Morgunblaðið - 15.02.1994, Side 8

Morgunblaðið - 15.02.1994, Side 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 HANDKNATTLEÍKUR / 1. DEILD KARLA StadaÍBV versnarenn HAUKAR sigruðu ÍBV nokkuð auðveldlega í 1. deildinni í handknattleik á sunnudags- kvöldið, 26:20. Staða Eyja- manna í deildinni er mjög erf ið eftir þennan leik, ekki síst í Ijósi sigurs KR á FH. að stefndi allt í stórsigur Hauka strax í bytjun. Þeir skoruðu fyrstu flögur mörk leiksins og það var ekki fyrr en á Stefán sjöundu mínútu að Eiríksson Eyjamenn komust á skrifar blað. Munurinn í fyrri hálfleik varð þó aldrei meiri en sex mörk, og staðan 'í hálfleik var 13:8. Eyjamenn réttu nokkuð úr kútn- um í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn niður í þijú mörk, en tvö ódýr Haukamörk í röð komu Hafnfirðingum aftur á skrið og slökktu um leið baráttuneistann í Eyjamönnum. Undir lokinn varð munurinn mestur sjö mörk.^en, Haukar sigruðu eins og áður sagði með 26 mörkum gegn 20. Haukar léku frábærlega í vörn- inni í fyrri hálfleik, Eyjamenn skor- uðu til dæmis ekki mark utan af velli fyrr en eftir 22 mínútur; fyrstu fjögur mörkin komu úr vítaköstum. Magnús Ámason varði tólf skot í fyrri hálfleik og stóð sig frábær- lega, en náði sér ekki á strik í síð- ari hálfleik. Baumruk var traustur og Siguijón Sigurðsson barðist vel líkt og Sveinberg Gíslason. Hlynur Jóhannesson varði ágæt- lega í marki Eyjamanna. Björgvin Rúnarsson stóð sig vel líkt og Helgi Bragason, en þeim gekk illa að smita félaga sína af baráttugleðinni sem rak þá áfram. Revine frábær í marki KR - þegar Vesturbæjarliðið sigraði FH Loksins þegar við fórum í gang eftir þennan þymirósarsvefn þá varði markvörður þeirra stórkost- ■■^■■1 lega. Við vanmátum Frosti KR-inganna og leik- Eiðsson menn héldu að hlut- skrifar irnir kæmu af sjájfu sér,“ sagði Kristján Arason, þjálfari FH eftir óvænt tap gegn KR á sunnudagskvöld. FH-liðið, sem unnið hefur góða sigra í deild og bikar að undan- förnu, var ekki líkt sjálfu sér, náði aldrei forystunni í leiknum sem lykt- aði 24:22 KR í hag og staða félags- ins í botnbaráttunni er mikið sterk- ari fyrir bragðið. KR var mun betri aðilinn í fyrri hálfleiknum en flestir áhorfendur biðu rólegir eftir því að þeir hvít- klæddu færu í gang. Tveimur mörk- um munaði í leikhléi en það var ekki fyrr en KR náði fjögurra marka forskoti með fyrstu tveimur mörkum síðari hálfleiksins að FH-ingar vökn- uðu af svefninum. Liðið stoppaði þá upp í götin í vörninni og lék með mann framar á vellinum. Sókn KR riðlaðist og FH-ingar refsuðu með hraðaupphlaupum. Jafnt varð 20:20 en lengra komust FH-ingar ekki gegn snilldarmarkvörslu Alexander Revine. KR-ingar komust yfír aftur 21:20 og innsigluðu sigurinn á loka- mínútunum. „Þessi stig eru óvænt og segja má að þau bæti upp ósigurinn fyrir norðan, gegn Þór. Við höfum lagt áherslu á það að geta haldið haus við svona aðstæður, þegar við höfum forystuna," sagði Einar B. Árnason, leikstjórnandi KR eftir leikinn. Re- vine var besti maður vallarins, hann lék