Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
VETRAROLYMPIULEIKARNIR I LILLEHAMMER
Krónprinsinn Alsgaard ýtti kónginum Birni Dæhlie úr sessi með ótrúlega auðveldum sigri í 30 k
URSLIT
Íshokkí
A-riðill:
Finnland - Tékkland.................3:1
Timo Jutila (05.05), Janne Ojanen (07.34),
Sami Kapanen (34.32) - Kamil Kastak
(17.26).
Rússland - Noregur..................5:1
Ravil Gusmanov (00.23), Sergei Berezin
(03.27), Andrei Tarassenko (23.47), Valery
Karpov (52.36), Sergei Sorokin (54.39) -
Marius Rath (18.19).
Þýskaland - Austurríki..............4:3
Stefan Ustorf (04.24), Wolfgang Kummer
(49.57), Benoit Doucet (50.19), Thomas
Brandl (56.19) - Gerhard Puschnik (13.50),
Marty Dallman (42.02), Kenneth Strong
(57.31).
Þýskaland - Noregur.................2:1
Dieter Hegen (12:48), Leo Stefan (24:49)
- Ole Eskild Dahlström (37:22).
Tékkland — Austurríki...............7:3
Finnland — Rússland.......
B-riðiIl:
Svíþjóð - Slóvakía.........
Haakan Loob (07.42), Patrik Juhlin (12.14),
Roger Hansson (46.39), Kenny Jönsson
(48.57) - Branislav Janos (11.51), Miroslav
Satan (20.11), Peter Stastny (23.29), Ro-
man Kontsek (54.12).
Kanada - Ítalía.....................7:2
Bandarikin - Frakkland..............4:4
Parakeppni á skautum
Tækniæfingar (fyrri dagur);
E. Gordeeva/S. Grinkov (Rússl.)..0.5
N. Mishkutienok/A. Dmitriev (Rússl.) ...1.0
I. Brasseur/Lloyd Eisler (Kanada).1.5
E. Shishkova/V. Naumov (Rússlandi) ....2.0
R. Kovarikova/R. Novotny (Tékklandi) ..2.5
■Tækniæfingar gilda 1/3, en keppninni
lýkur með frjálsum æfingum í dag.
Sleðakeppni
einstaklinga
GeorgHackl (Þýskalandi).....3:21.571
Markus Prock (Austurríki)..3:21.584
Armin Zoeggeler (Italiu)....3:21.833
Arnold Huber (Ítalíu).......3:22.418
Wendel Suckow (Bandaríkjunum) ..3:22.424
500 metra skautahlaup
Úrslit:
Alexander Goubev (Rússlandi)...36,33
Sergej Klevtsjenya (Rússlandi).36,39
Manabu Horii (Japan)...........36,53
Liu Hongbo (Kína)..............36,54
Hiroyasu Shimizu (Japan).......36,60
Junichi Inoue (Japan)..........36,63
Grunde Njoes (Noregi)..........36,66
Dan Jansen (Bandar.)..........36,68,
IVIáði markmiðinu
- sagði Daníel sem hafnaði í 38. sæti
í 30 km göngu. Rögnvaldurí 67. sæti
„ÉG er þokkalega ánægður með sætið. Markmiðið var að
vera innan við fjörutíu og það náðist," sagði Daniel Jakobs-
son frá ísaf irði sem hafnaði í 38. sæti í 30 km göngu á Ólymp-
íuleikunum í Liilehammer í gær. Rögnvaldur Ingþórsson frá
Akureyri náði sér ekki eins vel á strik og varð í 67. sæti af
72 keppendum sem komust í mark.
Daníel gekk 30 kílómetrana á
1:20.43,5 klukkstundum.
Hann var 8,17 mínútum á eftir
sigurvegaranum. Rögnvaldur Ing-
þórsson fékk tímann 1:27.48,8
klst. og var rúmlega sjö mínútum
á eftir Daníel.
