Morgunblaðið - 16.04.1994, Síða 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1994
MENNING/
LISTIR
MYNDLIST
Norræna húsið
Olav Ch. Jensen og Bodil Kaalund
sýna til 17. apr.
Listasafn Islands
Verk Barböru Ámason til 8. maí.
Safn Ásgrims Jónssonar
Skólasýn. i 30 ár fram í maí.
Gerðuberg
Ósk Vilhjálmsd. sýnir til 24. apr.
Listasafn Sigurjóns
Hugmynd-Höggmynd til 1. maí.
Listasafn ASI
Dröfn Friðfinnsd. sýnir til 24. apr.
Gallerí Greip
Gunnar Magnússon sýnir til 4. maí
Gallerí Sævars Karls
Teikningar Gunnlaugs Blöndal til
21. apr.
Hafnarborg
Annette Ackermann, Jón Thor
Gíslason og Freydís Kristjánsd. sýna
til 2. maí.
Listhúsið Hafnarhúsinu
Kristín Blöndal og Ingibjörg
Hauksd. sýna til 1. maí.
Hallgrímskirlq'a
Haukur Halldór sýnir til 24. apr.
Gallerí Úmbra
Dominique Ambroise sýnir til 20.
apr.
Nýlistasafnið
Veggspjaldasýn. Guerilla Girls og
Haraldur Jónsson sýnir til 24. apr.
Portið
Samsýn. fimm listakvenna til 24.
apr.
Gallerí 11
Margrét Sveinsdóttir sýnir til 25.
apr.
Galleríið „Hjá þeim“
Soffía Sæmundsdóttir sýnir til 28.
apr.
Slunkariki ísaf.
Ólafur Már sýnir til 17. apr.
Eden Hveragerði
Bennó G. Ægisson sýnir til 1. maí.
TONLIST
Laugardagur 16. apríl
Léttsveit Tónmenntaskóla Reykja-
víkur í skólanum á Hvolsvelli kl. 15.
Kór Fjölbrautaskólans í Breiðholti í
Safnaðarheimili Landakirkju Vest-
mannaeyjum kl. 16. Kór Mennta-
skólans að Laugarvatni og Kór Fjöl-
brautaskóla Suðurlands í Selfoss-
kirkju kl. 17. Kórtónleikar í Árnesi
sameiginl. tónl. þriggja kóra kl. 21.
Lúðrasveitin Svanur á vortónleikum
í Seltjarnameskirkju kl. 14.
Sunnudagur 17. apríl
Kór Menntaskólans að Laugarvatni
og Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands
í Skálholtskirkju kl. 16. Tónlistar-
dagur í Perlunni dagskrá hefst kl.
13. Bamakór Bústaðakirkju heldur
tónleika í Bústaðakirkju kl. 17. Kór
Tónlistarskólans I Reykjavík í Laug-
arneskirkju kl. 20.30. Háskólakór-
inn í Seltjarnameskirkju kl. 20.30.
LEIKLIST
Borgarleikliúsið
Gleðigjafamir kl. 20; sun. 17. apr.,
mið., fös.
Eva Luna kl. 20; lau. 16. apr., fim.,
fós.
Þjóðleikhúsið
Gaukshreiðrið kl. 20; lau. 16. apr.,
fös., lau.
Gauragangur kl. 20; sun. 17. apr.,
mið., fim.
Blóðbrullaup kl. 20; þri. 19. apr.
Skilaboðaskjóðan sun. 17. apr. kl.
14., fim. kl. 14.
Listdansskóli íslands kl. 20; Nem-
endasýn. þri. 19. apr.
Leikfélag Akureyrar
Óperudraugurinn kl. 20.30; lau. 16.
apr., fös., lau.
BarParkl. 20.30; sun. 17. apr., mið.
Nemcndaleikhúsið
Sumargestir kl. 20; mán. 18. apr.,
mið.
KVIKMYNDIR
MÍR
Strákurinn Sidrov sun. 17. apr. kl.
16.
Norræna húsið
Kvikm. um Emil sun. 17. apr. kl. 14.
Umsjónarmenn listastofnana og
sýningarsala!
Upplýsingar um listviðburði sem
óskað er eftir að birtar verði í þess-
um dálki verða að hafa borist bréf-
lega fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, menn-
ing/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík.
Myndsendir: 91-691181.
