Morgunblaðið - 21.01.1994, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1994
3
Víkingalottó
Vinnings-
hafi ókom-
inn fram
SIGLFIRÐINGURINN sem varð
17 milljónum króna ríkari í Vík-
ingalottói á miðvikudag hafði ekki
haft samband við starfsmenn Is-
lenskrar getspár í gær. Berg-
sveinn Sampsted, markaðsstjóri,
sagði ekki óalgengt að vinnings-
hafar kysu að nota fáeina daga
til að ná áttum áður en haft væri
samband við aðstandendur Iottós-
ins.
Vinningsmiðinn var, eins og komið
hefur fram, seldur í versluninni
Siglósport sl. föstudag kl. 16.44.
Miðinn skilaði eiganda sínum 17
milljónum og einu þúsundi króna eða
helmingi fyrsta vinnings upp á rúm-
lega 34 milljónir. Hinn helminginn
hlaut fmnskur lottóspilari.
Vöruskiptajöfnuður skánar
Vinningur hefur þær afleiðingar
að vöruskiptajöfnuður Íslendinga í
Víkingalottói skánar og er staða ís-
lands nú í meðallagi miðað við hinar
Norðurlandaþjóðirnar. Lagðar hafa
verið um 40 milljónir í pottinn frá
upphafi. Um 30 milljónir hafa farið
í vinninga en 10 milljónir eru enn í
mínus. Svíar eru nú í mestu tapi og
hafa ekki fengið til baka yfir 100
milljónir, Finnar hafa tapað tæpum
60 milljónum úr landi til hinna Norð-
urlandaþjóðanna. Danir og Norð-
menn eru í hagnaði.
-----» ♦.4----
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Félagsmála-
stjóri lætur
af störfum
SVEINN Ragnarsson, félagsmála-
stjóri Reykjavíkurborgar, hefur
sagt starfi sínu lausu frá og með
1. maí næstkomandi vegna aldurs.
Sveinn hóf störf hjá Reykjavíkur-
borg árið 1952.
„Eg hóf störf hjá Reykjavíkurborg
árið 1952 og þá fyrst sem fulltrúi á
borgarskrifstofum," sagði Sveinn.
Hann varð síðan yfirmaður skrifstofu
framfærslu- og félagsmála árið 1961
áður en félagsmálastofnun var komið
á laggirnar árið 1967.
Fulltrúar minnihlutans í borgar-
ráði lögðu fram tillögu um að fara
þess á leit við félagsmálastjóra að
hann gegndi embætti til 1. septem-
ber næstkomandi. Þannig gæfist
nýrri borgarstjórn tækifæri til að
velja nýjan félagsmálastjóra.
Samþykkt var með þremur at-
kvæðum gegn tveimur að vísa tillög-
unni frá.
-----♦ » »----
Hvalfjarðargöng
Undirbúning-
ur gengur vel
UNDIRBÚNINGUR útboðs Spalar
hf. á Hvalfjarðargöngum gengur
vel, að sögn Gylfa Þórðarsonar
stjórnarformanns fyrirtækisins. A
fundum innlendra og erlendra
sérfræðinga undanfarna daga
hafa ýmis mál fengið lausn og
önnur eru áfram í vinnslu, að sögn
Gylfa.
Fundirnir undanfarna daga hafa
bæði verið um tæknimál og fjár-
mögnun framkvæmdanna og hafa
sérfræðingar erlendu bankanna og
Spalar hf. tekið þátt í þeim. Gylfi
sagði að vinnan gengi eftir áætlun
og þó tímaáætlun væntanlegs útboðs
væri stíf héldu menn sig enn við
hana.
í dag halda Verkfræðingafélag
íslands og Tæknifræðingafélag ís-
lands ráðstefnu um Hvalfjarðargöng-
in. Þar munu sérfræðingar fjalla um
ýmsar hliðar þessa verkefnis.
mánaða ábyrgð á notuðum Daihatsu og Volvo bílum I eigu Brimborgar!
1 O O % ÁBYRGÐ
Öpið laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Það getur verið töluverð áhætta að kaupa notaðan bíl. Þú getur auðveldlega sannreynt að útlit bílsins sé í lagi en fæstir
hafa getu né aðstöðu til að sannreyna hvað leynist undir yfirborðinu. Þess vegna býður Brimborg hf. SEX mánaða
ábyrgð á notuðum Daihatsu og Volvo bílum í eigu Brimborgar. Allir notaðir bílar af þessum tegundum eru yfirfarnir af
þjónustumiðstöð Brimborgar og þar er allt lagfært sem er í ólagi áður en bflarnir eru seldir. Þannig er öryggi þitt tryggt.
Ábyrgðin gildir til sex mánaða eða að 7500 km. og allt er í ábyrgð nema yfirbygging bílsins. faxafehi8»sími91-685í70