Daníel sagði að þó svo að hann
væri ánægður með sætið, hefði
gangan ekki verið eins og hann
hefði óskað sér. „Ég var ekki með
nægilega góð skíði; rennslið var
ekki nógu gott, og eins hafði kuld-
inn sitt að segja eins og reyndar
hjá hinum keppendunum. Það
hefði átt að fresta göngunni um
einn til tvo klukkutíma vegna
frostsins, en sjónvarpið fékk víst
að ráða. Ég var svolítið stífur í
fyrri hring — var lengi í gang.
Svona eftir á að hyggja held ég
að ég hefði getað gert betur,“
sagði Daníel.
Hann sagði að það hafí verið
rosalega mikil stemmning á meðal
áhorfenda. „Ég hef aldrei upplifað
annað eins. Það var fólk við braut-
ina nánast allan hringinn og hvatti
okkur áfram,“ sagði Daníel sem
keppti í fyrsta sinn á Ólympíuleik-
um. Hann sagðist bjartsýnn á
framhaldið og stefndi að því að
bæta sig enn frekar.
Rögnvaldur var nokkuð frá sínu
besta og sagði Daníel að hann
gæti miklu meira en hann sýndi
í gær. Ekki náðist i Rögnvald í
gærkvöldi.
Björn Dæhlfe, sem oft hefur verið nefndur konungur skíðagöngunnar í Noregi, heldur
George Hackl á spjöld Ólympíusö
George Hackl frá Þýskalandi braut
blað í sögu Ólympíuleikanna í
gær er hann varð fyrstur til að veija
ólympíutitilinn í sleðakeppni einstakl-
inga. Munurinn á Hackl og Austurrík-
ismanninum Prock, sem varð annar,
var aðeins 13 hundruðustu hlutar úr
sekúndu eftir íjórar umferðjr.
Hackl, sem varð annar á ÓL í Calg-
ary, er sigursælasti sleðamaður í ein-
staklingskeppni í sögu leikanna. Það
er aðeins Thomas Köhler, fyrrum A-
Þjóðverji, sem getur státað af svip-
uðum árangri, en hann vann gullverð-
laun á leikunum 1964 og ’68 en á
síðari leikunum vann hann í keppni á
tveggja manna sleðum.
Kjus með vænlega stöðu
Lasse Kjus, norski heimsmeistarinn í
tvíkeppni, náði besta tímanum í tví-
keppnisbruninu í gær. Bandaríkja-
menn komu í næstu tveimur sætum;
Kyle Rasmussen og nýkrýndur ólymp-
íumeistari Tommy Moe í þriðja sæti.
Kjetil Andre Aamodt á einnig góða
möguleika í tvíkeppninni því hann
varð í sjötta sæti í gær, 0,54 sek. á
eftir Kjus. Marc Girardell frá Lúxem-
borg varð sjöundi í gær, en hann hef-
ur ekki náð sér á strik í svigi í vetur
og því ekki hægt að búast við miklu
af honum í tvíkeppninni.
Óheppnin eltir Jansen
Það er óhætt að fullyrða að lánið
leiki ekki við bandaríska heimsmet-
hafann Dan Jansen á Ólympíuleikum.
Hann tók nú þátt í fjórðu leikunum í
röð og enn er hann án verðlauna i
skautahlaupi. Jansen sem er 27 ára
og setti heimsmet í 500 metra skauta-
hlaupi í höllinni í Hamri á HM fyrir
hálfum mánuði var næstum dottinn á
endasprettinum í gær — rann til í síð-
ustu beygjunni og það var til þess að
náði aðeins 8. sæti eftir að hafa vérið
með næst besta millitímann.
