Morgunblaðið - 15.02.1994, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
B 7
m göngunni ígær
hér á krónprinsinum, Thomasi Alsgaard.
gunnar
ad sætta sig við fjórða sætið eins í
Sarajevo 1984. Eini möguleiki Banda-
ríkjamannsins á ÓL-verðlaunum er í
1.000 m hlaupinu á föstudag.
Rússar fögnuðu tvöföldum sigri í
gær. Alexander Golubev varð fyrstur
á nýju ólympíumeti, 35,76 sek. og
Sergej Klevtsjenya í öðru sæti.
Manabu Horti frá Japan nældi sér í
bronsið. Þjálfari Rússa sagði eftir
hlaupið: „Eg get ekki annað en vor-
kennt Jansen. Hann er bestur en get-
ur samt ekki unnið til verðlauna á
Ólympíuleikum."
Hættið að berjast,
hættið að drepa,
leggjið niður vopnin
- sagði Samaranch, forseti IOC og beindi orðum sínum til Sarajevo
SAUTJÁNDU vetrarólympíu-
leikarnir voru settir í Lilleham-
mer í Noregi á laugardag að
viðstöddum 40.000 áhorfend-
um. Dagskráin tók mið af
norsku þjóðlífi og á skemmti-
legan hátt var tekið á baráttu
Norðmanna í gegnum aldirnar
við móður náttúru. Hápunktur
athafnarinnar var þegar Stein
Gruben stökk með eldinn af
120 m háum skíðastökkspallin-
um skömmu eftir að Haraldur
konungur hafði sett leikana,
en áhrifaríkust voru orð Juans
Antonios Samaranch, forseta
Alþjóða ólympíunefndarinnar,
sem bað um stutta þögn til að
vekja athygli á ástandinu í
Sarajevo, þar sem leikarnir
voru haldnir fyrir 10 árum.
Hann beindi orðum sínum til
stríðandi afla: „Hættið að berj-
ast, hættið að drepa, leggjið
niður vopnin."
Hátíðin stóð yfir í tvær stundir
og létu viðstaddir kuldann
ekki á sig fá. Tveir fallhlífastök-
kvarar svifu úr háloftunum með
norska fánann og Thor Heyerdahl
og Liv Ullman buðu viðstadda vel-
komna. Heyerdahl minnti á að þetta
væri í annað sinn, sem Norðmenn
héldu Vetrarólympíuleika, en þeir
voru í Osló 1952. Leikkonan árétt-
aði samþykkt Sameinuðu þjóðanna
um að 1994 væri ár íþróttanna.
Fólk væri samankomið í Lilleham-
mer til að kynnast og eignast nýja
vini, mikilvægast væri að vera með
en ekki að sigra.
Gerhard Heiberg, formaður
mótshaldara, tók undir orð forseta
IOC og sendi íbúum Sarajevo sam-
úðarkveðjur frá Lillehammer. Tæp-
lega 2.000 íþróttamönnum frá 69
þjóðum var vel fagnað, en á eftir
þeim komu 400 börn, dansarar í
þjóðbúningum og hestar með sleða.
Hátíðinni lauk með mikilli flugelda-
sýningu, en áður tendraði Hákon
krónprins ólympíueldinn, sem logar
til 27. febrúar.
Reuter
í minningu látinna í Sarajevo
HÁPUNKTUR setningarathafnarinnar á laugardag; risastór egglaga hnöttur birtist upp úr jörðinni, opnaðist, og út úr
honum svifu friðardúfur úr plasti til himins. Þær voru hugsaðar til að_ minnast á táknrænan hátt þeirra sem látist hafa
í Sarajevo, þar sem vetrarólympíuleikarnir fóru fram fyrir 10 árum. Á efri myndinni er Juan Antonio Samaranch, for-
seti alþjóða Ólympíunefndarinnar.
Samaranch farínn til Sarajevo
JUAN Antonio Samaranch, forseti alþjóða ólympíunefndarinn-
ar (IOC) hélt í gær frá Lillehammer í heimsókn til hinnar stríðs
hrjáðu Sarajevo, höfuðborgar Bosníu.
Vetrarólympíuleikarnir voru
haldnir í Sarajevo fyrir 10
árum. Tilgangur heimsóknarinnar
nú er að sýna samstöðu ólympíu-
hreyfingarinnar með íbúum borg-
arinnar, sem verið hefur umsetin
lengi, og ítreka enn beiðni IOC um
ólympíugrið — að allir stríðandi
aðilar í lýðveldum fyrrum Júgó-
slavíu leggi niður'vopn meðan á
leikunum í Lillehammer stendur.
Ekki er ljóst hvenær Samaranch
kemur til Sarajevo, og af öryggisá-
stæðum var ferðaáætlunin ekki
gefin upp, en vitað er að flogið var
í einkaþotu. Óstaðfestar fregnir
hermdu að hann hefði flogið til
Zurich í Sviss, færi þaðan til Split
í Króatíu og áfram til Sarajevo,
þangað sem hann væri væntanleg-
ur á morgun, miðvikudag.
Harding fær að taka þátt
TONYA Harding tekur þátt í listhlaupi á skautum á Olympíuleik-
unum f Lillehammer. Þetta varð Ijóst á laugardag, þegar banda-
ríska Ólympíunefndin ákvað að fresta frekari rannsókn á meintri
aðild hennar að árásinni á Nancy Kerrigan, félaga hennar í banda-
ríska landsliðinu.
Ráðist var á Kerrigan í Detroit
6. janúar sl., á æfingu fyrir
bandaríska meistaramótið, og hún
barin í annað hnéð með kúbeini.
Kerrigan gat ekki tekið þátt í mót-
inu. Harding sigraði og hlotnaðist
þannig réttur til keppni í Lille-
hammer, en síðar kom í ljós að
meðal þeirra fjögurra sem skipu-
lögðu árásina á Kerrigan voru fyrr-
um eiginmaður Harding og lífvörð-
ur hennar, og hafa þeir haldið því
fram að hún hafi verið með í ráð-
um. Því neitar Harding staðfastlega
og hefur ekki verið ákærð.
Bandaríska Ólympíunefndin
hafði ráðgert að fram færi sérstakt
réttarhald í málinu í Osló 18. febr-
úar, þar sem ákveðið yrði hvort
Harding fengi að keppa á leikunum
eða ekki. Harding höfðaði mál á
hendur nefndinni vegna þessa og
krafðist 25 milljóna dollara — and-
virði 1,8 milljarðs króna — í skaða-
bætur, auk þess sem hún reyndi
að fá lögbann sett á fyrirhugað
réttarhald í Osló. Á laugardag sætt-
ust forkólfar Ólympíunefndarinnar
á að fresta réttarhaldinu og Hard-
ing féll frá kröfum sínurn.
Listhlaupskeppni kvenna hefst
föstudaginn 23. febrúar. Harding
var sigui-viss þegar ljóst var að hún
fengi að keppa; sagðist nú fá tæki-
færi til að sýna_ umheiminum að
hún gæti unnið Ólympíugull. Talið
er að þær stúlkur sem berjist muni
um sigur verði, auk Harding og
Kerrigan, þær Surya Bonali frá
Frakklandi, Oskana Baiul frá Úkra-
ínu og kínverska stúlkan Chen Lu.
Reuter
Kerrigan hress
NANCY Kerrigan hefur æft í Lillehammer síðustu daga. Hér gantast hún við
þjálfara sína á sunnudaginn. Tilkynnt hefur verið að hún og Harding muni
æfa saman í skautahöllinni; þær neituðu báðar að æfa sitt í hvoru lagi.