frábærlega í síðari hálfleiknum. Útileikmennirnir eiga hrós skilið fyr- ir mikla baráttu, í vörn og sókn. Magnús með tólf mörk Stjarnan vann öruggan sigur á Þórsurum, 30:25, er liðin mættust á Akureyri um helgina. Við sigurinn og stigin tvö vænkaðist hagur Garðbæinga í harðri keppni um sæti í úrslitakeppninni. Þórsarar sitja enn í neðsta sæti deildarinnar og virðist nú fátt geta komið í veg fyrir að þeir falli í aðra deild. Leikurinn var jafn framan af, allt þar til staðan var 10:10, en þá gerðu Garðbæingar fímm mörk og var staðan 15:10 er gengið var til hálf- leiks. Með þessum fimm mörkum má segja að Stjaman hafí lagt grunnin áð sigrinum því Þórsarar náðu aldrei að ógna þeim eftir þetta. Bestur hjá Stjömunni var Magnús Sigurðsson, sem lék sérstaklega vel í fyrri hálfleik en þá gerði hann níu mörk. Skúli átti einnig ágætan leik. Hermann var ágætur í marki Þórs, einkum í síðari hálfleik er hann varði 10 skot, þar af 4 víti. Af útileikmönn- um bar mest á Jóhanni Samúelssyni. SPANN Alzira tapaði Alzira, lið Geirs Sveinssonar og Júlíusar Jónassonar á Spáni, tapaði á Kanaríeyjum um helgina fyrir Galdal 29:26. „Þetta var ágæt- is ferð, gott veður og fínt að vera þarna! í alvöru, þá var tapið svona frekar óvænt, en þó ekki. Þeir hafa verið erfiðir heim að sækja en við eigum því hins vegar ekki að venjast að fá svona mörg mörk á okkur, en vörnin og markvarslan brást gjörsamlega. Eigum við ekki að segja að flest mörkin hafí komið í gegnum miðjuna þar sem við Júlíus leikum,“ sagði Geir í samtali við Morgunblaðið um helgina. - Geir gerði þrjú mörk í leiknum en Júlíus komst ekki á blað. „Hann hefði mátt fá fleiri taékifæri til að leika í sókninni," sagði Geir. Nú eru Qórar umferðir eftir áður en úrslitakeppnin hefst. Barcelona er í efsta sæti með 17 stig, vann Granollers í nágrannaslag um helg- ina, 22:13. Alzira er í fimmta sæti með 9 stig. Morgunblaðið/Bjami Ólafur Stefánsson, leikmaður Vals, tekinn föstum tökum í Mosfellsbænum á sunnudagskvöld. Ólafúr var besti maður Vals í leiknum. Létthjá meistur- um Vals ÍSLANDSMEISTARAR Vals voru fyrstir til að leggja Aftur- eldingu að velli f íþróttahúsinu að Varmá, þegar liðin mættust þar í fyrrakvöld. Valsmenn voru yfir nær allan leikinn og unnu verðskuldað með 29 mörkum gegn 24 mörkum heimamanna. Staðan í leikhléi var jöfn, 13:13. ivar Benediktsson skrifar Það setti nokkurt strik í reikn- inginn hjá Aftureldingú að Róbert Sighvatsson var meiddur og gat ekki leikið með nema rétt undir lok- in, en þá kom hann inná draghaltur og átti erfítt með að beita sér. Auk þess meiddist Ingi- mundur Helgason, leikstjórnandi, illa á ökkla í upphafi leiks og þurfti að fara á slysavarðsstofuna, en tal- ið er að hann sé með slitið liðband. Án þessara tveggja lykilmanna var. leikurinn erfíðari heimamönnum gegn hinu sterka liði Vals en ella hefði orðið. Valsmenn náðu fljótlega undir- tökunum í fyrri hálfleik og leiddu lengstum með þremur til fjórum mörkum. Sóknarleikur Afturelding- ar var lélegur í fyrri hálfleik, lítil ógnun og mikið um