Þennan sama dag, 14. febrúar, fyr-
ir sex árum datt hann í 500 m hlaupi
á ÓL í Calgary, en rétt fyrir hlaupið
frétti hann að systir hans hefði látist
úr hvítblæði. Hann datt einnig í 1.000
m hlaupinu á sömu leikum. A leikun-
um í Albertville fyrir tveimur árum
náði hann sér ekki á strik og varð
- sagði Björn Dæhlie, sem varð að sætta sig við annað sæti
THOMAS Alsgaard, sem hefur gengið undir nafninu krónprins
skíðagöngunnar í Noregi eftir að hann varð þrefaldur heimsmeist-
ari unglinga fyrir þremur árum, stal senunni í 30 km göngu karla
á Ólympíuleikunum í Lillehammer í gær. Hann ýtti m.a. landa sín-
um, Birni Dæhlie, konungi göngunnar, aftur fyrir sig. Alsgaard
hafði ótrúlega yfirburði og þeir 30 þúsund áhorfendur sem mættu
til að fagna norskum sigri, áttu varla orð til að lýsa hrifningu sinni
á þessum unga Norðamanni sem blés varla úr nös þegar hann
kom í markið. Mika Myllylae frá Finnlandi varð þriðji, mínútu á
eftirDæhlie
Alsgaard er aðeins 22ja ára og
er á fyrsta ári í A-landsliði
Norðmanna. Hann varð þrefaldur
heimsmeistari unglinga 1991 og eft-
ir það nefndur krónprinsinn. Það
bjuggust þó fæstir við að hann væri
tilbúinn á þessum leikum og hvað
þá að vinna helstu skíðastjörnu
Norðmanna, Björn Dæhlie, sem varð
þrefaldur ólympíumeistari á síðustu
leikum.
Alsgaard tók snemma forystuna
og þó að Dæhlie reyndi allt sem
hann gat dugði það ekki gegn þess-
um unga kappa, sem sýndi ótrúlega
yfirburði — taktfastur alia leiðina
og blés varla úr nös þegar hann
skautaði léttilega í markið eftir 30
kílómetra. „Ég fann mig mjög vel
alla leiðina — virkaði ótrúiega frísk-
ur,“ sagði Alsgaard, sem hafði best
náð 4. sæti í heimsbikarmóti í vetur.
Aisgaard sagðist hafa verið
hræddur um að hafa farið of hratt
af stað þegar hann kom inná Birke-
beiner-leikvanginn eftir fyrri hring-
inn (15 km). „Ég var svolítið smeyk-
ur, hélt ég hefði farið of hratt fyrri
hringinn. Ég var taugaóstyrkur að
vita það eitt að ég væri með betri
millitíma en Dæhlie. En það var frá-
bær tilfinning að sigra,“ sagði
Ólympíumeistarinn.
Dæhlie, heimsmeistari í greininni,
var talinn sigurstranglegastur fyrir
keppnina. En þó svo að hann næði
mjög góðum tíma átti hann aldrei
möguleika á gullverðlaununum. Þau
voru frátekin fyrir hinn stóra og
stæðilega Norðmann sem var 47
sekúndum á undan. „Þetta var hreint
frábær ganga hjá Thomasi,” sagði
Dæhlie. „Þetta var ein besta gangan
mín á ferlinum, en það var ekki
möguleiki að sigra hann í dag, svo
ég get ekki annað en verið ánægður
með silfurverðlaunin."
Finninn Mika Myllylae varð þriðji
og varð þar með fyrstur Finna til
að vinna til verðlauna í göngu karla
á Ólympíuleikum síðan 1984.
Vladimir Smirnov frá Kasakstan,
sem hefur unnið fimm af sex heims-
bikarmótum vetrarins, náði sér ekki
á strik og varð að sætta sig við 10.
sætið, þremur og hálfri mínútu á
eftir Norðmanninum unga.
Norðmenn geta vel við unað, gull
og silfur í fyrstu göngugrein karia
á leikunum. Þegar Alsgaard og
Dæhlie tóku við verðlaunum sínum
sungu norskir áhofendur “Siern er
Vár“ — sigurinn er okkar, og það
átti svo sannarlega við.
Mjög kalt var er gangan hófst.
Lengi leit út fyrir að fresta þyrfti
keppni vegna kulda því 28 stiga frost
var aðei.ns þremur klukkstundum
fyrir keppni. En klukkutíma fyrir
start hafði hlýnað og ákveðið var
að keppnin færi fram.
Ein besta gangan mín
á ferlinum, en ég átti
samt ekki möguleika