar til 1. febrúar í kvikmyndahúsinu Europe Pant-
héon og verða m.a. sýndar tvær íslenskar myndir:
Ryð eftir Lárus Ými Óskarsson og Börn náttúrunnar
eftir Friðrik Þór Friðriksson.
Mynd eftir James
Bishop
Með hraðlestinni tekur tvo tíma að fara til Lyon,
en þar er einnig mjög blómlegt menningarlíf. í Nýju
óperunni er t.d verið að sýna til 30. janúar Litlu
töfraflautuna eftir Mozart í uppfærslu Louis Erlo og
tónstjórn Claire Gibault. Þetta er eins konar vasaút-
gáfa af Töfraflautinni, þar sem fylgst er með þremur
unglingum, Paminu, Tamino, og Papageno og bar-
áttu þeirra í hinum harða heimi þar sem góðir menn
hafa sína galla og vondir
menn sínar Ijóðrænu hliðar.
Verkið er hugsað fyrir börn
jafnt sem fullorðna.
Laufey Helgadóttir
Samantekt: Þórunn Þórsdóttii