„ÉG ER listmálari, segir Jón Þór Gfslason, „og skil ekki hvað hægt er
finna að því starfsheiti. Raunar hef ég alltaf verið útundan, ekki tekinn
í klíkuna, gert það sem hefur ekki þótt passa: Haldið mig við hefðbund-
ið máiverk, sótt í klassíska list, lagt mikið upp úr tækni. Metnaður lista-
manns á að ná lengra en í einhverja hugmynd. Hann þarf að hafa eitt-
hvað að segja.“
Jón Þór kemur
hingað frá
Þýskalandi með
málverk og hefur
meira að segja:
„Það er gott að fá
góðar hugmyndir,
til dæmis fyrir fjöl-
miðlafólk, en lista-
maður á að gera
meiri kröfur til
sjálfs sín. Ég hef
ætíð gert mér Ijóst
að árangur í mál-
verki byggist á
rosalegri djöfulsins
vinnu. Gefið lítið
fyrir þá viðteknu
tísku að myndlist-
armenn eigi að
vera rosa klárir,
víðlesnir, heim-
spekingar helst, en
alls ekki kunna vel til verka. Þessi
hugsun fæðir ekkert af sér lengur.
Hún er tómt rugl. Krafa um góða
myndlist er ekki krafa um gáfur og
þekkingu."
I dag verður opnuð í Hafnarborg
sýning á málverkum Jóns Þórs,
stórum mystískum myndum, marg-
ræðum. Á þeim er fólk, sérstaklega
konur, og englar, hanar, skápar,
gluggar. Fólkinu hefur fjölgað hjá
málaranum með
tímanum og birt
yfir litunum. í nýj-
ustu myndunum
eru þeir Ijósir og
svífandi. Þær eru
líka draum-
kenndar, þótt
fólkið hafi sömu
angistina í aug-
unum. Einmana
manneskjur með
ekkert haldreipi.
„Alveg eins og
við," segir Jón
Þór, „með
ógrynni upplýs-
inga um fortíð og
samtíð en enga
trú lengur. Ekk-
ert sem hjálpar
okkur að skilja og
vera þegar á
reynir. Týndum og ringluðum, í
óvissu um hvað sé undir yfirborð-
inu.“
Hið ósagða í málverkinu heillar
Jón Þór, „eins og f lífinu sjálfu,"
segir hann. „Það kemur vangavelt-
um af stað. Þess vegna er ekkert
síðra nú en fyrr að mála með olíulit-
um. Gildi þess hefur jafnvel aukist.
Málarar leita alltaf einingar í lit og
formi og leitin er ekkert einföld -
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Þór Gislason
við sjáum svo mikið af vondum
myndum þar sem óskráð lögmál
eru að engu höfð. Auðvitað eru þau
ekki endaleg, en hafa í sér blik af
tímanum með því góða og slæma
sem fram er fært. Vond mynd getur
komið einhverju af stað.
Þegar ég byrjaði í Myndlistaskól-
anum '77 var hugmyndalist mikið á
döfinni og málaradeildin í dauða-
teygjum útí horni. Dýrkun þess að
kunna ekki stóð sem hæst. Ný og
fersk var hún ekki vitlaus, ræturnar
í dadaisma í upphafi aldarinnar,
heilbrigðu frelsisópi eftir stranga
akademíu 19. aldar.
En uppbrot vara ekki að eilífu.
Nú er ekkert gaman lengur, fólk
skammað fyrir að gera vel og hrak-
ið í fræðibækur til að skilja hvers
vegna. Þá er komið aftur að punkt-
inum þar sem hefðin verður mikils
virði. Hugmyndakjaftæðið orðið
leiðinlegt.
Myndlist snýst ekki um nýja hug-
mynd, heldur að hafa eitthvað að
segja. Frásagnarmátinn galdur í lit,
formi og línu.“
Þ.Þ.
Vatnslitir
Annette Acker-
mann sýnir smá-
myndir unnar
með vatnslitum
í Sverrissal í
Hafnarborg.
Hún lýkur mynd-
listarnámi í
Þýskalandi í
sumar og kom
hingað fyrst fyrir
þrem árum. Þá
orkaði landslag-
ið og íslenskir
málarar eins og
Nína Tryggva-
dóttir sterkt á
hana. Þessa
gætir í myndun-
um. Þær eru
eins og myndir
Jóns Þórs svolít-
ið á skjön við
verk félaganna.
Hefðbundnari.
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari, og Snorri Sigfús Birgisson verða með
tónleika í íslensku óperunni á morgun, sunnudag. Tónleikarnir hefjast
klukkan 15.00 og á efnisskránni kennir margra grasa. Fyrsta verkið er
Paganini Capricciur. Þá leika þau Sigrún og Snorri Fjögur stykki eftir
Webern og Cesar Franck sónötuna. Eftir hlé er B-dúr sónata Mozarts
á efnisskránni, þá Meditation eftir Tsjækovskíj og að lokum Tzigano
eftir Ravel.