ónákvæmar sendingar, sem rötuðu oftar en ekki í hendur Valsmanna, sem nýttu sér það í hraðaaupphlaupum. Á síðustu fímm mínútum hálfleiksins tókst Aftureldingu samt að rétta stöðuna og jafnaði fyrir hlé. Áfturelding byrjaði seinni hálf- leik af nokkrum krafti og náði for- ystu, 15:14, en Valsmenn gáfu ekk- ert eftir og jöfnuðu og í framhaldi af því náðu þeir forystu, sem þeir létu ekki af hendi. Lokatölur 24:29 eins og fyrr greindi. Eins og að framan er sagt gat Afturelding ekki stillt upp sínu sterkasta liði. Kom það greinilega niður á sóknarleik liðsins, sem var lengstum slakur og handahófskend- ur. Gunnar Andrésson stóð uppúr og er óðum að nálgast sitt fyrra form. Þá er Jason Olafsson að ná sér á strik að nýju. í Valsliðinu var Ólafur Stefáns- son bestur. Hann skoraði nánast þegar honum sýndist og var sterkur í vöminni. Aðrir Valsmnenn voru nokkuð jafnir. Víkingar ekki í vand- ræðum með KA-menn Frestun bikarúrslitaleiksins ekki slæm tyrir KA JAFNRÆÐI var með Magnúsi Inga Stefánssyni og Sigmari Þresti Óskarssyni, markvörðum Víkings og KA, og Valdimar Grímsson var jafnoki tveggja, en að öðru leyti höfðu Víkingar yfirburði á öllum sviðum íviðureign liðanna á laugardag. Engu að síður gáfust gestirnir ekki upp og Víkingar þurftu að hafa þó nokkuð fyrir fjögurra marka sigri, 26:22, en þeir voru þremur mörkum yfir íhálfleik, 15:12. Jafnt var á nánast öllum tölum í fyrri hálfleik. Framan af höfðu KA-menn frumkvæðið, en um miðjan hálfleikinn tóku Víkingar ■■■ við stjórninni og Steinþór héldu henni það Guöbjartsson sem eff;r var. þejr luku hálfleiknum á sannfærandi hátt og eftir ámóta byijun í upphafi seinni hálfleiks var ljóst hvert stefndi. Árni Friðleifsson, sem hefur sjaldan leikið betur en í vetur, meiddist fyrir leikinn gegn Val og verður ekki með næstu tvær vik- urnar að eigin sögn, en breiddin er til staðar í Víkingshópnum og samstillt lið hélt merkinu á lofti. Magnús Ingi var maður leiksins, varði mjög vel og gerði eitt mark — skaut marka á milli yfír Sigmar Þröst og í netið. Slavisa Cvijovie lék einn besta leik sinn, mataði samherjana óspart og gerði fjögur góð mörk. Gunnar Gunnarsson sýndi stjórnunarhæfileikana og mörk hans voru svo sannarlega fyrir augað. Bjarki Sigurðsson og Friðleifur Friðleifsson gerðu góða hluti og Birgir Sigurðsson var sterkur að_ vanda á línunni, en Kristján Ágústsson var veiki hlekkurinn í vinstra hominu. KA getur þakkað fyrir að þurfa ekki að leika bikarúrslitaleikinn um næstu helgi eins og gert var ráð fyrir og félagið lagði áherslu á. Með leik eins og þessum er liðið engan veginn tilbúið í stórátök. Sigmar Þröstur hélt því á floti með góðri markvörslu og þrátt fyrir slaka nýtingu skoraði Valdimar grimmt, en aðrir voru eins og til uppfyllingar nema Helgi Arason, sem lék vel í fyrri hálfleik. Alfreð Gíslason, þjálfari og einn af burða- rásum liðsins, var sprautaður fyrir leik vegna meiðsla í hné, sem háði honum eflaust, en að auki virkaði hann þungur og óþolinmóður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.