Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 B 5 í hólasvigi fA þurfakepp- enduraó fara tvær umferöir niöur brekkuna i (brautina) með snöggum ^ \ beygjum og stökkum á sem \ skemmstum tima. Sá sem \ nær bestum árangri A W samanlagt úr báöum £ umferðum er sigur- ™ vegari. „Back Scratcher’ .Helicopter' Dómarar ogtíma- veróir HOLASVIG (MOGULS VETRAROLYMPIULEIKARNIR I LILLEHAMMER Reuter Manuela Dl Centa frá Ítalíu, í miðjunni, með gullpeninginn um hálsinn. Til vinstri er Lyubov Egerova með silfrið og hægra megin bronsverðlaunahaf- inn Nina Gavriluk. Þær eru báðar rússneskar. Manuela Di Centa fékk fyrsta gullið ÚRSLIT ÍTALSKA stúlkan Manuela Di Centa sigraði í fyrstu greininni, 15 km göngu með frjálsri að- ferð, á Vetrarólympíuleikunum í Lillehammer í Noregi. Di Centa, sem er 31 s árs, byrjaði af miklum krafti og hélt foryst- unni allan tímann, en Lyubov Egerova frá Rússlandi, sem átti titil að verja, varð að sætta sig við silfrið. Sigurvegarinn fékk bronsverð- láun í boðgöngu fyrir tveimur árum, en bætti nú gulli í safnið, þegar hún fór vegalengdina á 39.44,5 mínútum. Það var kærkomið enda keppir Di Centa á ijórðu og síðustu Olympíuleikum sínum. „Að- stæðurnar hentuðu mér mjög vel og ég fann strax að þetta var minn dagur. Ég náði strax réttum hraða og eftir tvo kílómetra fannst mér ég vera að fljúga í burtu. Og ég hélt fluginu til loka.“ Di Centa hefur verið talin sigur- strangleg í 30 km göngu með hefð- bundinni aðferð og hún ætlar að standa undir nafni. „Að þessu sinni sýndi ég hvað ég get og ég ætla að sýna að ég er enn betri í 30 kíló- metra göngu.“ Egerova, sem sigraði í þremur greinum og fékk tvenn silfurverð- laun í Albertville, sagðist aldrei hafa átt möguleika, en hún fékk tímann 41.03,0. „Mér fannst ég hafa misst af lestinni þegar í byijun. Þetta var hennar dagur.“ Nina Gavriluk frá Rússlandi var þriðja á 41.10,4. Þetta voru fyrstu verðlaun hennar á Ólympíuleikum, en hún vildi ekki keppa í þessari grein — hljóp í skarðið fyrir Nataliu Martinovu á síðustu stundu. Di Centa er önnur ítalska konan til að sigra í göngu á Vetrarólymp- íuleikum,' en Stefania Belmondo fékk gull fyrir tveimur árum. „Það er ólýsanlegt að vinna til gullverð- launa,“ sagði Di Centa. „Ég trúði því ekki fyrr en ég stóð á verðlauna- pallinum.” Sigurinn var ekki síst sætur vegna þess að fyrir 10 árum hætti hún vegna ósamkomulags við ítalska skíðasambandið. Hún hélt sig við fijálsíþróttir í þijú ár, en aðstæð- ur breyttust og því tók hún upp fyrri íþrótt, en enn andar köldu á milli hennar og Belmondo. „Sjálfstraustið hefur ávallt verið í lagi og ég hef lagt áherslu á það að vera ánægð. Það er mikilvægt að brosa, þegar hlutirnir ganga ekki upp rétt eins og þegar allt gengur í haginn. Það er dásamlegt að hafa sigrað, en gullið er sem yfirborð kökunnar. Erfiðast er að gera hana sem best úr garði, en um það snýst líf íþrótta- rnannsins," sagði Di Centa og bætti við: „Mér finnst ég vera yngri en fyrir 10 árum.“ 30 km ganga karla (frjáls aðferð): Thomas Alsgaard (Noregi)........1:12.26,4' Bjöm Dæhlie (Noregi)............1:13.13)6 Mika Myllylae (Finnlandi).......1:14.14,0 Mikhail Botvinov (Rússlandi) ....1:14.43,8 V Maurilio De Zolt (Italíu)......1:14.55,5 §1J ari Isometsae(Finnlandi).....1:15.12,5 'flSilvio Fauner (Italíu).......1:15.27,7 IfEgil Kristiansen (Noregi).....1:15.37,7 /f.Johann Muehlegg(Þýskal)......1:15.42,8 II Vladimir Smirnov (Kasakst.)