Tilefni tónleikanna er fyrst og
fremst það að ég er að búa
mig undir að fara í Tsjækovskíj-
keppnina í Moskvu núna í júní,"
segir Sigrún. „Nú, í öðru lagi, er
langt síðan ég hef haldið sólótón-
leika með píanista hér á landi —
eða þrjú ár. Ég bað Snorra að spila
með mér, en við höfum ekki spilað
saman í tíu ár. Það var í nóvember
1984, þegar ég útskrifaðist úr tón-
listarskólanum. Þá lékum við ein-
mitt saman Tzigano.
Tónleikarnir eru tileinkaðir vini
mínum, Malcolm Sadler. Hann var
enskur og safnaði fiðlum. Hann
vann í fiðlubúðinni þar sem ég fann
fiðluna mína. Við urðum miklir vinir
og hann var eins og afi minn. Hann
lést því miður í nóvember síðast-
liðnum.
Ég ætlaði að spila í jarðarförinni
hans en það var ekki hægt að koma
því við. Aðstandendur hans báðu
mig þá að tileinka honum eitt verk
Sigrún Eövaldsdótt-
ir leikur á tónleik-
um i íslensku óper-
unni á sunnudag
ásamt Snorra Sig-
fúsi Birgissyni. Hún
tekur þátt i
Tsjæjkovskij-
keppninni i Moslcvu
i sumar
á næstu tónleikum sem ég héldi.
Hann var hins vegar svo æðislegur
maður að ég ákvað að tileinka hon-
um alla tónleikana."
Hvað kom til að þú ákvaðst að
taka þátt í Tsjækovskíj-keppninni
núna?
„Ég tek örugglega ekki þátt í
henni eftir fjögur ár. Þá verð ég
Snorri Sigfús Birgisson og Sigrún Eóvaldsdóttir
hætt öllum keppnum, en núna hef
ég tíma til þess og finn að ég er
tilbúin. Ég hef líka verið heppin með
það hvernig hefur unnist úr tíma
mínum í vetur. Ef ég kemst í úrslit
þarf ég að spila Fiðlukonsert
Tsjækovskíjs og það vill svo til að
ég hef spilað hann þrisvar í vetur,
á skólatónleikum með Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Þannig að ég
þekki hann orðið vel.“
Sigrún hefur dvalið mikið hér á
landi í vetur, þótt hún hafi leikið
mikið erlendis. „Þetta var árið sem
ég átti heima á íslandi," segir hún.
„Eg er núna að skipta um umboðs-
mann erlendis og vona að ég fái
fleiri tækifæri en hingað til. Sú sem
ég hafði var mjög indæl manneskja,
en ekki nógu dugleg við að koma
mér á framfæri. Mér fannst þetta
ekki orðið nógu gott, því ég er svo
tilbúin núna og vil nota næstu árin
vel.
Píanóleikarann, Snorra Sigfús
Birgisson, þarf vart að kynna. Hann
hefur leikið með fjölmörgum ís-
lenskum tónlistarmönnum, er fast-
ur meðlimur í Kaldalónstríóinu og
kennir íTónlistarskólanum í Reykja-
vík. Auk þess semur hann töluvert
af tónlist, svo segja má að hann sé
í þreföldu starfi — eða eins og hann
orðar það sjálfur: „Það má í raun-
inni segja að ég geri aðeins of mik-
ið." Svo hefur hann ekki fleiri orð
um það.
En hvernig völdu þau verkin fyrir
tónleikana?
„Flest af þessum verkum á ég
að spila í keppninni í Moskvu," seg-
ir Sigrún, „nema Webern og Ravel.
Við bættum þeim við, því þetta eru
svo mögnuð verk. Ravel höfum við
ekki leikið saman í tíu ár og það
hefur verið mjög gaman að æfa það
aftur saman."
Flvenær var ákveðið að þú kæm-
ist í Tsjækovskíj-keppnina?
„Ég fékk að vita að ég hefði kom-
ist inn inn á Þorláksmessu. Þá valdi
ég prógram úr þeim verkum sem
ég hafði verið að æfa og mig hafði
grunað að yrðu lögð upp í keppn-
inni. Maður reynir að sjá það fyrir.
Síðan hef ég mikið æft mig að spila
á tónleikum, fyrir fólk. Það er rosa-
lega góð æfing. Síðan langar mig
að komast til Vamos-hjónanna í
Bandaríkjunum, sem eru miklir vinir
mínir, með þetta prógram og njóta
leiðsagnar þeirra áður en ég fer í
keppnina. Það er allt útlit fyrir að
ég fari til þeirra í maí.“ ssv
I