Morgunblaðið - 21.01.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1994
17
Dennis Byrd ásamt eiginkonu sinni og dætrunum.
Setur á fót styrktar-
stofnanir fyrir börn
DENNIS Byrd, bandarískur ruðningskappi sem slasaðist illa í nóvem-
ber 1992 og hlaut bata hjá dr. Krístjáni Tómasi Ragnarssyni, yfir-
lækni endurhæfingardeiidar Mount Sinai sjúkrahússins á Manhattan
í New York, hefur skrífað bók um slysið og hvemig honum hefur
reitt af síðan það gerðist og birtist útdráttur úr henni í desember-
hefti Reader’s Digest Eins og Morgunbiaðið greindi frá á sínum tíma
fékk Kristján mikla athygli fjölmiðla þegar hann sá um læknismeð-
ferð Byrds .en bati hans þótti undraverður. Byrd hefur komið víða
fram eftir siysið og m.a. sett á fót styrktarstofnanir fyrir börn.
Dennis Byrd lamaðist á öllum
útlimum eftir samstuð við einn sam-
hetja sinna í New York Jets. Hann
skaddaðist á hálsi og gekkst undir
aðgerð þar sem þrír hálsliðir voru
spengdir. Kristján fylgdist með Byrd
frá því daginn eftir slysið, fyrst á
öðru sjúkrahúsi, síðan á Mount Sinai
þangað sem Byrd var fluttur fljót-
lega eftir aðgerðina. Þar var hann
þangað til í febrúar að hann fékk
að fara heim til Oklahoma, þar sem
hann býr.
í bók sinni segir Byrd að Rags,
eins og hann segist hafa kallað
Kristján Ragnarsson, hafi ávallt ver-
ið mjög varkár í yfirlýsingum og
aidrei gefið sér neinar gyllivonir.
Strax daginn eftir slysið hafi Krist-
ján verið farinn að skipuleggja end-
urhæfingu mánuði fram í tímann.
Kristján hafi alltaf sagt að hann
ætti að vonast eftir hinu besta og
vera búinn undir það versta. Hann
hefði góðar vonir um að ná bata en
myndi aldrei verða jafn góður.
Fyrirmyndarmaður
í samtali við Kristján Ragnarsson
í gær sagði hann að Byrd hefði geng-
ið mjög vel, hann gengi nú án hjálp-
artækja og notaði báðar hendumar.
Hann sagði að Byrd hefði ekki enn
náð sér að fullu því enn væri svolít-
ið máttleysi í annarri hendinni og
ekki full tilfinning í henni. Kristján
sagði að Byrd færi hægar fram nú
en áður en samt væru nokkrar
framfarir enn sjáanlegar. Hann væri
nú í meðferð annars staðar í Banda-
ríkjunum en þeir hittust engu að
síður alltaf öðru hvoru. „Hann hefur
verið að setja á fót styrktarstofnan-
ir fyrir fötluð börn og böm sem eiga
við félagslega erfiðleika að stríða.
Hann hefur komið víða fram á und-
anförnu ári til þess að leggja góðu
málefni lið. Þetta er fyrirmyndar-
maður. Þau hjónin eignuðust annað
bam sitt á árinu og þetta hefur allt
gengið mjög vel. Um íþróttir er ekki
að ræða enn sem komið er, engar
keppnisíþróttir a.m.k. og hann er
enn ekki farinn að hlaupa. Maður
er farinn að hugsa um allt aðra hluti
þessa dagana því þetta er að mestu
búið og gert,“ sagði Kristján Tómas
Ragnarsson.
McDonald's
glaðningur:
McKjúklingur (1/4 kjúklingur) og
McEplabaka
HEFUR ÞÚ EFNI Á AÐ
BORÐA HEIMA..?
ViSA
88HB9BHHB
FDíNDU MUNINN!
VEITINGASTAÐUR FJÖLSKYLDUNNAR
MEÐ BLÖNDUÐU GRÆNMETI
3
Í
X.
3
<
LETTOSTAR
þrír góðir á léttu nótunum LiHfíSTUR s f LÉTTOSTUR
MUNDU EFÍIR OSTINUM .qMm £&£&&& 1