Morgunblaðið - 09.04.1994, Side 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRlL 1994
SÝNING Á VERKUM OLAV CMRISTOPHER JENSSENS Í NORRÆNA HÚSINU
Fletir úr
margslungium
hugarfeeimi
í SÝNINGARSAL Norræna hússins stendur nú yfir sýning á teikning-
um og öðrum pappírsverkum eftir norska listamanninn Olav Christop-
her Jenssen. Fyrir utan að vera einkar forvitnilegur listamaður, þá
er hann ekki síst spennandi gestur hér, þar sem hann hefur sýnt á
sömu sýningum og í sömu galleríum og nokkrir tslenskir listamenn
á svipuðum aldri, til dæmis Georg Guðni og Helgi Þorgils Friðjóns-
son. Sýningín kemur hingað á vegum Norrænu listamiðstöðvarinnar
f Sveaborg í Finnlandi og listamaðurinn var viðstaddur opnunina um
síðustu helgi.
^^lav Christopher Jenssen er
fæddur í Sortlandi í Noregi
1954. Eftir að hafa stundað list-
nám í Ósló hélt hann til New
York og bjó þar og starfaði í nokk-
ur ár, en hefur búið í Berlín undan-
farin tíu ár. Hann segist firna hrif-
inn af borginni og kann vel við sig
meðal Þjóðverja, en kýs þó ekki
að búa í virðuglegu úthverfi með
þýskum nágrönnum, heldur býr
hann í Kreuzberg, sem er iðandi
kös innflytjenda, listamanna og
utangarðsmanna.
Undanfarin ár hefur Olav Chri-
stopher Jenssen sýnt víða á sam-
sýningum og einkasýningum. í
Stokkhólmi hefur hann sýnt hjá
Galleri Lars Bohman, en í sama
galleríi hafa verið þrjár sýningar á
verkum Georgs Guðna. A árunum
1991-1992 tók Olav Christopher
Jenssen þátt í norrænni farand-
sýning um Suður-Ameríku, en þar
var Helgi Þorgils einnig með og
það er víða sem leiðir þessara
listamanna hafa legið saman. Það
er ekkert sjálfgefið, segir Olav,
að það fari vel á með listamönn-
um, en í hópi þessara listamanna
kann hann vel við sig.
Verk eftir hann eru í eigu
ýmissa safna, svo sem í Nationa-
Igalleriet í Ósló, Malmö Konsthall
og Moderna Museet í Stokk-
hólmi, British Museum í London
og Kunstforeningen í Kaup-
mannahöfn, auk hins mikla og
merka nútímalistasafns sænska
safnarans Frederiks Roos, sem
nú er nýlátinn, en í eigu hans
voru einnig verk eftir íslenska
listamenn, bæði þá Georg Guðna
og Helga Þorgils, auk Sigurðar
Guðmundssonar, Hreins Friðf-
innssonar og fleiri. Verk Olavs eru
því ekki síst forvitnileg fyrir ís-
lenska myndlistaráhugamenn, því
þar eru á ferðinni verk listamanns
sem hreifist í svipuðum hópi og
ýmsir þeirra íslensku listamanna
af yngri kynslóðinni sem best
hefur gengið að koma verkum á
framfæri erlendis.
Olav Christopher Jenssen er
ekki síst þekktur fyrir stór og öflug
olíumálverk, en eins og margir
listamenn er hann síteiknandi,
auk þess sem hann vinnur með
krít og tússi og flestu sem festist
á pappír. Á sýningunni í Norræna
húsinu er afrakstur slíkrar vinnu,
ekki olíumálverk, en nokkrir flokk-
ar pappírsverka.
Myndirnar eru ekki hugsaðar
sem skissur að málverkum, held-
ur eru þær unnar sem sjálfstæð
verk. Olav segist alltaf vera að
og myndirnar koma gjarnan í kipp-
um, sem eiga þá eitthvað sameig-
inlegt, hvort sem er í formi eða
efni. Uppsetning myndanna er í
samræmi við þetta, þær eru sett-
ar upp í nokkrum samhangandi
seríum. Nokkrar myndanna líta
út eins og lítil málverk, en þarna
eru til dæmis einnig mjög forvitni-
legar myndir unnar á silkipappír
sem vaxi hefur að lokum verið
drepið yfir. Silkipappírinn annars
vegar og vaxið hins vegar gefur
myndunum bæði sérkennilega
áferð og útlit. Sýningin gefur því
forvitnileg innsýn inn í mynd- og
efnisheim listamannsins, sýnir
fleti bæði á mynd- og efnishugsun
hans.
Sigrún Davíðsdóttir.
Stuttmyndadagar
í Reykjavík
haldnir á Sólon
íslandos
DRÖFN FRIÐFINNSDÓTTIR OPNAR SÝNINGU í LISTASAFNI ASÍ
vlö Lerkílund ú Akurevrl.