....1:16.01,8 II Jari Raesaenen (Finnlandi)....1:16.10,7 I Henrik Forsberg (Svíþjóð)......1:16.10,8 9 Jukka Hartoneri (Btnnlandi)....1:16.18,7 I Giorgio Vanzetta (Ítalíu)......1:16.35,2 I Gianfranco Polvara (Ítalíu)....1:17.04,9 | Elmo Kassin (Eistlandi)........1:17.37,7 Jiri Teply (Tékklandi)..........1:17.37,8 Kristen Skjeldal (Noregi).......1:17.48,3 Mitsuo Horigome (Japan).........1:17.49,4 Hiroyuki Imai (Japan)...........1:18.03,7 Markus Hasler (Liechtenstein) ....1:18.18,7 Anders Bergstroem (Svíþjóð).....1:18.22,2 Mathias Fredriksson (Svíþjóð)...1:18.34,5 Torgny Mogren (Svíþjóð)..........1:18.41,3 Pavel Benc (Tékklandi)..........1:18.49,5 Igor Badamchin (Rússlandi).......1:18.49,9 V. Plaksunov (H-Rússlandi).......1:18.57,7 Gennady Lazutin (Rússlandi).....1:19.15,0 Alexei Prokurorov (Rússlandi)...1:19.15,3 Jordi Ribo (Spáni)...............1:19.33,8 Juan Jesus Gutierrez (Spáni).....1:19.47,3 Victor Kamotski (H-Rússlandi)....l: 19.47,7 Cedric V allet (Frakklandi)......1:19.49,7 J anko Neuber (Þýskalandi).......1:19.57,5 Ondrej Valenta (Tékklandi)......1:20.04,1 Peter Schlickenrieder (Þýskal.).... 1:20.08,8 Luke Bodensteiner (Bandar.)......1:20.13,0 S. Dolidowitsch (H-Rússlandi)...1:20.36,5 39. Daníel Jakobsson.............1:20.43,5 40. Kazunari Sasaki (Japan)..... 1:20.52,1 ■Rögnvaldur Ingþórsson frá Akureyri varð I 68. sæti á tímanum 1:27.45,8 en 74 kepp- endur hófu keppni. 15 km ganga kvenna (frjáls aðferð): Manuela Di Centa (Italíu)............39.44,5 Lyubov Egorova (Rússlandi)...........41.03,0 Nina Gavriluk (Rússlandi)............41.10,4 Stefania Belmondo (Ítalíu)...........41.33,6 Larissa Lazutina (Rússlandi).........41.57,6 Yelena Vialbe (Rússlandi)............42.26,6 Antonina Ordina (Svíþjóð)............42.29,1 Alzbeta Havrancikova (Slóvakíu).42.34,4 Brun karla: Lengd brautar: 3.035 m. Fallhæð: 800 m. Tommy Moe (Bandarikjunum)..........1.45,75 Kjetil Andre Aamodt (Noregi)......1:45.79 Edward Podivinsky (Kanada)........1:45.87 Patrick Ortlieb (Austurríki)......1:46.01 Marc Girardelii (Lúxemborg).......1:46.09 Nicolas Burtin (Frakklandi).......1:46.22 Hannes Trinkl (Austurríki)........1:46.22 Luc Alphand (Frakklandi)..........1:46.25 5.000 m skautahlaup karla: Johann Olav Koss (Noregi)..........6.34,96 ■Heimsmet. Kjell Storelid (Noregi)............6.42,68 Rintje Ritsma (Hollandi)...........6.43,94 Falko Zandstra (Hollandi)..........6.44,58 Bart Veldkamp (Hollandi)...........6.49,00 Toshihiko Itokawa (Japan)..........6.49,36 Jaromir Radke (Póllandi)...........6.50,40 Frank Dittrich (Þýskalandi)........6.52,27 Twlster" HÓLASVIGSBRAUTIN Kanthaugen, Lillehammer Rásmark: 466mj Hndamark: 368m Fallhæð: 98mj Halli: 26° Lengd: 223mj Breidd: 32m HÓLASVIG „Spread Eagle" -4,1°C/-10,8°C| 55cm Vindhraði: 1,4m/s (meöalvlndhr.) i 15. febrúar Karlar/konur 16. febrúar Karlar/konur (úrslit) STIGAGJÖF Tækni 50% Stökk 25% Hraöi 25% Johann Olav Koss bætti eigið heimsmet JOHANN Olav Koss frá Noregi bætti eigið heimsmet í 5.000 m skautahlaupi, þegar hann fékk tímann 6.34,96 mínútur og tryggði Noregi fyrstu gullverð- launin á Vetrarólympíuleikun- um. Fyrra met hans var 6.35,53 á sama velli í Hamar f rá þvt í desember. Metið virtist ekki I hættu, en Koss jók hraðann síðustu þrjá hringina, ákaft studdur af 10.600 áhorfendum, þ.á.m. Haraldi konungi og Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra. „Ég gerði mitt besta,“ sagði sig- urvegarinn. „Þetta er ótrúlegt. — þetta var besta keppni mín til þessa. Ég byrjaði hægar en þegar ég setti metið í desember, en átti miklu meira eftir í lokin.“ Koss hefur ekki staðið undir væntingum að undanförnu og héldu rnargir að liann liefði „toppað“ of snemma, en hann þakkaði áhorfendum stuðn- inginn. „Ég var ekki undir miklu álagi vegna þess hvað mér hefur gengið illa síðustu vikurnar, en ég vildi ná góðum hraða og hef ekki verið svona fljótur síðan ég setti Rcuter Koss sá besti JOHAN Olav Koss skautaði glæsilega er hann tryggði sér gullverðlaun og bætti heimsmet. Á myndinni til hægi’a fagnar hann metinu, og hér að ofan er hann með verðlaun sín, fyrir miðju. Til vinstri er landi hans Kjell Storelid með silfrið og hægra megin Hollendingurinn Rintje Ritsma með bronsið. heimsmetið. Þetta var frábætt — það besta sem hefur lient mig.“ Kjell Storelid, 24 ára landi hans, nældi sér í silfrið. „Ég átti ekki von á að ná öðru sætinu, en Boss er bestur, hann er bossinn. Hollendingurinn. Rintje Ritsnia varð þriðji á 6.43,94 mínútum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.