Morgunblaðið - 15.02.1994, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1994
ÞRIDJUDAGUR 15. FEBRUAR
BLAÐ
adidas
Scott Williams hjá
Chicago Bulls leikur í
Adidas körfuboltaskóm
i.
VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR í LILLEHAMMER
FRJÁLSAR; EITT ÍSLAMDSMET BÆTT OG TVÖ JÖFNUÐ Á MEISTARAMÓTINU / B8
„Dreymdi aldrei um guM“
- sagðiThomas Alsgaard, 22 ára Norðmaðursem skaut „kónginum" Birni Dæhlie
ref fyrir rass og sigraði óvænt en ótrúlega glæsilega í 30 km göngunni í gær
THOMAS Alsgaard, 22 ára Norðmaður, kom skemmtilega á
óvart í gær er hann sigraði í 30 km göngunni. Björn Dæhlie,
landi hans, sem var talinn sigurstranglegastur varð að láta sér
iynda annað sætið, þó svo hann segist líklega aldrei hafa geng-
ið eins vel og í gær.
ÁSTA S. Halldórsdóttir frá ísafírði
keppir í risasvigi í Lillehammer í
dag og hefst keppnin kl. 10.00 að
íslenskum tíma. Hún hefur rásnúm-
er 49 af 57 keppendum. Eftir risa-
svigið í dag ætlar Ásta til Áre í
Svíþjóð. Þar keppir hún í svigmóti
á laugardaginn. Hún ætar síðan að
æfa þar fram yfir helgi. Næsta
grein hennar á ÓL er stórsvig á
fimmtudaginn í næstu viku.
Of stór augjýs-
ing færði ís-
lendinga upp
ÍSLENSKU göngumennirnir færð-
ust upp um eitt sæti (Daníel úr 39.
í 38. og Rögnvaldur úr 68. í 67.
sæti) eftir að ljóst var að tékknesk-
ur göngumaður var dæmdur úr leik
vegna þess að hann var með of
stóra auglýsingu- á búningi sínum
miðað við þær reglur sem gilda.
Alsgaard er 22 ára sem fyrr seg-
ir og hefur verið kallaður krón-
prinsinn í hópi norskra skíðagöngu-
manna. Hann er nú jafngamall og
Svíinn Gunde Svan er hann varð
Ólympíumeistari í skíðagöngu í
fyrsta skipti. Svan náði fjórum
Ölympíutitlum á ferlinum, varð sex
sinnum heimsmeistari og sigraði á
30 heimsbikarmótum, sem er met.
Sérfræðingar telja að Alsgaard hafi
alla burði til að feta í fótspor heims-
ins bestu göngumanna og verða
næsta stórstjarnan í þeirra hópi.
Sjálfur hafði hann ekki geit sér nein-
ar gyllivonir fyrir keppnina í gær:
„Ég taldi mig eiga veika von á að
vinna bronsið, ef allt gengi upp hjá
mér. Mig dreymdi aldrei um gull,“
sagði hann þegar sigurinn var í höfn.
Hackl braut blað
George Hackl frá Þýskalandi braut
blað í sögu Ólympíuleikanna í gær
er hann varð fyrstur til að veija
ólympíutitilinn í sleðakeppni ein-
staklinga. Hackl, sem er 27 ára, á
silfurpening frá Ólympíuleikunum í
Calgary auk gullsins frá Albertville
og er sigursælasti sleðamaður í ein-
staklingskeppni í sögu ÓL.
Óheppnin eltir Jansen
Dan Jansen frá Bandaríkjunum
er besti skautahlaupari heims í styttri
vegalengdum, heimsmeistari og
heimsmethafi, en eitt virðist honum
ekki eiga að takast; að sigra á
Ólympíuleikum. Hann tekur nú þátt
í fjórðu Ólympíuleikunum í röð og
hefur aldrei unnið til verðlauna.
Mörgum er í fersku minni er hann
datt í 500 m hlaupinu í Calgary fyr-
ir sex árum, skömmu eftir að hann
fékk þær fréttir að systir hans hefði
látist úr hvítblæði. í gær fipaðist
■hann í síðustu beygjunni og varð
aðeins í áttunda sæti. Rússar fögn-
uðu tvöföldum sigri, en voru fljótir
að vorkenna Bandaríkjamanninum.
Sögðu hann bestan, þrátt fyrir allt.
■ Nánar / B4-B7
Daníel sá
íshokkfleik
DANÍEL Jakobsson fór í fyrsta sinn
á íshokkíleik í gærkvöldi ásamt
Ólafi Björnssyni, aðstoðarmanni og
Bo Eriksyni gönguþjálfara. Þeir sáu
Finna bursta Rússa 5:0 í Hákonar-
höllinni í Lillehammer í gærkvöldi.
„Ég veðjaði á Rússa fyrir leikinn,
en þegar Finnar voru komnir í 5:0
fórum við út,“ sagði Daníel.
ÁstatilÁre
Kristinn tilbú-
inn í slaginn
eftir veikindi
KRISTINN Björnsson hefpr átt við
veikindi að stríða og gat því ekki
tekið þátt í opnunarhátíðinni í Lille-
hammer á laugardaginn. Hann hef-
ur verið í Geilo og æfði í fyrsta sinn
í gær í meira en viku og sagðist
vera að ná sér og tilbúinn í slag-
inn. Hann kemur til Lillehammer í
dag ásamt Hauki Arnórssyni sem
var með honum í Geilo. Fyrsta
keppnisgrein þeirra á ÓL er risa-
svig á fimmtudaginn.
Langbestur
THOMAS Alsgaard kemur í markið í 30 km göngunni í gær, við gífurlegan fögnuð 30.000 áhorfenda sem héldu uppi frábærri stemmningu við keppnisbrautina.