DRÖFN Friðfinnsdóttir, mynd-
iistarkona frá Akureyri, opnar í
dag, laugardaginn 9. aprfl, ki.
15.00 grafiksýningu í Listasafni
ASÍ við Grensásveg 16a. Þetta
er sjötta einkasýning Drafnar en
hún hélt síðast einkasýningu i
Reykjavik fyrir tveimur árum.
^Esýningunni eru tuttugu og
** fjögur verk unnin í tréristu.
Stærð myndanna er frá 25X35
sentímetrar til 100X140 sentí-
metrar. Eintakafjöldi myndanna
er mismunandi eða frá einþrykki
til tíu eintaka. Öll eru verkin unnin
á árunum 1992 til 1994.
„Viðfangsefni mitt í þessum
myndum er í raun hvaðeina sem
á vegi mínum verður eða fyrir
augu ber, litbrigði náttúrunnar
hvort heldur er á himni eða jörðu
eða tilfinningar fólks," segir Dröfn
um verk sín. Síendurtekið sköp-
unarverk náttúrunnar er henni
umhugsunarefni, hin ótal litbrigði
vetrarnæturinnar, ^vartnættið og
tómið umhverfis jörðina.
„Sýningin er ef til vill ekki ein
samfelld saga heldur hefur hún
sín mörgu hliðarspor, óútskýran-
leg eins og svo margt í tilveru
okkar,“ segir Dröfn sem unnið
hefur af kappi við myndlistina allt
síðasta ár. Hún hætti í föstu starfi
síðastliðið vor til að geta helgað
sig myndlistinni og segir að það
hafi gefist vel. Síðustu tvö árin
hefur hún eingöngu unnið að trér-
istu og segir meira frjálsræði ríkja
við þá aðferð en í málverkinu sem
hún vann að áður — það komi
iðulega þægilega á óvart hvernig
til tekst með þrykkið.
Dröfn tók á síðasta ári þátt í
alþjóðlegri samsýningu í Slóvakíu
og ferðaðist um landið vítt og
breitt auk þess sem hún heim-
sótti Ungverjaland. „Það hefur
lengi verið gamall draumur að
fara til Prag og þegar ég fékk
þetta tækifæri upp í hendurnar
að vera með í þessari sýningu lét
ég verða af því að fara. Við
þrömmuðum milli sýninga og gall-
ería og heimsóttum listamenn í
þrjár vikur. Aðferðinni lokinni kom
maður endurnærður heim og það
má segja að ég sé enn að vinna
úr því sem fyrir augu bar — ég
er enn að nota þá krafta sem ég
spruttu fram í ferðinni," sagði
Dröfn.
Dröfn stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands árið
1963 og síðan við Myndlistaskól-
ann á Akureyri á árunum 1982 til
1986. Þá stundaði hún myndlist-
arnám við Listaskólann í Lathi í
Finnlandi á árinum 1987 til 1988.
Dröfn hefur tekið þátt í samsýn-
ingum hér heima og í Finnlandi,
Svíþjóð og Tékkóslóvakíu. Hún
hefur einnig haldið einkasýningar
heima og erlendis.
Sýningin í Listasafni ASÍ verður
opin daglega frá kl. 14 til 19 fram
til sunnudagsins 24. apríl næst-
komandi.
STUTTMYNDADAGAR í
Reykjavík 1994 verða haldnir
á Sólon íslandus 12., 13. og
14. aprfl. Dagskráin verður
nánar auglýst síðar en auk
stuttmyndasýninga verður
fjöldi fyririestra haldinn um
kvikmyndagerð og skyld mál-
efni.
♦
Jfehugi á stuttmyndagerð er
** mjög mikill og hefur fjöldi
mynda borist í keppnina og
verða þær frumsýndar á Stutt-
myndadögum. Verðlaun verða
veitt fyrir þrjár bestu myndirnar
að mati dómnefndar en hana
skipa: Friðrik Þór Friðriksson,
kvikmyndaleikstjóri sem jafn-
framt er formaður, Guðrún Erla
Geirsdóttir, myndlistarmaður,
fulltrúi Reykjavíkurborgar, og
Egill Helgason, kvikmynda-
gagnrýnandi. Peningaverðlaun
samtals að upphæð 350.000
kr. eru gefin af Reykjavíkurborg
og mun Árni Sigfússon, borgar-
stjóri, afhenda þau á lokakvöldi
Stuttmyndadaga 14. apríl.
Þeir sem standa að Stutt-
myndadögum 1994 eru: Kvik-
myndafélag íslands hf., Reykja-
víkurborg, SKL, Samband kvik-
myndaleikstjóra, Sjónvarpið,
innlend dagskrárdeild, og Kvik-
myndasjóður íslands.